Morgunblaðið - 12.11.1992, Qupperneq 10
10
MORGÚNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1992
Zheng-Rong Wang er einleikari á sinfóníuhljómleikunum í kvöld
Margfaldur verðlaunahafi í fiðluleik
HÚN ER komin til að Ieika einleik með Sinfóníuhljómsveit íslands
í kvöld, ungur fiðlusnillingur af kínverskum uppruna. Áhugavert
að hlusta þegar fiðlan mætir einstaklingi með tónlistarnám að baki
í anda Konfúsíusar, sem vildi að hver maður næði fullkomnun á
sínu sviði; einkum þegar sami einstaklingur er búinn að vinna
marga alþjóðlega samkeppni fiðluleikara frá 14 ára aldri. Zheng-
Rong Wang vann fyrstu verðlaun í Lexus-keppninni á Nýja Sjá-
landi, þar sem Sigrún Eðvaldsdóttir varð í öðru sæti. Og hún er
mætt hingað með aðeins viku fyrirvara.
Auður Hafsteinsdóttir fiðluleik-
ari átti að vera einleikari með Sin-
fóníuhljómsveit íslands í kvöld, en
varð fyrir því óhappi að togna illa
á hendi. Þá var haft samband við
Zheng-Rong sem er við nám í
Boston í Bandaríkjunum. Hún seg-
ist hafa haft fjóra daga til að hugsa
sig um eg þurft að spila á tónleik-
um í millitíðinni. Það sem togaði
í hana hingað var fyrst og fremst
vinkona hennar, Lin Wei, sem spil-
ar með Sinfóníuhljómsveit íslands.
„Við höfum verið vinkonur frá
því við vorum litlar. Vinátta okkar
er dýrmæt, erfiðara að eignast
nána vini eftir því sem maður eld-
ist,“ segir þessi unga Austurlanda-
stúlka. Zheng-Rong kom til lands-
ins á þriðjudagsmorgun og var að
koma af fyrstu æfingu með hljóm-
sveitinni þegar blaðamaður hitti
hana. Önnur æfing að morgni,
hljómleikar að kvöldi. En Zheng-
Rong hlakkar til að spreyta sig.
„Gaman að spila með góðri hljóm-
sveit,“ segir hún brosandi.
Hún er líka ánægð að fá tæki-
færi til að koma hingað. Fer ekki
til baka fyrr en á mánudag. Segist
hlakka til að skoða Reykjavík og
njóta heitu hveranna.
- Skyldi hún oft hafa spilað
Fiðlukonsert í g-moll eftir Max
Bruch - viðfangsefnið á tónleikun-
um?
„Lærði konsertinn þegar ég var
12 ára. Síðan hef ég ekki spilað
hann fyrr en ég fékk símhringingu
frá íslandi. Margt sem maður nem-
ur ungur gleymist aldrei,“ er svar-
ið.
Zheng-Rong var aðeins 6 ára
þegar henni var veitt innganga í
Tónlistarháskólann í Peking. Vin-
kona hennar, Lin Wei, kom í skól-
ann þremur árum síðar.
Hún segir að í Kína tíðkist, að
börn séu látin einbeita sér að ein-
hverju sérnámi með skólanum frá
unga aldri. „Ég var mjög ung þeg-
ar mamma fór með mig til tónlist-
arsérfræðings," segir hún. „For-
eldrar mínir eru bæði menntaðir
læknar, en hafa almennan skilning
á klassískri tónlist og dýrka hana,
einkum marnrna."
Píanó var keypt á heimili Zheng-
Rong í stað sjónvarps. Og Zheng-
Rong var mjög ung þegar báðir
foreldrar fylgdu henni í píanótíma
og skrifuðu niður allt sem kennar-
inn sagði. Síðan notaði fjölskyldan
hverja frístund til að afrita nótur,
en eldri systir Zheng-Rong lærði
einnig á fiðlu og spilar nú með
sinfóníuhljómsveit í Genf. „Þá stóð
menningarbyltingin yfir heima og
mjög erfitt að ná í vestræna tón-
list.“
Fiðlunámið hófst svo jöfnum
höndum með píanóinu. Frá átta
ára aldri voru þriggja tíma æfingar
á fiðluna daglegur liður, píanóæf-
ingar að auki. „Foreldrar mínir
vildu að ég notaði tímann vel; vildu
gefa mér eitthvað sem ég byggi
að alla ævi og tókst það svo sann-
arlega."
Zheng-Rong er hamingjusöm
Við opnun menningarkynningar-
innar á þriðjudaginn söng kór Kárs-
nesskóla undir stjórn Þórunnar
Björnsdóttur, og þá var opnuð sýn-
ing á ljósmyndum Guðmundar Ing-
ólfssonar, Ragnars Axelssonar,
Páls Stefánssonar og Nönnu Bisp
Buchert. í gær voru síðan haldnir
tónleikar Marteins Hunger Friðriks-
sonar organista og Sigrúnar Eð-
með fiðluna. „Fiðlan svarar manni
svo vel,“ segir hún, „auðvelt að
gera góða hluti með góðu hljóð-
færi. Rétt val á hljóðfæri til túlkun-
ar má líkja við, hvort lífið leikur
við mann eða ekki.
