Morgunblaðið - 03.09.1992, Qupperneq 13
MQRGUNBLAÐIÐ.FIMMTUDAGUR.3. SEPTEMBEfi 1992
að forstöðumaður geti leyft fleiri
heimsóknir ef sérstakar ástæður
mæli með. Tekið skal fram að þarna
er átt við nánustu vandamenn og
sambýlisfólk en ekki aðrar heim-
sóknir sem teljast opinber erindi,
s.s. lögfræðinga, embættismanna,
rannsóknaraðila o.fl., eða undan-
þáguheimsóknir fjölskylduvina, trú-
bræðra og hagsmunaaðila.
Samkvæmt reynslu og tölum úr
afplánunarfangelsum mætti ætla,
ef mið er tekið af 65 manna fang-
elsi, að raunhæft væri að gera ráð
fyrir að 40-45 aðstandendur sækt-
ust eftir að koma í heimsókn viku-
lega. Þá er aðeins átt við nánustu
vandamenn en ekki alla hina sem
hugsanlega eiga erindi við afplán-
unarfanga. Það sér hver maður, að
ef fangelsi yrði reist í 500 kíló-
metra fjarlægð frá því svæði sem
80-90% fanganna hafa aðsetur og
flestir aðstandendur þeirra og heim-
sóknargestir eiga heimili, þá væri
erfitt að framfylgja lögbundnum
rétti fanga til að fá heimsóknir og
mikilvæg fjölskyldutengsl gætu
rofnað. Vissulega gerir undirritaður
sér grein fyrir því, að ekki er hægt
að tryggja öllum föngum afplánun-
arstað í námunda við heimili eða
aðsetur. Til þess þyrfti að byggja
fangelsi víða. ísland er strjálbýlt
og einstaklingum er stundum mis-
munað. Sú stefna hefur þó verið
ríkjandi í fangelsismálum undanfar-
in ár, og verður áfram, að reyna,
eins og kostur er, að koma til móts
við óskir afplánunarfanga og ætt-
ingja þeirra um vistunarstað.
Því hefur verið haldið fram, að
einu röksemdir fangelsismálanefnd-
ar fyrir að mæla með staðsetningu
nýs fangelsis á höfuðborgarsvæðinu
séu rekstrarhagræðing og að kostn-
aður við fangaflutninga myndi
lækka. Það er að nokkru leyti rétt.
Vitanlega eiga þessir þættir hlut í
heildarmyndinni, en jafnfráleitt er
að ætla að þeir skipti öllu máli varð-
andi tillögu um staðarval. Hagræð-
ingin hlýtur að verða að skoðast í
því ljósi, að sameina skal á einum
stað þá starfsemi sem lögð verður
niður í öðrum fangelsum vegna
„úreldingar". Ef sú ákvörðun verð-
ur tekin að nýtt fangelsi rísi langt
frá höfuðborgrrsvæðinu, þá er
óhugsandi að taka Hegningarhúsið
og Síðumúlafangelsið úr notkun,
nema einnig verði byggt nýtt fang-
elsi í Reykjavík með þeim kostnaði
sem því fylgir.
Undirritaður nennir ekki að elta
ólar við sleggjudóma eða óljósar
fullyrðingar eins og þær, sem settar
hafa verið fram í blaðagreinum, að
fangelsismálanefnd hafi skort
þekkingu á þjónustu og möguleik-
um landsbyggðarinnar eða að
nefndin hafí lotið einhverju miðstýr-
ingarvaldi, sem dragi allar þjón-
ustugreinar til Reykjavíkur. í fang-
elsismálanefnd voru sjö aðilar, tveir
frá fangelsismálastofnun, þrír frá
fangelsum, einn frá dómsmálaráðu-
neyti og einn frá fjármálaráðu-
neyti. Tillögurnar voru unnar á fag-
legum grunni, fjölmargir möguleik-
ar kannaðir og reynt að komast að
skynsamlegri niðurstöðu. Annað
ekki. Það er trú undirritaðs að haft
hafi verið að leiðarljósi að gera til-
lögur til úrbóta á kerfi, sem gengið
er sér til húðar vegna áratuga van-
rækslu. jafnframt, að hagur þeirra,
sem illu heilli þurfa að vistast.í
fangelsum, verði ekki fyrir borð
borinn. Flestum hlýtur hins vegar
að vera ljóst, af því sem að framan
hefur verið talið, að afplánunar-
fangelsi af þeirri stærð sem fangels-
ismálanefnd leggur til að byggt
verði, er gjörsamlega óhugsandi í
hundruð kílómetra fjarlægð frá höf-
uðborgarsvæðinu. Ekki myndi
bónda í Eyjafirði detta í hug að
gegna fé sínu í Suðursveit, eða sjó-
manni af Reykjanesi að róa til fískj-
ar norður á Húnaflóa, þótt einhver
teldi það heillaráð.
