Morgunblaðið - 21.07.1992, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 21.07.1992, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚLÍ 1992 Mh i; j , ■ / U i!. :..-i 'Jd' I---j'.; ■■ 'L Sjálfsbjargarvið- leitni íslendinga eftirÞórunni Sveinbjörnsdóttur Nú þegar þjóðin horfist í augu við gífurlegan samdrátt í fiskveið- um til viðbótar þeim aflasamdrætti sem hefur átt sér stað undanfarin ár verður við að skoða stöðu ann- arra íslenskra atvinnuvega því ljóst er að atvinna dregst saman á næstu misserum. Atvinnuleysi er nú þegar orðið geigvænlegt og brýnt að spyrna við fótum hið snarasta. í kjaraviðræðum á síðastliðnum vetri var stofnuð atvinnumálanefnd vinnuveitenda og ASÍ. í henni komu fram margar athyglisverðar tillögur en þær eru enn á blaði og í um- ræðu. Það er ekki nóg. Eitthvað verður að gerast fljótt og í vissum málum þarf ekki langan undirbún- ing. Okkar ágæta þjóð á að taka' sig taki og hætta að trúa því að allar innfluttar vörur séu betri en okkar. Við eigum ekkert þjóðarstolt til að vernda okkar eigin framleiðslu. Svona hugsa aðrar sambærilegar þjóðir ekki. Má þar nefna Norður- lönd. Þar er ekkert t.d. Cheerios. Þeir eru að vernda sína eigin fram- leiðslu, svo fólk haldi vinnu og ekki þurfi að sóa öllum gjaldeyri sem inn kemur. Það er ekki nóg á hátíða- og tyllidögum að ræða um íslenska menningu, landvernd og skógrækt. Það þarf líka að áminna okkur al- varlega hvað varðar sóun og of- neyslu. Þegar kemur að innkaupum til húss og heimilis ættum við alltaf að kaupa íslenskt því með hveijum innkaupum þar sem íslenskt er í innkaupakörfunni minnka líkurnar á að íslenskt fyrirtæki sem skapar íslendingum vinnu fari á hausinn. Við eigum orðið fjölda af vönduðum góðum vörum sem gefa þeim út- lendu ekkert eftir. Nefna má marmelaði, sultu, kaffi kökur, þvottaefni, ræstiefni, sápur, busta, kústa, regnföt, vinnuföt og margt fleira. Það sem enginn virð- ist hugsa um er það, að hvert sultu- glas eða þvottaefnispakki sem keyptur er skapar vinnu fyrir ís- Þórunn Sveinbjörnsdóttir „Með hverjum innkaup- um þar sem íslenskt er í innkaupakörfunni minnka líkurnar á að íslenskt fyrirtæki sem skapar íslendingum vinnu fari á hausinn.“ lending. Ef við tökum okkur ekki á þá fækkar þessum störfum. Hvað erum við að hugsa? Ef við viljum að fólk hafi atvinnu þá skulum við taka höndum saman og kaupa allt- af íslenskt þegar það er til. Munum, það skapar vinnu. Með því að kaupa erlenda sultu eða þvottaefni erum við að greiða fólki laun í öðru landi. A tímum vaxandi atvinnuleysis get- * um við ekki leyft okkur að glata íslenskum störfum með hugsunar- leysi. Ég skora á okkur öll. Snúum dæminu við. Sýnum þjóðarstolt með því að hugsa alltaf íslenskt fyrst. Þannig komumst við af í okkar harðbýla landi. Höfundur er formaður starfsmannafélagsins Sóknar. Innilegar þakkir til venslafólks og vina fyrir hlýjar kveðjur og góðar gjafir á gullbrúðkaups- degi okkar 4. júlí sl. Gunnþóra Kristmundsdóttir og Helgi Þorláksson. Laugardaginn 18.07.1992 Flokkur: H í Lukkupotti núna eru 552.032,- kr. OPEL ASTRA er fyrsti bíllirm í sínum stærðarflokki með nýja tegund öryggisbelta. Þessi \ búnaður byggist á beltastrekkjara sem við árekstur dregur beltið að líkamanum og varnar því að höfuðið lendi á stýrinu, eða að líkaminn renni út undan beltinu, eins og oft gerist með helðbundin belti. Og það sem meira er, þetta er staðal- búnaður. OPEL ASTRA er líka sterkur bíll. Hann er búinn tvöföldum stálbitum í bæði fram- og afturhurðum, auk þess sem farþegarýmið er sérstaklega £ styrkt. Sérstök krumpusvæði að framan og aftan draga úr höggi við árekstur. ABS bremsukerfi ■HnmnHH SUM BÍLBELTI ERU EINFALDLEGA BETRI EN ÖNNUR! r..m með læsivörn eykur enn á öryggið (aukabúnaður). OPEL er ásamt Volvo og Mercedes Benz leiðandi fyrirtæki á sviði umferðaröryggis. Þú ert öruggur úti að aka, með beltin spennt á OPEL ASTRA. OPELe UmboðsaSili General Motors ó íslandi. Höfóabakka 9. Sími 91-63 40 00 & 63 40 50 QPEL ASTRA. VERÐ FRÁ 996.000 KR.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.