Morgunblaðið - 21.07.1992, Qupperneq 36
36 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚLÍ 1992
T—H'.!" T ••') ' 'L.-IM—‘ U.'-U'lV:SV ir
Þorbjörg Hannes
dóttír - Mínning
Fædd 27. nóvember 1927
Dáin 12. júlí 1992
„Sá sem engan krossinn ber mun
ekki eignast neina kórónu.“
(Quarles)
Árið 1927 þann 21. nóvember
fæddist hjónunum Hólmfríði Jóns-
dóttur og Hannesi Jónssyni kaupfé-
lagsstjóra á Hvammstanga lítil ljós-
hærð telpuhnáta. Hún var þriðja
bam foreldra sinna en systkinin
urðu sex. Litla stúlkan var vatni
ausin og hlaut nafnið Þorbjörg í
höfuðið á fóstru móður sinnar.
Þorbjörg varð mesti íjörkálfur
þegar fram liðu stundir og það var
aldrei nein lognmolla í kring um
hana. Þorbjargamafnið festist ekki
við hana því að hún var jafnan
kölluð Bíbí af vinum og vandamönn-
um.
Heimili okkar stóðu á ijörukamb-
inum og við urðum leikfélagar um
leið og fætumir gátu borið okkur
milli húsa. Hvammstangi var þá
óskastaður lítilla bama með at-
hafnaþrá.
Fjaran og sjórinn höfðu gífurlegt
aðdráttarafl, eins áin sem liðaðist
lygn og tær gegnum þorpið. Þar
var alltaf eitthvað nýtt að fínna,
sjá og skoða.
Fijálsræði var mikið, en þær
reglur, sem settar vora varð að
halda.
Þegar við kveðjum Bíbí, okkar
góðu vinkonu, þyrlast upp minning-
ar frá bemskuárunum.
í einum fjömleiknum okkar gerð-
ist það, að Bíbí stakk fingri upp í
einn leikfélagann, sem auðvitað
beit í þennan aðskotahlut. Þá kom
heldur hljóð úr homi. Bíbí bæði
hijóðaði og grét svo hátt að móðir
hennar opnaði stofugluggann og
spurði, hvað um væri að vera. Bíbí
hrópaði hátt og snjallt þrátt fyrir
grátinn. „Hann Raggi beit mig“.
Þá spurði Hólmfríður: „Hvaða er-
indi áttir þú upp í Ragnar?“ Mæð-
umar á Hvammstanga hlustuðu Iít-
ið á klögumál bama sinna og síst
af öllu Hólmfríður. Bíbí hætti hljóð-
unum, en hefur örugglega hefnt
harma sinna við næsta tækifæri.
Einu sinni sem oftar fómm við
nokkrar vinkonumar í beijamó upp
fyrir þorpið. Aldrei þessu vant var
Bíbí áhugalítil um tínsluna og svo
þreytt að hún varð að styðja sig
við okkur á leiðinni heim, læknir
var sóttur. Sjúkdómsgreiningin var
lömunarveiki.
Allar vinkonumar sátu hnípnar
á tröppunum heima hjá henni. Við
máttum ekki heimsækja hana.
Lömunarveiki — það var eitthvað
hræðilegt, sem við skyldum þó ekki
til fulls. Bíbí var flutt á sjúkrahús
til Reykjavíkur. Tíminn leið og loks-
ins kom hún til baka. Gleðin og
eftirvæntingin var mikil, en nú var
hún hölt og gekk við staf. Við vin-
konumar urðum ósköp beygðar og
feimnar við þessa framandi stúlku
— en það fór af. Bíbí lét engan
vorkenna sér og lífskrafturinn geisl-
að af henni sem fyrr. Skólagangan
hófst og hún tók þátt í öllum okkar
leikjum og dró ekki af sér. Þá kom
líka fyrir í hita leiksins að hún brá
stafnum sínum fyrir óvinina svo
þeir hrösuðu. Það verður að segjast
að á slíkum stundum, litum við öf-
undaraugum til stafsins.
