Morgunblaðið - 31.07.1992, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 31.07.1992, Blaðsíða 1
V 72 SÍÐUR B/C/D/E Lögfræðingur Honeckers segir engar líkur á sanngjörnum réttarhöldum: Honecker var út- hýst með valdi Berlín. Reuter, The Daily Telegraph. FRIEDRICII Wolff, lögfræðingur Erichs Honeckers, fyrrum leiðtoga Austur-Þýskalands, sagði í gær að Honecker hefði verið dreginn úr sendiráði Chile í Moskvu með valdi og alþjóðalög því verið brot- in. Við komuna til Berlínar í fyrradag var Honecker færður í fang- elsi og deildi hann þar klefa með óbreyttum glæpamönnum. „Það gilda engar sérreglur fyrir herra Honecker," sagði Christoph Flugge, þjá dómsmálaráðuneyti Berlínar. Wolff sagði Honecker hafa neitað að yfirgefa sendiráðið þegar honum var tjáð að stjórnvöld í Chile æsktu ekki lengur veru hans þar. Hefðu þá rússneskir öryggisverðir komið inn í sendiráðið, skipað honum að taka saman föggur sínar og hafa sig á brott. „Ég held að þeir hafi verið reiðubúnir að beita ofbeldi," sagði lögfræðingurinn. Þýska ríkis- stjórnin segir hann hins vegar hafa komið til Þýskalands af fúsum og fijálsum vilja. Wolff sagði að hann teldi engar líkur á að réttarhöldin yfir Honecker yrðu sanngjörn þar sem búið væri að dæma hann fyrir- fram. Stefnt er að því að hefja réttar- höldin í haust en Honecker er sak- aður um að bera ábyrgð á rúmlega 70 manndrápum og manndrápstil- raunum við landamæri þýsku ríkj- anna tveggja. Verjendur Honeckers íhuga nú hvort þeir eigi að reyna að fá hann lausan vegna hás aldurs og slæmrar heilsu, þó hún sé sögð góð miðað við aðstæður. Fjölmiðlar í Þýskalandi voru blendnir í afstöðu sinni til réttar- haldanna. Die Welt sagðist vona að þau yrðu svipað uppgjör við for- tíðina og Nurnberg-réttarhöldin voru yfir nasistatímanum en mörg önnur blöð, sérstaklega í austur- hluta landsins, töldu óliklegt að réttarhöldin gætu gert upp við það óréttlæti sem ríkt hefði í Austur- Þýskalandi. „Þýskur dómstóll er hreinlega ekki megnugur að takast á við slíka glæpi,“ sagði Schweriner Volkszeitung. Sjá einnig fréttir á bls. 17 Einmana mótmælandi Reuter Maður sem mótmælir handtöku Honeckers situr á fána Austur-Þýska- lands fyrir framan Moabit-fangelsið í Berlín. SÞ með eftirlití S-Afríku Jóhannesarborg. Reuter. STJÓRN F.W. de Klerks hefur samþykkt að eftirlitssveit frá Sameinuðu þjóðunum komi til Suður-Afríku til að fylgjast með boðuðu verkfalli og mótmælum gegn minnihlutastjórn hvítra í næstu viku. De Klerk sagði í gær að stjórnin myndi ekki láta und- an kröfum um að fara frá. Þetta er í fyrsta sinn sem Suður- Afríka leyfir komu slíkrar sendi- nefndar frá SÞ. Afríska þjóðarráðið og verkalýðsfélög hlynnt því segja að aðgerðimar munu fara friðsam- lega fram, en lama allt athafnalíf í landinu. Lögregla í Suður-Afríku sagði í gær að fangi sem lést í vörslu henn- ar hefði framið sjálfsmorð. Fanginn er sá þriðji sem deyr eftir að lækn- ir sem rannsakaði lík 200 manna sem dóu við svipaðar aðstæður sagði að 90 prósent dauðsfallanna mætti rekja til ofbeldis lögreglu. Trump vill fábætur Hörð gagnrýni forseta Italíu vegna afsagnar utanríkisráðherrans: Segir valdabrölt ráðherra vera „glæp gegn ríkinu“ Róm. Rcuter. GIULIANO Amato, forsætisráð- herra Ítalíu, sagði í gær að hann myndi ekki