Morgunblaðið - 03.09.1992, Síða 2

Morgunblaðið - 03.09.1992, Síða 2
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1992 Einar J. Guðfinnsson hf. á Bolungarvík Andvirði kvótans um 547 millj*. kr. Málm- og skipasmiða- sambandið semur SAMNINGAR hafa tekist á milli Málm- og skipasmiðasam- bands Islands og Vinnuveit- endasambands Islands og stýrimanna á farskipum og viðsemjenda þeirra. Að sögn Guðlaugs Þorvaldssonar ríkis- sáttasemjara eru samningarn- •r byggðir á miðlunartillögu ríkissáttasemjara en jafn- framt er í samningi Málm- og skipasmiðasambandsins bók- un um starfsöryggi vegna samningsins um Evrópska efnahagssvæðið. Öm Friðriksson, formaður Málm- og skipasmiðasambands- ins, sagði að skrifað hefði verið undir samninginn með fyrirvara um samþykki félagsmanna. Samningurinn verður kynntur í trúnaðarmannaráði félagsins nk. mánudag og borinn upp á félags- fundi síðar í vikunni. 125 milljómr króna vegiia úreldingar Hagræðingarsjóður hefur sam- þykkt 27 umsóknir á þessu ári og þegar greitt til 15 styrkþega vegna úreldingar á 878 rúmlestum rúmlega 125 milljónir króna. Hæsta styrk úr úreldingarsjóði hefur Þorlákur ÁR 5 hlotið, 50 millj- ónir króna, en úreltar rúmlestir eru 415,2. Eigandi þess er Meitillinn hf. Næst í röðinni er Bjamarey VE 501 með 151,5 úreltar rúmlestir. Það hlaut rúmar 30 milljónir króna og eigandi þess er Isfélag Vestmanna- eyja. Þriðja skipið í röðinni er Júlíus AR 110 með 102,1 úrelta rúmlest og hlaut það 11 milljónir og 760 þúsund krónur. Eigandi þess er Hólmar Gunnarsson. KVÓTAEIGN Einars J. Guð- finnssonar hf. á Bolungarvík nemur um 547 milljónum króna á nýhöfnu fiskveiðiári. Sem kunnugt er af fréttum á fyrir- tækið í miklum rekstrarerfið- leikum og nema skuldir þess um 1.100 milljónum króna. Við kvótaskerðinguna nú tapaði fyrirtækið kvóta að andvirði 59 milljónir króna. Kristján Jón Guðmundsson, út- gerðarstjóri EG, segir að kvóti togaranna Dagrúnar og Heiðrúnar á nýhöfnu kvótaári nemi samtals 3.419 tonnum af þorskígildum. Miðað við að verð á framtíðar- kvóta er nú um 160 krónur á þorskígildiskílóið er heildarverð- mæti þessa kvóta um 547 milljón- ir króna. Á síðasta kvótaári nam heildarkvóti þessara togara 3.783 tonnum af þorskígildum og hefur kvótinn því verið skertur um 370 tonn að andvirði um 59 milljónir króna. Kristján Jón Guðmundsson seg- ir að síðan beri að líta á að þorsk- aflinn sé skertur mest, eða um 570 tonn en sú skerðing bætt að hluta með aflaheimildum f öðrum teg- undum eins og ufsa og grálúðu sem mun óhagkvæmara sé að vinna. Morgunblaðið/Þorkell Aðstaða fyrir fatlaða brátt fullbúin Athygli var vakin á því í gær að aðstaða og aðgangur fyrir fatlað fólk í nýju dómshúsi Reykjavíkur er ekki fullnægjandi. Jóhann Pétur Sveinsson lögfræðingur og formaður Landsamtaka fatlaðra kom þá, á leið til vinnu sinnar, að tröppum við inngang dómshússins, sem ófærar eru fötluðum án aðstoðar. Morgunblað- ið leitaði álits borgardómara, Friðgeirs Bjömssonar, og sagði hann að frágangur trappanna væri það eina, sem eftir væri, áður en húsið