Morgunblaðið - 21.07.1992, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 21.07.1992, Blaðsíða 34
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚLÍ 1992 34 Minning: Stefán Þórir Guðmundsson Fæddur 29. júní 1917 Dáinn 11. júlí 1992 Stefán Þórir vinur minn er látinn. Einstakur öðlingur er í valinn fail- inn. Segja má að persóna Stefáns hafi aðeins að hluta tii verið af þess- um heimi, svo frábrugðinn var hann flestum samferðamönnum sínum í gjörðum og lífsviðhorfum. Hann skar sig þar af leiðandi úr Qöldan- um, og var eftir því áberandi í bæj- arlífi Reykjavíkur um áratuga skeið. Þeim sem aldrei kynntust Stefáni persónulega, kann að hafa fundist þessi maður dálítið sérstakur í hátt- um, slíkt var hispursleysi hans og yfirmáta kurteisi sem oft birtist sem óþægileg hjálpsemi á mögulegum og ómögulegum augnablikum kannski mitt í Austurstræti eða á Laugaveginum eða sem kumpánleg kveðja við bláókunnuga manneskju sem aldrei hafði Stefán augum litið, sérstaklega ef um konur var að ræða. Flest þetta fólk kynntist því miður aldrei þessum hjálpsama sam- ferðamanni en þeir sem nutu þeirrar ánægju og gleði munu seint gleyma. Þessi sérstaki þáttur í fari Stef- áns var að sjálfsögðu aðeins lítið brot af persónuleika þessa einstæða manns sem í raun var einfari allt sitt líf. Stefán Þórir Guðmundsson var lífslistamaður og fagurkeri. í raun var lífshiaup hans efni í stór- brotið listaverk, harm- og gleðiieik- ur í senn. Harmleikur vegna þess að margar björtustu vonir hans allt frá unga aldri fengu aldrei að ræt- ast og að hann bjó við ýmislegt veraldlegt andstreymi flest sín efri ár. Gleðileikur vegna þeirrar per- sónulegu útgeislunar sem af honum stafaði, þeirrar hjálpsemi og fóm- fýsi sem hann svo ríkulega sýndi öllum sem til hans leituðu, kunnug- um sem ókunnugum þótt af litlum efnum væri og raunar oftast um efni fram. í raun rak Stefán á sinn eigin reikning og í öllum sínum úttroðnu vösum og umslögum sem hann ein- att bar um bæinn sína eigin félags- málaþjónustu. Þá er ótalin hjálpsemi hans við vini og ættingja. Þrátt fyr- ir að Stefán væri þannig eldheitur baráttumaður lítilmagnans var hann íhaldsmaður í merg og bein og tal- aði oftast af mikilli lotningu um flokksbræður sína sérstaklega væm þeir jafnframt KR-ingar eða stúku- bræður en Stefán var bindindismað- ur alla sína ævi. Hann hafði alla sína tíð mjög ákveðnar skoðanir á þjóðmálum og fór þá lítt troðnar Fæddur 6. desember 1893 Dáinn 22. júní 1992 Ástkær afi minn Árni Siguijón Finnbogason, skipstjóri frá Vest- mannaeyjum hefur nú kvatt okkur í hinsta sinn. Eftir nokkurra vikna vist á deild B 5 Borgarspítalans hlaut hann hægt andlát. Eftir svo langa ævi og mikið ævistarf var hann satt- ur við tilvemna og endalokin. Árni afí minn kom inn í líf mitt þegar ég var þriggja ára snáði og gekk mér í föður stað; þá hálf áttræður. Þessi ár mörkuðu ákveðin þáttaskil í lífí hans því fjórum árum áður flutt- ist hann frá Vestmannaeyjum til höfuðborgarinnar og hóf að teikna blýantsmyndir af mikilli atorku. Fegurð eyjanna, sjómennskan og mannlífið í eyjum var helsta mynd- efni hans ásamt hafnarmyndum frá íslenskum og færeyskum sjávar- plássum auk ýmissa andlitsmynda. Þótt afi nyti ekki leiðbeininga list- lærðra manna náði hann fljótt ótrú- slóðir. Væri hann spurður um ein- staka stjómmálamenn var hann þó oftast