Ég hef tekið þátt í sex eða sjö
alþjóðlegum samkeppnum fiðlu-
leikara og unnið þær allar nema
eina,“ segir þessi fínlega Austur-
landastúlka yfirlætislaust og blátt
áfram.
Í umsögn frá Nýja Sjálands
keppninni segir í einu dagblaðanna
um sigurvegarann: „Frá því
augnabliki sem þessi glæsilegi
fiðluleikari steig á sviðið, greip sú
tilfinning um sig meðal áheyranda,
að hún væri sérstök. Túlkunin var
sérstæð; kraftmikil, sterk og
áhrifamikil með fáguðu yfirbragði;
tæknin einstæð; tónarnir tærir og
mikill tilfinningahiti lá undir niðri.“
- Hvað gefa allar þessar viður-
kenningar Zheng-Rong?
„Þær hafa gefið mér möguleika
til að koma fram með þekktum
hljómsveitum í Bandaríkjunum, á
Englandi og Nýja Sjálandi. Ég hef
verið mjög heppin og komið víða
fram, aðallega í Evrópu, en í júlí
næsta sumar fer ég í hljómleika-
ferð um Nýja Sjáland.“
í fiðlusamkeppni í Póllandi
kynntist Zheng-Rong núverandi
kennara sínum, Roman Totenberg,
Zheng-Rong Wang skilur fiðluna
sjaldan við sig.
frægum prófessor við Tónlistarhá-
skólann í Boston. Hann hvatti hana
til náms hjá sér og fyrir sex árum
flutti Zheng-Rong til Bandaríkj-
anna og hefur verið hjá prófessor
Totenberg síðan.
Hún lauk prófi frá skólanum
með láði 1989, en hélt áfram og
lauk Artist Diploma í maí á þessu
ári. „Roman Totenberg er mér
meira en kennari," segir hún,
„hann er líka einstaklega góður
maður sem hefur hjálpað mér við
að yfirstíga margt. Sérréttindi að
fá að vera nemandi hjá honum.“
Og Zheng-Rong segist enn eiga
mikið ólært hjá prófessor Toten-
berg og stefnir að því að vera
undir hans handleiðslu eins lengi
og hún dvelur í Boston.
Zheng-Rong hefur ekki komið
heim síðan hún yfirgaf foreldra
sína fyrir 6 árum. Oft hefur heim-
þráin kvalið og hún saknað foreldr-
anna, en hún þorir ekki heim.
„Alls ekki öruggt að mér væri
sleppt þaðan í bráð,“ segir hún.
- Var erfitt að semja sig að ólík-
um þjóðfélagsháttum?
„Kom mér mest á óvart að þurfa
allt í einu að taka eigin ákvarðan-
ir; erfitt að standa frammi fyrir
því að velja og hafna, hvað væri
best. Heima í Kína sáu foreldrar
mínir um allt fyrir mig. En ég hef
breyst mikið; er orðin miklu sjálf-
stæðari," segir hún og hlær.
- Framtíðaráform?
„Að læra meira, halda fleiri tón-
leika.“ Og Zheng-Rong Wang seg-
ist njóta þess að spila, halda ein-
leikstónleika, spila með stórum
hljómsveitum og ekki síður að spila
kammertónlist. Hún minnist sér-
staklega hvað hún hafi notið þess
að spila með Boston Pops hljóm-
sveitinni undir stjórn Johns Will-
iams á vortónleikum í Vermont.
Vonandi á hún eftir að njóta þess
að spila með Sinfóníuhljómsveit
íslands í kvöld.
Verðlaunafé nemur 200.000
finnskum mörkum, eða tæpum
tveimur og hálfri milljón króna,
og eru þetta hæstu peningaverð-
laun sem veitt eru árlega á sviði
myndlistar á Norðurlöndum. Einn-
ig verður gefin út bók með mynd-
skreyttu yfirliti yfir verk vinnings-
hafa, og fara verk eftir hann í
sýningarferð milli finnskra lista-
safna. Fyrst til að hljóta Ars
Fennica-verðlaunin var Maaria
Wirkkala árið 1991, og ári síðar
hlaut málarinn Johan Scott þau.
Forseti íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, tekur við blómvendi við
opnun Norrænu menningarkynningarinnar í Barbican-menningar-
miðstöðinni í London. íslensku sendiherrahjónin 1 London, Hervör
Jónasdóttir og Helgi Ágústsson, fylgjast með.
Norræna menningarkynningin í London
Sýning á verkum íslenskra
myndlistarmanna opnuð
SÝNING á verkum íslenskra myndlistarmanna samtímans verður
opnuð í dag á Norrænu menningarkynningunni sem hófst í Barbican-
menningarmiðstöðinni í London síðastliðinn þriðjudag að viðstöddum
Jjjóðhöfðingjum allra Norðurlandanna og Elísabetu Bretadrottningu.
