Morgunblaðið - 21.07.1992, Qupperneq 43

Morgunblaðið - 21.07.1992, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚLÍ 1992 43 ÞRIÐJUDA GS- TILBOÐ MIÐA VERÐ KR. 300Á ALLAR MYNDIR. SYLVESTER STALLONE • ESTELLE GETTY ÓBORGANLEGT GRÍN OG SPENNA Sýnd í A-sal kl. 5,7,9 og 11. TÖFRALÆKNIRINN ★ ★★★ Pressan. Leikur Sean Connery gerir þessa mynd ógleymaniega. Sýnd kl. 5,7,9 og 11. NÆSTUMÓLÉTT Eldfjörug gamanmynd. Sýnd kl. 5,7 og 9. Bönnuð innan 14 ára. MITT EIGIÐIDAHO Erábær verðlaunamynd. ★ ★★ Mbl. Sýnd kl. 11. Bönnuð innan 16 ára. REGNBOGINN SÍMi: 19000 Lögreglan: Vitni vantar að árekstri LÖGREGLAN í Reykjavík vant- ar vitni að árekstri sem varð á gatnaljósunum á Vesturlands- vegi við Höfðabakka um klukk- an 14.15 á sunnudag. Tveir bílar skullu þar saman, blár Nissan Sunny og rauðbrúnn bíll af bandarískri gerð. Nissan Sunny bílnum var ekið vestur í átt til Reykjavíkur en sá bandaríski beygði í veg fyrir hann norður Höfðabakkann í átt að Grafarvogi. Þeir sem urðu vitni að árekstri þessum eru vinsamlega beðnir að hafa samband við Reykjavíkurlögregluna. Morgunblaðið/Hallgrímur Magnússon Gijóthrun stórskemmdi bifreið í Búlandshöfða Grundarfirði. GRÍÐARSTÓR grjóthnullungur hrundi á bíl i Búlandshöfðanum nýlega. Sverrir Karlsson, eigandi Vinny leysir vandann Kvikmyndir Sæbjörn Valdimarsson Bíóhöllin Vinny frændi - „My Cousin Vinny“ Leiksljóri Jonathan Lynn. Að- alleikendur Joe Pesci, Marisa Tomei, Ralph Macchio, Fred Gwynne. Bandarísk. 20th Cent- ury Fox 1992. Á hverju ári skjóta upp koll- inum myndir sem koma á óvart í miðasöluni. Oftar en ekki valda þær framleiðendum sínum og dreifingaraðilum höfuðverk en svo eru það hinar sem aldrei var ætl- ast til mikilis af en taka uppá því að „rusla inn“ (svo maður noti orðalag auglýsingarinnar) nokkr- um milljörðum. Svona nánast upp- úr þurru, sér og sínum til ómældr- ar gleði og ánægju. Vinny frændi tilheyrir einmitt síðarnefnda hópnum. Þetta er lauflétt gamanmynd sem á gott með að koma fólki í gott skap og hresst andrúmsloft í salnum. Pesci leikur nýútskrifaðan, ekkert of kláran en kjaftaglaðann lögfræð- ing frá Brooklyn sem tekur að sér að veija frænda sinn (Macchio) sem lent hefur í afleitum málum niðurí Alabama ásamt félaga sín- um. Þetta er fýrsta dómsmál lög- mannsins, sem féll fimm sinnum á lokaprófum og er ekki beint lík- legur til afreka lengst af. En þá fær hann stuðning úr óvæntustu átt. Efnið verður seint talið trúverð- ugt og í þynnri kantinum en tils- vörin eru mörg lunkin og Pesci tekst mætavel að halda fjörinu gangandi með aðstoð hinnar ít- urvöxnu og bráðskemmtilegu gamanleikkonu Tomei. Áhorfend- ur verða þó að horfa framhjá álappalegum aldursmun parsins en Pesci er greinilega mikið í mun að halda ímynd sinni unglegri. Aukaleikararnir eru upp til hópa vel valdir (ef Karatestrákurinn er undanskilinn) og standa sig með sóma. Einkum er Gwynne karlinn ábúðamikill svo og saksóknari fylkisins. En það er Pesci sem ber myndina uppi og tekst með ágæt- um að koma til skila hinum ólík- lega boðbera réttlætisins þarna langt niðurí í suðrinu, lögfræð- ingnum sem sleppur fyrir horn á visku götunnar frekar en bókar- innar. Tomei er bráðefnileg leik- kona sem lífgar mikið uppá mynd- ina með hispurslausri framkomu og að maður tali ekki um litríkan klæðnaðinn. bílsins sá hrunið í tæka tið og náði að stöðva bílinn þannig að grjótið lenti ofan á frambrettið og framrúðu vinstra megin og munaði því hársbreidd að steinn- inn Ienti á bílstjóranum. Hnull- ungurinn er u.þ.b. einn og hálfur metri á hæð og breiddin er rúm- lega einn metri. Milli Grundafjarðar og Ólafsvík- ur liggur vegurinn utan í Búlands- höfða. Er höfði þessi talsverður vegartálmi á vetrum vegna snjó- flóðahættu og á öllum árstímum hrynur talsvert gijót úr fjallinu. Flestir sem um þennan veg fara verða varir við smásteina á veginum og einstaka sinnum má á leið sinni sjá gijót hrynja úr fjallinu fyrir framan eða aftan bflinn. Þó eru slys eða eignartjón vegna hruns sjald- gæf á þessum stað. Bíll Sverris er stórskemmdur og tjónið tilfinnan- legt því tryggingar bæta ekki tjón sem þetta. „ .. . r - Hallgnmur. UR DAGBÓK LÖGREGLUNIMAR í REYKJAVÍK: 9. til 11. maí 1992 Helgin var tiltölulega róleg í heild sinni. Um 80 ölvunarútköll voru bókfærð í stjórnstöð, 20 árekstrar, 3 umferðaróhöpp, þar sem minniháttarslys urðu á fólki, 28 kvartanir vegna hávaða af völd- um gleðskapar í heimahúsum og eða í nágrenni heimila. Rúðubrot voru tilkynnt 7 til lögreglu þessa helgi og í fimm tilfellum náðist í þá sem ollu rúðubrotunum. 