Morgunblaðið - 21.07.1992, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 21.07.1992, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚLÍ 1992 iL Gengur í bunum... „Þetta gengur mjög vel núna og menn eru að fá lax um allt svæðið. Við slepptum talsverðu af seiðum í fyrra og það er að skila sér. Það hafa verið skráðir 30 laxar síðustu daga og fleiri hafa veiðst en ekki farið í skýrsl- una,“ sagði Símon Sigurmonsson við Vatnasvæði Lýsu á Snæfells- nesi í samtali við Morgunblaðið um helgina. Lítil veiði var á svæð- inu í fyrra, en betur horfir nú og silungsveiði hefur einnig verið með ágætum. „Þetta var vatns- laust í hitunum .í fyrra, en nú er enn nægur snjór í fjöllum og eng- inn vatnsskortur," sagði Símon enn fremur. „Netasvæðið“ gefur vel... „Það er farið að veiðast vel á gamla netasvæðinu í Hvítá, það var einn í vikunni sem fékk ellefu laxa á einum degi. Hann var eiginlega alveg hissa, því hann var ekki vanur veiðimaður. Svo var hér einn sem stoppaði ör- skamma stund, en náði þó einum og missti fjóra. Þetta hefur hins vegar verið lítið stundað enn sem komið er,“ sagði Þorkell Pjeldsted Valgerður Bjarnadóttir fallega veiði úr Langá. með í Ferjukoti í samtali við Morgun- blaðið. Tilraunaveiði með stöng- um hófst á svæðinu í fyrra, en áin var þá erfið til veiða vegna gruggs. Nú er hún „tærari en bergvatn", eins og Þorkell komst að orði og því allt önnur og má því búast við að fleiri veiðistaðir finnist á svæðinu. „Skemmtileg- asti tíminn er að fara í hönd og nú fer silungurinn líka að koma,“ sagði Þorkell. Hann sér um sölu veiðileyfa sem kosta lítið. SVFR er einnig með leyfi á svæðið í umbóðssölu. Björgunarbáturinn Daníel Sigmundsson á siglingu í Hesteyrarfirði. Þrjú strönd í Hesteyrarfirði: Bandaríska skútan siglir til Isafjarðar eftir að hafa verið dregin á flot. Bj örgunarbátur strandaði við að aðstoða Sómabát Cordula Hacke píanóleikari og Cornelia Thorspecken flautuleikari. Listasafn Signrjóns Óiafssonar: Flauta og píanó á þriðjudagstónleikum TVEIR hljóðfæraleikarar frá Þýskalandi, þær Cornelia Thorspecken, flautuleikari og Cordula Hacke píanóleikari, koma fram á þriðjudagstónleik- um í Listasafni Siguijóns Ólafs- sonar í kvöld kl. 20.30. Á efnisskrá tónleikanna eru verk eftir Eldip Burton, Franz Schubert, einleiksverk fyrir alt- flautu eftir Kazuo Fukushima og sónata fyrir flautu og píanó eftir Sergej Prokofjev. Tónleikarnir standa í um það bil eina klukkustund. Kaffistofan verður opin og í efri sal safnsins eru nú til sýnis æskuverk eftir Sigutjón Ólafsson. ÞRJÚ skip strönduðu með skömmu millibili í Hesteyrarfirði aðfararnótt sunnudagsins. Fyrst bandarísk skúta, síðan Sómabát- ur og loks björgunarbáturinn Daniel Sigmundsson frá ísafirði. Danlel strandaði eftir að hafa náð skútunni á flot og þegar hann var að reyna að ná Sóma- bátnum út. Gúmmíbjörgunarbát- ur frá varðskipinu Tý kom síðan Daníel aftur á flot. Sævar Óli Hjörvarsson er var skípstjóri á Daníel Sigmundssyni þessa nótt segir að kall hafi komið frá bandarísku skútunni Nomad um klukkan þijú um nóttina. Hafði skútan fengið drasl í skrúfuna og síðan rekið upp í fjöru í Hesteyrar- firði. Daníel kom á staðinn um klukkustund síðar en þá hafði fjarað undan skútinn. Var því beðið með aðgerðir tii næsta flóðs en á meðan tókst skipveijum á Nomad að skera úr skrúfunni. Snemma um morguninn var varðskipið komið á vettvang og fengu skipveijar á Daníel lánaða trossu frá varðskipinu. Tókst að koma henni um borð í Nomad og draga skútuna á flot. Reyndist allt í lagi og sigldi