í fréttatilkynningu sem dóms-
málaráðherra sendi fjölmiðlum 5.
maí sl. segir, að hann hafi fallist á
tillögur fangelsismálanefndar í
meginatriðum. Þær verði grundvöll-
ur stefnumörkunar í fangelsismál-
um á næstu árum. Tekið er fram,
að áður en bygging nýs fangelsis
geti hafist þurfi að kanna sérstak-
lega, hvort það raski hagkvæmnis-
rökum sem teflt er fram í skýrsl-
unni, ef nýju fangelsi yrði valinn
staður utan höfuðborgarsvæðisins,
t.d. við Litla-Hraun.
Undirritaður hefur þá skoðun að
það raski hagkvæmnisrökum
skýrslunnar. Framkvæmdanefnd,
skipuð af dómsmálaráðherra, hefur
tekið til starfa við úrvinnslu tillagna
skýrslunnar og er henni óskað vel-
farnaðar í starfi. Mestu skiptir, að
endanleg ákvörðun verði íslensku
réttarríki til sóma. Það er löngu
tímabært.
Höfundur er forstöðumaður
fangelsa á höfuðborgarsvæðinu
og átti sæti í fangelsismálanefnd.
vann á veitingahúsinu, en sá eldri
var farinn að heiman og nýskilinn
við konu númer tvö. Maríó hefir
stóra íbúð á hæðinni fyrir ofan fyr-
irtækið. Þar hjá honum býr öldruð
móðir hans, sem hann annast af
mikilli umhyggju. Af þessu litla
dæmi getið þið séð, að Kúbumenn
eru miklir ijölskyldumenn.
Ég spurði Maríó, hvað myndi
gerast á Kúbu, þegar Kastró missti
þar tökin. Ekki sagðist hann halda,
að margir Kúbumenn í Flóróda
hefðu áhuga á að hverfa aftur til
heimalandsins. Hann kvaðst vera
hræddur um það, að strax og
Kastró og kommúnistar misstu
völdin, myndu tugir eða hundruð
þúsunda eyjaskeggja taka sig upp
og reyna að komast til Flórída.
Hann sagðist vera hissa á því, að
yfirvöldin virtust ekki gera ráð fyr-
ir þessum möguleika og gera ráð-
stafanir til þess að bregðast við slík-
um þjóðflutningum. Honum fannst
Bush forseti standa sig slælega í
þessum málum. Maríó sagðist ekki
hafa allt of mikinn áhuga á forseta-
kosningum í haust.
Fyrst nú talið hefir borist að kosn-
ingum í hönd farandi, komumst við
ekki hjá því að enda þetta spjall
með nokkrum þönkum þar um.
Demókratamir kláraðu sitt flokks-
þing fyrir allnokkra og sættu sig
loks við að Sleipi Villi, öðru nafni
Villi Klinton, fengi að fara fram sem
forsetaefni. Þetta er búinn að vera
þungur róður hjá strákgreyinu,
repúblikanar og fjölrniðlarnir voru
búnir að rífa hann í sig og draga
fram í dagsljósið alls kyns ljóta hluti.
Hann var sakaður um meiriháttar
framhjáhald og einnig þótti sannað,
að hann hefði komið sér hjá herþjón-
ustu í Vietnamstríðinu.
En hann vann á með tímanum
og sýndi mikla seiglu, sem margir
virða við hann. Svo valdi hann sér
varaforsetaefni, sem mæltist al-
mennt vel fyrir hjá demókrötum.
Alli Gor er virtur þingmaður og
mikill umhverfissinni. Það getur
orðið slæmt fyrir hvaldrápara, ef
hann og Villi ná kosningu. Klinton
og Gor stóðu sig vel á flokksþing-
inu, og punduðu óspart á Búss,
greykallinn. Þetta eru líka myndar-
legir, ungir menn, sem báðir eiga
sætar, ljóshærðar konur og skikk-
anleg börn.
Repúblikanar eru nýbúnir að
halda sitt þing. Þeir hafa haldið
mikið af ræðum um allt milli himins
og jarðar, en þeir hafa forðast eins
og eldinn að minnast á slæmt efna-
hagsástand og atvinnuleysi. Fjöl-
skylduhelgi, heiðarleiki og algjör
makatryggð virðast eiga að vinna
kosningarnar og bjarga þjóðinni.
Líka hefir kynvillingum og fóstur-
eyðingum verið sagt stríð á hendur
samkvæmt flokksstefnuskránni. En
það gleymdist að lýsa yfir ánægju
og þökk fyrir þá blessun, að ljótar
athafnir kynvilltra skuli ekki orsaka
óléttu hjá vondum konum, sem síð-
an vilja eyða fóstrum.
Ég þori engu að spá um væntan-
leg úrslit kosninganna, en samt
má við því búast, að annað hvort
Búss eða Klinton vinni.
