Morgunblaðið - 03.09.1992, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 03.09.1992, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1992 Hermenn risu gegn sljóm Norður-Kóreu Tókýó. Reuter. NOKKUR þúsund hermenn frá Norður-Kóreu gerðu uppreisn fyrir rúmu ári til að mótmæla skipunum stjórnvalda og á eftir fylgdu aftök- ur þrettán hershöfðingja. Dagblað í Tókýó greindi frá þessu í gær. Areiðanlegar fréttir berast sjaldan frá Norður-Kóreu og helst að sfjórnvöld, sem aðhyllast Stalínisma, segi fregnir af hamingjusömum verkalýð er lifir fyrir ættjörðina. Isabel Castellanos, þriggja ára stúlka, drukknaði þegar flóðbylgja hreif hana á haf út eftir jarðskjálfta á þriðjudag. Á myndinni sést frændi hennar halda á líkinu. Jarðskjálfti í Níkaragúa Flóðbylgjur sópuðu á brott yfír 100 þorpum Managúa. Reuter. ÖFLUGUR jarðskjálfti kom af stað flóðbylgjum sem ollu gífurlegu Ijóni á Kyrrahafsströnd Níkaragúa á þriðjudagskvöld. Vitað er um 40 látna og 400 slasaða en þúsundir manna misstu heimili sín í hamförunum. Violeta Chamorro forseti landsins hefur farið fram á alþjóðlega aðstoð vegna áfallanna. Kaupa Græn- lendingar hlut í stórútgerð? ROYAL Greenland, útgerðar- fyrirtæki grænlensku land- stjómarinnar, stefnir að því að eignast hlut í stóru sjávarút- vegsfyrirtæki á Nýja-Sjálandi. Að sögn dagblaðsins Internat- ional Herald Tribune stendur Royal Greenland, sem forystu- aðili í fyrirtækinu Ashlar Coop- eration, í samningaviðræðum við fyrirtækið Carter Holt Harvey um kaup á nýsjálenska útgerðarfélaginu Sea Lord. Verðið fyrir Sea Lord er 203 milljónir Bandankjadala (rúmir tíu milljarðar ÍSK), en sam- kvæmt nýsjálenskum lögum mun Royal Greenland aðeins fá leyfi til að kaupa 24,9% hlutabréfanna. í þessu máli et- ur Royal Greenland kappi við maoríana, frumbyggja Nýja- Sjálands, sem hafa mikinn áhuga á að kaupa Sea Lord. Ríkisstjórn landsins vill helst að maoríamir kaupi fyrirtækið, meðal annars til að gera út um gamla fiskveiðideilu. Stjómin hefur boðið maroríunum að leggja fram helming af kaup- verði Sea Lord. Fyrrverandi forsætisráð- herra myrtur LÍK Piotrs Jaroszewicz, fyrr- verandi forsætisráðherra Pól- lands, og eiginkonu hans, Alicju fund- roszewicz Jaroszewicz var 82 ára að aldri. Talsmenn yfirvalda sögðu að svo virtist sem stjómmála- maðurinn hefði verið pyntaður og þar næst hengdur en eigin- konan skotin með veiðiriffli. Jaroszewicz gegndi embættinu á árunum 1970 - 1980 er hann var látinn víkja. Hann var afar óvinsæll á valdaámm sínum, var kennt um hraklegt efna- hagsástand sem sífellt versn- aði. Saddam án kjarnavopna SADDAM Hussein, forseti Iraks, ræður ekki yfir neinum kjama- vopnum; loftárásir bandamanna í Persaflóastríðinu og aðgerðir eftirlitsnefnda Sameinuðu þjóð- anna síðar hafa valdið því að tilraunavopn íraka eru úr sög- unni. Þetta kemur fram í um- mælum ítalsks yfirmanns nefnd- ar SÞ sem nú hefur verið í írak í tvo daga. Hann segir að ekk- ert bendi til þess að kjamorku- rannsóknum íraka verði haldið áfram á næstunni og markmiði eftirlitsnefndarinnar sé því náð. BBC í sam- starf við Sky BRESKA útvarpið, BBC, sem einnig rekur sjónvarpsstöð, hyggst koma á laggimar frétta- sjónvarpi er verði með útsend- ingar allan sólarhringinn. í þessu skyni er ætlunin að ræða samstarf við sjónvarpsstöðina Sky sem er í einkaeigu, um markaðsmál og íjármál, að sögn Sir Michaels Checklands, for- stjóra BBC. Fréttadeild fyrir- tækisins stefnir að því að hefja útvarpssendingar allan sólar- hringinn frá 1994 en ekki er Ijóst hvenær sjónvarpssendingamar verða að veruleika. Liðsmenn úr þrem herfylkjum gerðu uppreisn í júní 1991 eftir að þeim var skipað að flýta vinnu við 50.000 þúsund íbúðir í borginni Py- ongyang þrátt fyrir skort á efnivið og mat. Hermennirnir streymdu að forsetahöllinni