teldist samræmast reglugerð um frágang húsbygg- inga. Hann sagði framkvæmdir hafa tafist en einnig að mjög fljótlega yrði ráðist í að ganga frá tröppunum. Hann benti enn- fremur á að aðbúnaður innanhúss væri allur hannaður til að mæta þörfum fatlaðra einstaklinga, sem erindi eiga í Dómshúsið. Tók leign- bíl á inn- brotsstað LÖGREGLUMENN á eftirlits- ferð um miðbæinn í fyrrinótt urðu varir við ferðir grunsam- legs manns á mótum Laugavegar og Smiðjustígs. Er maðurinn varð var við lögregluna lagði hann á flótta og henti frá sér. tækjum í leiðinni. Er lögreglan náði til hans var hann sestur upp í leigubíl á Klapparstíg og í ljós kom að hann hafði tekið leigubíl- inn til að fara í innbrotsleiðang- ur. Við eftirgrennslan lögreglu- mannanna kom í ljós að maður þessi, sem er 32 ára gamall, hafði brotist inn á veitingastaðinn Thai- land á Smiðjustíg skömmu áður en lögreglan taldi ástæðu til afskipta af honum. Maðurinn hafði hringt á leigubíl skömmu eftir klukkan 4 um nóttina og beðið hann að aka sér niður í bæ. Á Klapparstígnum bað hann leigubílstjórann að stöðva bíl- inn því hann þyrfti að kasta af sér vatni. í staðinn hélt hann rakleiðis að Thailandi fór þar inn í port og braut rúðu á staðnum bakatil. Eig- andi Thailands var kvaddur á stað- inn og í ljós kom að maðurinn hafðu m.a. náð í útvárpstæki og reiknivél auk lítilsháttar upphæðar í erlend- um gjaldeyri. Var hann á leið í leigubílinn með góssið er hann sá til ferða lögreglumannanna. Friðrik Sophusson fjármálaráðherra um útgáfu bráðabirgðalaga Þingsköp tefja skjóta afgreiðslu nýrra laga Drengur lærbrotnar EKIÐ var í veg fyrir dreng á vélhjóli á Víkurbraut í Grindavík í gærdag með þeim afleiðingum að hann kast- aðist af hjólinu og lærbrotnaði. Vél- hjólinu var ekið Víkurbraut til suðurs og við Borgarhraun var bifreið ekið í veg fyrir það. Drengurinn var hjálmlaus en slapp við höfuðmeiðsl. FÓ FRIÐRIK Sophusson fjármálaráðherra mælti fyrir frumvarpi til staðfestingar á bráðabirgðalögunum um Kjaradóm á Alþingi í gær. Sagðist ráðherra hafa áhyggjur af því að samkvæmt þing- skaparlögum væri ekki hægt að kalla þingið saman til að af- greiða ný iög á skömmum tíma líkt og ætti sér stað hjá öðrum þjóðum þar sem bráðabirgðalög væru nánast óþekkt fyrirbrigði. „Það getur ekki farið saman fullt málfrelsi og takmarkaður fund- artími nema slíkt bitni á sjálfu lýðræðinu," sagði Friðrik. Fjármálaráðherra sagði að bráðabirgðalög væru orðin óþekkt í Danmörku en þar væri þjóðþing- ið kallað saman þegar taka þyrfti stórar ákvarðanir og slík mál væru afgreidd á einum degi. „Ég tel það vera bagalegt, að ekki skuli vera hægt að kalla þing saman, og leysa úr málum með löggjöf, í stað þess að gefa út bráðabirgðalög," sagði Friðrik. Rakti hann breytingar sem gerðar voru á bráðabirgðalagaákvæði stjórnarskrár árið 1991 og á þing- skaparlögum og gat þess að ekki hefði fengist afgreitt ákvæði, sem gerði ráð fyrir takmörkun um- ræðna á Alþingi þegar brýna nauð- syn bæri til að hraða afgreiðslu þingmála, eins og að staðfesta bráðabirgðalög. „Ég