Morgunblaðið - 03.09.1992, Page 10
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1992
10
Söngtónleikar
_________Tónlist____________
Jón Ásgeirsson
Síðustu-af supiartónleikunum í
Listasafni Siguijóns Ólafssonar
fóru fram sl. þriðjudag og voru
flytjendur Angela Spohr sópran-
söngkona frá Þýskalandi og Þóra
Fríða Sæmundsdóttir píanóleikari.
Á efnisskránni voru söngverk eftir
Janácek, Schönberg, Britten og
Granados.
Tónleikarnir hófust á sjö þjóð-
lagaraddsetningum eftir Janácek.
Fræðimenn eru ekki sammála um
hvort Janácek hafi verið frumlegur
eða aðeins sérvitur og víst er að
oft brá fyrir skrýtilegheitum í
þessum einföldu raddsetningum,
sem þó voru aldrei særandi. Tvö
af lögunum, Óvissa, fallegt lag,
sem var vel flutt, og Hestar míns
heittelskaða, með sínu sérkenni-
lega undirspili, voru mest áberandi
þessara laga.
Fjögur sönglög, op. 2 (frá 1899)
eftir Schönberg, tilheyra róman-
tíska tímabilinu. Schönberg var
ákafamaður og leiddi mikil notkun
hans á breyttum hljómum og
krómatísku tónferli til þess að til-
finningin fyrir ákveðinni tónstöðu
(tonalitet) eða tóntegundaskiptum
hvarf, svo að lögin urðu oft til-
breytihgalaus og án andstæðna.
Fyrsta lagið, Ervartung, var einna
áhugaverðast, en í þessum íjórum
lögum eftir Schönberg var flutn-
ingurinn í heild mjög vel útfærður.
On this Island, op. 11, eftir vin-
ina Britten og Auden er skemmti-
lega gerð tónlist, svolítið tilgerðar-
leg en á köflum falleg, eins og t.d.
í næturljóðinu. Tónleikunum lauk
með ijórum söngverkum eftir
Granados en ljóðin öll Ijalla um
fólk frá Madrid og var það síð-
asta, um feimna Madrid-búann,
sérlega fallegt. Skólasysturnar
Angela Spohr og Þóra Fríða áttu
góða spretti í samspili og Angela,
sem hefur mjög góða og vel þjálf-
aða rödd, söng margt fallega en
samt án þess að koma punktinum
yfir i-ið! Söngvari sem enn þarf
að hafa textabók fyrir framan sig,
er í sömu stöðu og leikari sem
heldur á handriti. Að kunna hlut-
verk sitt utan að, skapar flytjanda
frelsi til að tjá sig hömlulaust. Að
„líta útundan sér“ slítur í sundur
sambandið á milli flytjanda og hlu-
standa.
'ö*uGt oy og ^ LÆRO°
HEILSUSKÓLI
fyrir fríska krakka
Þetta er frábært 8 vikna námskeið einu sinni í viku á laugardögum
Börnin fá svo sannarlega að njóta sín við að
liðka sig og styrkja, lita, leika sér og læra nýja hluti.
Þau kynnast fullt af krökkum og öðlast aukið sjálfstraust.
(S) Skemmtileg leikfimi -
(SD Þroskandi og skemmtilegir leikir
(S) Engar raðir - engin samkeppni
(2) Fróðleikur - krakkarnir læra m.a um
hjarta- og vöðvastarfsemi
og fjölmargt um heilbrigt líferni
Leiðbeinendur verða Hrafn Friðbjörnsson og Kittý Magnúsdóttir
5-7 ára <s>
7-9 ára <3
10-12 ára <S>
Verð kr. 4900,
s
Wo 1 ^
i \
GO
Effpt utW
Metsölublað á hvetjum degi!
Hart og mjúkt
_______Myndlist
Bragi Ásgeirsson
Hafsteinn Austmann er einn af
þeim máiurum sem lætur ekki segja
sér fyrir verkum, en heldur ótrauð-
ur áfram formrannsóknum sínum.
Það er langt síðan hann markaði
sér þann sérstaka stíl, sem gengur
eins og rauður þráður í gegnum
myndlist hans frá einu myndstefi
til annars.
