Morgunblaðið - 21.07.1992, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 21.07.1992, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JUU 1992 11 ur sín vel í þessum verkum. Brita Wimnell-Macke á fjöl- skrúðugasta framlagið á sýning- unni, en hún sýnir vatnslitamyndir, akrylmyndir og verk unnin í steypu, plast og plexigler. Hinar fjölmörgu vatnlitamyndir hennar eru flestar smáar og birta hughrif listakonunnar, sem hún hefur upp- lifað víða um landið, eftir því sem titlarnir bera vitni um. Flestar eru þessar myndir hreinar og tærar, og nýtur liturinn sín vel í þeim. Hins vegar vekja þau verk sem hún hefur unnið i steypu og plexigler meiri athygli. „Skjaldmey (nr. 31) er vel gert, og formið tengist öðru verki hennar og einnig myndum Monu Göpfert. Steyptu myndirnar eru einnig sérstakar, og má benda á „Einn á sökkli (nr. 36) og „Hnísa (nr. 39) sem verk, þar sem skemmtilega er unnið úr hinum formrænu möguleikum. Eftir þess- um verkum að dæma virðist lista- konan eiga nokkuð erindi inn á hið þrívíða svið höggmyndalistarinnar. Það er ijóst að hér eru ekki á ferðinni þekktir listamenn, sem hafa náð að skapa sér nafn í list- heiminum, heldur ungt listafólk, sem er að þreifa fyrir sér og leita að hinu persónulega í list sinni. Það sem hér ber fyrir augu gefur fulla ástæðu til að ætla að það megi takast, og að meira eigi eftir að spyrjast til þeirra í framtíðinni. Sýningu þeirra Monu Göpfert, Britu Wimnell-Macke og Dick And- erson í Hafnarborg í Hafnarfirði lýkur mánudaginn 20. júlí. urlenskt bænahús" (nr. 14) er einn- ig gott dæmi um verk þar sem efni- viðurinn og myndefnið renna vel saman í verkinu. Hins vegar verður myndgerð Magnúsar oft þvinguð, óþarflega flókin og ósannfærandi þar sem ætlunin er að koma einhveiju „snið- ugu myndefni til skila. Nöfn eins og „Yfirumsýsluráðgjafinn“, „For- maður Þverhausafélagsins", „Vandamálafulltrúi" og „Minning um háskólagenginn ríkisstarfs- mann“ geta litið ágætlega út á pappír, en eru ósköp vandræðaleg sem myndverk, og vekja spurningar bæði um tilgang verkanna og hvaða kröfur listamaðurinn gerir til þess sem hann sýnir. Magnús er ágætur verkmaður, og hefur greinilega unun af því að vinna í þennan efnivið. Þessi ánægja skilar sér vel í mörgum verkum á sýningunni, en hann þarf hins vegar einnig að vera örlítið gagnrýninn á eigin verk, þar sem hið slaka dregur niður það sem vel er gert. Þrátt fyrir erfiðan sýningar- stað, má reikna með að mihni sýn- ing og betur valin hefði að öllu leyti heppnast betur. Sýningu Magnúsar Th. Magnús- sonar í Perlunni lýkur þriðjudaginn 22. júlí. í Kaupmannahöffn FÆST í BLAÐASÖLUNNI Á JÁRNBRAUTA- STÖDINNI, KASTRUPFLUGVELLI OG Á RÁÐHÚSTORGI CHARADE Sá liprasti í bænum! KOSTAR STAÐGREIDDUR, KOMINN A GOTUNA FRA: BRIMBORG FAXAFENI8 • SIMI91 - 68 58 70

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.