sanngjarn í dóminum, þó „flóðhestar" fyrirfyndust að vísu í þeim hópi sem öðrum að hans mati. Stefán var alla tíð mikill fagur- keri, listunnandi og vinur margra listamanna. Þannig var hann heim- ilisivnur Gunnlaugs Blöndal um langt árabil og sat jafnvel fyrir í nokkrum málverkum Gunnlaugs sem hann dáði mjög mikið. Frænda sínum, Alfreð Flóka, reyndist hann mikil hjálparhella á -hans lista- mannsferli. Stefán átti fyrr á árum mikið og fágætt safn listaverka og bóka sem hann því miður missti vegna valdníðslu yfírvalda og sem síðar eyðilögðust eða glötuðust í haldi þessara sömu aðila án þess að nokkrar bætur fengjust fyrir. Stefán kunni feiknin öll af ljóðum og lausavísum sem hann gjarnan laumaði út út sér á góðum stundum. Ekki skaðaði væru vísumar aðeins tvíræðar. Stefán hafði mjög næma tilfínn- ingu fyrir kveðskap og fagurbók- menntum og við ljóðalestur var oft mjög gaman að heyra athugasemdir hans sem bám hárfínum smekk hans gott vitni. En kannski einmitt í hrifningu sinni af kvenþjóðinni kom fagurker- inn í Stefáni sterkast fram og aldr- ei heyrðum við félagarnir hann hall- mæla konum. Þvert á móti átti hann til á hraðbergi endalausa gullhamra um konur sem hann sló þeim oft algjörlega fyrirvaralaust svo jafnt ungmeyjar sem rosknar og ráðsettar frúr setti deyrrauðar af lofi Stefáns um fegurð þeirra og gáfur. Líkti hann þá konum gjarnan við fagrar og þekktar ieikkonur eða lýsti yfír að þær hefðu karlmannsvit sem var æðsta stig andlegs atgervis kvenna að hans mati. Stefán var mjög skemmtilegur maður sem kom fram í orðheppni hans sem var við brugðið og frá- bæru skopskyni og tilfinningu fyrir hinu broslega í tilverunni. Oft gátum við vinir Stefáns velkst um af hlátri yfír stráksskap hans og mergjuðum athugasemdum um menn og mál- efni. Stefán tók mikinn þátt í fijálsum íþróttum á sínum yngri árum með KR og var í ólympíuliði íslands í Berlín 1936. Ein var sú íþrótt sem Stefán unni meir en öðrum en það var bridsíþróttin.. Hann var góður bridsspilari og á tíðum mjög frum- legur í sögnum en fyrst og síðast var hann frábær spilafélagi. Undir- rituðum kom það hvað best að Stef- legu valdi yfír blæbrigðum blýants- ins og sýna myndir hans í hnotskurn þá eljusemi, þolgæði og vandvirkni er hann bjó yfír. Hann rammaði sjálfur inn allar sínar myndir og tók að sér innrömmun fyrir fólk gegn vægu gjaldi. Afí hélt fímm einkasýn- ingar á myndum sínum, þá fyrstu í Ingólfsstræti og hinar fjórar að Hallveigastöðum. Vestmannaeyjar voru mjög hugleiknar afa enda eng- in furða því þar ólst hann upp, kom átta börnum til fuliorðinsára og stundaði formennsku á bát í um 50 ár. Kona hans var Guðbjörg Aðal- heiður Sigurðardóttir en hún lést árið 1958. Afi var mjög oft ber- dreyminn og á hverri nóttu dreymdi hann um lífið í eyjum, t.d. eggja- tekju í Bjamarey líkt og hann stund- aði svo oft áður. Einstök manngerð afa verður mér alltaf minnisstæð. Létt lund hans og kímnigáfa sköpuðu margar ánægjustundir og bros á heimili okk- ar. Móður minni reyndist hann ákaf- án hrósaði yfirleitt mest þeim sem spilaði verst en gat átt til að hund- skamma hina félagana eftir því sem við átti, sérstaklega ef stórmeistarar voru við borðið. Við sér 30 árum yngi-i menn spilaði Stefán reglulega síðastliðin 25 ár og mun okkur öllum þær stundir reynast hvað ógleyman- legastar af kynnum okkar Stefáns. Úr þeim