Morgunblaðið - 21.07.1992, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 21.07.1992, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUPAGUR 21.-JÚLÍ 1992 Mikil ölvun og rúöur brotnar í miðbænum NOKKUR ölvun var á Akureyri um helgina og tvær rúður voru brotnar í miðbænum. Ekið var á kind skammt norðan bæjarins á föstudagskvöld og bíll valt við Ekki urðu slys á fólki. Að sögn Áma Magnússonar hjá lögreglunni á Akureyri var helgin að mestu slysalaus hvað fólk áhrærir. Nokkur ölvun var þó í miðbæ Akureyrar, aðallega á föstudagskvöld. Brotnar voru tvær rúður í miðbænum. Annað rúðu- brotið upplýstist strax, en maður nokkur olli þeim verknaði í ölæði. Hitt brotið er enn óupplýst. Alls nutu 8 manns gistingar hjá lög- reglunni um helgina af sökum ölv- unar og óspekta. Á föstudagskvöld var ekið á kind á Norðurlandsvegi, skammt norð- an við Akureyri. Kindin drapst og Svalbarðseyri á sunnudagskvöld. skemmdir urðu nokkrar á bifreið- inni. Að sögn Áma Magnússonar hefur óvenjulítið verið tilkynnt til lögreglunnar á Akureyri á þessu ári um að ekið hafi verið á laus- gangandi sauðfé. Á sunnudagskvöld varð bílvelta skammt frá Litla-Hvammi á Sval- barðsströnd. í bílnum voru tveir farþegar auk ökumanns og sakaði engan, en bíllinn er hins vegar talinn mikið skemmdur. Þá vom fimm ökumenn teknir fyrir of hrað- an akstur á Akureyri um helgina, enginn þó á ofsahraða, að sögn Árna Magnússonar. Akur eyrarmaraþ on hlaupið í fyrsta sinn Akureyrarmaraþon verður hlaupið í fyrsta sinn laugardaginn 25. júlí næstkomandi. Aðstandendur þess hyggjast festa Akureyrarmara- þonið í sessi og hlauparar geti reynt sig þar mánuði fyrir Reykjavík- urmaraþon. Morgunblaðið/Sverrir Páll Blásarasveitin heim frá Sviss Blásarasveit æskunnar á Akureyri kom heim frá Zúrich í Sviss á föstudagskvöldið eftir að hafa hreppt þriðja sæti á alþjóðlegu móti biásarasveita þar. Fjöldi manna kom og fagnaði þessu frækna tónlistarfólki og fararstjórum þess þegar það kom út úr flugstöðinni um miðnætti í afar fögru veðri. Ferðalöngunum vom færðar rósir og þeir stilltu sér síðan upp og sungu eitt lag áður en þeir héldu hver heim til sín. Framúrskarandi aðstaða fyrir fangelsi á Dalvík Dalvík Það em Ungmennafélag Akur- eyrar og klúbburinn Þríþraut á Ak- ureyri sem standa að Akureyrarm- araþoni. Jón Ámason, talsmaður Ungmennafélags Akureyrar, sagði að hlaupið yrði af stað frá Iþrótta- velli Akureyrar við Hólabraut klukk- an 13.30 á laugardag og að þessu sinni gæfíst kostur á að hlaupa hálfmaraþon, 21,1 km, eða 7 km skemmtiskokk. Bæjarstjórinn á Ak- ureyri, Halldór Jónsson, mun ræsa keppendur en hlaupið verður á jafn- sléttu, að mestu á malbiki. Jón sagði og Skandinaviu. Það em Sólrún Bragadóttir, ópemsöngkona við Óperuna í Hannover í Þýskalandi, og Þórarinn Stefánsson, píanóleikari, sem flytja norræna ljóðatónlist á tónleikunum, en þau em hér á landi í sumarleyfi frá störfum sínum í Þýskalandi. Auk þess að syngja við ópemna í Hannover hefur Sólrún komið fram Gítamámskeiðið hefst á morgun, miðvikudag, og stendur fram á laugardag. Kennt verður á sal Tón- listarskóla Akureyrar og leiðbein- andi verður Amaldur Amarson, sem er kennari við Luthier-tónlist- arskólann í Barcelona á