Morgunblaðið - 03.09.1992, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 03.09.1992, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1992 Vigdís Finnbogadóttir forseti Islands Leggjum stríðsþjáð- um líkn með þraut HÉR Á eftir fer ávarp Vigdísar Finnbogadóttur forseta íslands vegna landssöfnunar Rauða kross Islands og Hjálparstofnunar kirkj- unnar til hjálpar flóttafólki í fyrr- um Júgóslavíu og Sómalíu: Góðir landsmenn. • Við íslendingar höfum búið við það lífslán um aldir að þekkja ekki styij- öld í landi okkar. En við munum vel sögu okkar og þeirri sögu fylgja margar frásagnir af hungruðu fólki í erfiðri lífsbaráttu. Það fólk var forf- eður okkar og -mæður. Nú er íslensk þjóð þannig sett að hún ræður yfir tækni til að hagnýta sér gjafir um- hverfisins. Jafnframt fáum við í tæknivæddum ijölmiðlum mörgum sinnum á dag ítarlegar fréttir af hörmungum stríðs og hungursneyðar í fyrrum Júgóslavíu og Sómalíu. Það er fólk eins og við, en saklaust hefur það orðið að fómarlömbum styrjalda og stjórnleysis. Því eru allar bjargir bannaðar eftir að hafa verið stökkt á flótta frá heimiium sínum. Þar sem áður var friður og öryggi ríkir nú ógn, skelfing, hungur og dauði. í Sómalíu bitnar hungrið harðast á börnum og barnadauðinn er slíkur að heilir árgangar eru að hverfa úr hópnum. Um allan heim bregst fólk nú við til bjargar þessum meðbræðrum okk- ar og -systrum. Hér heima hafa Rauði krossinn og Hjálparstofnun kirkjunn- ar tekið höndum saman um söfnun til að leggja stríðshijáðum líkn með þraut. Þar gefst okkur nú öllum færi á að leggja lið okkar undir einkunnar- orðunum „hjálpum þeim“. Með aðstoð hinna alþjóðlegu samtaka sem þessar stofnanir eru kemst hjálp okkar á leiðarenda og við getum treyst því að þeir njóti hennar sem í nauðum eru. Góðir íslendingar, hjálpum þeim. Með stuðningi okkar leggjum við sveltandi og sjúkum börnum lið; með stuðningi okkar er hægt að draga úr hörmungum styijalda - og stuðn- ingur okkar sýnir að við skiljum að við eigum að gæta bróður okkar nær og fjær, hvar sem hann er staddur. Vigdís Finnbogadóttir Guðjón Magnússon heilsar Popovsky, formanni Rauða krossins í Makedóníu, á ferð sinni þar til að kynna sér aðbúnað flóttamanna. Flóttamenn í fyrrum Júgóslavíu Brýnt að bregðast við vetrarhörkunum * - segir Guðjón Magnússon, fonnaður RKI FLÓTTAMENN í fyrrum lýðveldum Júgóslavíu, sem margir búa nú í tjöldum, þurfa á aukinni hjálp að halda þegar vetur skellur á, að sögn Guðjóns Magnússonar, forseta Rauða kross Isiands, sem heim- sótti flóttamannabúðir víða á Balkanskaga fyrir skömmu. Fyrir utan húsnæði er víða vöntun á eldsneyti og mat, og rafmagnsskort- ur veldur því að ekki er hægt að frysta matvæli til geymslu til lengri tíma. Guðjón ferðaðist sem varaforseti Alþjóðasambands Rauða kross fé- laga til Ungveijalands og víða um fyrrum lýðveldi Júgóslavíu til að kynna sér ástandið í flóttamanna- búðum sem reknar eru af Rauða krossinum þar. Hann fór til Belgrad í Serbíu og síðan til Kosovo-héraðs þar í landi, þar sem Albanir eru í meirihluta og ýmsir telja að geti orðið næsti vettvangur stórátaka á Balkan-skaga. Þaðan var förinni heitið til Makedóníu og síðan til Ljublijana í Slóveníu. Flóttamenn frá fyrrum Júgóslav- íu eru nú um 2,7 milljónir talsins og eru flestir í Bosníu-Herzegov- ínu, þar sem Serbar, Króatar og múslimar berast á banaspjót. Þar er stuðningur við flóttafólk einnig minnstur og erfiðast að koma mat- arbirgðum og öðrum nauðsynjum áleiðis. Guðjón sagði að flestir flótta- mannanna byggju hjá Qölskyldum sem hefðu menningarleg og trúar- leg tengsl við þá. Mest væri sam- hjálpin meðal múslima, sem legðu ótrúlega mikið á sig til að hjálpa meðbræðrum sínum. Verst væri ástandið meðal barna af öllum þjóð- ernum, sem ættu mörg við alvarleg sálræn og geðræn vandamál að stríða. Margir hafa misst nána ættingja í stríðinu og einnig hefðu fjölskyldur sundrast, annað hvort þannig að fólk hefði týnt hvert