Einhæfni segja sumir, staðfesta
aðrir, en einu má slá föstu, sem er
að listamaðurinn hefur einfaldað
form sín og leggur áherslu á mark-
vissari formræna uppbyggingu. I
málverkinu kemur það fram í stór-
um og hörðum formum, um þessar
mundir iðulega þríhyrndum, en í
vatnslitamyndunum eru formin
mýkri og opnari og litirnir safarík-
ari.
Ekki eru það einungis eiginleikar
litanna sem hér ráða ferðinni, því
allt eins má ná mjúkri áferð með
olíulitum, heldur virðist listamaður-
inn hafa sérstaka og gerólíka af-
stöðu til þessara tjámiðla.
Eðlilega hlýtur það að vera pers-
ónubundið hvorn myndstílinn menn
taka fram yfir, hina karlmannlegu,
kröftugu og hráu burðargrind mál-
verkanna eða hinar ljóðrænu og
leikandi formanir vatnslitamynd-
anna. Trúlega höfða þó vatnslita-
myndirnar meira til íjöldans, og
rétt er það að málverkin eru hrárri
og tormeltari. Hins vegar þurfa
stóru myndirnar sérstakt umhverfi
til að njóta sín og þola síður nær-
veru hver annarrar. Trúa mín er,
að stakar í sérstöku rými komist
Henrik Ibsen -
Ludvig Eikaas
í anddyri Norræna hússins eru
um þessar mundir til sýnis allnokkr-
ar grafíkmyndir eftir hinn nafn-
kennda norska myndlistarmann
Ludvig Eikaas, sem hann hefur
gert í tilefni af heildarútgáfu á
verkum Henrik Ibsens á vegum Den
norske Bokklubben.
Myndirnar hefur Eikaas skorið
út í plötur og tekur hann fyrir leiði-
þemað úr hverju einstöku leikriti
Ibsens og vinnur úr því á táknræn-
an hátt.
Eikaas er prófessor við listahá-
skólann í Ósló og hefur lengi verið
atkvæðamikill í norsku myndlistar-
lífi og er ómyrkur í máli, þegar
hann er tekinn tali, og las sá er
hér ritar mjög opinskátt og efnis-
ríkt blaðaviðtal við hann fyrir
nokkrum árum.
Þegar við Guðmundur Erró vor-
um við nám við Listaháskólann í
Ósló var Eikaas einn af atkvæða-
mestu og efnilegustu listamönnum
yngri kynslóðar og vakti hann
óskipta athygli okkar beggja.
Það er ánægjulegt að fá þetta
sýnishorn verka listamannsins
hingað, en um leið ber að harma
að það skuli ekki vera yfirgrips-
meira og kynna list hans rækilegar.
Þetta eru allt mjög einfaldar
myndir, sem bera vott um ríka
kennd gerandans fyrir hinum svörtu
og hvítu blæbrigðum og áhrifa-
mætti samruna þeirra. Þær bera
svip af úthverfu innsæi ásamt sál-
rænni dýpt og er auðséð að hann
leggur áherslu á að halda vissu
myndrænu samhengi við hið bók-
menntalega inntak, en án þess að
myndirnar séu á neinn hátt bók-
menntalegar. Hér gerir Eikaas til-
raun til æðra stigs myndlýsinga í
bækur og færist mikið í fang, en
ég sé ekki betur af smækkuðum
myndum í bókinni að dæmið hafi
gengið upp. Það er prýði af þeim
og þær eru mjög í anda hinna mögn-
uðu leikrita Ibsens.
Einnig eru í glerkassanum, þar
sem bækurnar eru til sýnis, frí-
merki, og á því eru myndir lista-
Glæsilegt fyrirtæki
Til sölu er mjög gott fyrirtæki sem er innflutningur
og smásala á sérhæfðum vörum með mikla álagn-
ingu. Einnig er til sölu verslunarhúsnæði sama
aðila í besta verslunarhúsi landsins.
Sérhæft og skemmtilegt fyrirtæki sem býður upp
á mikla möguleika.
Upplýsingar aðeins á skrifstofu.
F.YRIRTÆKIASALAN
SUÐURVE R I
SÍMAR 812040 OG 814755, REYNIR ÞORGRÍMSSON.