Morgunblaðið - 12.11.1992, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1992
Clinton um Mið-
Austurlönd
Vill stöðva
útbreiðslu
eldflauga
Littie Rock. Reuter.
BILL Clinton, nýkjörinn forseti
Bandaríkjanna, leggur áherslu á
að stöðva útbreiðslu eldflauga í
Mið-Austurlöndum og koma í veg
fyrir að gjöreyðingavopn lendi í
höndum íraka, írana, Sýrlendinga
og Líbýumanna. Kemur þetta
fram í viðtali við tímaritið Middle
East Insight,
Clinton sagði að auk þess að
koma í veg fyrir útbreiðslu gjöreyð-
ingarvopna myndi stjórn hans
leggja á það áherslu að ísraelar
yrðu vel vopnum búnir og á deilur
Israela og araba yrði litið út frá
því að tilvera ísraels væri að veði.
Clinton ræddi í gær í gegnum
síma við þá Hosni Mubarak, forseta
Egyptalands, og Fahd, konung
Saudí-Arabíu, um ýmis málefni
Mið-Austurlanda. Sagði George
Stephanopoulos, talsmaður hans,
að hann vildi að friðarviðræðurnar
héldu áfram og til greina kæmi að
James Baker, fyrrum utanríkisráð-
herra, hefði áfram það hlutverk að
ræða við ísraela og araba.
Jeltsín í Ungveijalandi
Reuter.
Borís Jeltsín kom í gær í opinbera heimsókn til Ungverjalands i fyrsta sinn. Markmið heimsóknarinnar er
að leggja grunninn að vinsamlegum samskiptum rikjanna í framtíðinni. Jeltsín samþykkti á fundi með
Jozsef Antall, forsætisráðherra Ungveijalands, að falla frá fyrri kröfu Rússa um að Ungveijar greiddu
fyrir þau mannvirki sem sovéski herinn skyldi eftir er hann yfirgaf landið í fyrra. Á móti féllust Ungveijar á
að hætta við að fara fram á skaðabætur vegna umhverfisspjalla Rauða hersins. Leiðtogunum tókst hins
vegar ekki að ná samkomulagi um hvemig greiði eigi viðskiptaskuldir fyrrum Sovétríkjanna við Ungveija-
land en þær nema um tveimur milljörðum dollara. A myndinni má sjá Jeltsín leggja blómsveig á síðasta
sovéska minnismerkið sem enn er að finna í Búdapest. Öll önnur voru eyðilögð í kjölfar skipbrots kommún-
ismans vorið 1990.
Hrefnuveiðar Norðmanna
Umhverfissamtök í Banda-
ríkjimum undirbúa aðgerðir
Ósló. Frá Jan Gunnar Furuly, fréttaritara Morgunblaðsins.
BANDARÍSK umhverfisvemdarsamtök undirbúa nýjar aðgerðir
gegn Norðmönnum vegna hvalveiða þeirra. Einkum beinist athyglin
að þvi að fá bandaríska neytendur til þess að sniðganga norskar
framleiðsluvörur.
Samtökin Humane Society, sem
segjast hafa 1,6 milljónir félags-
manna í sínum röðum, hafa til að
mynda haft í hótunum við fyrirtæki
sem flytja inn vörur frá Noregi.
Mótmæli þau ekki og þrýsti á norsk
stjómvöld að falla frá þeirri ákvörð-
un að hefja aftur hvalveiðar muni
samtökin beina aðgerðum sínum
gegn fyrirtækjunum.
„Ég get fullvissað ykkur um að
bandarískur almenningur mun taka
málið í eigin hendur og neita að
kaupa norskar sjávarafurðir verðið
þið ekki við beiðni okkar um að
knýja á stjómvöld um að hætta við
hvalveiðamar," sagði í bréfí sem
fyrirtækinu Frionor USA barst frá
Humane Society og undirritað er
Hryggur
forseti
George Bush, fráfar-
andi forseti Banda-
rilqanna, mætti í
fyrrakvöld til kvöld-
verðar, sem haldinn
var honum til heiðurs
og nýjum þingmönn-
um repúblikana. „Ég
vildi ekki koma hing-
að, en ég er feginn
að ég gerði það,“
sagði Bush þegar
hann ávarpaði veislu-
gestina. Átti hann
augljóslega erfítt með
að sætta sig við ósig-
urinn í kosningunum
því að ræðunni lokinni
grúfði sig niður með
hendumar fyrir and-
litinu til að veijast
gráti.
af framkvæmdastjóranum Patricia
Forkan.