skútan við svo búið til Isafjarðar en þrír bandaríkja- menn voru um borð. Skömmu eftir að tókst að ná Nomad á flot rak Sómabátinn Jó- hönnu upp í fjöruna þarna skammt frá. Legufæri Jóhönnu höfðu losnað með þessum afleiðingum. Sævar segir að þegar þeir hafi haldið aftur upp í íjöruna til bjargar Jóhönnu hafi þari komist inn í sjóinntak vél- Ný fiðlusónata komin út NÝLEGA er út komin sónata nr. 2 fyrir fiðlu og píanó eftir Hall- grím Helgason. Verkið er tileinkað kanadíska fiðluleikaranum dr. Howard Leyt- on-Brown, en hann ásamt höfundi frumflutti sónötuna í Kanada, á háskólakonsert í Regina í Saskatch- ewan 1968. Sónatan er í þrem köflum: Adagio-Allegro moderato, Lento assai, ostinato funebre, Allegro burlesco: Rondó. í upphafskafla og lokakafla er stefjaefni m.a. tekið úr íslenskum þjóðlögum (Núma-rímur, Kvinnan fróma, klædd með sóma). Fyrsta sónata Hallgríms kom út 1965 hjá Musica Islandica, músík- forlagi Menningarsjóðs. Norræna húsið: Söngvarar halda tónleika NÁMSKEIÐ fyrir söngvara hafa staðið yfir sl. tvær vikur í Tónlist- arskóla Garðabæjar. Kennari er Anthony Hose frá Englandi. í framhaldi af námskeiðinu verða haldnir tónleikar í Norræna hús- inu í kvöld, þriðjudag, kl. 20.30. Anthony Hose hefur starfað hér á landi áður, því hann hefur stjómað mörgum uppfærslum hjá íslensku óperanni á sl. árum. Á tónleikunum í kvöld koma fram margir söngvar- ar, þ.á.m. Elsa Waage, Björk Jóns- dóttir, Hanna Dóra Sturludóttir, Þóra Einarsdóttir, Þórunn Guð- mundsdóttir, Björn Björnsson, Guð- mundur Þ. Gíslason, Jóhannes Bald- ursson o.fl. Undirleikari á tónleikunum er David Knowles. Morgunblaðið/Einar H. Valsson. Daníel á strandstað þar sem bandariska skútan liggur upp í fjöru. arinnar svo hún missti afl og rak bátinn upp í fjöra. Skipveijar frá varðskipinu komu á staðinn á gúmmíbát og tókst þeim að ýta Jóhönnu á flot en síðan var trossa sett úr gúmmíbátnum yfir í Daníel og hann dreginn á flot. Sævar segir að Daníel Sigmundsson sé ekki með skrúfu heldur knúinn áfram með því að vél hans spýtir sjó aftur úr sér. Sé þetta gert svo báturinn geti athafnað sig á mjög grannu vatni en á móti kemur sá veikleiki að báturinn þolir illa að fá mikinn þara inn í sjóinntökÉn eins og þarna gerðist. Skírnartertu stolið LÖGREGLUNNI í Reylyavík var tilkynnt um stuld á stórri skirn- artertu aðfararnótt sunnudags- ins. Bakari á veitingahúsinu Við tjörnina hafði nýlokið við að baka tertuna og hafði sett hana fyrir utan anddyri veitingahúsins til að kæla hana er henni var stolið. Samkvæmt upplýsingum frá lög- reglunni mun tvo drengi hafi'borið að veitingahúsinu skömmu eftir að bakarinn setti tertuna út og stálu þeir henni. Þrátt fyrir mikla leit lögreglu um nóttina fundust hvorki drengirnir né tertan. Skírnartertuna átti að nota í veislu á sunnudag og þurfti bakarinn því að bretta upp á erm- amar á ný og baka aðra tertu um nóttina. Anthony Hose, söngkennari, til vinstri, ásamt nemendum sínum á söngnámskeiðinu. VANN ÞIN ■ ■ FJOLSKYLDA? Heildarvinningsupphæðin : 133.314.162 kr. 29, k 18 ' ' Röðin :121-2X1 -211-1111 13 réttir: 2.840 raðir á 21.130 - kr. 43.461 raðir á 390 - kr. 268.436 raðir á 0 - kr. 943.560 raðir á 0 - kr. Aö þessu sinni voru vinningar fyrir 11 og 10 rétta undir 200 kr. lágmarkinu og flyst sú vinningsupphæö því á fyrsta vinning næstu viku. Þaö veröur því sannkallaöur RISAPOTTUR um næstu helgi því þaö veröa um 90 mllljónlr í fyrsta vinning. 12 réttir: 11 réttir: 10 réttir: fyrirþig ogþina fjólskyídu!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.