Morgunblaðið - 21.07.1992, Side 1
80 SIÐUR B/C
11
STOFNAÐ 1913
163. tbl. 80. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 21. JULI 1992
Prentsmiðja Morgunblaðsins
_ *
Yitzhak Rabin forsætisráðherra Israels:
Egyptar hafi
milligöngu um
friðarviðræður
Jerúsalcm, Kairó, Damaskus. Reuter.
YITZHAK Rabin, forsætísráðherra Israels, er væntanlegur til Kaíró
í dag og mun eiga viðræður við Hosni Mubarak, forseta Egypta-
lands. Þetta verður fyrsti fundur leiðtoga rikjanna i sex ár, en Egypt-
ar, eina arabaþjóðin sem samið hefur frið við Israel, hafa neitað
að koma á vinsamlegri tengslum og viðskiptum fyrr en lausn finnst
á ágreiningi ísraela við önnur nágrannaríki og Palestínumenn. Ja-
mes Baker, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, gaf í skyn í gær að
friðarhorfur hefðu vænkast.
Rabin vill að Egyptar hafí milli-
göngu um frekari undirbúningsvið-
ræður milli ísraela og nágrannaríkj-
anna, en næsti fundur deiluaðila
Reuter.
Hermenn standa vörð fyrir utan
Uccardione-virki í Palermo,
öflugasta fangelsi borgarinnar.
Tilræði
áSikiley
Palermo. Reuter.
ÍTALIR eru slegnir óhug í kjölfar
þess að saksóknarinn Paolo Bors-
ellino fórst ásamt fimm lífvörðum
í sprengjutilræði sem talið er full-
víst að mafian hafi staðið fyrir.
Aðeins tveir mánuðir eru síðan annar
saksóknari sem einnig einbeitti sér
gegn mafíunni, var myrtur. Rætt er
um að mafían hafi sagt stjórnvöldum
stríð á hendur.
Sjá nánar á bls. 23.
er fyrirhugaður í Róm. Ljóst er að
það eru stjórnarskiptin í Israel sem
breytt hafa stöðu mála og aukið
friðarlíkur. James Baker hélt á
sunnudag til Miðausturlanda til að
kanna friðarhorfur og ræddi hann
við Rabin og talsmenn Palestínu-
manna í ísrael í gær. Stjórn Rabins
hefur ákveðið að stöðva frekara
landnám gyðinga á hemumdu
svæðunum og herlið hindraði í gær
öfgahópinn Kach í að stofnsetja
nýja gyðingabyggð sem átti að
tákna mótmæli gegn komu Bakers
til landsins.
Bandaríkin hafa mótmælt land-
náminu og Baker hefur sagt að
gyðingabyggðirnar, sem arabar
hafa fordæmt ákaflega, séu erfíð-
asti þröskuldurinn í vegi friðar-
samninga. A leið sinni austur um
haf útilokaði Baker ekki að stjórn-
völd í Washington myndu ef til vill
veita ísrael lánsábyrgð er nemur
um 550 milljörðum ISK. Bandaríkin
frestuðu að veita ábyrgðina í mót-
mælaskyni við nýbyggðastefnu for-
vera Rabins, Yitzhaks Shamirs.
Málgagn sýrlenskra stjórnvalda,
Tishreen, hvatti um helgina Banda-
ríkjamenn til að veita ekki ábyrgð-
ina fyrr en Rabin bannaði allt land-
nám, einnig á stöðum þar sem for-
sætisráðherrann segir nauðsynlegt
að treysta hemaðarstöðu ísraels.
Tishreen sagði að Evrópuríkin og
Sameinuðu þjóðimar ættu að taka
virkari þátt í að koma á friðarvið-
ræðum ásamt Bandaríkjamönnum.
Eftir fund með Rabin í gær sagð-
ist Baker myndu tjá aröbum að
forsætisráðherrann væri staðráðinn
í takmarka landnámið. Baker
hyggst einnig ræða við forystu-
menn í Jórdaníu, Sýrlandi, Saudi-
Arabíu og Egyptalandi.
Morgunblaðið/Gunnar G. Vigfússon
Forsetar á Vatnajökli
Richard von Weizsácker, forseti Þýskalands, og eiginkona hans, Mari-
anne von Weizsácker, héldu frá íslandi í gærmorgun, en þau dvöldust
á íslandi yfír helgina í einkaerindum. Ferðuðust þýsku forsetahjónin
um Norðurland og Austurland í fylgd Vigdísar Finnbogadóttur, for-
seta íslands, og komu víða við, m.a. í Dimmuborgum, við Goðafoss og
á Akureyri. A sunnudag var haldið á Vatnajökul, þar sem farið var
í vélsleðaferð. A myndinni má sjá forseta Islands og forseta Þýska-
lands tilbúna í slaginn á Vatnajökli.
Verulegt
forskot
Clintons
Washington. Reuter.
BILL Ciinton, forsetaefni banda-
ríska Demókrataflokksins, hefur
mikið forskot á George Bush
Bandaríkjaforseta samkvæmt
skoðanakönnun sem gerð var af
dagblaðinu USA Today, CNN og
Gallup-stofnuninni. Sögðust 56%
aðspurðra i könnuninni, sem birt
var í gær, ætla að kjósa Clinton
en einungis 34% Bush í forseta-
kosningunum í nóvember.
Skekkjumörk í könnuninni eru
sögð um þrjú prósent.
Sú ákvörðun Ross Perots að hætta
við að bjóða sig fram virðist fyrst
og fremst hafa komið frambjóðanda
Demókrataflokksins til góða en 43%
þeirra sem studdu Clinton í könnun-
inni sögðust hafa tekið þá ákvörðun
eftir að Perot hætti við. Mest mæld-
ist fylgi Clintons í norðausturhluta
Bandaríkjanna.