Olafur G. Einarsson menntamálaráðherra opnar myndlistarsýning-
una að viðstöddum forseta Islands, frú Vigdísi Finnbogadóttur.
valdsdóttur fiðluleikara, sem lék við
undirleik Robins Koch. Auk mynd-
listarsýningarinnar verður í dag
opnuð sýning á norrænni hönnun,
en þar eru íslenskir hönnuðir og
arkitektar meðal þátttakenda, og
um kvöldið verður sýning á Banda-
mannasögu í leikgerð og leikstjórn
Sveins Einarssonar.
Finnsku Ars Fennica-verðlaimin
Signrður Guðmundsson til-
nefndur fyrstur Islendinga
Listasjóður Henna og Pertti Niemistö, sem staðsettur er í Hels-
inki í Finnlandi, tilnefndi í gær sjö myndlistamenn frá öllum Norð-
urlöndunum til- Ars Fennica- verðlaunanna árið 1993, og er þetta
í fyrsta skiptið frá stofnun sjóðsins sem listamenn frá öðrum lönd-
um en Finnlandi koma til greina sem verðlaunahafar. Verðlaunaf-
éð nemur 200.000 finnskum mörkum, eða hátt í tvær og hálfa
milljón króna, auk þess sem verðlaunahafi fær útgefið yfirlit verka
sinna og fara þau á farandsýningu milli finnskra listasafna.
Þeir sem útnefndir eru að þessu
sinni hafa allir sýnt verk sín í Finn-
landi nýverið, Þeir eru: Mynd-
höggvararnir Martti Aiha, Kain
Tapper frá Finnlandi og Bárd Brei-
vik frá Noregi, málararnir Per
Kirkeby frá Danmörku og Olav
Cristopher Jenssen frá Noregi, og
fjöllistamennirnir Eva Löfdahl frá
Svíþjóð og Sigurður Guðmundsson
frá Islandi. í áliti dómnefndar seg-
ir: „Ákvörðun þessi byggist ekki á
úrtaki manna frá einstöku landi,
heldur á efnistökum, áhugasviði
og metnaði hvers listamanns sem
einstaklings.“
Listajóður Henna og Pertti
Niemistö var stofnaður árið 1990,
og hefur frá þeim tíma veitt lista-
mönnum Ars Fennica-verðlaunin
sem er viðurkenning sjóðsins fyrir
sköpun og einstök gæði listaverka,
og einskorðast ekki við aldur lista-
mannanna eða sérstakar sýningar,
heldur samanlagt framlag til list-
heimsins frá upphafi ferilsins. í
fyrsta skiptið síðan sjóðurinn var
stofnaður koma norrænir lista-
menn utan Finnlands til greina sem
verðlaunahafar. Markmið sjóðsins
er að örva listsköpun, skapa alþjóð-
leg tengsl í heimi myndlistar og
vekja áhuga almennings á listum.
í valnefnd sjóðsins fyrir árið 1993
sitja safnstjórinn Tuula Arkio,
höggmyndarinn Harry Kivijárvi,
málarinn Juhani Linnovaara og
Henna Niemistö, sem er nefndar-
formaður. Verðlaunin verða veitt
í mars á næsta ári, og mun list-
rænn ráðgjafi listasjóðsins, Maria
de Corrol, safnstjóri Museo Naci-
onal Centro de Arte Reina Sofia í
Madrid á Spáni, heimsækja vinnu-
stofur þeirra sem tilnefndir eru í
ársbyrjun og velja vinningshafa.
Sigurður Guðmundsson
Finnskt kvöld í
Listasafni tslands
LISTASAFN Islands efnir nú til finnsks kvölds í safninu í ann-
að sinn, fimmtudaginn 12. nóvember. Þessi starfsemi hefur hlot-
ið mjög góðar undirtektir gesta og því er ráðgert framhald á
henni.
Á finnska kvöldinu síðastlið-
inn fimmtudag ræddi sendiherra
Finnlands á Islandi, hr. Hákan
Branders, um finnskt þjóðlíf og
sýndi myndir. Þá fengu gestir
leiðsögn um sýninguna Finnsk
aldamótalist og að lokum var
bragðað á finnskum réttum.
Dagskráin á finnska kvöldinu
fimmtudaginn 12. nóvember
verður með svipuðum hætti,
nema að í stað sendiherrans mun
Timo Karlsson ræða um finnskar
bókmenntir og tengja frásögn
sína við sýninguna sem nú stend-
ur yfir. Timo var um árabil sendi-
kennari við Háskóla Islands og
hann mun tala á íslensku. Miða-
pantanir og sala er í Listasafninu
kl. 12-18.
Sýning Listasafnsins á finns-
kri aldamótalist hefur fengið frá-
bærar viðtökur enda er hér um
að ræða einstaklega aðgengilega
og fallega sýningu. Verkin end-
urspegla ekki einungis myndlist-
ina í Finnlandi um síðustu alda-
mót heldur einnig þær þjóðfé-
lagshræringar, sem síðar áttu
eftir að leiða Finnland til full-
komins sjálfstæðis. Skólar hafa
sýnt sýningunni mikinn áhuga
og á hveijum degi koma tugir
skólabarna og skoða hana í fylgd
safnakennara. Sýningin stendur
til 13. desember.
(Fréttatilkynning)