Morgunblaðið - 03.09.1992, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1992
19
Opinn fundur
Heimdallar í kvöld
Ný viðhorf í
landbúnaði
HEIMDALLUR, félag ungra
sjálfstæðismanna í Reykjavík, og
landbúnaðarnefnd Sambands
ungra sjálfstæðismanna (SUS)
efna til opins fundar um hinar
miklu breytingar, sem nú eiga
sér stað í íslenskum landbúnaði,
í kvöld kl. 21.00 í Valhöll, Háa-
leitisbraut 1. Ræðumenn á fund-
inum verða Halldór Blöndal land-
búnaðarráðherra og Júlíus Guðni
Antonsson, formaður landbúnað-
arnefndar SUS.
í fréttatilkynningu frá Heimdalli
segir meðal annars: „Ungir sjálf-
stæðismenn hafa um áratugaskeið
gagnrýnt hið fráleita miðstýringar-
kerfi , sem hefur verið við lýði í
íslenskum landbúnaði en það hefur
falið í sér mikið ranglæti fyrir
bændur jafnt sem neytendur.
Heimdallur fagnar öllum breyting-
um á kerfinu í fijálsræðisátt og
vonar að innan fárra ára verði ís-
lenskur landbúnaður orðinn sjálf-
stæð atvinnugrein og algerlega
óháður ríkisvaldinu eins og hann
var fyrrum. Á fundinum í kvöld
mun landbúnaðarráðherra kynna
stöðu landbúnaðarins og greina frá
þeim breytingum, sem fyrirhugaðar
eru. Formaður landbúnaðarnefndar
SUS mun fjalla um landbúnaðar-
stefnu stjórnvalda frá gagnrýnu
sjónarhorni og benda á þá hluti sem
mættu betur fara að hans mati en
nýverið samþykkti stjórn SUS sam-
hljóða ályktun um búvörusamning,
þar sem landbúnaðarráðherra var
harðlega gagnrýndur."
Að framsöguerindum loknum
gefst fundarmönnum kostur á að
beina fyrirspurnum og athuga-
semdum til ræðumanna. Fundurinn
er opinn öllum áhugamönnum um
stjórnmál.
----» ♦ ♦---
Reykjanesbraut
Ekið utan í
lögreglumann
LÖGREGLAN í Keflavík lenti í
eltingarleik við 53 ára gamla
konu á Reykjanesbrautinni um
klukkan eitt í fyrrinótt. Lögregl-
an var í veiýulegri eftirlitsferð
er hún tók eftir bíl konunnar sem
ekki var með aðalljós á og akst-
urslag ekki í lagi. Eftir að konan
stöðvaði bíl sinn og lögreglumað-
ur ætlaði að hafa tal af henni, ók
hún á stað aftur og ók utan í lög-
reglumanninn. Fékk hann högg á
lærið og marðist lítilsháttar.
Lögreglan elti konuna, sem ók á
litlum hraða á brott, og tókst að
þvinga hana út af veginum við Voga-
stapa. Við það urðu lítilsháttar
skemmdir á lögreglubílnum. Sam-
kvæmt upplýsingum frá lögreglunni
í Keflavík var konan ekki ölvuð eða
undir áhrifum lyfja en mun hafa
brugðið svona illa við afskipti lög-
reglunnar.
Vegna mikillar sölu á nýjum bílum
NOTUÐUM BILUM
Nokkur verð dæmi
Nissan Sunny 1500 Coupe árg. 1988. Peugeot 205GTI árg. 1988.
Verð 580 þús. stgr. _ Verð 750 þús. stgr.
Toyota Corolla Touring 4x4 árg. 1990. Subaru 1800 ST 4x4 árg. 1987.
Verð 970 þús. stgr. jpr Verð 550 þús. stgr.
BILASÚSÍ&
sævarhöfða 2 674848 i húsi Ingvars Helgasonar
Volvo 240GL árg. 1990.
Honda Accord EX árg. 1987.
Verð 650 þús. stgr.