George Bush gagnrýndi Clinton í
gær fyrir að stela frá sér slagorðum.
Vísaði hann til ræðu sem Clinton
hélt á flokksþingi Demókrataflokks-
ins í síðustu viku en þá sagði hann
við mikinn fögnuð viðstaddra að „nú
þegar búið er að breyta heiminum
er kominn tími til að breyta Banda-
ríkjunum". Bush sagði þetta vera
setningu sem hann hefði margsinnis
notað og hefði honum þótt skondið
að heyra Clinton herma hana eftir
sér.
Hörð átök í Bosníu þrátt fyrir samkomulag um vopnahlé:
EB vill „Júgóslavíu“
úr alþjóðasamtökum
Rm««pl Rputpr
Brussel. Reuter.
Utanríkisráðherrar Evrópu-
bandalagsins (EB) samþykktu á
fundi í gær yfirlýsingu þar sem
farið er fram á að „Júgóslavíu"
(Serbíu og Svartfjallalandi) verði
vikið úr Sameinuðu þjóðunum og
öðrum alþjóðlegnm samtökum.
Var þetta gert í kjölfar þess að
átök hófust á ný í Bosníu þrátt
fyrir að samkomulag hefði náðst
um vopnahlé siðastliðinn föstu-
dag. Ráðherrarnir sögðust viður-
kenna rétt þessara tveggja lýð-
velda til að mynda nýja, minni
Júgóslaviu, en aftur á móti væri
ekki hægt að samþykkja það ríki
sem hinn eina réttmæta arftaka
fyrrum Júgóslavíu.
A fundinum var einnig ákveðið að
verja þegar í stað 170 milljónum
dollara í neyðaraðstoð handa flótta-
mönnum frá fyrrum Júgóslavíu.
Lýstu utanríkisráðherramir yfír full-
um stuðningi við ráðstefnu um flótta-
Ríkissaksóknari Tékkóslóvakíu um ábyrgð á innrás Sovétmanna;
Gögn talin sanna sekt Bilaks
Prag. Reuter.
TÉKKNESK stjórnvöld ætla að taka upp
að nýju rannsókn á máli Vasils Bilaks, sem
lengi átti sæti í stjórnmálaráði kommúnista-
flokksins, fyrir að hafa farið fram á það
við Sovétmenn að þeir gerðu innrás í
Tékkóslóvakíu árið 1968. Rannsókn á mál-
inu var frestað í febrúar sl. vegna skorts
á sönnunargögnum.
Vladimir Nechanicky, ríkissaksóknari
Tékkóslóvakíu, sagði í viðtali við tékkneska
útvarpið í gær að nú lægju fyrir nægileg gögn
til að sýna fram á að glæpurinn hefði verið
framinn af tilteknum manni, í þessu tilviki
Vasil Bilak.
Bilak, sem er 74 ára gamall, er sá eini hinna
fímm harðlínumanna er sátu í stjórnmálaráð-
inu, er innrásin var gerð, sem enn er á lífí.
Grunur hefur lengi leikið á um að til væri
bréf þar sem Sovétmönnum hefði verið „boðið“
að gera innrás, en það var ekki fyrr en í síð-
ustu viku að Borís Jeltsín, forseti Rússlands,
sendi hinum tékkneska starfsbróður sínum,
Vaclav Havel, afrit af skjali þess efnis. Skjalið
er á rússnesku og undirritað af stjórnmálaráðs-
mönnunum Antonin Kapek, Alois Ihdra, Drah-
omir Kolder, Oldrich Svestka og Vasil Bilak.
Jeltsín sagði að skjalið hefði fundist í möppu
er merkt hefði verið „má aldrei opnast“.
Bilak, sem þegar hefur verið kærður fyrir
að hafa látið gjaldeyrissjóði renna til Sovétríkj-
anna á árunum 1969-1988, býr nú í Brat-
islava, höfuðborg Slóvakíu. Hann hefur látið
hafa það eftir sér að skjalið sem Jeltsín sendi
Havel sé „hugsanlega falsað".
mannavandann á vegum Flótta-
mannanefndar Sameinuðu þjóðanna
sem hefst í Genf þann 29. þessa
mánaðar.
Vopnahléið, sem samkomulag
náðist um milli hinni stríðandi fylk-
inga á föstudag, átti að taka gildi
síðdegis á sunnudag. Ekkert lát varð
hins vegar á átökum og rigndi
sprengjum yfír Sarajevo i gær. Urðu
sveitir Sameinuðu þjóðanna að
stöðva alla loftflutninga til borgar-
innar af þeim sökum en til stóð að
tuttugu flugvélar, hlaðnar hjálpar-
gögnum, kæmu þangað í gær.
Joseph Snyder, talsmaður banda-
ríska utanríkisráðuneytisins, sagði í
gær að Bandaríkjastjóm teldi Serba
bera mesta ábyrgð á því að vopna-
hléið hefði ekki verið virt. Hann sagði
að' öryggisráð SÞ yrði að ræða hina
nýju stöðu og reyna að fínna sem
allra fyrst einhveija leið til að hefja
sendingu hjálpargagna til Bosníu.
Carrington lávarður, sem hefur
umsjón með friðarumleitunum EB,
mun í dag eiga fundi í Belgrad með
Slobodan Milosevic, forseta Serbíu,
og Dobrica Cosic, forseta „Júgóslav-
íu“. Viðræðumar munu fyrst og
fremst snúast um málefni Kosovo-
héraðs, þar sem meirihluti Albana
sækist nú eftir sjálfstjórn. í gær
ræddi Carrington við Ibrahim
Rugova, leiðtoga Albana í Kosovo, i
London.