kynnum spratt síðan djúp vinátta ekki aðeins milli spilafélag- anna og Stefáns heldur milli fjöl- skyldna okkar allra og hans. í allra okkar garði er því rík sorg yfír fráfalli þessa fágæta og sér- staka vinar. Ekki verður svo skilið við minningu Stefáns að ekki sé minnst _ velgjörðarmanns hans, Georgs Ólafssonar og hans fjöl- skyldu allrar. Stefán hafði verið náinn vinur föður Georgs, Ólafs Georgssonar, sem lést fyrir aldur fram árið 1961. Segja má að Georg hafí komið í stað föður síns í vin- áttu hans og Stefáns sem hann, Soffía kona hans og synir ásamt fjölskyldunni á Háteigsvegi 34 ræktuðu síðan alla tíð. Það var mik- ið lán fyrir Stefán, sérstaklega síð- ustu 15—20 ár sem gerði líf hans mun léttbærara en það ella kynni að hafa orðið og sem hann endur- galt ríkulega með vináttu sinni, hjálpsemi og skemmtilegheitum. Nú þegar Stefán er horfínn á braut hverfur af sjónarsviðinu ein- staklingur sem um áratuga skeið hefur sett eftirminnilegan svip á bæjarbrag í Reykjavík, einn örfárra orginala á íslandi. Það er mjög við hæfi að hann verður í dag lagður til hinstu hvíld- ar í gamla kirkjugarðinum við Suð- urgötu. Af sex systkinum Stefáns er aðeins ein systir eftirlifandi, Guð- rún Nielsen, sem ég sendi innilegar samúðarkveðjur. Við vinir hans komum til með að sakna hans sárt. Svo veit ég að er um marga fleiri, m.a. samstarfsfólk hans á Verðlagsstofnun um mörg ár og margar vinkonur sem Stefán eignaðist um ævina. Betra hefði verið ef fleiri samtíð- armenn hefðu kynnst þessum öðl- ing. Best væri þó ef samtíminn til- einkaði sér örlæti hans og fómfýsi. Þá væri bjart framundan. Þorsteinn Ólafsson. Fyrsta vitneskja mín um Stefán Þóri Guðmundsson var að hann hefði verið valinn til keppni í fijáls- um íþróttum á ólympíuleikana í Berlín 1936, þá aðeins 19 ára. Árin á undan hafði hann keppt í drengjaflokki, sigrað og sett drengjamet í mörgum greinum. Mikill var áhugi okkar „pottorm- anna“ á þessumn leikum og ekki dvínaði hrifning okkar þegar Kaaberskaffí fór að hafá myndir frá leikunum, þar sem sigurvegarar í öllum greinum birtust og úrslit. Nú líður tíminn þar til 1943 að fimm „grænjaxlar" ákváðu að sanna lega vel og þegar vanda bar að hönd- um tók hann öllu með jafnaðargeði og skynsemi. Erfiðar ytri aðstæður komu afa ekki úr jafnvægi og nýtni og nægjusemi hans voru mannkostir sem ungt fólk í dag mætti hafa meira af. Afi var stálheiðarlegur og ákaflega sanngjarn maður í viðskipt- um því fégræðgi átti hann ekki til. Hann var ákaflega greiðvikinn og oft gjafmildur t.d. á myndir sínar. Á uppvaxtarárum mínum veitti hann mér aðhald, mikla hvatningu og hlý- hug sem ég verð honum ævinlega þakklátur fyrir. Ég tei mig heppinn að hafa átt svo sannan mann sem fyrirmynd. Að lokum vil ég ásamt móður minni Erlu Kristjánsdóttur þakka Sigríði Sigurðardóttur og Svönu Ein- arsdóttur fyrir þeirra ómetanlegu hjálp við að annast afa eftir að hann varð lasburða svo og starfskonum öldrunarhjálpar Reykjavíkurborgar fyrir þeirra óeigingjarna starf. Starfsfólki og læknum Borgarspital- ans, Landspítalans og Hátúns svo og starfsfólki Sjúkradeildar Rauða kross íslands við Rauðarárstíg kunn- um við okkar bestu þakkir ásamt öllum þeim er heimsóttu afa. Börn- um og vinum hins látna vottum við samúð okkar. Guð blessi minningu hans. Svanur Kristjánsson. getu sína í keppnisbrids hjá Bridsfé- lagi