Morgunblaðið - 12.11.1992, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1992
Minning
Þórey Þórðardóttir
Fædd 26. nóvember 1912
Dáin 15. október 1992
Við Eyja kynntumst fyrir þrjátíu
árum, báðar tiltölulega nýlega gift-
ar. Hún um fimmtugt, ég um tví-
tugt. Samt urðum við strax vinkon-
ur. Bændur okkar störfuðu saman
í músíkinni og höfðu líka strax
orðið góðir vinir. Við hittumst þó
nokkúð á þessum árum. Heimsótt-
um hvert annað. Hjá Eyju og Dem-
etz fékk maður í fyrsta skipti ekta
ítalskt spaghettí, ólífur og kapers,
allt kryddað eftir kúnstarinnar
reglum. Demetz sýndi okkur
skuggamyndir frá Týról, frá æsku-
slóðunum í Ortisei. Hann sýndi
okkkur líka skuggamyndir úr síld-
inni fyrir norðan, þegar hann var
kokkur á síldarskipi og sauð svið
ofaní mannskapinn og þeir húð-
skömmuðu hann fyrir að hafa þau
heit, og allt það. Og svo sagði hann
mergjaða, týrólska brandara. Og
við Eyja spjölluðum margt. Svo
fækkaði fundunum, því þau Eyja
og Demetz fluttu út á land, fyrst
til Isafjarðar og svo til Akureyrar.
Demetz fór að kenna Isfirðingum
og Akureyringum að syngja. —
Löngu seinna sagði Eyja mér að
hvergi hefði sér liðið betur en á
Isafirði, og á Akureyri leið henni
líka vel, því þar átti hún rætur frá
því hún dvaldi þar, ung stúlka. Oft
sagði hún mér frá æskuárunum,
þegar þær systurnar, Regína Þórð-
ardóttir leikkona og Eyja, voru
ungar stúlkur á Akureyri og ævin-
týrin biðu við hvert götuhorn. Síð-
asta ævintýrið sagði hún mér í
sumar, uppi í hlíðunum yfir Orti-
sei, fæðingarbæ bónda hennar, Sig-
urðar Demetz Franzsonar. Hún
sagði mér líka frá draumnum sem
hún ól í bijósti sér, þegar Regína
systir hennar fór að læra leiklist á
Konununglega leiklistarskólanum í
Kaupmannahöfn, þá langaði Þó-
reyju að læra listdans, og skyldi
engan undra, svo fislétt, lipur og
falleg í hreyfingum og elsk að tón-
list sem hún var. Hún fékk að sönnu
að fara til Kaupmannahafnar, eins
og Regína, en það þótti ekki við
hæfi siðprúðrar stúlku að hoppa
um léttklædd fyrir áhorfendur, svo
ekkert varð úr dansmenntinni. —
Eyja sagði frá fleiru, líka sorginni,
sem sló hana þegar hún missti fyrri
mann sinn, Stefán Bjarnason, í
blóma lífsins, og þeim þungu árum
sem þá fóru í hönd, er hún varð
að yfirgefa börnin sín og beijast
við berklana, ein á heilsuhæli í
ókunnu landi. Það var þýngra en
orð fengu lýst. — En gæfan brosti
við á nýjan leik. Hún var nýlega
komin heim, búin að endurheimta
heilsuna og börnin, þá bar svo við
eitt sinn, að á vegi hennar varð
Vinzenz Maria Demetz, söngkenn-
ari og óperusöngvari frá Ítalíu.