Spáni. Am- aldur nam gítarleik í Reykjavík, í Manchester á Englandi og í Alic- ante á Spáni og hefur unnið til verðlauna í gítarkeppni erlendis, meðal annars fyrstu verðlaun í Fernando Sor-keppninni í Róm á Ítalíu í maí á þessu ári. Það er Hljómskólinn á Akureyri sem ásamt Tónlistarskóla Akur- eyrar stendur að gítarhátíðinni. Að sögn Amar Viðars Erlendssonar, forstöðumanns hátíðarinnar, er búist við að á námskeiði Arnaldar verði allir efniiegustu gítamemend- að ætlað væri að Akureyrarmaraþon yrði árlegur viðburður þar sem með- al annars hlauparar sem hyggðu á þátttöku í Reykjavíkurmaraþoni gætu reynt sig mánuði áður en það er haldið. Að hlaupi loknu verða verðlaun afhent í Dynheimum. Þrír fræknustu hlauparar í hvetjum flokki í hálfm- araþoni hljóta verðlaun en í skemm- tiskokkinu hljóta verðlaun þeir fjórir sem dregnir verða úr rásnúmemm. Allir þátttakendur hljóta viðurkenn- ingu. á gestasýningum í Dússeldorf, Múnchen og Mannheim auk þess að syngja á tónleikum víða í Evrópu. Þórarinn hefur talsvert leikið á tón- leikum hér á landi og erlendis, ýmist einleik eða samleik með fleimm. Ljóðatónleikarnir í Safnaðarheim- ili Ákureyrarkirkju hefjast klukkan 20.30 annað kvöld. ur landsins. Flestir em þeir á aldrin- um 15 til 26 ára og aðallega em þeir frá Akureyri og Reykjavík. Auk gítarleikara verða á námskeiðinu áheymamemendur. Námskeiðinu lýkur á laugardag með grillveislu í góðviðrinu í Kjamaskógi, að sögn Arnar Viðars. Á gítarhátíðinni verða femir gít- artónleikar í Akureyrarkirkju. Jennifer Anne Spear frá Ástralíu er kennari við Tónlistarskólanr. á Akureyri. Hún heldur fyrstu ein- leikstónleika sína á íslandi í kapellu Akureyrarkirkju klukkan 18.00 miðvikudaginn 22. júlí. Hún leikur verk eftir Granados, Bach, Mangore og fleiri. Á fimmtudag, 23. júlí heldur Kristinn H. Árnason tónleika í kap- ellunni klukkan 20.30 og leikur - segir Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri EKKI ERU allir á eitt sáttir um staðarval fyrir nýtt afplánunar- fangelsi ríkisins, en bæjarstjóm Dalvíkur hefur sótt um að það verði reist þar í bæ. Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri telur ekki sjálfgefið að opinber þjónustufyr- irtæki séu á höfuðborgarsvæðinu. Hinn mikli þjónustukjami á Eyja- fjarðarsvæðinu hljóti að vera um- talsverður valkostur þegar ve(ja á stað fyrir stofnun af þessu tagi. Erindi bæjarstjómar Dalvíkur til dómsmálaráðherra, um að afplán- unarfangelsi ríkisins verði reist á Dalvík, hefur vakið nokkur viðbrögð. Þannig kom meðal annars fram í viðtali við oddvita Eyrarbakkahrepps í sunnudagsblaði Morgunblaðsins að það vekti undmn að bæjarstjómar- mönnum á Dalvík skyldi detta í hug verk meðal annars eftir Bach, Milan, Guiliani og Rodrigo. Hann hefur numið í Reykjavík, í New York og á Spáni og sótt einkatíma, meðal annars hjá Andrés Segovia. Á föstudagskvöldið klukkan 20.30 leikur Kristinn á tónleikum í kapellunni ásamt Einari Kristjáni Einarssyni, sem er Akureyringum að góðu kunnur fyrir gítarleik sinn. Einar lærði gítarleik hér á Akur- eyri og í Reykjavík og síðan í Manchester á Englandi, en lauk einleikaraprófí frá Guildhall School of Music og hefur síðar sótt nám- skeið víða. Á efnisskrá þeirra félaga