hygg að þetta sé ein af ástæðum þess, að ekki verði hjá því komist að ríkisstjórn- ir í framtíðinni muni hugsa sig tvisvar um, áður en þær hyggjast kalla þing saman fremur en að beita bráðabirgðalagaákvæðinu," sagði Friðrik. Stjómarandstæðingar mót- mæltu orðum fjármálaráðherra og sagði Svavar Gestsson Alþýðu- bandalagi ljóst að með síðustu stjórnarskrárbreytingu hefði það verið markmið allra þingflokka að þrengja vemlega svigrúm ríkis- stjórna til að setja bráðabirgðalög og að mál fengju hraða afgreiðslu þegar mikið lægi við. Sagði hann það hættulegan skilning sem fram kæmi í orðum fjármálaráðherra að ríkisstjórnin hefði kosið að setja bráðabirgðalög af því að hún óttað- ist umræðu á Alþingi. Páll Péturs- son, þingflokksformaður Fram- sóknarflokksins, sagði að fjármála- ráðherra sýndi Alþingi óvirðing með orðum sínum. „Þessi hugsu sem fram kom hjá ráðherra er fo: kastanleg, að það sé svo seinlej að láta löggjafarsamkomu þjóða: innar fjalla um lögin að það væ miklu betra að gera það sjálfu og vera fljótur að. Þetta er huga far einræðisherra sem er ekki bo< legt,“ sagði Páll. Réttir að hefjast JMartiukUtiltr VIÐSKIPn AIVINNULÍF Samdrittur í feróaJögum SSiihw xJL m íslendinga tO útlanda ZTTZ------ —- Fyrstu fjárréttir haustsins verða næstkomandi sunnudag 21 Fangelsismál - byggðastefna Guðmundur Gíslason forstöðu- maður fangelsa á höfuðborgar- svæðinu tekur þátt í umræðunni um fangeisismálin 12 Hvor - hver - annar___________ Helgi Hálfdanarson veltir fyrir sér málfari og móðurmálskennslu 15 Leiðari Vinnan flytzt úr landi 24 ty Skritrrá ■wwwpn# rr<W 0K.1 f BráJuriarrt 1111 jf fslandsbréf 7,7%' - án bindinRar Sr.Tr-------- ^ Sjí- Sfln—■ Menntun ► Ásókn í réttindanám - Full- orðinsfræðsla - Starfsmenntun í atvinnulífinu - Fræðslufréttir - Öflug endurmenntun - Tölvu- nám - Ólæsi - Öldungadeildir. Viðskipti/Atvinnulíf Á Dagskm ► Færri landar utan - Teppa- Iand og Parketgólf í eitt - Tveir gosrisar - Gengislækkun hafn- að - Ferðaskrifstofa íslands í ólgusjó einkaframtaks. ► Bíóin í borginni - Tvö mynd- bönd kynnt - Jessica Fletcher leysir ennþá morðgátur - Be- verly Hills krakkamir - ítalski boltinn farinn að rúlla. Landhelgisgæslan Spurst fyr- ir um skútu BRESKAR strandgæslu- stöðvar hafa haft samband við Landhelgisgæsluna og beðið hana að spyrjast. fyrir um hvort verið geti að skonn- orta með sjö manns innan- borðs, á leið frá Nýfundna- landi til Bretlands, hafi kom- ið við hér á landi. Skútan lagði af stað frá St. Johns á Nýfundnalandi 7. ágúst og átti að koma til Whitby á austurströnd Englands 28. ágúst. Hjalti Sæmundsson, varð- stjóri í stjómstöð Landhelgis- gæslunnar, sagði að komið hefði fyrirspurn um skútuna frá Clyde-strandgæslustöðinni fyr- ir 4-5 dögum en síðar hefðu fleiri stöðvar bæst við. Land- helgisgæslan hefði haft sam- band við hafnir vegna þessa og kallað hefði verið til skipa en enn sem komið væri án árang- urs. Skonnortan er 62 feta löng, hvit með brunum eða rauðum seglum, og heitir Helga María.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.