öðru eða að mamman og pabbinn tilheyrðu andstæðum fylkingum. Eins og ávallt væru það óbreytt- ir borgarar, konur, börn og gamal- menni, sem væru í miklum meiri- hluta fórnarlamba styijaldarinnar í fyrrum Júgóslavíu, sagði Guðjón. „Þetta fólk ber enga ábyrgð á þeirri vitfirringu sem stríðið er. Það á um sárt að binda og þarf á mikilli aðstoð að halda, sem vonandi verð- ur aðeins timabundin. Rauði kross- inn er sá aðili sem ber þungann af þeirri aðstoð sem unnt er að veita. Með því að leggja fram sinn skerf getur fólk hjálpað Rauða krossinum að veita óbreyttum borgur- um, fórnarlömbum stríðsins í Júgó- slavíu nauðsynlega hjálp og bjarga mannslífum.“ Safnað handa sveltandi fólki í Sómalíu Nær allur maturínn kemst í réttar hendur UM 80-90 prósent af matvælum sem Rauði krossinn sendir til Sómalíu komast til þeirra sem verst eru settir þrátt fyrir grip- deildir vopnaðra hópa, að sögn talsmanna Rauða krossins í Nairobi. Samtökin sjá um 600.000 Sómölum fyrir máltíð tvisvar á dag og það er Ijóst að þau hafa bjargað lífi tugþúsunda manna. Þeirra á meðal er María, þriggja barna móðir, sem Morg- unblaðsmenn ræddu við í Moga- dishu á ferð sinni þar fyrir skömmu. Börn Maríu eru á meðal um 1.250 barna sem fá heita prótein- ríka máltíð tvisvar á dag í einu af um 200 eldhúsum Rauða krossins í Mogadishu, höfuðborg Sómalíu. Blaðamaður ræddi við hana með aðstoð forstöðumanns staðarins, fyrrverandi dýralæknis, sem sér nú um matargjafir og fylgist með líðan barnahópsins. María sagðist hafa komið til Mo'gadishu frá þorpinu Ullaway, um 90 kílómetra suður af borg- inni. Þar var engan mat að fínna og að auki geisuðu bardagar, þann- ig að hún taldi sig eiga engan kost annan en að reyna að finna mat handa sér og börnum sínum í höf- uðborginni. Hún hafði komið níu daga í röð í eldhúsið og á þeim tíma hefðu börnin, sem eru öll yngri en fimm ára, braggast svo að mik- ill munur sæist á þeim. Þau voru ekki horuð lengur eins og mörg hin barnanna í eldhúsinu, þó þau bæru greinileg merki vannæringar, eins og upplitað hár. María veit ekki hvar eiginmaður hennar eða aðrir úr fjölskyldunni eru niðurkomnir, en vonast til að finna einhveija þeirra í Mogadishu. Það er mjög algengt að fjölskyldur tvístrist $UM Morgunblaðið/Þorkell María, sómölsk kona sem flúði hungursneyð í heimaþorpi sínu, með eitt af þremur börnum sínum, sem nú fá mat í eldhúsi Rauða krossins í Mogadishu. upplausninni í Sómalíu og það mun vafa- laust taka mörg ár fyrir sumar þeirra að ná saman aftur, þó að Flóttamanna- hjálp Sameinuðu þjóðanna reyni að aðstoða suma með aðstoð tölvu, þar sem upplýsingar um ættarnöfn og heimaþorp geta leitt menn inn á réttar brautir. Það hefur mikið verið rætt um að matvælasendingar komist ekki til þeirra sem á þurfi að halda vegna gripdeilda byssumanna við höfnina í Mogadishu og annars staðar þar sem komið er með er- lend hjálpargögn. Slíkt á sér vissu- lega stað, en langstærstur hluti matarins kemst þó til skila. Hluti af skýringunni er sá að mikill hluti matarins er sérstaklega ætlaður ungbörnum og er harla ólystugur öðrum. Engir byssumenn reyna að ræna grautnum sem börnin hennar Maríu fengu að súpa. Fulltrúar Rauða krossins í Nair- obi í Kenýa tjáðu blaðamanni að um 10 prósent af matvælunum færu í vinnulaun og önnur tíund f „öryggisgæslu". Það getur varla talist annað en sanngjarnt að þeir sem vinna við að dreifa matnum og elda hann séu matvinnungar, en líta má á öryggisgæsluna sem vægt gjald fyrir að fá að koma matnum til þurfandi fólks. Það getur jafnvel verið að matarsend- ingar dragi úr ofbeldinu, því átök stríðandi ættbálka í Sómalíu voru að stórum hluta farin að snúast um mat og þau átök kunna að hafa hjaðnað eftir því sem aukið magn er sent til landsins. Þá fer stór hluti matvælaaðstoðarinnar til sómalskra flóttamanna í Kenýa, þar sem auðvelt er að sjá til þess að allur maturinn komist í réttar hendur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.