Morgunblaðið - 21.07.1992, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚLÍ 1992
37
Þorbjörg Hannesdóttir fæddist á
Hvammstanga 27. nóvember 1927.
Foreldrar hennar voru hjónin Hann-
es Jónsson, kaupfélagsstjóri Kaup-
félags Vestur-Húnvetninga og al-
þingismaður, og kona hans, Hólm-
fríður Jónsdóttir, ættuð frá Húsa-
vík.
Sjö ára gömul veiktist Þorbjörg
af lömunarveiki og lamaðist alvar-
lega á öðrum fæti og beið þess aldr-
ei bætur síðan. En þrátt fyrir fötlun
sína var hún Iangt frá því að vera
eftirbátur annarra barna í leik og
öðrum athöfnum, nema síður væri,
og seinna átti hún eftir að sanna
að hún stóð öðrum fyllilega jafnfæt-
is í lífinu þótt stórskerta líkamsorku
hefði, eins og vikið verður að hér
á eftir.
Eftir barnaskólanám dvaldi Þor-
björg vetrarlangt hjá móðursystur
sinni á Húsavík og stundaði þar
nám í unglingaskóla. Haustið eftir
dvöl sína þar hóf hún nám í héraðs-
skólanum í Reykholti, en fáum
mánuðum eftir komu hennar þang-
að veiktist hún af berklum, og í
desember sama ár var hún lögð inn
á Vífilsstaðahæli, þá aðeins 15 ára
gömul. Þar dvaldist hún síðan sam-
fleytt í sex ár, útskrifaðist þá í eitt
ár, veiktist aftur og var á hælinu
í fjögur ár í viðbót. Þá hafði henni
loks eftir tíu ára hælisvist og rót-
tækar læknisaðgerðir, rifjaskurð
ofl., tekist að sigrast á þessum geig-
vænlega sjúkdómi. Eftir útskrift af
Vífilsstöðum dvaldi hún sér til
hressingar á Vejlefjord Sanatorium
á Jótlandi sumarið 1954, og eftir
dvöl sína þar giftist hún hinn 13.
ágúst eftirlifandi manni sínum,
Stefáni G. Jónssyni, tæknifræðingi,
og fór brúðkaupið fram í Kaup-
mannahöfn. Þau Stefán eignuðust
tvö börn, Stellu og Jón Hannes.
Við komu sína til Vífilsstaða
kynntist Þorbjörg strax samtökum
berklasjúklinga^ SÍBS, og varð þar
virkur félagi. A þeim árum unnu
berklasjúklingar sjálfir óhemjumik-
ið sjálfboðaliðastarf í þágii SÍBS,
sérstaklega í sambandi við ýmis-
konar fjáraflanir semþá voru í
gangi, enda skammt undan að sam-
tökin hæfu byggingu Vinnuheimilis
SÍBS að Reykjalundi, sem tók til
starfa í febrúár 1945. Þorbjörg lá
aldrei á liði sínu ef taka þurfti til
hendi í þágu samtakanna, og síðar
varð hún mjög virkur félagi, var
fulltrúi á þingum SÍBS og lengi í
stjórn SÍBS-deildarinnar í Reykja-
vík. Allt sem hún tókst á hendur
vann hún af stakri alúð og atorku.
Fljótlega eftir að happdrætti
SÍBS hóf göngu sína fór Þorbjörg
að vinna þar, fyrst ígripavinnu og
í afleysingum, en síðar samfleytt í
meira en tvo áratugi, þar til hún
neyddist til að láta af störfum á
síðasta ári vegna heilsubrests.
Ég kynntist Þorbjörgu er ég kom
sem sjúklingur að Vífilsstöðum vor-
ið 1947, en þá var hún tæplega
tvítug að aldri, ákaflega falleg og
lífsglöð stúlka, en síðar átti ég eft-
ir að verða samstarfsmaður hennar
í fjölda ára hjá happdrætti SÍBS
og þar kynntist ég betur miklum
mannkostum hennar, atorku, sam-
viskusemi og ósérplægni, og síðast
en ekki síst hennar léttu og glöðu
lund sem heillaði alla sem með henni
unnu. Hin síðari ári var heilsu henn-
ar mjög tekið að hnigna vegna þrá-
láts lungnasjúkdóms, en eins lengi
og stætt var sótti hún vinnu sína,
kvartaði aldrei en vann verk sín af
sömu alúð og vandvirkni sem fyrr.
