Morgunblaðið - 21.07.1992, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚLÍ 1992
23
Norrænt varn-
arbandalag?
BENGT Gustafsson, yfirmaður
sænska heraflans, hefur varpað
þeirri hugmynd fram að Norður-
löndin stofni eigin varnarbandalag
í stað þess að ganga í varnar-
bandalag í tengslum við Evrópu-
bandalagið. Hann sagðist telja að
Svíar ættu að halda áfram hlut-
leysisstefnu sinni, en norrænt
varnarbandalag gæti haft einhvers
konar samband við þrjá valda-
kjarna: Bandaríkin í vestri, Evr-
ópubandalagið í suðri og Rússland
í austri.
Major ver
„gleði-
ráðherrann“
JOHN Major, forsætisráðherra
Bretlands, varði í gær David Mell-
or, ráðherra lista, íþrótta og fjöl-
miðla, eftir að sá síðarnefndi lenti
í hneykslismáli sem snýst um sam-
band hans við þrítuga spænska
leikkonu. Mellor hefur verið upp-
nefndur „gleðiráðherrann“ af
breskum blöðum, sem hafa velt
sér af miklum ákafa upp úr
hneykslinu, ekki síst vegna þess
að hann hefur boðað hertar reglur
um umfjöllun fjölmiðla um einka-
líf fólks. „Ef stjórnmálamenn vilja
fækka fréttum um háttsetta menn
með buxurnar á hælunum er
fyrsta skrefið að hysja þær upp,“
sagði blaðið Evening Standard.
Páfinn ekki
með krabba-
mein
RANNSÓKNIR hafa leitt í ljós að
sumar frumur í góðkynja æxli sem
fjarlægt var úr ristli Jóhannesar
Páls páfa II. voru nálægt því að
verða illkynja. Talsmenn Páfa-
garðs sögðu þó í gær að páfi hefði
ekki verið við það að fá krabba-
mein og læknar á sjúkrahúsinu
þar sem hann dvelur enn eftir
uppskurðinn sögðu að litlar líkur
hefðu verið á því að æxlið hefði
valdið alvarlegu krabbameini. Páfi.
drakk fljótandi fæði í gær, en
hann hefur fram að þessu fengið
næringu í æð.
Janaév rýfur
þögnina
GENNADÍ Janaév, formaður bylt-
ingarráðsins sem reyndi að ræna
völdum í Sovétríkjunum í fyrra,
rauf þögn sína um helgina og tjáði
sig um valdaránstilraunina úr
fangelsi í rússnesku sjónvarpi.
Hann sagði að hið eina sem hann
harmaði væri að tilraunin hefði
ekki tekist og að yfirlýsingin um
neyðarlög hefði verið sniðin eftir
uppkasti sem Míkhaíl Gorbatsjov
gerði í apríl í fyrra, fjórum mánuð-
um áður en reynt var að koma
honum frá völdum. Auk Janaévs
hefur Vladimir Kijútskov, fyrrum
yfirmaður leyniþjónustunnar
KGB, tjáð sig um valdaránstil-
raunina í opnu bréfi í dagblaðinu
Prövdu, en þar sagði hann að sag-
an myndi gera Gorbatsjov og Bor-
ís Jeltsín ábyrga fýrir falli Sovét-
ríkjanna.
Thatcher til
tóbaksfram-
leiðanda?
MAPGARET Thatcher, fyrrverandi
forsætisráðherra Bretlands, íhugar
nú að ráðast til starfa hjá banda-
ríska stórfyrirtækinu Philip Morris,
sem er stærsti tóbaksframleiðandi
í heimi. Thatcher, sem reykir ekki,
hefur verið harðlega gagnrýnd fyrir
að hugleiða atvinnutilboð frá tób-
aksframleiðanda en hún vísar gagn-
rýninni á bug og segir að ef til
ráðningar kæmi myndi vinna henn-
ar einungis felast í ráðgjöf á sviði
umhverfismála.
Saksóknari myrtur á Sikiley:
Borgarsljóri Palermo boðar
varnarstríð gegn mafínnni
Palermo, Mílanó, Róm. Reuter, The Daily
Telegraph.
MIKILL viðbúnaður er á Italiu
eftir morðið á saksóknaranum
Paolo Borsellino sem lét lífið
ásamt fimm lífvörðum í
sprengjutilræði í Palermo á Sikil-
ey sl. sunnudag. Mafíunni er
kennt um verkið. Forsætiráð-
herra Ítalíu, Giuliano Amato,
sagði að morðið ylli sársauka og
hryggð en jafnframt yrði það til
þess að stappa stálinu í sljórn-
völd í baráttunni við mafíuna.
Forseti landsins, Oscar Scalfaro,
hvatti til tafarlausra aðgerða
gegn glæpasamtökunum. Borg-
arstjórinn í Palermo, Aldo Rizzo,
var ómyrkur í máli. „Við eigum
í styrjöld. Þetta er hömlulaus
styijöld og við verðum að búa
okkur undir að veijast. Við get-
um ekki blekkt okkur með því
að ímynda okkur að nú sé þessu
lokið. Þetta sannar að lýðræðið
ríkir ekki hér í borginni".