em verk meðal annars eftir Hróð- mar Sigurbjörnsson, Brahms, Fern- ando Sor, Álbeniz og Granados. Laugardaginn 25. júlí klukkan 18.00 verða lokatónleikar hátíðar- innar í Akureyrarkirkju, en þar leika þeir efnilegu nemendur sem námskeið Arnaldar Arnarsonar sækja fjölbreytta dagskrá tónverka. að þeir ættu möguleika á að fá ríkis- fangelsið norður. Ef menn settu fyr- ir sig fjarlægðina frá Reykjavík til Eyrarbakka ætti fjarlægðin til Dal- víkur að vera óyfirstíganleg. Kristján Þór Júlíusson kvaðst ekki skilja hvers vegna áhugi bæjarstjórn- ar Dalvíkur væri talinn undarlegur og sér þætti ástæðulaust af mönnum að rjúka upp til handa og fóta af hans sökum. „Þeir sem undrast að sveitarstjómarmenn á Dalvík skuli hafa áhuga á þessu máli hafa ein- hveijar aðrar hugmyndir um hlut- verk sveitarstjómarmanna en við Dalvíkingar. Það sem við höfum fram yfír marga aðra staði er sá mikli þjónustukjami sem er á Eyjafjarðar- svæðinu og við emm að bjóða hann fram sem valkost. Það gildir um þetta ríkisfangelsismál eins og fjöldamargt annað í sambandi við opinbera uppbyggingu að staðsetn- ingin er ekkert sjálfgefin, hvort sem þjónusta hefur verið á einhveijum tilteknum stað í lengri eða skemmri tíma,“ sagði Kristján Þór. Bæjarstjóri sagði að svo virtist sem fangelsismálanefnd hygði á það í tillögum sínum að fangelsi yrðu í framtíðinni á höfuðborgarsvæðinu. Vissulega væri dálítill spölur frá Reykjavík til Dalvíkur, en það væri aukaatriði í þessu máli. Dalvíkingar væru hins vegar sannfærðir um að þeir gætu boðið framúrskarandi að- stöðu fyrir afplánunarfangelsí og til- boð þeirra væri komið til ráðherra. Hann kvaðst gleðjast yfír því að dómsmálaráðherra hefði sagt frá því í viðtali að þetta erindi færi til fram- kvæmdanefndar um fangelsisbygg- inguna, sem tekur við af fangelsis- málanefnd, sem annaðist úttekt á fangelsismálum, og þar ætti að skoða alla valkosti. Það gæfi von um að ekki væri útilokað að Dalvík kæmi tii greina. Að sögn bæjarstjóra er ómögulegt á þessu stigi að segja til um það hversu mörg störf gætu skapast við fangelsið ef það yrði á Dalvík. Þó mætti telja að þau yrðu allnokkur. Þá væri með öllu óljóst hvenær vænta mætti viðræðna og frekari ákvarð- ana um þessi mál. ♦ ♦ ♦ Gítartón- leikar í Mý- vatnssveit Gítartónleikar verða í Reykja- hlíðarkirkju í Mývatnssveit á mið- vikudagskvöld klukkan 20.30. Það er Kristinn H. Ámason gítar- leikari sem flytur á tónleikunum fjöl- breytta dagskrá verka eftir Milan, Bach, Henze, Giuliani, Martin og Rodrigo. Kristinn lauk burtfararprófi í gít- arleik frá Tónlistarskóla Sigursveins D. Kristinssonar árið 1983 og síðar BM-prófí frá Manhattan í Bandaríkj- unum. Einnig hefur hann stundað nám á Spáni og Englandi. Hann hefur áður leikið í Reykjahlíð- arkirkju. Ljóðatónlist í Safnaðar- heimili Akureyrarkirkju TÓNLEIKAR verða í Safnaðarheimili Akureyrarkirkju annað kvöld, miðvikudagskvöld. Þar verður flutt ljóðatónlist frá íslandi Gítarhátíð á Akureyri I ÞESSARI viku verður mikil gítarhátíð á Akureyri. Um er að ræða fyrsta sumarnámskeið (Master Class) í gítarleik sem haldið er á ís- landi. í tengslum við námskeiðið verða fernir gítartónleikar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.