5 innbrot og 9 þjófnaðarmál voru tilkynnt en ekkert þeirra stór- vægilegt. Vert er að vekja athygli á að nokkuð hefur verið um að farið er inn í íbúðir um glugga sem skildir eru eftir opnir á kvöldin og að næturlagi. Þannig er peningum stolið, sjónvörpum, videótækjum og öðrum samskonar verðmætum stolið. Það er því rétt að fólk gangi tiyggilega frá opnanlegum glugg- um á jarðhæðum húsa, áður en gengið er til náða, eða farið að heiman. Mikið var um útköll vegna hávaða í heimahúsum og í mörgum tilfellum höfðu foreldrar og eða húsráðendur farið út úr borginni og skilið unglinga eftir heima, sem buðu síðan í samkvæmi. Átti lög- reglan í miklum önnum vegna þessa aðfaranótt laugardagsins og langt fram á morgun. í sumum til- fellum var kvartað oftar en þrisvar frá sama staðnum, þar sem fólk fór ekki að tilmælum lögreglu. Á laugardagskvöld var tilkynnt um að hundur hefði bitið ellefu ára dreng, þar sem hann var í Elliðaár- dal við Sprengisand. Hundurinn var stór og hvítur að lit, en hann fannst ekki þrátt fyrir leit. Elliðaárdalur- inn er meðal þeirra úivistarsvæða sem óleyfilegt er að vera með hunda á og er vert í þessu sam- bandi að brýna hundaeigendur á að kynna sér betur þær gildandi reglur um hundahald og virða þær. Þá var árrisull kokkur fyrir óskemmtilegri reynslu er hann laust eftir kl.03:00, aðfaranótt sunnudags hugðist kæla skírnart- ertu, sem hann hafði bakað, en tertuna átti að nota þann sama dag. Er hann hafði látið tertuna út fyrir dyr veitingastaðarins, bar að tvo pilta sem gerðu sér lítið fyrir og stálu tertunni og fundust ekki þrátt fyrir leit lögreglu. Við þetta bökuðust vandræði, en kokk- urinn leysti úr þeim með því að baka aðra tertu. Þá átti það sér stað snemma á sunnudagsmorgun að ökumönnum tveggja bifreiða rann í skap. Upp- hafið var að annar ökumanna taldi hin hafa svínað á sér og fékk sá senda kókdós í framrúðu bifreiðar- innar. Við það brást sá hinn versti við og upphófst nú eltingaleikur um götur borgarinnar. Reyndi sá sem kókdósina fékk, að keyra ít- rekað á hinn og tókst það í eitt skipti, en lenti einnig á umferðar- merki. Sá sem eltur var reyndi að komast undan og ákvað að komast á lögreglustöðina. Á Hverfisgötu fyrir framan lögreglustöðina stopp- aði hann, en sá sem elti kom þá hlaupandi út úr bifreið sinni og tók til við að beija bíl hins að utan og sparka í hann. Þá bar að lögreglu- menn sem skökkuðu leikinn. Sá sem elti, sparkaði og barði reyndist vera ölvaður og var því færður í fangageymsluna þar til af honum rann reiðin og. ölvunin. Hann var síðan sviptur ökuskírteininu til bráðabirgða, en það var um mánað- ar gamalt frá útgáfu. Styttan af Nonna enn ófundin: Lýsi eftir flutningamönnunum -segir Anna Snorradóttir LEITIN að styttu Nínu Sæ- mundsson af Nonna hefur enn ekki borið neinn árangur. Stað- fest er að höggmyndin var borin út úr lestrarsal Borgarbóka- safnsins í Þingholtsstræti snemma á síðasta áratug en eng- ar upplýsingar eru um hvert myndin var flutt. „Það er talið að minnst 6 til 8 menn hafi þurft til þess að bera styttuna út og koma henni fyrir á bíl“, segir Anna Snorradóttir. Hún kveðst hafa rætt við marga starfs- menn Borgarbókasafnsins um þennan atburð en enginn þeirra getur staðfest hvaða ár styttan af Nonna var flutt úr lestrarsal safns- ins. Fullvíst er þó að það var fyrir árið 1985, þegar Þórdís Þorvalds- dóttir tók við starfi borgarbóka- varðar. „Nú er það þrautalending mín hvort einhver þeirra manna sem tók þátt í því að flytja styttuna man ekki hvert var haldið með hana“, segir Anna. „Ég sé ekki annað ráð en snúa mér til þessara flutningamanna og lýsa eftir upp- lýsingum frá þeim því að engin opinber plögg virðast finnast um flutninginn."

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.