Morgunblaðið - 21.07.1992, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 21.07.1992, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JÍJLÍ 1992 17 Guðshús á Víghólasvæði eftír Sigfús Halldórsson Mikið hefur verið skráð og skrafað um kirkjubyggingu Digra- nessóknar og kemur það varla mörgum á óvart eins og rifist er um margar nýbyggingar á íslandi og jafnvel þær sprengdar í loft upp sem reistar hafa verið. Þar sem neikvæð viðbrögð hafa farið í vöxt í blöðum upp á síðkast- ið, finnst mér einhvern veginn, að þar sem ég er í þessum söfnuði, megi ég einnig leggja orð í belg. Ég vil að söfnuðurinn fái að byggja sína kirkju í friði. En af ýmsum skrifum má ráða að það er ekki kirkjubyggingin sjálf sem verið er að fetta fingur út í heldur staðsetn- ing Guðshússins. Ég tel mig þekkja talsvert til þessa staðar, hvernig þar er umhorfs og hvert útsýnið þaðan er. Ég kom þar tíðum áður en nokkur kirkjubygging var þama fyrirhuguð. Þarna var ég að mála og teikna í væntanlega málverka- sýningu er ég svo hélt í Kópavogi fyrir nokkrum árum. Var ég þar oft við sólarupprás og einnig við sólarlag og auðvitað tímum saman þess á milli. Aldrei sá ég nokkurt mannsbam vera þarna í þeim til- gangi að njóta útsýnisins. Síðan þetta var, hefur útsýnið breyst talsvert í þess orðs merkingu. Að- eins toppar Hengils og Vífilsfells sjást nú, annað ekki fyrir húsum og trjágróðri. Meðfram húsum að norðanverðu og sunnanverðu sér fólk mjög tak- markað fyrir trágróðri. Einhver hefur fengið að byggja nokkurs- konar útsýnistum sem skyggir á suðurfjöll og í suðurátt og suðvest- RKÍ: Námskeið í skyndihjálp REYKJAVÍKURDEILD Rauða- kross Islands gefur almenningi að venju kost á námskeiði í skyndihjálp fyrir verslunar- mannahelgina. Að þessu sinni verður námskeið- ið haldið dagana 22., 23., 27. og 28. júlí. Það hefst sem fyrr segir 22. júlí kl. 20 og verður í Fákafeni 11, 2. hæð. Kennt verður til kl. 23. Námskeiðið telst vera 16 kennslustundir og er opið öllum eldri en 15 ára. Þeir sem hafa áhuga á að komast á þetta nám- skeið geta skráð sig í síma Reykja- víkurdeildar RKÍ. Allt það helsta sem venja er að kenna á námskeiðum í skyndihjálp verður meðal námsefnis á þessu námskeiði svo sem blásturmeðferð- in, hjartahnoð, hjálp við bruna, blæðingum úr sámm og margt fleira. Einnig verður fjallað um það hvernig má koma í veg fyrir slys. Að námskeiðinu loknu fá nemend- ur skírteini sem hægt er að fá metið í ýmsum framhaldsskólum. TILBOÐ 'ÖNDUÐ TEPPI MIKIÐ ÚRVAL BETRAVERÐ TEPPAVERSLUN FRIÐRIKS BERTELSEN FÁKAFENI 9 SÍMI: 68 62 66 „Var ég þar oft við sól- arupprás og einnig við sólarlag og auðvitað tímum saman þess á milli. Aldrei sá ég nokk- urt mannsbarn vera þarna í þeim tilgangi að njóta útsýnisins.“ ur átt hafa verið byggð hús, sem í raun og veru draga úr útsýni, vegna þess að þau taka augu manns fyrst, þó svo að það komi ekki að sök. Af miðju Víghóla- svæðinu er ekkert sérstakt útsýni. Utsýni er fyrst og fremst, þegar veður leyfir, frá þeim stað, sem útsýnisskífan er staðsett á, en þar á kirkjan ekki að rísa. Þarna eru engin náttúruverndarsjónarmið og kemur náttúruvernd ekkert við. Hitt er svo annað mál, að friðað hefur verið vestan í Víghólnum. Varasamt væri að gróðursetja tré þarna, því þá væri ekki útsýni þaðan í vestur- og norðurátt. Á sunnudaginn 12. júlí lagði ég leið mína í blíðskaparveðri á Víg- hól. Enginn var að skoða utsýnið, Sigfús Halldórsson klukkan var 10.30 f.h. Ég hugs- aði, hvar er nú allt þetta blessaða fólk, sem alltaf er að vitna í útsýn- ið? Maður líttu þér nær. Ég dvaldi þama á annan klukkutíma og margt kom upp í hugann. „Heyr himna smiður.“ Jú, tónskáldið, er samdi við þennan sálm eitt hið fegursta sálmalag seinni tíma, býr einmitt á þessum slóðum. Mér var hugsað, skyldi hann ekki vera ánægður með að fá Guðs- hús við hliðina á sér, þar sem mörg fögur verk hans yrðu jafnvel frumflutt? Ekki veit ég hvað hann vill í þessu máli, en ég skynjaði þarna við útsýnisskífuna að fyrir löngu, löngu sá ég Guðshús á þess- um stað. Höfundur er tónskáld og listmálari. Mest selda fartölvan í Evrópu, Macintosh PowerBook, hefur löngu sannað yfirburði sína varðandi afköst, notendaviðmót og vinnslugetu við hefðbundna tölvuvinnslu. Hún vegur aðeins 2,3 kg, tekur svipað pláss og A4-blað og er með einstakan gæðaskjá. Evrópumeistarinn. Vegna hagstæðra samninga getum við nú boðið þessa vinsæiu fartölvu á aðeins 127.553,- kr. eða 119.900, - stgr. (með VSK). Grunnverð var áður: 196.900, - PowerBook 100 er meðfæriieg og er einstaklega þægileg fyrir þá sem vilja vera á ferð og flugi og geta unnið á fullkomna Macintosh-tölvu hvar sem þéir eru staddir. Við tölvuna má tengja mótald sem gerir mögulegt að tengjast við tölvur á íslandi þótt notandinn sé í öðrum heimshluta auk þess að senda fax beint úr tölvunni. Hún er með alíslenskan kerfishugbúnað og hægt er að nota öll helstu Macintosh-forritin í henni. Sé hún tengd við aðra Macintosh-tölvu ræsist hún sem harðdiskur á þeirri tölvu, tilbúin til gagnaflutnings eða frekari vinnslu. Macintosh PowerBook 100: 4 Mb vinnsluminni, 40 Mb innbyggður harðdiskur, 1,4 Mb diskadrif, 9" baklýstur Supertwist-fljótandi krystalsskjár, íslenskur kerfishugbúnaður, innbyggt net-tengi, innbyggður hátalari og tengiil íyrir magnara, möguleiki á minnisstækkun og innbyggðu faxmótaldi. Þyngd: 2,3 kg. Apple-umboðið Skipholti 21, Rvk. Sími: 91-624800

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.