Bíbí eignaðist fljótlega reiðhjól
og var með fyrstu krökkunum á
Hvammstanga, sem eignuðust slíkt
tæki, þá var það stolt þeirra sem
ekki áttu hjól að fá að halda í
hnakkinn hjá henni og hlaupa með.
Eftir nám í unglingaskóla í Húsa-
vík fór Bíbí í héraðsskólann í Reyk-
holti. Þar var ungt og skemmtilegt
fólk og Bíbí var sem fyrr hrókur
alls fagnaðar og laðaði alla að sér
með sínum bjarta brosi og skemmti-
legu framkomu.
Örlögin em stundum grimm.
Fyrir jól greindist Bíbí með berkla
og var flutt á berklahælið á Vífils-
stöðum, þá 15 ára.
Þennan vetur fengu fimm nem-
endur Reykholtsskóla berklasmit. Á
Vífílsstöðum vom þá eingöngu
berklasjúklingar og allflestir á unga
aldri. Felstum var það sameiginlegt
að geta glaðst yfir litlu og sjá
spaugilegu hliðina á lífinu og tilver-
unni.
Á Víflisstöðum störfuðu frábærir
læknar og hjúkmnarfólk sem gerði
allt sem í þess valdi stóð til að létta
sjúklingunum lífið. Margir góðir
gestir komu til að skemmta og á
sumrin seldi Haukur pressari kaffí
í tjaldi út í hrauni en GIsli bóndi
sá um útvarp Vífilsstaðir.
Bíbí fór í margskonar aðgerðir en
allt kom fyrir ekki — ekkert dugði.
Hún var full bjartsýni og lýsti at-
burðum og aðgerðum sem hún gekk
I gegnum á grábroslegan, hressandi
en örlítið kaldhæðnislegan hátt.
Bíbí var send í höggningu norðu á
Akureyrarspítala en fór síðan til
skammrar dvalar á Kristnesshæli.
Þar hittum við hana hressa og káta
og hún sagði okkur frá aðgerðinni
og óráðinu þegar henni fannst ótal
púkar dansa á sænginni og tilraun-
um sínum við að koma þeim fyrir
kattarnefn. Þetta var svo fyndin og
skemmtieg frásögn að við grétum
af hlátri, þó ekki væri okkur hlátur
í huga þegar við komum. Bíbí fór
aftur á Vífilsstaði, en batinn lét á
sér standa. Ekki gafst hún upp,
enda fannst orðið uppgjöf ekki í
hennar orðaforða.
Foreldrar hennar vom nú fluttir
til Reykjavíkur að Lönguhlíð 17.
Það var mikill munur fyrir Bíbí
enda Lönguhlíðarheimilið ekkert
venjulegt heimili. Þar bjuggu — auk
t
Ástkser eiginmaður minn, faöir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
BJÖRGVIN SIGURJÓNSSON
vélstjóri,
Logafold 46,
lést í Landspítalanum, laugardaginn 18. júlí.
Fyrir hönd aðstandenda,
Guðrún Jónsdóttir.
t
Móðir okkar og tengdamóðir,
ELÍN HALLDÓRSDÓTTIR,
Bárugötu 21,
lést í Landspítalanum laugardaginn 18. júlí.
Líney Pálsdóttir,
Kristjana Pálsdóttir, Hannes Flosason.
+ Eiginmaður minn, FRIÐGEIR ÞÓRARINSSON húsasmfðameistari, Skólabraut S, Seltjarnarnesi, lést í Borgarspftalanum 17. júlí sl. Rósbjörg Jónatansdóttir. + Faðir okkar, GUÐNI ÁGÚST GUÐJÓNSSON, Víkurbraut 2, Sandgerði, lést í Vífilsstaðaspítala sunnudaginn 19. júlí. Börn hins látna.
+ Ástkaer móðir mín, JENSINA MAGNÚSSON, Viðiteigi 8, Mosfellsbæ, áðurtil heimilis f Vejle, Danmörku, lést í Landspítalnum þann 18. júlí. Bjarki Jónsson.
t Eiginmaður minn, faðir og tengdafaðir, DR. GÍSLI FRIÐRIK PETERSEN læknir, Oddagötu 16, Re^kjavík, lést laugardaginn 18. júlí. Sigrfður Guðlaug Brynjólfsdóttir, Þórir Gíslasson, Helga Sigurjónsdóttir.
