Morgunblaðið - 03.09.1992, Page 40

Morgunblaðið - 03.09.1992, Page 40
40 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1992 STJÖRNUSPÁ eftir Frances Drake Hrútur (21. mars - 19. apríl) Þér getur þótt álagið ein- um of mikið í vinnunni. Nú er ekki rétti tíminn til að taka ákvarðanir í pen- ingamálum. Naut (20. apríl - 20. maí) irfö Félagslífið heillar þig í dag og afköstin í vinnunni verða ef til vill ekki mikil. Láttu ekki hugann reika um of. Tvíburar (21. maí - 20. júní) 5» Þér fínnst einhver beita vafasömum aðferðum í viðskiptum. Einkalífið dregur úr spennunni á vinnustað. Krabbi (21. júní - 22. júlQ Þér finnst einhver ekki ætla að standa við fyrir- heit sín. Vandaðu valið á þeim sem þú ætlar að vinna með. Ljón (23. júlí - 22. ágúst) Það ríkir einhver spenna heima fyrir í dag. Finnið eitthvað nýtt og skemmti- legt til að gera í dag og í kvöld. Meyja (23. ágúst - 22. september) Þú hugsar um einhverjar breytingar heima, og átt erfítt með að einbeita þér í vinnunni í dag. Vog (23. sept. - 22. október) Nú er hvorki hagstætt að kaupa né selja. Taktu enga áhættu og forðastu sam- skipti við þá sem vilja hagnast á þér. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóvember) Vertu varkár í innkaupum, ella geta þau valdið von- brigðum. Einhver ágrein- ingur gæti komið upp í vinnunni. Bogmaður (22. nóv. - 21. desember) m Launung fer þér ekki vel. Vertu hreinskilinn ^ við aðra. Ekki vera að eltast við gamlar syndir. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Breytinga er þörf á vinnu- stað, en haltu áformum þínum leyndum í bili. Ein- hver ágreiningur getur komið upp milli vina. Vatnsberi (20. janúar - 18. febrúar) Áhugi þinn á stjórnmálum og erlendum atburðum fer vaxandi. Ekki hafa hátt um fyrirætlanir þínar. Fiskar (19. febrúar - 20. mars) '£ Treystu á dómgreind þína í vinnunni í dag. Ekki eru öll ráð hollráð. Þú þarft að íhuga betur áform þín. Stjórnusþána á aó lesa sem dœgradvöl. Sþár af þessu tagi byggjast ekki á traustum grunni visindalegra stadreynda. GRETTIR TOMMI OG JENNI LJÓSKA r/jtiA.' 5/18 SMAFOLK OKAY! CHA5E THE BALL, BRINé IT BACK.ANDI'LL GIVE YOU A COOKIE! Jæja þá! Eltu boltann, komdu með hann til baka, og ég skal gefa þér smáköku! BRIDS Umsjón: Guðm. PáN Arnarson Vestur spilar út spaðaijarka (4. hæsta) gegn 3 gröndum. Sagnhafi fylgir eldsnöggt lit með einspili blinds, en austur grefur sig undir feld í eina mínútu og lætur svo spaða- gosa: Suður gefur; allir á hættu. Norður ♦ 6 ¥KD8 ♦ Á8754 ♦ G762 Suður hafði opnað á 15-17 punkta grandi og norður hækkaði beint í þijú. Fyrsta slaginn tók suður ' á spaða- drottningu og spilaði svo tígul- drottningu, kóngur, fjarki og nían frá makker. Hvernig á vestur að veijast? AV nota Smith-kallið, þar sem menn láta í ljósi álit sitt á útspilislitnum með fyrsta smáspili í lit sagnhafa. Hár tíg- ull austurs sýnir áhuga á spaðalitnum. Nía austurs er tæplega blönk, því þá á suður DGxx og færi varla að dúkka, svo hér hlýtur makker að vera að biðja um spaða. Svo vestur spilar spaða: II Vestur ♦ Á9743 VG52 ♦ K102 ♦ 94 Vestur ♦ Á9743 VG52 ♦ K102 ♦ 94 Norður ♦ 6 ¥ KD8 ♦ Á8754 ♦ G762 llllll Suður ♦ D1085 ¥ Á107 ♦ DG6 ♦ ÁK8 Austur ♦ KG2 ¥9643 ♦ 93 ♦ D1053 „Keppnisstjóri!!“ NS eru ekki ánægðir, sem eðlilegt er. „Það er ekki erfitt fyrir vestur að finna vörnina eftir að makker hans hugsar sig um í heila eilífð áður en hann lætur í fyrsta slaginn,“ benda þeir á og hafa auðvitað alveg rétt fyrir sér. „En við notum Smith-kallið,“ maldar vestur í móinn, án árangurs. Skorin er leiðrétt. Vörn austurs er mjög glæsi- leg. Hann sér á útspilinu að sagnhafi á 4-lit í spaða. Vörnin getur tæplega tekið 5 lagi á litinn beint og til áð taka 4 slagi gæti verið nauðsynlegt að spila í gegnum gaffal suð- urs á síðari stigum. Af því vestur er innkomulaus til hlið: ar, gengur ekki að láta spaða- kóng og spila gosanum. Það er svo merkilegt, að í þessari hugaríþrótt er umhugs- un nokkuð illa séð! Um leið og einhver fer að hugsa, vita allir við borðið að hann hefur „eitt- hvað að hugsa um“. Slíkar upplýsingar létta vörnina, því það er oft auðvelt hinum meg- in við borðið að sjá hvert vandamál makkers er.. Auðvit- að er ekki bannað að hugsa, en hitt er bannað að nýta sér óheimilar upplýsingar sem af umhugsuninni leiða. Það er fyrst og fremst af þessari ástæðu sem spilað er með borðtjöldum í alþjóðamótum. Annars er önnur ágæt lausn til. Hún er sú að taka sér allt- af nokkurn umhugsunartíma í vörninni áður en látið er í fyrsta slaginn: fara yfir sagnir, útspilið og undirbúa sig undir komandi vandamál. Sé þetta regla, veitir umhugsunin engar marktækar upplýsingar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.