Morgunblaðið - 21.07.1992, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 21.07.1992, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSQFH AIVINNUIÍF ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚLÍ 1992 Bankar Jlertar reglur um bankaeftirlit ALÞJÓÐLEG nefnd um bankaeftirlit gaf á dögunum út nýjar og hertar reglur um bankaeftirlit. Reglurnar hafa nú verið endurskoð- aðar með það að takmarki að koma í veg fyrir að mál eins og BCCI-svikamálið geti endurtekið sig. Hið umfangsmikla svikamál sem leyddi til þess að Bank of Credit and Commerce Intemational (BCCI) varð gjaldþrota á síðasta _ári, varð til þess að nefndin ákvað að herða reglur um eftirlit með bönkum. Að sögn formanns nefnd- arinnar hefði verið útilokað fyrir BCCI svikin að ganga svo langt sem raun bar vitni ef nýju regl- anna hefði notið við. Nýju reglumar em sérstaklega miðaðar við að auka eftirlit með alþjóðlegum bönkum en endur- skoðendur sögðu að BCCI málið hefði verið sérlega erfitt viðfangs vegna flókinna fjölþjóðlegra við- skipta bankans. Ef alþjóðlegur banki óskar eftir því að opna útibú er nú samkvæmt nýju reglunum algerlega undir stjómvöldum þess lands hvort slíkt leyfí fæst. Stjómvöld geta ákveðið hvort eftirlit með bankanum skuli fara fram af þeim sjálfum eða stjórnvöldum heimalands bankans, og áður en ákvörðun er tekin geta þau óskað eftir margskonar upp- lýsingum um stöðu bankans og viðskipti. Reglunum er þannig ætl- að að tryggja að enginn banki geti starfað án öflugs eftirlits. Engu að síður er ólíklegt að al- gerlega verði unnt að koma í veg fyrir svik. Bæði skapar hér vanda- mál að nefndin hefur fá eða engin ráð til að fylgja reglunum eftir. Slíkt verður enn í höndum ein- stakra ríkja. Ennfremur gæti orðið erfitt, þrátt fyrir góðan vilja allra aðila, að afla allra nauðsynlegra upplýsinga. Einkum gæti það átt við um fjölþjóðlegar samsteypur og banka í eigu stórra iðnfyrir- tækja. Að sögn formanns nefndarinnar vom reglumar samþykktar sam- hljóða og verða þær kynntar yfír 100 ríkjum í október næstkomandi á sérstökum fundi í París. Hugbúnaður HLUTABREF “ Talið er að væntanleg skerðing þorskkvóta hafi ekki áhrif á gengi hlutabréfa í sjáv- arútvegsfyrirtækjum fyrr en ákvarðanir hafa verið teknar um hvernig að skerðingunni verði staðið. Gengis- lækkunin á hlutabréfum Granda sl. föstudag úr 2,8 í 1,8 er ekki talin sérstök vísbending um það sem koma skal. Hlutabréf Lækkun á gengi hlutabréfa í Granda íkon seturnýjan hugbún- aðarpakka á markað ÍKON hf., sem framleiðir viðskiptahugbúnað og sérhannaðan hug- búnað fyrir fyrirtæki í öllum atvinnugreinum, er að setja á mark- að nýjan hugbúnaðarpakka. Um er að ræða Omni-Mark 5 mark- aðs- og þjónustukerfi sem hentar bæði á Apple Macintosh og PC tölvur eftir því sem segir í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu. Ekki vísbending um almenna verðlækkun á hlutabréfum sj ávarútvegsfyrirtækj a EKKI er hægt að líta á lækkunina sem varð á gengi hlutabréfa í Granda hf. á föstudaginn úr 2,8 í 1,8 sem vísbendingu um al- menna verðlækkun á hlutabréfum sjávarútvegsfyrirtækja í kjölfar fyrirhugaðra skerðingar þorskkvóta að því er talsmenn verðbréfa- fyrirtækjanna segja. Frekar hafi verið um að ræða eitt einstakt tilfelli þar sem