segja af sér þrátt fyrir afsögn Vincenzo Scotti utanríkisráðherra, sem hefur veikt mánaðargamla ríkissljórn hans. Forseti Ítalíu, Oscar Luigi Scalfaro, gagnrýndi stjórnmála- menn fyrir ábyrgðarleysi í gær og sagði, án þess að nafngreina utanríkisráðherrann, að væri það rétt að hann hefði látið hagsmuni flokksbrots vega þyngra en hagsmuni þjóðarinn- ar væri um „glæp gegn ríkinu“ að ræða. Scotti sagði af sér vegna þess að stjóm Kristilega demókrata- flokksins ákvað að ráðherrar úr flokknum skyldu segja af sér þing- mennsku þegar þeir settust í ríkis- stjórn. Var markmið flokksstjóm- arinnar að reyna að gera ríkis- stjórnir langlífari með því að svipta ráðherrana varaskeifunni sem þingsætið hefur ávallt verið. Astand stjómmála á Ítalíu er nú af ýmsum orsökum sagt hættu- legra en verið hefur um margra ára skeið: stjórn Amatos var sett á laggimar eftir einhverjar erfið- ustu stjórnarmyndunarviðræður I sögu Ítalíu og má varla við áföllum í kjölfar morða mafíunnar á hátt- settum dómurum og erfiðs efna- hagsástands. Gengi lírunnar og ríkisverðbréfa veiktist enn í gær vegna fréttanna af afsögn Scottis. Italir og Frakkar lögðu í gær til að ráðherrar EB hittust til að ræða vaxandi starfsemi mafíunnar víðs vegar í Evrópu. Þýska lögregl- an varaði við vaxandi umsvifum mafíunnar í austurhluta landsins og sagði að samtökin væru nú starfandi um allt Þýskaland. Vax- andi umsvif mafíunnar með auknu viðskiptafrelsi í Evrópu og morðin á dómurunum Falcone og Borsell- ino hafa aukið áhyggjur manna um að glæpasamtökin séu orðin of sterk til að ítölsk stjómvöld geti ráðið niðurlögum þeirra ein síns liðs. Dómsmálaráðherra ítal- íu, Claudio Martelli, sagði í gær að ítalir kynnu að einangrast inn- an Evrópu ef þeir næðu ekki árangri í baráttunni gegn maf- íunni og hefðu uppi á morðingjum dómaranna. Sjá ennfremur „Óvissutilfinn- ing og ...“ á bls. 16. New York. The Daily Telegraph. Fasteignakóngurinn Donald Trump hefur höfðað mál á hend- ur Ivönu, fyrrum eiginkonu sinni, og heimtar af henni sem svarar 1,25 milljörðum ÍSK í skaðabæt- ur fyrir að draga upp ófagra mynd af sér í skáldsögu. Trump segir að í bókinni „Fyrir ástina eina“ sé að fínna uppljóstran- ir sem stríði gegn skilnaðarsáttmála hjónanna, sem bannar lausmælgi um samvistir þeirra. Bókin fjallar um tékkneska skíðastjörnu sem flýr vestur yfir, giftist auðkýfingi og kemur sér upp eigin hótelveldi. Fulltrúi Ivönu — sem var tékknesk skíðastjarna sem flúði til Bandaríkj- anna og giftist Trump, sem meðal annars á Plaza-hótelið í New York — sagði að þættust menn þekkja persónur úr raunveruleikanum í bókinni væri það einskær tilviljun. Nákvæmni nauðsynleg ÞESSI japanski hermaður er að þjálfa sig við að gera jarðsprengj- ur óvirkar áður en hann verður sendur með friðargæslusveitum Sameinuðu þjóðanna til Kambód- íu. Þar verður ábyggilega aðgætni þörf, því talið er að milljónir jarð- sprengna séu í landinu og skærul- iðar Rauðu khmeranna hafa neit- að að afhenda vopn sín, eins og þeir skuldbundu sig til í friðar- samningum. Fari gæsluliðar frá Japan til Kambódíu verður það í fyrsta sinn frá lokum síðari heim- styijaldar að japanskir hermenn taka þátt í aðgerðum utan heima- lands síns. Reuter

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.