Það er hollt og lærdómsríkt að hafa
átt þess kost að starfa með þessari
ósérhlífnu og hugljúfu konu sem
aldrei lét bugast af erfiðleikum þeim
sem hún vissulega þurfti að glíma
við lengst af ævinni og hún hlaut
að lokum að lúta í lægra haldi fyrir.
Þorbjörg trúði staðfastlega að
þegar jarðvist hennar lyki tæki við
annað tilverustig, miklu betra og
fullkomnara en það sem við þekkj-
um hér á jörð. Ég vona að henni
hafi orðið að trú sinni og óska að
vegur hennar handan landamær-
anna verði blómum stráður, hérna
megin var hann stundum of grýttur.
Ég votta Stefáni, eiginmanni
Þorbjargar, börnum þeirra og öðr-
um nánum ættingjum innilega sam-
úð.
Ólafur Jóhannesson.
BIÓM
SEGJA ALLT
Mikið úrval
blómaskreytinga
fyrir öll tækifæri.
Opið alla daga frá kl. 9-22.
Sími 689070.
Erfidrykkjur
Glæsilee kafti-
C/
hlaðborð faileu ir
O
salir og mjög
g(5ð þjónusta.
IJppiýsingar í
síma 2 23 22
FLUGLEIDIR
KTtL Limtllit
t
Útför
KARLS EIRÍKSSONAR,
frá Öxl,
Giljaseli 5,
fer fram miðvikudaginn 22. júlí kl. 1 5.00
í Víðistaðakirkju.
Anna Ólafsdóttir,
Reimar Karlsson,
Jóhannes Karlsson,
Ingólfur Karlsson,
Steinar Karlsson,
Kristjana Karlsdóttir,
Ólöf Karlsdóttir,
Ólafur Karlsson,
Kristlaug Karlsdóttir,
Eiín Karlsdóttir,
Eirfkur Karlsson,
Anna Karlsdóttir,
Emilia Karlsdóttir,
Guðrún Karlsdóttir,
Sigurður Karl Karlsson,
Guðbjörg B. Karlsdóttir,
barnabörn og
Galina Galtseva,
Sigrún B. Jónsdóttir,
Sigrún D. Jóhannsdóttir,
Ester Halldórsdóttir,
Guðmundur Einarsson,
Vigfús Þór Jónsson,
Þórhildur Richter,
Gestur Kristjánsson,
Anna Margrét Vésteinsdóttir,
Einar Þór Þórsson,
Ólafur Hjálmarsson,
Þorvaldur Bjarnason,
Ása Magnúsdóttir,
Egill Þór Magnússon,
barnabarnabörn.
t
Við þökkum af heilum hug auðsýnda samúð og vináttu við andlát
og útför
ÞORGEIRS JÓSEFSSONAR
framkvæmdastjóra,
Akranesi.
Svanlaug Sigurðardóttir,
Jóhanna Þorgeirsdóttir, Hjalti Jónasson,
Jónína S. Þorgeirsdóttir, Leifur ívarsson,
Jósef H. Þorgeirsson, Þóra Björk Kristinsdóttir,
Svana Þorgeirsdóttir, Gunnar Kárason.
t
Þökkum auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför eigin-
manns míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
JÓNS G. S. JÓNSSONAR,
Kvisthaga 29.
Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki á elliheimilinu Grund fyr-
ir hlýhug og góða umönnun.