til að koma mótmæl- um sínum á framfæri en ekki fregn- aðist um mannfall þar. Lofað var að láta Kim Il-Sung forseta vita um „Það eru engir bændur lengur í Austur-Þýskalandi. Þar er nóg af jurtasérfræðingum, baunasérfræð- ingum, áðurðarsérfræðingum og svo framvegis. Þetta eru átta-til-fimm bændur sem vinna eins og skrifstofu- menn,“ hafði blaðið eftir Gerhard Glaser, viðskipta- og iðnfulltrúa Þýskalands í Danmörku. Þýskur embættismaður, Klaus- Michael Rothe, sem hefur verið í Danmörku að undanförnu, sagði að þýskum yfirvöldum léki hugur á að laða útlenska bændur til Austur- Þýskalands, til að mynda danska og hollenska. Fyrst í stað verða bændurnir að óánægju þeirra en nokkru síðar voru yfirmennimir líflátnir. íbúðirnar voru gæluverkefni stjórnvalda undir stjórn Kim Jong- II, sonar forsetans. i mars á þessu ári sagði opinber fréttastofa í Norð- ur-Kóreu að verkamenn byggðu hveija íbúð á innan við fimm mínút- um með ættjarðarloga í hjörtum. leigja jarðimar í tíu ár því yfirvöld vita ekki enn hveijir eiga þær. Stjóm kommúnista í Austur-Þýskalandi ákvað í byijun sjötta áratugarins að sameina bændur í stór samyrkjubú, sem fengu yfirráð yfir jörðum bænd- anna þótt þeir héldu húsum sínum. Samyrkjubúin voru rekin sem stórar landbúnaðarsamsteypur, með sam- eiginleg mötuneyti og bókhaldsdeild. Nú á að leysa samsteypumar upp. „Ekki er hægt að sjá hvaða jörð einstakur bóndi hafði með sér í sam- yrkjubúin, því það eru engin jarða- mörk lengur. Það verður að mæla Þýskaland út upp á nýtt,“ sagði Gerhard Glaser. Flestir hinna látnu eru böm sem bylgjurnar tóku. Um 400 manns sem meiddust hafa verið flutt á 20 spít- ala inni í landi. Herþyrlur flugu yfír strandlengjunni og tóku upp slasaða og heimilislausa. Jarðskjálftinn, sem mældist 7 stig á Richters-kvarða, reið yfir upp úr klukkan 6 á þriðjudags- kvöld, um miðnætti að íslenskum tíma. Hans varð vart allt frá suð- urlandamærunum við Kosta Ríka norður að Hondúras og EI Salvad- or. Seinna komu nokkrir minni skjálftar en 15 metra háar flóð- bylgjur skullu á 300 kílómetra strandlengju og lögðu yfir 100 smábæi í rúst. Kynlíf o g kreddutrú koma súkkulaðirisanum í vanda FRAMTÍÐ svissneska súkkulaðirisans Lindt & Spriingli þykir óljós vegna hjúskaparmála Rudolphs Spriingli stjórnarformanns fyrirtæk- isins. Hann er 72 ára gamall og skildi mjög óvænt við konu sína, Elisabeth, í mars sl. og gekk tveimur mánuðum síðar að eiga 44 ára konu, Alexöndru Gantenbein, sem þykir ekki eiga glæsta fortíð en hún er í sértrúarsöfnuði og sögð vera fyrrum gleðikona. Ósætti í Spriingli-fjölskyldunni vegna hjúskaparmála fjölskylduföðurins er talin geta átt eftir að leiða til þess að fyrirtækið verði selt. Talið er að framtíð Lindt & Sprungli sé að miklu leyti í höndum fyrrum eiginkonu stjómarform- annsins því hún þarf ekki annað en afturkalla atkvæðaumboð sem hann hefur út á hlutabréf hennar. Við það réði hann ekki lengur ferð- inni í fyrirtækinu og það yrði auð- veld bráð þeirra sem kynnu að hafa áhuga á að kaupa það. Meðal fyrirtækja sem talin eru hafa áhuga á Lindt & Spriingli eru annar súkkulaðirisi, Nestlé, og bandaríska tóbaks- og matvæla- samsteypan Philip Morris sem á svissneska súkkulaðifyrirtækið Jacobs Suchard. Sýnt þykir þó að reglur um bann við hringamyndun- um muni koma í veg fyrir kaup af hálfu þeirra. Kynlíf og kreddutrú stjórnar- formannsins gerðu það að verkum að hlutabréf Lindt & Spriingli lækkuðu um 10% í verði á einum degi. Upphaf vandræða fyrirtæk- isins má rekja til þess atburðar í mars sl. er Rudolph Spriingli til- kynnti að hann væri að skilja við konu sína Elisabeth sem er 68 ára. Hjónaband þeirra hafði varað í 45 ár og engar sýnilegar ástæður virt- ust vera fyrir skilnaðinum. Tveimur mánuðum síðar til- kynnti Spriingli hins vegar