Morgunblaðið - 03.09.1992, Side 1
80 SIÐUR B/C/D
STOFNAÐ 1913
199. tbl. 80. árg.
FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1992
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Maastrieht-deilan í Frakklandi
Þjóðverjum svíð-
ur hræðsluáróður
París, Bonn, London. Reuter.
LEIÐTOGI helsta sambands atvinnuveitenda í Frakklandi hvatti
ákaft til þess í gær að landsmenn samþykktu Maastricht-samkomulag-
ið um nánara samstarf ríkja Evrópubandalagsins (EB) í þjóðarat-
kvæðinu 20. september. Nýjustu skoðanakannanir gefa til kynna að
naumur meirihluti verði fylgjandi samningnum, 53% gegn 47%. Þýsk-
ir fjölmiðlar segja að það geti orðið til að skaða starf EB í framtíð-
inni ef áfram verði staglast á því að samkomulagið sé nauðsynlegt
til að hægt verði að hafa taumhald á yfirgangi Þýskalands.
„Alið á ótta við Þýskaland í
Frakklandi fyrir þjóðaratkvæðið",
sagði í fyrirsögn þýska dagblaðsins
General-Anzeiger á þriðjudag. Die
Weit, sem er íhaldssamt, segir að
deiluaðilar í Frakklandi séu sam-
mála um að sjá myrk öfl að verki
í Þýskalandi; annar vilji hafa taum-
Fischer og Spasskí sestir að fyrstu skákinni. Ekki verður um neinar biðskákir að ræða og sá ber sigur
úr býtum, sem fyrstur nær 10 vinningum. Skákskýrendum og stórmeisturum, sem fylgjast með einvíginu
í Sveti Stefan í Svartfjallalandi, kom saman um eftir skákina í gær, að þar hefði hinn gamli Fischer verið
á ferðinni og augljóslega ekki búinn að gleyma neinu.
Bobby Fischer vann öruggan sigur á Borís Spasskí í fyrstu skákinni
Endurkoman að keppn-
isborðinu afar glæsileg
Sveti Stefan. Frá Margeiri Péturssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
AFTURHVARF Bobby Fischers
eftir 20 ára fjarveru frá keppni
var sérlega glæsilegt. Hann vann
Borís Spasskí, fyrrum heims-
meistara, mjög örugglega í 50
leikjum. „Eg fékk býsna góða
stöðu eftir byrjunina og þetta var
góð skák,“ sagði Fischer við
fréttamenn þegar Spasskí hafði
gefist upp. Spasskí sagðist ekki
hafa fundið rétta áætlun eftir
byijunina og þá hefði farið að
síga á ógæfuhliðina. „Síðan var
ég drepinn," sagði hann vonsvik-
inn en Fischer brosti breitt að
ummælum hans.
Fischer vildi ekki segja hvar
Spasskí hefðu orðið á mistök. „Ég
segi ekkert um það. Það munu
margir skoða þessa skák í kvöld.“
í stuttu máli gekk þessi skák
Serbar selja stórskota-
liðið undir eftirlit SÞ
Sariyevo. Reut-
SERBAR sögðust í gær hafa sett
stórskotalið sitt, sem hefur setið
um Sarajevo, undir eftirlit friðar-
gæslusveita Sameinuðu þjóðanna.
Radovan Karadzic, leiðtogi Serba
í Bosníu-Herzegovínu, hafði lofað
þessu í friðarviðræðunum í Lund-
únum í síðustu viku.
Komnen Zarkovic, talsmaður
serbnesku umsátursmannanna,
sagði að stórskotalið á ellefu stöðum
í grennd við bosnísku höfuðborgina
væri undir eftirliti friðargæslusveit-
anna. Hann bætti þó við að slíkt
eftirlit útilokaði ekki að stórskota-
vopnum yrði beitt. „Þótt stórskota-
vopnin verði undir eftirliti Samein-
uðu þjóðanna merkir það ekki að
við getum ekki beitt þeim til að verja
okkur og það gerum við, með sam-
þykki Sameinuðu þjóðanna, ef á
okkur verður ráðist."
Hersveitirnar hafa setið um
Sarajevo í fimm mánuði og haldið
uppi hörðum árásum á borgina und-
anfarna tíu daga.
Nokkrum klukkustundum áður en
stórskotaliðið var sett undir eftirlit
friðargæslusveitanna urðu höfuð-
stöðvar þeirra fyrir stórskotaárás-
um. Fallbyssuskot lentu á mínútu
fresti í grennd við bygginguna en
ekki var talið að mannfall hefði orð-
ið.
Júgóslavneska. fréttastofan Tan-
jug skýrði frá því að múslimar hefðu
gert árásir á vígi Serba vestan við
höfuðborgina. Embættismenn Sam-
einuðu þjóðanna vonuðust til að geta
sent matvæli til múslima í bænum
Gorazde, austan við höfuðborgina,
eftir að Karadzic hafði skipað her-
sveitum sínum að hætta fimm mán-
aða umsátri um bæinn.