einstaklingur hafi verið tilbúinn að selja bréf sín á genginu 1,8. Talsmenn verðbréfafyrirtælganna vi(ja ekki tala um verðhrun þar sem ekki hafi verið um háa fjárhæð að ræða eða 285.000 krónur og viðskipti með hlutabréf í Granda hafi síð- ast átt sér stað í maí sl. Þó gætu þessi viðskipti gefið til kynna að farið er að taka tillit til væntanlegs samdráttar í afla. Eins og komið hefur fram í fréttum áður er búist við að áhrifanna á hluta- bréfaverð í sjávarútvegsfyrirtækjum fari ekki að gæta fyrr en stjórnvöld hafa tekið ákvarðanir um hvernig staðið verði að skerð- ingunni. Vísitala sjávarútvegs hjá Landsbréfum lækkaði úr 100 í 83.24 vegna gengislækkunarinnar. Omni-Mark 5 kerfíð má nota fyrir alla beina markaðssókn, áskriftarþjónustu, félagatal fé- lagasamtaka, reglubundið viðhald, eftirlitsdagbók og þjónustudagbók. Áherslur kerfisins liggja m.a. í ein- földu og sjálfskýrandi notendavið- móti, góðri yfírsýn notanda og skýrum og ásjálegum útprentunum eins og segir í fréttatilkynning- unni. Ennfremur kemur fram að með Omni-Mark 5 getur fyrirtæki haft í einu kerfí allar hefðbundnar upp- lýsingar um skjólstæðinga sína s.s. heimilisfang, símanúmer o.þ.h. og auk þess vöru-, aðgerða- og þjón- ustuskrá og dagbók. Inn í dagbók- ipa eru skráðar allar upplýsingar, Samkvæmt handbók þessari er Lögmannsstofa Ragnars Aðal- steinssonar o.fl. hin stærsta hér á landi með alls 9 lögmenn, þá stofa þeirra Vilhjálms Amasonar, Ólafs Axelssonar, Eiríks Tómassonar, Áma Vilhjálmssonar og Hreins Loftssonar með 7 lögmenn, og sama fjölda lögmanna hefur stofa þeirra Guðmundar Péturssonar, samningar, upphringingar, heim- sóknir o.fl. eftir eðli rekstursins. Út úr kerfínu er hægt að prenta nöfn og aðsetur á límmiða, setja upp bréf, prenta dagbók aðgerða, viðskiptamannalista o.fl. Einnig getur notandi skráð inn væntan- lega viðskiptavini, t.d. til að hafa á póstlistum. Notandi getur á augabragði fengið lista yfír allar hreyfingar eins fyrirtækis, alla eig- endur ákveðins kerfís eða búnaðar og takmarkað lista eftir tímabilum. Þá getur kerfið prentað t.d. límm- iða á alla viðskiptavini sem eiga tiltekið tæki eða era áskrifendur að tiltekinni þjónustu og jafnvel einangra sig við þá sem keyptu innan ákveðins tímabils. Péturs Guðmundarsonar o.fl. Lög- mannsstofa Hafsteins Hafsteins- sonar er með 6 lögmenn og Lög- menn Suðurlandsbraut 4 með 5 lögmenn. í frétt frá útgáfufyrirtækinu Legalease Europe Ltd. ítrekar aðalritstjóri bókarinnar, John Pritchard, að fjöldi lögmanna sé einungis einn af mörgum mælik- Davíð Bjömsson hjá Landsbréf- um segir að varasamt sé að nota þetta einstaka tilfelli þar sem um lága upphæða var að ræða sem vísbendingu fyrir allan markaðinn. Ef um milljónaviðskipti hefði verið að ræða væri ekki víst að gengið hefði verið að svo lágu tilboði. „Horfa verður á aðstæðumar. Hlutabréfamarkaðurinn hér er vörðum sem hafðar eru til hliðsjón- ar þegar lögmannsstofur séu vald- ar. Mikilvægari mælikvarði geti jafnvel verið það orðspor sem fer af lögmannsstofum á tilteknum sérsviðum. í fréttinni segir að eftir að hafa leitað eftir áliti yfír 1000 lögmanna í Evrópu þá sé í þessari úttekt einnig að fínna þær lög- mannsstofum hérlendis sem njóti sérstaks álits á ákveðnum sérsvið- um. Þessi