Inga S. Gestsdóttir,
Gerða Jónsdóttir, Ólafur Gísiason,
Gestur jónsson, Þóra Þorgrímsdóttir,
Sigríður Jónsdóttir,
Guðbjörg Jónsdóttir,
Inga Sif Ólafsdóttir,
Heiða S. Gestsdóttir,
Jón Ari Ólafsson.
t
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við
andlát og útför ástkærrar eiginkonu,
móður, tengdamóður og ömmu,
MAGNEU BJARNADÓTTUR,
Reynivöllum 5,
Selfossi.
Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki
Ljósheima, hjúkrunarheimilis aldraðra,
Selfossi.
Guð blessi ykkur öll.
Tage Rothaus Olesen,
Bjarni Olesen, Jóhanna Guðjónsdóttir Öfjörð,
Óli Olesen,
Ágústa Olesen
og barnabörn.
+
Mín kæra ást,
GÆJA,
GERÐUR KRISTÍN KRISTINSDÓTTIR EINARSSON,
fædd 8. ágúst 1924,
andaðist á heimili sínu í Larvik, Noregi, 18. júlí 1992.
Jarðsett verður frá Undersbo Kapell, Larvik, Noregi, föstudaginn
24. júlí kl. 12.00.
Jónas Kristján Einarsson,
Kristenn og Kari,
Einar og Hjordis,
Hafdis og Fons,
Jonas og Lise,
Garðar, Christoffer, Lina, Joachim, Jonas, Atle, Ane,
Sindre, Tomas, Ida Elise og Thea Maria.
+
Móðir okkar,
KATRÍN FRIMANNSDÓTTIR,
Furugerði 1,
Reykjavík,
lést í Borgarspítalanum 9. júlí sl.
Útförin hefur farið fram f kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Fyrir hönd vandamanna,
Magdalena Jóhannesdóttir,
Harpa Jóhannesdóttir.
Til greinahöfunda:
Minningar- o g
afmælisgr einar
Það eru eindregin tilmæli rit-
stjóra Morgunblaðsins til þeirra,
sem rita minningar- og afmælis-
greinar í blaðið, að reynt verði
að forðast endurtekningar eins og
kostur er, þegar tvær eða fleiri
greinar eru skrifaðar um sama
einstakling. Þá verða aðeins leyfð-
.ar stuttar tilvitnanir í áður birt
ljóð inni í textanum. Almennt
verður ekki birtur lengri texti en
sem svarar einni blaðsíðu eða
fimm dálkum í blaðinu ásamt
mynd um hvern einstakling. Ef
meira mál berst verður það látið
bíða næsta eða næstu daga.
+
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð
og vinarhug við andlát og útför
SIGURGEIRS ÞORGRÍMSSONAR
ættfræðings.
Sérstakar þakkir færum við Stórstúku íslands, Samfrímúrararegl-
unni, íþróttafélagi fatlaðra, DV og þeim fjölmörgu vinum og sam-
herjum, sem minnst hafa hans að undanförnu.
Ingibjörg Sveinsdóttir,
Sveinn Þorgrímsson, Magnús Þorgrfmsson,
og fjölskyldur.
+
Okkar elskaða móðir, tengdamóðir og amma,
JÓNA GUÐRÚN BJÖRNSDÓTTIR
sem lést 9. júlí sl. á heimili sínu Hátúni 10a, Rvík verður jarðsungin
miðvikudaginn 22. júlí nk. frá Fossvogskirkju (Nýju kapellunni) kl. 13.30.
Með djúpum söknuðu og sorg.
Björn Snæbjörnsson Arnljóts, Kristína Arnljóts,
Hjalti Snæbjörnsson Arnljóts, Birgitta Johansson,
Anna María Snæbjörnsdóttir Brown, Kenneth Brown,
Arnljótur Snæbjörnsson Arnijóts,
og barnabörn.
+
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim,
er sýndu okkur samúð og vinarhug við
andlát og jarðarför systur minnar,
GUÐRÍÐAR
GUÐMUNDSDÓTTUR.
Guð blessi ykkur öll.
Fyrir mína hönd og annarra aðstand-
enda,
Sveinbjörn Guömundsson.
Lokað
Lokað eftir hádegi í dag vegna jarðarfarar.
Happdrætti SÍBS, Suðurgötu 10.