Charles B. Dillon forstjóri Frio-
nor USA segir að fyrirtækið sé
þegar farið að fínna fyrir áhrifum
hvalveiðistefnu norsku stjómarinn-
ar. Veitingahúsakeðjan Burger
King hefði nýlega tilkynnt að þó
svo Frionor USA hefði boðið best
af öllum físksölum í júlí sl. þegar
leitað var eftir samningum um hrá-
efniskaup myndi hætta viðskiptum.
Humane Society segir í bréfinu til
Frionor USA að samtökin eigi sinn
þátt í því að Burger King hættir
fískkaupum af fyrirtækinu.
Norska sendiráðið í Washington
hélt nýverið fund með bandarískum
umhverfísvemdarsamtökum í þeim
tilgangi að reyna að upplýsa þau
um sjónarmið Norðmanna í hval-
veiðimálum. Sendiráðið hefur einn-
ig gefíð út upplýsingabæklinga um
þetta efni til dreifíngar.
Þá hefur sendiráðið fengið lög-
fræðifyrirtækið Akin Gump í Wash-
ington D.C. til að tala máli Norð-
manna gagnvart þingmönnum og
reyna að hafa áhrif á bandarísk
stjómvöld þann veg að þau láti
ekki undan þrýstingi umhverfís-
sinna um refsiaðgerðir gegn Norð-
mönnum. Bill Clinton nýkjörinn
Bandaríkjaforseti útnefndi einn af
eigendum Akin Gump, Vemon
Jordan, í síðustu viku til að velja
fyrir sig menn til æðstu embætta
í bandaríska stjómkerfínu.
Kákasuslönd
Rússneskt
herlið frá
Tsjetsjen
Moskvu. Reuter.
RÚSSNESKT herlið var flutt í
gær frá Tsj etsj en-sjálfstj óraar-
lýðveldinu í Rússlandi en í
fyrradag hótaði leiðtogi þess
að segja Rússum stríð á hendur
hyrfu þeir ekki á braut. Hafði
rússneska herliðið verið sent á
vettvang vegna átaka milli
þjóðarbrota í nágrannalýðveld-
inu Íngúshetíu og í þremur
héruðum, sem Tsjetsjen gerir
tilkall til.
Brottflutningurinn hófst eftir
að leiðtogar Tsjetsjen og íngúshe-
tíu komust að samkomulagi um
landamæri rikjanna en Dzhokhar
Dudayev, forseti Tsjetsjen, hótaði
því á þriðjudag að reka rússneska
herinn burt og skoraði jafnframt
á landa sína „að rísa upp til vam-
ar sjálfstæði Tsjetsjen" ef með
þyrfti. Dudayev, sem þykir her-
skár í meira lagi, fylgdi þessu eft-
ir með því að lýsa yfír neyðará-
standi í ríkinu í einn mánuð og
kveðja alla karla, sem vettlingi
geta valdið, til herþjónustu.
„Það er betra fyrir Rússa að
gleyma því ekki hvar landamæri
Tsjetsjen liggja," hafði TASS-
fréttastofan eftir Dudayev. Að
öðram kosti, sagði hann, „verða
Nazran (höfuðborg Íngúshetíu) og
Vladíkavkaz (höfuðborg Norður-
Ossetíu) sprengdar í loft upp“.