sérsvið sem spönnuð era í handbókinni era málefni fyrir- tækja og viðskipta, bankastarfsemi og fjármál, höfundaréttur og sjó- réttur og flutningar. ófullkominn og því er ekki hægt að nota þessi einstöku viðskipti sem algildan mælikvarða á að þarna sé um miklar verðlækkanir að ræða en auðvitað gefur þetta til kynna að nýjar upplýsingar um sjávarútveginn hafí komið fram. En hvort það gefur tilefni til þetta mikilla sveiflna finnst mér frekar ótrúlegt." Davíð segir að ef svipuð við- skipti hefðu átt sér stað á erlend- um hlutabréfamörkuðum væri hægt að tala um verðhrun en ekki hér þar sem viðskipti með hluta- bréf era mun stopulli. „Áhrifín verða væntanlega mismikil á sjáv- arútvegsfyrirtækin en það er ekki óeðlilegt að þar sem tekjur koma til með að lækka þá lækki verð hlutabréfa. Það er eðli markað- anna.“ Vilhjálmur Vilhjálmsson hjá Verðbréfamarkaði íslandsbanka segir að frekar mætti lesa út úr þessum viðskiptum að hægt væri að gera góð kaup á markaðnum um þessar mundir en að þau væru í samhengi við fyrirhugaða skerð- ingu þorskkvóta. „Hér er um ein- stakt tilvik að ræða þar sem aðili þarf á peningum að halda og sel- ur, þó er ekki að efa að oft veltur lítil þúfa þungu hlassi. Lítið hefur verið um að vera á markaðnum að undanfömu og ekki hægt að tala um verðhran í þessu sam- bandi. Ef sjávarútvegsfyrirtækin verða rekin með tapi þá verða verðlækkanir á bréfum þeirra en ég held ekki að þessi einstaka verðlækkun hafí áhrif til frekari verðlækkana hjá sjávarútvegs- fyrirtækjum." Guðmundur Hauksson hjá Kaupþingi segir að lítil viðskipti hafa átt sér stað með hlutabréf í útgerðarfyrirtækjum á meðan staðan er eins óviss og raun ber vitni. „Trúlega verður það ekki fyrr en eitthvað skýrist að búast má við umtalsverðum viðskiptum á ný. Þessi eina sala segir ekkert um væntanlega breytingu, hér geta aðstæður hjá tilteknum selj- anda ráðið. Á meðan markaðurinn er óvirkur gagnvart sjávarútvegs- fyrirtækjum eins og verið hefur upp á síðkastið þá er ekkert hægt að segja um hvað muni gerast. Ef afkoma þeirra versnar þá lækk- ar verð hlutabréfa í þessum fyrir- tækjum en þau geta bragðist við með ýmsum hætti. Ef áhrifín verða stórfelld er ljóst að það mun hafa áhrif víða í þjóðfélaginu.“ Verslun Penninn með tölvu- tengdan hníf í Pennanum við Hallarmúla hefur verið tekinn í notkun tölvutengdur hnífur sem sker út límstafi og merki í miklu úrvali. í fréttatilkynningu frá Pennan- um segir að penninn henti vel hvort sem menn vilji láta merkja bílinn, bátinn, sumarbústaðinn eða hurðir og glugga fyrirtækisins. Boðið er upp á hundrað leturgerða auk þess sem hægt er að „skanna" inn merki fyrirtækja. Textanum er skilað fullfrágengnum á flutn- ingsfilmu. Lög Lögmannsstofa Ragnars Aðal- steinssonar o.fl. talin stærst Sérkafli um ísland í evrópskri handbók um lögfræðifyrirtæki í nýútkominni handbók á ensku sem nefnist Law Firms in Europe eða Evrópskar lögmannsskrifstofur er að þessu sinni að finna sérk- afla um íslenskar lögmannsskrifstofur. I sérkafla þessum er listi yfir nokkrar stærstu lögmannsskrifstofurnar miðað við fjölda lög- manna og einnig eru nefndar til sögunnar lögmannsskrifstofur sem getið hafa sér orð á tilteknum sérsviðum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.