Morgunblaðið - 21.07.1992, Side 4

Morgunblaðið - 21.07.1992, Side 4
4 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚLÍ 1992 Morgunblaðið/KGA Fjölmenni í afmæli Grímsbæjar Mikið jgölmenni heimsótti verzlunarmiðstöðina Grímsbæ við Bústaðaveg í gær í tilefni 20 ára afmælis hennar. Margt var gert til hátíðarbrigða og gestum var boðið upp á kaffiveitingar og af- mælistertu. Lífleg sala í farsímum undanfarið: Farsímanotendur orðnir 14 þúsund á landinu öllu ÁHUGI landsmanna á farsímum fer hvergi nærri minnkandi sam- kvæmt upplýsingum fjarskiptadeildar Póst- og símamálastofnunar. Nú eru farsímanotendur orðnir 14 þúsund talsins á landinu öllu og móðurstöðvar 82. Til þess að anna þörfínni og tryggja að hægt sé að nota farsímana alls staðar fer nú fram uppsetning nýrra móður- stöðva. Samhliða þvi er unnið að endurskipulagningu núverandi kerfis svo að nýting verði meiri. Haraldur Sigurðsson aðstoðar- framkvæmdastjóri fjarskiptadeild- arinnar staðfesti það í samtali við Morgunblaðið að sala farsíma væri afar Iífleg um þessar mundir. Hjá þeim hefði farið fram auglýsinga- herferð og nú væri hún að skila sér. Verð fer einnig lækkandi að hans mati en hann tók það skýrt fram að þróunin væri sú að betri og betri tæki fengjust fyrir sama verð. Til að mæta aukinni farsímaeign verður að Ijölga móðurstöðvum og VEÐUR / DAG kl. 12.00 Heimild: Veðuretola ielands (Byggt á veðurspá W. 16-15 í gaar) VEÐURHORFUR I DAG, 21. JULI YFIRLIT: Um 250 km suðaustur af Hornafirði er víðáttumikil 995 mb lægð semþokast norð-norðaustur og grynnist. Vaxandi 1022 mb hæð er vfir Græniandi. SPA: Norðaustlæg átt, gola eða kaldi sunnaniands en víða stinnings- kaldi fyrir norðan. Súld eða rigning með köflum norðaustanlands, skúrir norðvestanlands en víða léttskýjað sunnanlands. Heldur kólnandi, hiti 8-15 stig að deginum, hlýjast sunnanlands. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á MIÐVIKUDAG OG FIMMTUDAG: Norðlæg átt. Skúrir eða rigning norðanlands en víða léttskýjað sunnan og vestan til. Svalt í veðri norðanlands en hiti 10-14 stig að deginum sunnanlands. Svarsfmi Veðurstofu íslands — Veðurfregnir: 990600. & Léttskýjað Heiðskírt r r r * / * f f * f f f f f * / Rigning Slydda Hálfskýjað * * * * * * * * Snjókoma * Skýjað Alskýjað V ^ v Skúrír Stydduél Él Sunnan, 4 vindstig. Vindörin sýnir vindstefnu og flaðrimar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig.^ 10° Hitastig v súld = Þoka FÆRÐA VEGUM: (Kl. 17.30 fgær) Allir helstu vegir um landið eru nú greiðfærir. Fært er nú fjallabílum um mestalit hálendið. Þó er Hlöðuvallavegur ennþá ófær. Uxahryggir og Kaldidalur eru opnir allri umferð. Að gefnu tilefni skal bent á að klæðinga- flokkar eru nú að störfum víða um landið og eru ökumenn beðnir um að virða sérstakar hraðatakmarkanir til þess að forðast tjón af völdum steinkasts. Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti f síma 91- 631500 og i grænni línu 99-6315. Vegagerðin. w VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 i gær að ísl. tíma hitl veður Akureyri 8 alskýjað Reykjavík 13 hálfskýjað Bergen 16 skýjað Helsinki 21 léttskýjað Kaupmannahöfn 23 skýjað Narssarssuaq 11 léttskýjað Nuuk 2 þoka Osló 23 hálfskýjað Stokkhólmur 21 skýjað Þórshöfn 12 alskýjað Algarve 33 léttskýjað Amsterdam 26 léttskýjað Barcelona 26 heiðskírt Berlín 31 léttskýjað Chlcago 20 alskýjað Feneyjar 28 téttskýjað Frankfurt 31 skýjað Glasgow vantar Hamborg 26 skýjað London 22 skýjað Los Angeles 21 heiðskírt Lúxemborg 28 skýjað Madrid 34 léttskýjað Malaga 33 léttskýjað Mallorca 34 heiðskírt Montreal 20 alskýjað NewYork 26 mistur Orlando 24 léttskýjað Parls 31 léttskýjað Madeira 23 léttskýjað Róm 29 heiðskfrt Vín 27 heiðskírt Washington 26 léttskýjað Winnipeg 9 iéttskýjað er þeim komið fyrir um land allt. Þess er gætt að þær nýtist vel og þeim er því komið fyrir á hagkvæm- um stöðum. Fjarskiptanetið sem farsímanotkun fer í gegnum