Ekkja saksóknarans hefur af-
þakkað útför á vegum ríkisins og
mælst til þess að Scalfaro forseti
verði eini fulltrúi yfirvalda; jesúíta-
prestur og nágranni hennar segir
að opinber útför sé ekki viðeigandi
þegar ljóst sé að mörgum háttsett-
um embættismönnum sé ekki trey-
standi. Margir gagnrýna stjórnvöld
og þing harkalega og segja að
glæpasamtökin ráði í reynd yfir
Sikiley. Fjölmargir fangar úr röðum
mafíunnar voru í gær fluttir úr klef-
um sínum í önnur fangelsi og varsla
við helsta fangelsi Palermoborgar,
Ucciardone, var stórefld með um
200 hermönnum, gráum fyrir járn-
um. 55 háttsettir mafiumenn voru
fluttir flugleiðis úr fangelsinu en
ekki var sagt hvar þeir yrðu geymd-
ir. Stjórnvöld óttast að mennirnir
geti stjórnað liði sínu úr fangelsi
með því að láta ættingja, er fengið
hafa að heimsækja fangana, bera
boð á milli.
Sundurtætt bílflök við staðinn þar sem sprengjutilræðið var gert. Á myndinni til hægri er Paolo Bors-
ellino saksóknari.
Öflug sprengja
Sprengjunni hafði verið komið
fyrir undir bíl við þrönga götu þar
sem Borsellino fór um á leið í heim-
sókn til móður sinnar og systur.
Svo öflug var plastsprengjan, um
80 kg af tékknesku semtexi að sögn
séfræðinga, að húsið sem bíllinn
stóð við tættist að verulega leyti í
sundur og hávaðinn heyrðist um
mikinn hluta borgarinnar. Auk
Borsellinos létu fimm af sex lífvörð-
um hans, þar af ein kona, lífið. 15
manns slösuðust að auki, þar af
nokkrir alvarlega.
Borsellino var náinn vinur Gio-
vannis Falcone, saksóknara sem
hafði náði miklum árangri í barátt-
unni gegn mafíunni, en Falcone var
drepinn með ijarstýrði sprengju
fyrir tveim mánuðum. Talið var að
Borsellino yrði yfirmaður fyrirhug-
aðrar stofnunar sem ætlað er það
hlutverk eitt að beijast gegn maf-
íunni. Borsellino og Falcone voru
sérfræðingar í starfsemi og skipu-
lagi mafíunnar og tókst þeim báð-
um að fá lágtsetta liðsmenn hennar
til að veita lögreglunni upplýsingar
um starfsemi glæpasamtakanna og
bijóta þannig þagnarheitið, omerta.
Heitinu hefur frá því á síðustu öld
verið framfylgt af mikilli grimmd.
Fjölmiðlar segja að mafían virðist
vera búin að semja lista yfir þá ein-
staklinga sem verði myrtir á næst-
unni til að hræða fólk frá því að
taka þátt í baráttunni gegn henni.
Stríðsyfirlýsing
Morðið hefur valdið óhug og reiði
um alla Ítalíu. „Mafían segir ríkinu
stríð á hendur," var fyrirsögn dag-
blaðsins La Stampa í Torino. Verka-
lýðssamtök hafa boðað til sólar-
hringsverkfalls á Sikiley í dag,
þriðjudag, til að minnast fórnarlam-
banna. Um 100 lífverðir í Róm óku
um miðborgina í gærmorgun með
vælandi sírenur til að láta í ljós
samúð með starfsbræðrum sínum á
Sikiley. Hópur fólks safnaðist sam-
an við hús Borsellinos í Palermo
þar sem ekkja hans og ættingjar
syrgðu saksóknarann. Tugir líf-
varða í opinberri þjónustu ásamt
lögreglumönnum og þúsundum
óbreyttra borgara efndu til mót-
mæla í Palermo aðfaranótt mánu-
dags þar sem hrópuð voru slagorð
gegn mafíunni og stjómvöld voru
sökuð um ódugnað. Hrækt var á
bifreið Vincenzos Parisis, yfírmanns
ítölsku lögreglunnar, er hann kom
af kvöldfundi með lögregluyfirvöld-
um í borginni. Margir lífvarðanna
sögðust ætla að halda sig í búðum
sínum um sinn og neita að gegna
störfum. Einn þeirra sagði í sjón-
varpsviðtali að ekkert gagn væri
að starfi þeirra því að yfirvöld virt-
ust hafa misst öll tök á Sikiley.
Italska líran féll í verði í gær og
kaupahéðnar reyndu að losna við
hlutabréf í ítölskum fyrirtækjum í
kauphöllinni í Mílanó. „Þetta er
dynjandi svar við atburðunum: ítal-
íu og stofnunum hennar, stjórnmál-
um og efnahagsstefnu er hafnað,"
sagði þekktur verðbréfasali.
GLÆSILEIKI!
MAZDA 62
► MAZDA 626 árgerð 1992
er nú kominn nýr frá grunni,
stærri og rúmbetri en aðrir
japanskir millistærðarbílar.
► Hér fer saman stórglæsi-
leg útlitshönnun, vönduð smíð
og ríkulegur búnaður, sem á
sér fáa líka, m. a: 4ra þrepa
tölvustýrð sjálfskipting, álfelgur,
rafknúnar rúðuvindur og loftnet,
samlæsingar, rafstýrðir og
rafhitaðir útispeglar, hituð
framsæti og annar luxus-
búnaður.
► Allar gerðir fást að auki
með fjórhjóladrifi, rafdrifinni
sóllúgu, hraðastilli og læsi-
vörðum hemlum (ABS).
► 2 vélar eru í boði, 2.0L,
4ra strokka, 16 ventla og 2.5L,
V-6 strokka, 24 ventla.
► Komið, skoðið og
REYNSLUAKIÐ MAZDA 626
ásamt öðrum gerðum af
MAZDA og kynnist því nýjasta
í bifreiðahönnun og tækni I
Opið laugardaga frá kl.10 -14.
SKÚLAGÖTU 59, REYKJAVÍK S.61 95 50