að hann ætlaði að kvænast 44 ára konu, Alexöndru Gantenbein. Fjármála- heimurinn í Ziirich þykir íhalds- samur i meira lagi og því rann mönnum þar kalt vatn milli skinns og hörunds þegar fréttist að Gant- enbein væri meðlimur í sértrúar- söfnuði sem trúir m.a. á endur- holdgun. Ekki bætti úr skák þegar blöð skýrðu frá því að ungfrú Ganten- bein hefði leigt sig út sem fylgdar- konu auðugra kaupsýslumanna, hefði með öðrum orðum verið gull- hóra. Við þessar fréttir snarlækk- uðu hlutabréf súkkulaðirisans í verði því ekki þótti orðstír væntan- legs áhrifamanns í fyrirtækinu traustvekjandi. Það lagaði heldur ekki stöðuna þegar fréttist að hún hefði áður gifst iðnjöfri á áttræðisaldri og sá hefði látist rúmu ári eftir brúðkaup- ið. Arfur hennar nam 4,5 milljónum svissneskra franka, jafnvirði 190 milljóna ÍSK. Með puttann í rekstrinum Menn sem fylgst höfðu með málefnum fyrirtækisins þóttust nú hafa fundið skýringar á því hvers vegna Rudolph Spriingli hefði rekið marga af yfirmönnum fyrirtækis- ins á undanförnum árum og hvers vegna hann hefði á endanum einn- ig vikið syni sínum úr starfí en hann var talinn myndu erfa stöðu föður síns. Alexandra Gantenbein hlyti að hafa átt þama hlut að máli. Um tíma virtist sem Rudolph Frú Sprungli á þeim árum sem hún hafði þann starfa að bjóða auðkýfingum á ferð í Sviss fylgd sína. hefði ekki orðið sama um allt uppi- standið sem varð út af kvennamál- um hans því hann gaf út yfirlýs- ingu 22. maí þar sem hann sagðist hafa slitið sambandi sínu við Alex- öndru Gantenbein. „Þetta var versti dagurinn í lífi mínu,“ sagði hann síðar við ráð- gjafa sinn. Og til þess að eyða efa- semdum fékk hann ráðgjafafyrir- tæki til þess að rannsaka hvort moldvörpur hefðu hreiðrað um sig í fyrirtækinu. Rannsóknaraðilamir leiddu í Ijós að Gantenbein hefði átt aðild að nokkrum málum er vörðuðu brottvikningu eða ráðn- ingu starfsmanna. Hins vegar sögðu þeir að engum óæskilegum aðilum hefði verið komið í stöður hjá fyrirtækinu. Rudolph Spriingli sagði að Alexandra Gantenbein hefði fengið uppreisn æru og að- eins nokkmm dögum seinna, eða 31. júlí sl., kom hann banka- og peningamönnum í opna skjöldu er hann gekk að eiga hana. Súkkulaðigróði til sértrúarsafnaðar ? Sögur um að Alexandra, sem tekið hefur sér eftirnafn stjórnar- formannsins, eigi að taka við rekstri Lindt & Spriingli og ágóð- anum yrði varið í þágu kreddutrú- arsafnaðarins, tóku að birtast í svissneskum blöðum. Þær náðu hámarki við skyndilega og fyrir- varalausa afsögn aðalforstjórans Ulrichs Geissmanns. Stjórn súkk- ulaðirisans sá sig tilneydda til að koma saman á sunnudegi, sem aldrei hafði áður gerst, og gefa út fréttatilkynningu um að frú Spriingli kæmi hvergi nærri rekstri fyrirtækisins. Afsögn Geissmanns hefur haft slæmar afleiðingar og fulltrúar svissneskra banka segja það miklu verri tíðindi fyrir fyrirtækið en hjónabandsmál Sprungli gamla. Sagt er að hugur Alexöndru standi til forstjórastólsins. Talsmenn fyr- irtækisins segjast ekkert vita hvort hún muni taka við stjórn mála. Stjóm fyrirtæksins verður lítil hindrun ætli hún sér að verða súkk- ulaðidrottning. Aðeins er vitað um einn stjórnarmann sem er andvígur því að hún setjist í forstjórastól, flestir stjómarmannanna eru gaml- ir einkavinir Spriingli og tveir eru taldir hafa verið útnefndir í stjórn- ina fyrir orð hinnar verðandi súkk- ulaðidrottningar. Óskað eftir bænd- um til A-Þýskalands í RÁÐI er að Ieysa upp gömlu samyrkjubúin í Austur-Þýskalandi en þýsk yfirvöld óttast að erfítt kunni að reynast að fínna austur-þýska bændur sem geti tekið við jörðunum. Þau hafa því mikinn hug á að fá útlenda bændur til að setjast þar að og hefja búrekstur, að sögn danska dagblaðsins Berlingske Tidende.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.