Sósíalistaflokkur Serbíu ákvað í
gær að styðja ekki framkomna van-
trauststillögu á Milan Panic forsæt-
isráðherra en með henni stefndi í
uppgjör milli hans og Slobodans
Milosevics forseta. Hefði hún verið
Röáfer
Þessi vígalegi maður í dyrunum
er Thorvald Stoltenberg, utan-
ríkisráðherra Noregs. Kom hann
til Sarajevo í gær til viðræðna
við Alija Izetbegovic, forseta
Bosníu.
samþykkt hefði það orðið enn einn
álitshekkirinn fyrir Serba á alþjóða-
vettvangi.
þannig fyrir sig, að Fischer kom
með nýja og athyglisverða áætlun
gegn hinu spánska Breyer-afbrigði
Spasskís. í 19. leik hefði Spasskí
átt að drepa peð í framhjáhlaupi
en hann lét það ógert og sat uppi
með þrönga stöðu.
Þegar Fischer hafði síðan náð
miklum herfræðilegum yfirburðum
brá Spasskí á það ráð að fóma ridd-
ara á tvö miðborðspeð. í framhald-
inu slakaði Fischer hvergi á klónni
og fórnaði biskupi til baka til að
ná sókn gegn kóngi Spasskís. Þetta
var umdeilanleg ákvörðun en
Spasskí fann engin úrræði.
Það virtist fara nokkuð vel á með
meisturunum. Þeir ræddust aðeins
við fyrir skákina og athuguðu hvort
nýja klukkan, sem Fischer hannaði,
virkaði rétt. Fischer kvartaði einu
sinni yfir hávaða frá áhorfendum
en skákmennirnir sátu í 20 metra
ijarlægð frá þeim.
Aðstæður á skákstað eru annars
dálítið sérkennilegar. Teflt er í 50
metra löngum sal, sem skipt er
fyrir miðju með þili, en á því er fimm
metra breitt gat og í gegnum það
er hægt að fylgjast með skákmönn-
unum úti við hinn vegginn.
Unnusta Fischers, ungverska
skákkonan Zita Reichany, sem er
aðeins 19 ára gömul, fylgdist með
skákinni á stórum sjónvarpsskjá og
kvað fljótlega upp úr með það, að
Bobby væri betri. „Spasskí má
muna sinn fífil fegri, hann teflir
ekki vel í dag,“ sagði hún þegar
nokkuð var liðið á skákina. Talið
er að það sé ekki síst Zitu að þakka,
að Fischer ákvað að setjast aftur
að taflborðinu.
Sjá skákskýringu á miðopnu.
hald á þessum öflum en hinn forð-
ast að láta þau ná tökum á Frakk-
landi. í forystugrein blaðsins er
sagt að franskir stuðningmenn
Maastricht vilji „samning til að
hægt verði að halda Þjóðverjum
niðri“ og síðan er spurt: Er þetta
evrópsk eining? Blaðið hefur nýlega
varpað fram þeirri spurningu hvort
sú aðferð að hræða fólk með „Þjóð-
veijunum andstyggilegu“ geti ekki
valdið því að samskipti þjóðanna
spillist varanlega, jafnvel þótt
samningurinn verði samþykktur,
hvernig standi á því að Frakkar
vilji bindast svo hættulegri þjóð
tryggðaböndum.
Þjóðverjinn Martin Bangemann,
sem situr í framkvæmdastjórn EB,
tók undir sjónarmið blaðanna á
fréttamannafundi í gær. „Þjóðverj-
ar geta aðeins sætt sig við að hlýða
á slíkar röksemdir í takmarkaðan
tíma,“ sagði hann.
Háttsettur breskur embættis-
maður sagði í gær að færi svo að
Frakkar höfnuðu samningnum
myndi breska þingið hætta umfjöll-
un sinni um hann, samkomulagið
yrði þá úr sögunni.
KGB ætlaði
aðmyrða
Jeltsín
Moskvu. The Daily Telegraph.
BORÍS Jeltsín Rússlandsfor-
seti lifði af banatilræði sov-
ésku öryggislögreglunnar,
KGB, árið 1989 vegna þess
að maðurinn sem átti að ann-
ast verkið óhlýðnaðist skipun-
um, að sögn dagblaðsins Kom-
somolskaja Pravda. Blaðið
segir að Vladímír Krjútsjkov,
sem talinn er hafa verið aðal-
skipuleggjandi valdaránstil-
raunar á síðasta ári, hafi gef-
ið skipun um tilræðið.
Dagblaðið segir að þetta hafi
gerst er Jeltsín var á eftirlits-
ferð til raforkuvers í Tadzhíkíst-
an. Hann gegndi þá stöðu að-
stoðarráðherra byggingarmála
en skömmu fyrr hafði hann ver-
ið rekinn úr stöðu leiðtoga
kommúnistaflokksins í Moskvu
og stjórnmálaráðinu, æðstu
valdastofnun landsins. Þar hafði
hann gagnrýnt forystuna fyrir
seinagang í umbótum. Jeltsín
mun ekki hafa vitað neitt um
tilræðið og haldið aftur til
Moskvu. Maðurinn sem átti að
myrða hann heitir Petkel, hers-
höfðingi að tign, og var honum
að sögn Komsomolskaja Pravda
varpað í fangelsi þar sem hann
situr enn.