Reykjavíkur, sem hafði verið stofnað árið áður, en nokkur ár á undan hafði stúdentafélagið staðið fyrir bridskeppnum. Allt í einu vorum við komnir inn í nýjan heim, heim bridsspilarans þar sem öll umræðan er um brids og aftur brids. Þar er Stefán kepp- andi og stappaði í okkur stálinu, en dugði lítt, þrátt fyrir hans góðu ráð og hlýju urðum við néðstir. Geta okkar sannaðist og nú held ég að í engum leik tekur lengri tíma fyrir „grænjaxla" að þroskast, nema ef vera skyldi í lífsleiknum. Kynni mín og Stefáns urðu þó ekki meiri en svo að við heilsuð- umst, og ef við gerðum stans á leið okkar, var umræðan brids. Árið 1977 ræðst hann til stofnun- ar sem ég hafði haft samband við um áratuga skeið og hef enn. Þar kynntist ég Stefáni betur og vel, og eftir þau kynni fer vel að fara með lýsingu úr Sturlungu um syni Páls biskups, þá Loft og Ketil. „Svo sagði Þorvaldur Gissurarson að son- um biskups væri ólíkt farið. Kvað Ketill vilja mönnum hvarvetna gott, en Loft kvað hann mæla til manns hvarvetna gott.“ Eðiislýsing þessi á báðum þeimi bræðrum á vel við Stefán, en aldrei hefði hann látið sér hugar koma að mæla til manna gott án þess að vilji fylgdi að gera mönnum gott, og í seinni tíð miklu meir af vilja en mætti, enda heilsa og íjárhagur þrotin. Skilningur á umgengnisvenjum á Islandi hefur sennilega breyst mikið frá því og með síðustu heimsstyij- öld, þannig að kurteisi Stefáns virk- aði oft öfugt á fólk, sem á erfitt að greina á milli kurteisi og fleðu- láta, því kurteisi hans samanstóð af einlægni, hlýju og hjálpsemi. Já, hjálpsemi. Eitt sinn er ég heimsótti hann á Landspítalann, þar sem hann var að gangast undir fyrstu aðgerðir vegna sjúkdóms síns, mæti ég honum í dyrum stof- unnar og hann segir „Heill og sæll og fáðu þér sæti. Eg þarf að hjálpa manni.“ Eftir örlitla stund sé hvar hann ekur hjólastól eftir ganginum og í honum situr mjög lasburða maður. Þegar Stefán kemur aftur segir hann: „Þessi maður á svo bágt, hann verður að fá að reykja" og nú skal segja frá því að Stefán var stórtemplar og lét regluheitið lönd og leið við þessar aðstæður. Stefán notaði orðtakið „ég hlakka til“ þegar eitthvað var ákveðið að gera skyldi, hvort heldur stórt eða smátt, og þegar við tveir vinir hans kvöddum hann tveimur dögum fyrir andlát hans og sögðum: „Stefán, við komum á morgun," sagði hann svo varla heyrðist: „Ég hlakka til.“ En að kvöldi þess sama dags var hann fluttur til síðustu hvílu sinnar hér og heimsóknir okkar urðu ekki fleiri. Hann kvaddi þetta líf með sama jákvæða hugarfarinu og hann hafði lifað og eflaust hugsað: „Ég hiakka til.“ Agnar Jörgensson. Vildarvinur minn, Stefán Þórir Guðmundsson, andaðist á Landspít- alanum 11. júlí sl. eftir harða bar- áttu við illvígan sjúkdóm. Stefán fæddist í Eskihlíð við Reykjavík 29. júní 1917 og var því 75 ára að aldri er hann lést. Raunar var Stefán hafinn yfir almennar skilgreiningar í mínum huga, bæði hvað varðaði aldur og annað. Persónuleiki hans, viðmót svo og framganga öll var með þeim hætti, að viðmið þau, sem manni er tamt að tileinka sér í umgengni við annað fólk, viku smám saman til hliðar við frekara samneyti. Stefán var mjög sérstæð- ur maður, alveg einstakur á sinn hátt. Það duldist engum sem hann þekkti. Stefáni kynntist ég í ársbyijun 1984, er ég hóf störf við ræstingar hjá Verðlagsstofnun eða „embætt- inu“, sem hann kallaði svo. Embætt- ið var vinnustaður Stefáns um margra ára skeið og jafnframt hans fasti punktur í tilverunni alveg fram til þess síðasta. Fyrsta daginn, sem ég mætti til vinnu hjá embættinu, tók Stefán á móti mér með sínum alkunna höfðingsbrag. Eftir að hafa kynnt sig spurði hann mig umsvifa- laust að því, hvort hann mætti ekki bjóða mér eitthvað. Því næst vísaði hann mér inn í skrifstofuherbergið sitt og bauð mér til sætis. Og sem ég sat þar og þáði góðgerðir; gos, súkkulaði og kexkökur, hálfvand- ræðaleg innan um stafla af dagblöð- um og pappírum ýmiss konar, upp- lýsti hann mig um mörg helstu við- horf og stefnur í lífí sínu. Kvaðst hann vera bindindismaður á vín og tóbak og aldrei hafa drukkið neitt sterkara en kaffí, ekki einu sinni malt. Þá sagðist hann aldrei hafa bragðað svínakjöt og myndi aldrei gera. Hvað stjórnmálaskoðanir áhrærði, kvaðst hann bera blárri en hafið. Þarna fékk ég og að heyra það, að tölvur væru það vitlausasta af öllu vitlausu, sem maðurinn hefði fundið upp. Helsta löst karlmanna taldi hann þann, að þeir kynnu ekki að umgangast kvenfólk með tilhlýði- legri virðingu. Já, það var margt spjallað á fyrsta fundi okkar Stef- áns, og þetta átti maður allt saman eftir að heyra aftur og aftur, að ég minnist nú ekki á allar latnesku til- vitnanirnar. Svo kom nú að því, þennan fyrsta dag minn í vinnunni, að Stefán gekk með mér um Emb- ættið og sýndi mér það sem ég þurfti ekki að gera, hann væri nefni- lega búinn að „flýta dálítið fyrir“, t.d. tæma úr ruslafötum, þurrka úr gluggakistum o.s.frv. Það er svo skemmst frá því að segja að sama sagan endurtók sig nokkurn veginn daginn eftir, og þannig viðhélst þetta þau ár sem ég starfaði hjá embættinu. Þegar ég kom til vinnu var Stefán ævin- lega búinn að flýta fyrir, mér voru boðin kynstrin öll af sætindum og saman ræddum við um „heimspeki, bókmenntir, listir, fagrar konur og hross", svo vitnað sé til orða Stef- áns. Það fer ekki hjá því, að manni finnst sem ákveðið tómarými hafi skapast, nú þegar Stefán er horfinn af sjónarsviðinu og veit ég að svo mun vera með fleiri. Stefán var afar vinmargur mað- ur, enda vildi hann öllum gott gera og lét sér fátt vera óviðkomandi í mannlegum samskiptum. Þau voru mjög náin alla tíð, Stefán og Guð- rún, systir hans, eða Tóta eins og hún er yfirleitt kölluð. Stefán bjó oft hjá Tótu og var ávallt þess á milli með annan fótinn inni á heim- ili hennar. Hinn fótinn var Stefán jafnan með á Háteigsveginum, hjá Öldu Hansen, móður Georgs verð- lagsstjóra, og Bárði Daníelssyni manni hennar, svo og þeim systrum Effu og Dagnýju Georgsdætrum. Það er óhætt að segja að Stefán hafi verið ævifélagi þessa ágæta fólks, svo löng og náin voru kynnin þarna á milli. Ég get ekkj iátið hjá líða að minn- ast lítillega á þá hlutdeild, sem „strákarnir", þ.e. 'þeir Georg og Gunnar á Verðlagsstofnun, áttu í Iífi Stefáns. Stefán orðaði það sjálf- ur einhvern tíma á þann veg, að hann þekkti þá stráka manna best, enda hafði hann nánast alið þá upp. Eitt er víst að þau tryggðabönd, sem spunnust milli strákanna og Stef- áns, rofnuðu aldrei. Ég kveð Stefán vin minn að leið- arlokum með versi, sem hann kenndi mér eigi alls fyrir löngu og við fór- um oft með okkur til hugarhægðar: Ami S. Finnboga- son — Kveðjuorð

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.