Sumarráðstefna SÍNE
Lögin um Lánasjóðinn draga
úr aðsókn að háskólunum
Sumarráðstefna Sambands íslenskra námsmanna erlendis harmar
þá niðurstöðu sem meirihluti Alþingis komst að í lánamálum stúd-
enta í vor. „Með hertum endurgreiðslum og vaxtatöku ofan á verð-
tryggingu iána leiða lögin um Lánasjóð islenskra námsmanna til
stórskertra námslána og eru þegar farin að draga úr aðsókn fólks
í háskóla. Afleiðingar verða meðal annars þær að framboð á vinnu-
afli mun vaxa og auka enn á erfitt atvinnuástand,“ segir í fréttatil-
kynningu.
Ennfremur segir: „Ákvæði lag-
anna um að lán verði ekki greidd
fyrr en að lokinni hverri námsönn
er sérstök handvömm sem engan
skynsamlegan tilgang hefur en mun
valda námsmönnum miklu óhag-
ræði og hrekja marga þeirra á náð-
ir bankanna. Lögunum er einnig
stefnt til höfuðs SÍNE þar sem af-
numin er skylduaðild námsmanna
erlendis þegar lán er tekið. SÍNE
er ekki aðeins hagsmunasamtök
námsmanna erlendis. Það gegnir
mikilvægu þjónustuhlutverki fyrir
námsmenn og aðstandendur þeirra
varðandi nám og skóla vítt og breitt
um heiminn.
Til að bæta gráu ofan á svart
hefur meirihluti stjórnar Lánasjóðs
íslenskra námsmanna nýlega sam-
þykkt úthlutunarreglur sem ganga
enn lengra í skerðingarátt. Hæst
ber þá furðulegu reglu að náms-
maður skuli ljúka svokallaðri „100%
námsframvindu" samkvæmt skipu-
lagi skóla til að fá fullt lán, sem
skerðist ef hann lýkur minna námi.
Þessa reglu hefur aðeins sá getað
samið sem ekki þekkir til náms-
skipulags í háskólum. Víðast er
tímaviðmiðun sú sem tilgreind er í
skólareglum fyrir námsbrautir eða
-gráðu styttri, í sumum tilvikum
miklu styttri, en sá tími sem náms-
menn raunveralega veija til að ljúka
viðkomandi námi, og stafar þetta
misræmi umfram allt af því að tíma-
viðmiðun skólareglanna er ekki
raunhæf.
SÍNE skorar á stjórn og þing
iandsins að sníða þessa agnúa af
lögum og reglum .Lánasjóðs ís-
lenskra námsmanna. Sambandið
vill ekki trúa því að þetta sé „hin
endanlega lausn“ eins og stjórn LÍN
komst svo kaldranalega að orði um
nýjar úthlutunarreglur lánasjóðs-
ins. Meðan ósanngimi gagnvart
námsmönnum og illvilji í garð sam-
taka þeirra ræður lögum og lofum
mun ekki komast á sátt um þennan
lánasjóð sem gerður er til þess að
greiða landsmönnum öllum leiðina
til menntunar."
Ó4Úrar
HARÐVWARVAL
HARÐVIÐARVAL HF.
KRÓKHÁLSI 4 R. SÍMI 671010
HLUTABRÉF í
Jarðborunum hf.
I fýrsta skipti gefst nú almenningi kostur á að kaupa hlut
í opinberu fyrirtæki sem verið er að einkavæða.
Seljendur: Ríkissjóður Islands og Reykjavíkurborg.
Nafnverð hlutabréfa: 141.600.000 kr.
Sölugengi: 1,87
Jarðboranir hf hafa fengið staðfestingu ríkisskattstjóra
á að draga má kaupverð hlutabréfanna
frá tekjuskattsstofni einstaklinga almanaksáhð 1992.
Eigendur hlutabréfanna, Reykjavíkurborg og ríkissjóður,
leggja áherslu á að gera Jarðboranir hf. að virku almenningshlutafélagi.
7/7 að auðvelda almenningi kaup á hlutabréfunum,
mega einstaklingar sem kaupa fyrir allt að 100.000 kr. fram að 15. september,
greiða kaupverðið með fjórum jöfnum greiðslum fram til 15. desember 1992.
Lágmarksupphæð er 30.000 kr. að nafnvirði.
Sölustaðir, auk Kaupþings hf. og
útibúa Búnaðarbanka Islands og sparisjóða um land allt em:
KAUPÞiNG
NORDURLANDSHF
VIB
Skandia
vv
SAMVINNUBANKANS
9
LANDSBRÉF H.F.
HANDSALHF
@BÚNAÐARBANKI
ÍSLANDS
KAUPÞING HF
Löggilt verðbréfafyrinœki
Kringlutini 5, stmi 689080
í eigu Bútiaðarbatika íslands ogsparisjóðanna
ðB
SPARISJÓÐURINN