Morgunblaðið - 21.07.1992, Blaðsíða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚLÍ 1992
STIÖRNUSPÁ
eftir Frances Drake
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú getur óvart móðgað ein-
hvern í dag. Vandinn er að
þetta er tilfinningan'k per-
sóna sem oft gerir of mikið
úr hlutunum.
Naut
(20. apríl - 20. maí) lí^
Einhver þér nákominn hefur
engan áhuga á því sem þú
varst að vinna í dag. Taktu
tillit til þarfa annarra. Hugs-
aðu um heilsuna.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú hefur tilhneigingu til að
ganga út í öfgar við skemmt-
un og innkaup í dag. Gefðu
smáatriðum gaum í vinn-
unni. Fylgstu vel með.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí) Hg
Það getur verið annasamt að
vera með fulit hús af gestum.
Vertu ekki of gagnrýninn í
garð bams. Þú og einhver
þér nákominn eigið nú betur
saman.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú verður að sýna tillitssemi
í samskiptum við ættingja og
vini. Láttu ekki óþarfa mas
á þig fá. Forðastu rifrildi.
Meyja
(23. ágúst - 22. september)
Þú verður að taka því sem
fyrir ber í dag ef þú ætlar
að koma einhveiju í verk.
Skemmtu þér án þess að eyða
of mikiu í kvöld. Vertu ekki
of hörundssár.
Vog
(23. sept. - 22. október)
Dómgreindin er ef til vill
ekki upp á sitt bezta við inn-
kaupin í dag. Það getur verið
erfitt að vera í megrun. Þú
verður að vera ákveðinn.
Sþorðdreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Ekki bregðast of hart við
hugsunarleysi annarra.
Skapandi verkefni eru efst á
baugi á komandi vikum.
Vandamál gæti komið upp í
kvöld.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. desember) &
Þú ætlar hugsanlega að selja
eitthvað sem þér þykir vænt
um á næstunni. Þú hefur til-
hneigingu til að eyða allt of
miklu um þessar mundir.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar) 1^*5
Nú er ekki rétti tíminn til að
sameina gagn og gaman. Þú
gætir lent í deilum við vin
þinn út af peningamálum.
Þú öðlast nýja þekkingu i
vinnunni.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar)
Vertu ekki að ráðleggja öðr-
um í dag. Hugsaniega yrði
litið á hjálp þína sem af-
skiptasemi. Vertu hvorki of
tortrygginn né of trúgjam.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars)
Vertu ekki of örlátur á fé í
dag. Þú þarft tíma fyrir sjálf-
an þig í kvöld, svo ljúktu
erindum við aðra snemma.
Hvíldu þig svo.
Stjörnusþána á aó lesa sem
dœgradvöl. Spár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum grunni
visindalegra staóreynda.
DYRAGLENS
GBFA aldeilis sTöeu)
Löfoeðm/_____
T
HELDURÐU AÞ
þElE ÆTL/ SÍR
EFNA þAUc* j
nV?
4
V/TA A€>
þ&R. þUKFA M þElM AE>
HALDA ATTVR ETrrZ J
FJÖGUe 'ARjJ
GRETTIR
FERDINAND
SMÁFÓLK
IF YOUSTRIKE 0UTTHI5 LA5T
6UY, CHARLIE BROWN.YOU'RE
60IN6 TO MAKE HIM
VERY VERY UNHAPPY..
Ef þú fellir þennan síðasta gaur úr
leik, Kalli Bjarna, gerirðu hann
mjög vansælan.
THAT'5 RI6HT..ARE V0U
5URE YOU UiANT TO BRIN6
UNEXPECTEP 6RIEF INTO
THAT POOR KID’S LIFE ?
Rétt er það... ertu viss um að þú
viljir færa óvænta sorg inn í líf þessa
vesalings krakka?
Níundu lotu siðfræði.
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Þrátt fyrir hindrun austurs í
upphafi, komst NS í prýðilega
slemmu. Hún er þó ekki borð-
leggjandi.
Austur gefur; NS á hættu.
Norður
♦ ÁKG2
¥D10
♦ 7643
+ 985
Suður
+ 73
VÁKG954
♦ ÁK52
♦ Á
Vestur Norður Austur Suður
— — 2 spaðar* Dobl
Pass 3 grönd Pass 4 hjörtu
Pass 4 spaðar Pass 6 hjörtu
Pass Pass Pass
* Veikir tveir.
Útspil vesturs er spaðaátta.
Hvernig er best að spila?
Eina alvarlega ógnunin við
slemmuna er 4-1-lega í tígli.
Með þá hættu í huga er rétt að
setja strax varaáætlun af stað.
Sagnhafi drepur á spaðaás og
spilar laufi á ás. Notar svo inn-
komurnar á tromp i blindum til
að stinga tvö lauf. Það er eftir-
farandi heildarmynd sem suður
hefur í huga:
Norður
♦ ÁKG2
VD10
♦ 7643
♦ 985
Vestur
♦ 8
V 87
♦ DG109
♦ KG6432
Austur
♦ D109654
V 632
♦ 8
♦ D107
Suður
♦ 73
V ÁKG954
♦ ÁK52
♦ Á
Sagnhafi tekur síðasta tromp-
ið af austri _og prófar nú tígul-
inn, tekur ÁK. Einspil austurs
kemur ekki á óvart og gerir
heldur ekkert til. Suður spilar
einfaldlega spaða ojflætur tvist-
inn. Austur á ekkert nema spaða
eftir og verður að spila upp í KG.
Ef í ljós kemur að hjartað
skiptist 4-1, hættir sagnhafi við
varaáætlunina og spilar upp á
að tígullinn brotni.
SKAK
Umsjón Margeir
Pétursson
í úrslitaviðureign sænsku deildar-
keppninnar í vor kom þessi staða
upp í viðureign þeirra Slavko Cic-
ak (2.310), Wasa, og Mats Sjö-
berg (2.380), Rockaden, sem
hafði svart og átti leik. Hvítur lék
síðast 20. Ba5 - c7 og hefur
greinilega aðeins gert ráð fyrir
svarinu 20. - Ba7 - b8, því svarta
peðið á d6 stendur í uppnámi.
20. - Hxc7!!, 21. Rxc7 - Bg4,
22. Dg2 - Rf4!, 23. Dxh3 (Ekki
23. gxf4? - Bf3) 23. - Bf3+!,
24. Dg2 (24. Kgl?? - Rxh3 er
mát) 24. - Bxg2+, 25. Kgl -
Rxd3, 26. Kxg2 - Rxel+, 27.
Hxel - Hc8, 28. Rd5 - Hxc4.
Svartur hefur nú uppskorið árang-
urinn af þessari löngu og glæsi-
legu fléttu, sem er eitt peð. Seint
og um síðir dugði það honum til
sigurs í endatafli. Félag Sjöbergs,
Rockaden, hafði nauman sigur á
Wasa og tryggði sér Svíþjóðar-
meistaratitilinn.