Tsjetsjen-sjálfstjómarlýðveldið
með sínar 1,3 milljónir íbúa hefur
verið Borís Jeltsín, forseta Rúss-
lands, erfíður ljár í þúfu og ekki
bætir úr skák, að íngúshetar og
Norður-Ossetar hafa að undan-
fömu borist á banaspjót. Hefur
Jeltsín lýst yfír neyðarástandi í
Íngúshetíu af þeim sökum og skip-
að bráðabirgðastjórn, sem lýtur
stjóminni í Moskvu. Jegor Gaidar,
starfandi forsætisráðherra í Rúss-
landi, sagði í Vladíkavkaz í fyrra-
dag, að óvandaðir stjómmálamenn
bæru ábyrgð á óöldinni að undan-
fömu, lýðskramarar, sem æstu
fólk upp til að treysta eigin stöðu.
Reutcr
Rannsókn á líkum EB-aðildar Austur-Evrópuríkjanna
Aðild að EFTA væri
betri kostur í fyrstu
FLEST ríki Austur-Evrópu hafa það sem yfirlýst markmið að
gerast aðilar að Evrópubandalaginu, sem allra fyrst. Hefur al-
mennt verið gert ráð fyrir að ekkert þeirra muni hafa möguleika
á aðild fyrr en aðildarviðræðum við EFTA-ríkin Austurriki, Sví-
þjóð, Finnland og Noreg er lokið og að aðild Póllands, Ungveija-
lands og Tékkóslóvakíu kynni að geta orðið að veruleika skömmu
upp úr aldamótum, að sögn breska blaðsins Financial Times. í
nýrri rannsókn, sem unnin var af Richard Baldwin, hagfræðipró-
fessor við Institut Universitaire des Hautes Etudes Intemationa-
les í Genf og brátt verður gefin út af Centre for Economic Policy
Research í London, er því hins vegar haldið fram að biðin kunni
að verða lengri.
Baldwin er þeirrar skoðunar að
Austur-Evrópuríkin eigi að hætta
að einblína á EB-aðild og veita
fyrir sér aðild að EFTA til að
byija með. Slík aðild myndi koma
í veg fyrir hina efnahagslegu og
pólitísku einangran sem hinir tví-
hliða viðskiptasamningar Pól-
lands, Ungveijalands og Tékkó-
slóvakíu við EB fela í sér. Búlgar-
ía og Rúmenía eiga nú í viðræðum
um slíka samninga. Þá myndi
EFTA-aðild auka möguleika fyrir-
tækja í núverandi aðildarríkjum
EFTA til að tengjast markaðinum
fyrir austan þar sem væru gífur-
legir vaxtarmöguleikar. Telur
þrófessorinn að aðild þessara rílqa
myndi styrkja samningsstöðu
allra EFTA-ríkja gagnvart EB,
einnig þeirra núverandi aðildar-
ríkja sem vonast eftir EB-aðild á
næstu áram. Því miður hafi hins
vegar flest ríki Austur-Evrópu
ekki viljað velta þessum kosti fyr-
ir og útilokað allt annað en EB-
aðild.
Staðreyndin er hins vegar sú
að hinar 100 milljónir íbúa ríkja
Austur-Evrópu era fátækari og
háðari landbúnaði en írar, sem
telja 3,5 milljónir og era nú fátæk-
asta ríki EB. Að meðaltali era
Austur-Evrópuríkin helmingi háð-
ari landbúnaði en ríki EB og þeir
miklu möguleikar á framleiðslu-
aukningu í landbúnaði, sem era
þar til staðar, myndu torvelda
mjög framkvæmd hinnar sameig-
inlegu landbúnaðarstefnu EB.
Baldwin kemst því að þeirri niður-
stöðu að þessi ríki geti ekki orðið
aðilar að EB fyrr en þau verði
orðin ríkari eða þá íbúar EB örlát-
ari. Ef þau myndu hins vegar
tengjast EFTA yrði það til að
hraða ferð þeirra inn í EB. Þau
myndu auðgast hraðar og reynsla
kæmist á þau í Evrópusamruna-
ferlinum. Segir Baldwin að þó
EFTA-aðild myndi ekki sjálfkrafa
fela í sér aðild að EES væri hún
líklega einfaldasta leiðin inn í EES
sem hlyti að verða næsta skref
ríkjanna á leið inn í EB.