Morgunblaðið - 21.07.1992, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 21.07.1992, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚLÍ 1992 Veiðimenn reyna að setja í stórlaxinn sem sést hefur í Ytri-Rangá Laxmn talinn 30pund ÞRÖSTUR Elliðason eftirlits- maður við Ytri-Rangá segir að veiðimenn hafi orðið varir við stórlax í Rangárflúðum undan- farna daga. Telja þeir sem séð hafa laxinn að hann sé ekki undir 30 pundum. A.m.k einu sinni hefur verið sett í fiskinn en hann hafði betur. í síðustu viku tók hann rauða Francis nr. 10 og eftir dágóða viðureign hafði fiskurinn brotið tvo króka af þríkrækjunni og slapp. Hinn þekkti veiðimaður Þórar- inn Sigþórsson tannlæknir reyndi í gær við risalaxinn. Hann setti í vænan fisk með spún en ekki er víst að það hafi verið sá stóri. „Þessi höfðingi var vel yfir 20 pund,“ sagði Þórarinn eftir að hafa misst fískinn eftir stutta viðureign. „Þetta var eins og heil éilífð þessi stutta stund sem hann var á. Ég hefði náð honum ef hann hefði ekki tekið svona grannt í spúninn. Þetta var feikna högg sem kom á stöngina og hann strikaði með færið en ég réði ekkert við hann. “ Stærsti fiskur sem komið hefur á land í Ytri-Rangá er um 20 pund en sá stærsti í sumar er um 15 pund. Sagði Þröstur að uppi væri kenning um að lax af Sogskyni hefði flækst í ána fyrir löngu og „stórlaxinn" væri þaðan ættaður. Morgunblaðið/Þorkell Reynt við stórlaxinn Þórarinn Sigþórsson reyndi við stórlaxinn í Ytri-Rangá í gær en án árangurs. Flugan Francis þríkrækja nr. 10 sem stórlaxinn braut tvær krækjur af eftir hörku- viðureign við vanan veiðiniann í síðustu viku. Samningaviðræður íslands og EB um gagnkvæmar veiðiheimildir strand í bili; Aftnr viðræður í haust EKKERT varð úr samningafundi íslendinga með fulltrúum Evrópu- bandalagsins (EB) sem fyrirhugaður var í Brussel í gær. Þar átti að ræða um gagnkvæm skipti á fiskveiðiheimildum milli íslands og EB. Samkvæmt heimildum fréttaritara Morgunblaðsins í Brussel komust aðalsamningamenn beggja aðila að þeirri niðurstöðu að ekk- ert hefði gerzt frá síðasta fundi sem gæfi tilefni til þess að halda samningafund og var ákveðið að fresta viðræðunum til hausts, er embættismenn EB koma til starfa eftir sumarleyfi. íslendingar hafa sett fram kröfur minnzt á annað en um skipti á veiði um að nái íslenzk skip ekki að veiða allan þann loðnukvóta, sem EB á að leggja þeim til samkvæmt samn- ingnum, skerðist karfakvóti EB í íslenzkri landhelgi á móti. Evrópu- bandalagið telur þetta algjörlega óviðunandi, þar sem í erindaskipt- um þeim, sem fram hafa farið milli framkvæmdastjómar EB og ís- lenzkra stjómvalda um efni fyrir- hugaðs fiskveiðisamnings, sé hvergi heimildum sé að ræða, en ekki afla upp úr sjó. Evrópubandalagið telur því að um nýja kröfu sé að ræða hjá íslendingum, sem ekki hafí leg- ið fyrir er samningamir um Evr- ópskt efnahagssvæði vom undirrit- aðir sl. vor. Bandalagið hefur gert undirritun fískveiðisamnings að skilyrði fyrir því að íslendingar fái tollfríðindi fyrir sjávarafurðir sínar á Evrópumarkaði samkvæmt EES- samningnum. Náist ekki samningar um skipti á veiðiheimildum milli íslands og EB er gildistaka EES- samningsins því í óvissu. EB er þeirrar skoðunar að eigi samninga- viðræður að hefjast að nýju í haust, verði íslendingar að hafa breytt afstöðu sinni. Jón Baldvin Hannibalsson utan- ríkisráðherra og Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra hittust á fundi um helgina og ræddu um hversu langt ætti að ganga í kröfum á hendur EB. Samkvæmt heimild- um Morgunblaðsins urðu þeir sam- mála um að reyna ekki að knýja fram samkomulag í viðræðunum við EB fyrr en í haust. Utanríkisráð- herra mun þó vilja ganga lengra til móts við Evrópubandalagið en sjávarútvegsráðherra. Jón Baldvin Hannibalsson utan- ríkisráðherra sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að ekkert væri því til fyrirstöðu að ræða og sam- þykkja EES-samninginn á Alþingi, sem kemur saman í ágúst, þótt fisk- veiðisamningur lægi ekki fyrir. EES-samningurinn væri ótvírætt mikilvægt hagsmunamál og helzta tæki íslendinga til að bregðast við samdrætti í sjávarútvegi, þar sem hann myndi auka tækifæri til sölu unninna fískafurða. „Ég tel enga ástæðu til að ætla að tvíhliða samn- ingunum um skipti á gagnkvæmum veiðiheimildum ljúki ekki í tæka tíð, þ.e. fyrir lok þessa