Morgunblaðið - 31.07.1992, Page 32

Morgunblaðið - 31.07.1992, Page 32
32 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. JÚLÍ 1992 ÖÐURTIL HAFSINS Sýnd kl. 7.05. ENGLISH SUBTITLE * THE PRINCE * OF TlDES ■^C. Sýnd kl.g. B.i.14 STEPHEN KING STEPHEN KING STEPHEN KIWG STEPHENKING NÁTTFARAR They Live For The Night. They Live For The Kill. And Tliey Live Forever. NYJASTA HROLLVEKJA MEISTARA STEPHENS KING. ÓGNVEKJANDI - ÓGURLEG - SKELFILEG - SKUGGALEG! SANNKALLAÐUR SUMARHROLLUR! HVERJIR ERU NÁTTFARAR! A HVERJU LIEA ÞEIR? HVERNICÍ LÍ AF HVERllJ ERIJ ÞEIR SVONA HRÆDDIR VID KETTI BRIAN KRAUSE, MADCHEN AMICK iTvulranRarl. ALICE KRIGE |L or RON PERLMAN |Thc Bcautv aiul tlic llcastl. í EINNI BESTU HROLLVEKJU ALLRA TÍMA! Langspilsleikur í Norræna húsinu FÉLAG norrænna langspilsleikara hittist að þessu sinni í Reykjavík og heldur tónleika í Norræna húsinu. Félagið var stofnað í Vástra Tunhem í Svíþjóð árið 1986. Markmið félags- ins er að varðveita gömul hljóðfæri og halda lífi í þeim með því að leika á þau. Allt frá stofnun félagsins hafa meðlimir þess hist árlega í einhveiju Norðurlandanna til að leika saman. Á fjórða áratugnum hvarf langspilið nánast af sjónar- sviðinu og voru mörg þessara hljóðfæra notuð sem hreiður- kassar. Nokkuð fyrr hafði orgelið tekið við hlutverki langspilsins í kirkjum og á dansleikjum var harmonikan orðin allsráðandi. Á sjöunda áratugnum vaknaði áhugi á ný fyrir þessu hljóðfæri og í dag eru þau smíðuð að gam- alli fyrirmynd. Það eru til nokkrar mismunandi gerðir af langspilinu og verða þær kynntar á tónleikunum sem haldnir verða í Norræna hús- inu laugardaginn 1. ágúst kl. 17.30. Á tónleikunum spilar fólk frá Svíþjóð, Noregi, Finn- landi og ekki má gleyma að nefna Ónnu Þórhallsdóttur frá íslandi sem hefur verið aðaldriffjöður þessa félags hérlendis. Y erslunarmannahelgin; Fjölskyldusamvera og útivist á Þingvöllum UM verslunarmannahelg- ina mun þjóðgarðurinn á Þingvöllum gangast fyrir fjölbreytilegri dagskrá fyrir börn og fullorðna. Farið verður í skipulagð- ar gönguferðir og boðið upp á leikjadagskrá á kvöldin. Gönguleiðir verða meðal annars um Þingvallahraun og Þinghelgi. Sérstök sögu- ferð verður farin á laugar- dag og sunnudag þar sem Lögberg og aðrir sögufræg- ir staðir verða skoðaðir. Þessa báða daga verður jafnframt boðið upp á nátt- úru- og myndsköpunarferð fyrir börn á aldrinum sex ára og upp úr. Á kvöldin geta böm á öllum aldri hist í Hvannagjá og hlýtt á nátt- úruspjall og farið í leiki. Á sunnudag verða haidin bar- naguðsþjónusta og helgi- stund. . Um þessa helgi verður sérstök rækt lögð við að þjóna útivistar- og fjölskyl- dufólki. Því er nauðsynlegt að friður ríki á tjaldsvæðum Myndsköpun í Þingvallahrauni. frá klukkan 23 til klukkan bönnuð. Þeir sem gerast 7 að morgni næsta dags. brotlegir verða fjarlægðir Öll meðferð áfengis er af svæðinu af lögreglu. Hjálpræðisherinn fær heimsókn MAJÓRARNIR Carl og Gudrun Árskóg Lydholm frá aðalstöðvum Hjálpræðishersins í Kaupmannahöfn eru komin í heimsókn til íslands. Gudrun Árskóg er ritstjóri danska Herópsins, „Krigsraa- bet“, en eins og nafnið gefur til kynna er hún af íslensku bergi brotin. Faðir hennar var íslendingur og starfaði hér í mörg ár, majór Gestur Ár- skóg. Gudrun er einnig með- limur í alþjóðlegri ráðgjafa- nefnd hershöfðingja Hjálp- ræðishersins í guðfræðilegum kenningaratriðum, en Gudr- un er guðfræðingur að mennt. Carl Lydholm er fjár- málastjóri Hjáipræðishersins í Danmörku en áður en hann fékk þá skipum var hann deildarstjóri Hjálpræðishers- ins með aðalstöðvar í Kaup- mannahöfn. Þau hjónin njóta mikils álits sem ræðumenn, auk þess sem þau syngja og leika á mörg hljóðfæri. í Reykjavík verða sam- komur haldnar í Herkastal- anum á hvetju kvöldi frá fimmtudegi 30. júlí til sunnu- dagsins 2. ágúst, auk þess sem nokkur elliheimili fá að njóta þessarar heimsóknar og útisamkoma verður haldin á Lækjartorgi á sunnudaginn kl. 16. (Fréttatilkynning)

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.