er orð- ið mjög víðtækt. Því er hægt að nota farsímana nær hvar sem er við þjóðvegi landsins en með nokkr- um undantekingum þó. Nýverið er lokið uppsetningu stöðvar á Öxna- dalsheiði. Þá er og lögð á það mik- il áhersla að hægt sé að ná sam- bandi við notendur á hafi úti. Reyndin er sú að víðast hvar úti fyrir landið má ná sambandi. Til að bæta það enn frekar er nú með- al annars unnið að uppsetningu stöðvar á Fellsöxl til að sinna haf- svæðinu úti fyrir Húnaflóa. Á Reykjavíkursvæðinu er álag á farsímakerfinu geysilega mikið. Sérstaklega er álagið á föstudögum mikið. Allar rásimar 130 eru upp- teknar og þess vegna er nú unnið að endumýtingu rásanna. Það kom fram í máli Haraldar að þjónusta við farsímaeigendur hefur aukist. Nú er hægt að nota símana á Norðurlöndum og í Eystrasaltsríkjunum og á það við bæði hringingar úr símunum og í þá. Í bígerð er einnig uppsetning kerfis sem gerir það að verkum að hægt verður að nota símana hvar sem er í heiminum. Þetta kerfi, Global System Mobile (GSM), verð- ur að öllum líkindum sett upp hér á landi í lok 1993 en í síðasta lagi fyrri hluta árs 1994. Evrópumót yngri spilara í brids; íslendingar í 13. sæti ÍSLENSKA sveitin á evrópumóti yngri spilara í brids er nú í 13. sæti eftir 8. umferðir af 22. Sveitin hóf mótið illa og tapaði stórt í fyrsta leik sínum gegn Portúgal, eða 2:25. Síðan hefur hún sótt í sig veðrið og í áttundu umferðinni unnu íslendingamir belgísku sveitina með 19 gegn 11. Alls taka 23 sveitir þátt í mót- inu sem haldið er í París. Að lokn- um 8 umferðum eru Pólveijar í efsta sæti með 161 stig, Norðmenn í öðru sæti með 151 stig og írar í þriðja sæti með 141 stig. Islend- ingar eru sem fyrr segir í 13. sæti með 117 stig. Þess má geta að í 7. umferðinni spilaði íslenska sveitin við þá bresku og vann þann leik 22:8. í einu spilinu keyrðu íslendingarnir í 7 grönd á öðru borðinu þótt lauf- ásinn vantaði. Bretamir hittu ekki á rétt út- spil og alslemman stóð með þving- un. Þetta spil kærðu Bretamir þar sem þeir töldu sagnirnar hafa ver- ið villandi. í fyrstu var úrskurðað að slemman hefði farið einn niður en Sævar Þorbjömsson fyrirliði áfrýjaði þeim úrskurði og fékk honum hnekkt. -----»—» ♦----- Leiðrétting Slæm villa komst inn í frétt Morgunblaðsins á sunnudag, þar sem sagt var frá komu togarans Klakks til Grundarfjarðar. Þar var sagt að togarinn kæmi í stað Kross- ness, „sem sökkt var nú í vetur“, en þar átti að sjálfsögðu að standa „sem sökk nú í vetur". Morgunblaðið biður fréttaritara blaðsins og Grundfirðinga alla af- sökunar á þessum slæmu mistökum í vinnslu blaðsins. Þá bættist núll aftan við óveiddan kvóta Klakks, en nú á eftir að veiða 8-900 tonn, sem jafngildir rúmlega 600 tonnum í þorskígildum. Dr. Gísli Fr. Petersen fv. yfirlæknir látinn LÁTINN er í Reykjavík dr. Gísli Friðrik Petersen, fyrrum yfír- læknir á Röntgendeild Landspít- alans og prófessor í geislalækn- ingum við Háskóla íslands. Hann var fæddur 21. febrúar 1906, sonur Guðbjargar Gísladóttur frá Vestmanneyjum og Áge Lauritz Petersen, verkfræðings. Dr. Gísli Friðrik Iauk kandidatsprófi í lækn- isfræði 1930, stundaði framhalds- nám í geisíalækningum í Svíþjóð, Þýskalandi og Englandi og varð doktor í sérgrein sinni 1942. Hann varð yfirlæknir á Röntgendeild Landspítalans 1948, kennari við Læknadeild HÍ 1959 og prófessor 1967. Hann gengdi báðum þessum stöðum þar til hann lét af störfum fyrir aldurssakir 1974. Dr. Gísli Friðrik átti sæti í stjóm Krabbameinsfélags Reykjavíkur frá stofnun þess 1949. Þá átti hann sæti í stjórn Kjarnfræðinefndar, einnig frá stofnun hennar og hann átti lengi sæti í stjóm Samtaka norrænna rönt- genlækna. 1979 var hann gerður heiðursfélagi í Félagi röntgenlækna og Krabbameinsfélagi Reykjavíkur. Eftirlifandi eiginkona Gísla er Sig- ríður Guðlaug Brynjólfsdóttir. Þau eignuðust tvo syni og er annar þeirra á lifi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.