árs,“ sagði Jón Baldvin. Gaseitnm í sturtu- klefanum ÞRJÁR franskar konur misstu meðvitund vegna gaseitrunar í sturtuklefa við Sigurðarskála í Kverkfjöllum fyrir skömmu. Að sögn Skúla Magnússonar lyá Vinnueftirliti Austurlands höfðu konurnar Iokað fyrir loftstreymi að klefanum vegna kulda en við það safnaðist gas fyrir. Gasbrennarinn er af franskri gerð og skammtar vatn í tíu mínút- ur í senn eftir gjaldmæli. Konumar voru saman í klefanum en fyrir utan beið íslendingur eftir að kom- ast í sturtu. Sagði Skúli að fljót- lega hefði dregið úr masi kvenn- anna og loks heyrðust dynkir þeg- ar þær féllu við. Maðurinn braut upp hurðina og dró þær út meðvit- undarlausar. „Þær voru ekki í beinni lífshættu, þar sem rifa var ofan og neðan við hurðina," sagði Skúli. Mál Sophiu fyrir dóm í Strassborg? HASÍP Kaplan, lögmaður Sophiu Hansen, segist sann- færður um að forræðisdeila Sophiu og eiginmanns henn- ar fari á endanum fyrir mannréttindadómstól í Strassborg. Kaplan segir að ef Sophia vinni málið á lægri dómsstig- um muni fyrrverandi eigin- maður hennar leita til háttsett- ari dómstóla þar til á endanum dæmt verði í Strassborg. Hann segist stefna að því að málið verði útkljáð innan árs. Kaplan er í vikuheimsókn hér á landi um þessar mundir. Hann mun ræða við fulltrúa yfirvalda, fara yfir gögn og kynna sér aðstæður Sophiu. Ósamið við flugvirkja EKKI hafa enn náðst samningar í kjaradeilu flugvirkja og Flug- leiða. Að sögn Guðlaugs Þorvalds- sonar, ríkissáttasemjara, ber mikið á milli í viðræðunum. Fundur var í deilunni í gær og hefur annar fundur verið boðaður á miðviku- dag. John Pope óttast afleiðingar þess að ekki yrði dregið verulega úr þorskveiðum á næsta árí: Hætta á hruni stofnsins Morgunblaðið/Ámi Sæberg John Pope, ráðgjafi sjávar- útvegsráðherra. JOHN POPE, enskur sérfræðingur sem unnið hefur tölfræðilega úttekt á ástandi þorskstofnsins fyrir sjávarútvegsráðherra, segir að brýnt sé að dregið verði úr veiðun- um, ella sé hætta á hruni stofnsins. Hann segir að mögulegt geti verið að draga ur þorskveiðunum í áföngum, en það þýði að stofninn verði lengur að ná sér. Skynsam- legra sé að skera veiðarnar strax niður um 40%, enda megi þá búast við örari vexti stofnsins. Sjávarútvegsráðherra fékk John Pope til að fara yfir úttekt og aflaspár Alþjóðahafrann- sóknaráðsins og skilaði hann skýrslu í síðustu viku. Pope kom hingað til lands í gær til þess að gera grein fyrir tillögum sínum og átti meðal annars fund með fulitrúum hagsmunaað- ila í sjávarútvegi, samtaka launþega og vinnu- veitenda, forystumönnum þingflokka og sjávar- útvegsnefnd Alþingis. í samtali við Morgunblaðið sagði Pope að hann hefði, ásamt samstarfsmönnum sínum í Lowestoft á Englandi, farið nákvæmlega yfir þau gögri, sem Alþjóðahafrannsóknaráðið hefði byggt tillögur sínar á. Einnig hefðu aðferðir ráðsins verið bomar saman við aðrar aðferðir til að meta stofnstærð. Allar aðferðirnar bendi til að niðurstöður ráðsins gefí rétta mynd af ástandi þorskstofnsins við íslands. „Ástand stofnsins er í stuttu máli þannig,“ segir Pope, „að veiðidánarstuðullinn er alltof hár. Það þýð- ir, að hrygningarstofninn fer minnkandi og þar af leiðandi er hætta á að stofninn nái ekki að endurnýja sig. Því tel ég að draga verði úr veiðunum þvl ella er hætta á hruni stofnsins," segir hann. Pope segir að þorskveiðar íslendinga hafí árum saman verið meiri en stofninn þoli. Ætla megi, að miðað við núverandi sókn fari hrygn- ingarstofninn niður fyrir 180 þúsund tonn ein- hvem tímann á næstu fímm ámm og þá sé hættan á hmni orðin mikil. Æskilegast og ör- uggast sé að hrygningarstofninn fari yfir 400.000 tonn og til þess að ná því marki þurfi að draga verulega úr sókninni. Hann segist í athugunum sínum hafa komist • að þeirri niðurstöðu, að best sé fyrir íslendinga að miða heildarþorskafla við tillögur Alþjóðaha- frannsóknaráðsins, sem fela í sér 40% niður- skurð. „Með því móti ætti hrygningarstofninn að hafa náð æskilegri stærð 1996. Það er auð- vitað líka hægt að draga smám saman úr sókn- inni, minnka aflann um 20% á næsta ári 10% á þarnæsta ári og svo framvegis. Sú áðferð felur hins vegar í sér meiri hættu á að gengið verði of nærri hrygningarstofninum, auk þess sem uppbygging hans tekur mun lengri tíma ef sú leið verður farin.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.