Morgunblaðið - 21.07.1992, Blaðsíða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚLÍ 1992
TORFÆRA A AKRANESI
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
Sigrinum klúðrað á lokametrunum. Gunnar Guðjónsson hafði sig-
urinn í hendi sér, en velti í lokaþrautinni eftir góða frammistöðu
og sat eftir með sárt ennið á hvolfi í miðri þraut.
„Andlegt stríð
keppendanna"
HÖRKUKEPPNI var um sigur í torfærukeppni Akstursíþrótta-
klúbbs Vesturlands, sem fram fór skammt frá Akranesi á laugar-
daginn. í fiokki sérútbúinna jeppa réðust úrslitin á síðustu metrun-
um í síðustu þrautinni, en þrautirnar voru margar hverjar
skemmtilegar, en keppnin var sú fyrsta á þessu svæði. Akureyring-
urinn Helgi Schiöth vann sérútbúna flokkinn, en Steingrímur
Bjarnason í flokki standard-jeppa.
Árni Kópsson leiddi keppni
lengst af, eftir að hafa náð for-
ystu í forkeppninni, en Tyrfingur
Leósson, Einar Guðlaugsson,
Helgi Schiöth og Gunnar Guðjóns-
son voru allir skammt undan.
Gunnar saxaði síðan verulega á
forskot Áma, fékk fullt hús stiga
í hverri þraut af annarri og þegar
Ámi gerði glappaskot í næstsíð-
ustu þrautinni náði hann öruggri
forystu fyrir síðustu þrautina, en
Helgi Schiöth var honum næstur.
En með sigurinn í augsýn tók
Gunnar óþarfa áhættu og velti
jeppanum úr keppni. „Ég ætlaði
bara að ná fullri stigagjöf, í stað
þess að aka bara af öryggi í gegn-
um þrautina og spá í stöðuna.
Ég fór of ofarlega í þrautina og
velti eftir að jeppinn stakkst á
nefið. Þetta var óþarfi en ég er
orðinn vanur því að missa af sigri
á lokasprettinum," sagði Gunnar
sem átti aðeins nokkra tugi metra
eftir í mark. Aðrir sluppu létt
gegnum þrautina, felldu yfirleitt
tvö dekk sem afmörkuðu brautina
og 255 stigin sem Helgi fékk fyr-
ir brautina nægðu honum til sig-
urs. Hann varð þó aðeins 20 stig-
um á undan íslandsmeistaranum
Árna Kópssyni, sem enn hefur
ekki tekist að vinna torfæm á
árinu, þrátt fyrir góð tilþrif.
„Þrautimar voru góðar og skipu-
lagið mjög gott. Þegar ég sá
Gunnar velta ók ég lokaþrautina
af öryggi og halaði inn sigur, en
mér hefur ekkert gengið sérstak-
lega á árinu. Nú reynir maður að
halda sér á toppnum, en baráttan
er hörð og þetta er orðið meira
andlegt stríð keppenda en tækni-
legt, menn mega ekkert klikka,
þá missa þeir af sigri,“ sagði sig-
urvegarinn Helgi Schiöth í sam-
tali við Morgunblaðið.
Helgi hlaut 3.850 stig, Ámi
3.830, Tyrfingur Leósson 3.755,
Einar Gunnlaugsson 3.745 og
Gunnar Guðjónsson 3.675. í flokki
götujeppa vann Steingrímur ör-
ugglega með 2.085 stig, Magnús
Ómar Jóhannsson fékk 1.710,
Guðni Jónsson 965 og Gunnar
Egilsson 960.
Vélsleðakappinn Finnur Aðal-
björnsson frá Akureyri fór
enga frægðarför í torfæru,
varð í neðsta sæti eftir alls
kyns brölt, m.a. þessa skraut-
legu veltu.
- GR
Akureyringurinn Helgi Schiöth vann sína fyrstu keppni á árinu í
sérútbúna flokknum.
0.3 - 6.S tonn
Þessi tæki hafa nú þegar sannað ógæti sitt við fjölbreyttar aðstæður
hér ó landi. Sýningarvélar til staðar.
M Ráðgjöf - sala - þjónusta.
Skútuvogur 12A - Reykjavík - S 812530
BIODROGA
LÍFRÆNAR JURTA SNYRTIVÖRUR
„AGE PROTECTION"
Uppfyllir allar þarfir húðarinnar til að viðhalda ferskleika
og heilbrigðu útliti.
Utsölustaðir: Koupfélag Eyfirðinga; Kaupfélog Skagfirðinga; Vestmanna-
eyjaapótek; Lilja, Grenigrund 7, Akranesi; Ingólfsapótek, Kringlunni;
Bró, Laugavegi; Stella, Bankastræti.
TAXI
octGGI
ö/
LEIGUBÍLL
ER ÓDÝRARI
EN ÞÚ HELDUR
NIÐURHENGD LOFT
■ CMC kerfi fyrir nlðurhengd loft, er úr
galvanfseruðum málmi og oldþollð.
■ CMC kerfl er auðvelt i uppsetnlngu og mjðg sterkt.
■ CMC kerfl er fest með stlllanlogum upphongjum
sem þola allt að 50 kg þunga.
■ CMC kerfl fœst ( mörgum gerðum bœði sýnllegt og
fallð og verðlð er ótrúloga lágt
EINKAUMBOÐ
£8 Þ.Þ0RGRÍMSS0N & CO
Ármúla 29 - Reykjavík - slmi 38640