+ HREFNA MARGRÉT HALLGRÍMSDÓTTIR, sem lést 17. júlí á heimili sínu, Skúlagötu 80, Reykjavík, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 23. júlí kl. 15.00. Héðinn Hjartarson, Sfmon Jóhann Jónsson, Björk Erlendsdóttir, Halldóra Jónsdóttir, Reynir T raustason, Margrét Héðinsdóttir, Einar Sigurðsson, Ásrún Guðríður Héðinsdóttir og barnabörn.
+ Eiginmaður minn, HAUKUR STEFÁNSSON, Víðigrund13, Sauðárkróki, andaðist þann 17. júlí sl. Fyrir mína hönd, systkina hins látna og annarra vandamanna, Minný Leósdóttir.
+ + MAGNÚS ELÍASSON
Elskuleg móðir okkar, frá Bolungarvfk
SIGURJÓNA JAKOBSDÓTTIR verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 22. júlí
frá Akureyri, kl. 10.30.
er látin. Fyrir hönd aðstandenda,
Börnin. Lilja Þorbergsdóttir.
foreldra hennar, tvær yndislegar
ömmur, öll systkinin og þar áttu
vinir og kunningjar athvarf.
Vorið 1954 fór Bíbí til Danmerk-
ur á Vejle sanatorium og þaðan
útskrifaðist hún í ágúst. Tíu ára
sjúkrahúsvist var lokið. Nú voru
bjartir tímar framundan fyrir þessa
kjarkmiklu og lífsglöðu konu. Stef-
án Jónsson unnusti hennar kom til
Danmerkur. Þau giftu sig I Ráðhús-
inu í Kaupmannahöfn og fóru síðan
í brúðkaupsferð.
Við heimkomuna fengu þau íbúð
í Lönghlíð 17. Þar var oft margt
um manninn, sungið, spilað og
glaðst. Bíbí hafði alltaf ætlað sér
að eignast tvö börn og í fyllingu
tímans eignaðist hún dótturina
Stellu, þrátt fyrir vamarorð lækna
sem töldu að slík framkvæmdasemi
mætti bíða. En Bíbí beið.ekki með
neitt. Seinna fæddist svo sonurin
Jón. Þá var hún búin að fá sín óska-
börn og gleðin yfír að sjá þau dafna
og þroskast var ómæld. Á þessum
áram vora margar skemmtilegar
ferðir farnar í veiðiár, útilegur og
norður til æskustöðvanna.
Eftir að móðir hennar féll frá
fluttu þau Stefán til Hannesar föð-
ur hennar og þar hefur heimili
þeirra verið síðan, þótt Hannes félli
frá . Heimili sínu stjómaði Bíbí af
rausn og myndarskap, þótt hún
ynni úti eftir að börnin komust á
legg, og það gerði hún eins lengi
og kraftar entust.
Síðustu árin voru erfið, þrekið
fór dvínandi og 12. júlí sl. tæmdist
stundaglas þessara lífsglöðu bar-
áttukonu.
Að leiðarlokum er margt að
þakka. Þegar sorg hijáði fjölskyldu
okkar eða erfíðleikar steðjuðu að
var Bíbí ætíð fyrsta manneskjan
sem hringdi eða kom. Hún sýndi
hugarþrek sitt í verki og veitti öðr-
um af þeim lífskrafti sem einkenndi
hana fram á síðustu ár. Það eru
forréttindi að hafa þekkt og notið
vináttu slíkrar kjarnakonu.
Elsku Stefán, Stella, Jón, bama-
börn og aðrir ástvinir. Við og fjöl-
skyldur okkar vottum ykkur dýpstu
samúð.
Benny og* Sigrún.
HARÐVIÐARVAL HF.
KRÓKHÁLSI 4 R. SfMI 671010