Hafði sungið á Scala og við alls
konar fín óperuhús í Evrópu. —
Þegar málið skýrðist nánar, vildi
Ítalinn hennar helst vera Týróli,
Suður-Týróli. Það var bara ennþá
rómantískara. — Vinzenz þessi tók
hana með sér heim til æskustöðv-
anna í suðurhlíðum Alpafjalla,
nyrsta héraðs Ítalíu, þar sem tind-
arnir rísa fjögur þúsund metra yfir
sjávarmáli og standa harðir í horn
að taka og fastir fyrir uppúr skýja-
breiðunni og blasa við í sjónlínu,
þegar flogið er svo hátt yfir sléttum
nágrannahéraða að húsin eru löngu
hætt að sjást. — Og þar sem barr-
trén rísa hnarreist og einstök, lóð-
rétt útúr nærri þverhníptum
hamraveggnum upp alla fjallshlíð-
ina að endimörkum barrskógabelt-
isins. — Og þar sem hann Vinzenz
hafði klifið fjallatindana allt í kring
og unnið sér til frægðar að renna
sér á skíðum ofan snarbrattar hlíð-
arnar — svona tvo kílómetra eða
svo — í einni logu, — þangað leiddi
Demetz brúði sína, þar sem þau
voru gefin saman í lítilli kirkju,
hátt uppí hlíð, þaðan sem sjá mátti
alla dýrð þess týrólska ævintýra-
lands sem hann var fæddur í, og
þá varð Eyja ekki aðeins ástfangin
af manninum sem hún hafði eign-
ast heldur líka landinu og þjóðinni,
sem hann var hluti af — og eftir
það sagði hún alltaf — heima í
Ortisei. — Enda áttu þau eftir að
vera þar oft, jafnvel mánuðum sam-
an, þau bjuggu á tímabiii á gamla
heimili fjölskyldunnar, þar sem
bóndi hennar hafði fæðst. Og svo
seinni árin hafa þau átt athvarf á
heimili ekkju yngsta bróður Dem-
etz, sem lést fyrir fáum árum. Og
þar voru þau í sumar, I síðustu
heimsókn Eyju til tengdafólksins í
Ortisei. En hvar sem þau hafa hald-
ið heimili, á Akureyri, uppí Breið-
holti, á Sólvallagötunni eða hvar
sem er, alltaf hefur verið sannköll-
uð hátíð að vera gestur á heimili
þeirra. Ekki bara vegna þess, hve
veislur þeirra voru glæsilegar, mat-
urinn einstakur (alla rétti gat Eyja
matreitt betur en flestir aðriij, hve
gestgjafarnir voru skemmtilegir,
hlýir og góðir. Það var líka hátíð
að koma þangað einn, óboðinn eða
bara í söngtíma, sama hvert erind-
ið var, alltaf tók Eyja á móti manni
opnum örmum, brosandi, hlý og
glöð, jafnvel þegar hún var alltaf
meira og minna lasin, eins og hún
var síðustu árin. Já — það var oft
gaman og glatt á hjalla hjá Dem-
etz og Eyju. Þau skreyttu oftar en
ekki veislur sínar með einum eða
tveimur nemenda sinna er þau buðu
til sín söngstjörnum utan úr heimi,
sem komu héma við, á skerinu, að
auðga anda hérlendra. Þá var nú
heldur betur tekið lagið og allir,
sem eitthvað til þess dugðu, létu í
sér heyra. Já, — nemenda sinna,
varð mér á að segja, það voru víst
orð að sönnu, því allir nemendur
Demetz urðu hennar hjartans börn
líka og hún vakti yfir framförum
Erfldrylckjur
Giæsilegkaffi-
hlaðborð íallegir
saJir og mjög
góð þjónustíL
Upplýsingar
ísíma22322
0
, FLUGLEIDIR
HÚTKL LOFTLEiillR
þeirra og umvafði þau eins og þau
væru hennar eigin. — Það var líka
einstakt við Eyju hvað hún var
umtalsgóð manneskja og velviljuð.
Samt var hún hreinskilin og laus
við alla uppgerð. Hún átti bara svo
auðvelt með að sjá kosti annarra.
Það var margt fleira merkilegt við
Eyju, t.d. það að hún hélt alltaf
sinni ung-miðaldra „typu“. Alltaf
glæsileg, létt og fix, og fallega
39
vaxin, hvort sem hún var í stelpu-
legum týrólskum „Dirndlkleid“ eða
heimsdama, klædd að hætti Vivian
Leigh. Þannig var hún sjálfri sér
samkvæm til hinstu stundar, jafn-
vel á banabeðinu var hún aflögufær
um uppörvun og huggun fyrir aðra.
Blessuð sé minning minnar kæru
vinkonu. Guð blessi eftirlifandi
manninn hennar og aðra ástvini.
Sigrún Björnsdóttir.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og útför föður
okkar,
BERGS SÓLMUNDSSONAR.
Kjartan, Bergur, Kristján
og Sigurjón Bergssynir.
t
Innilegar þakkir fyrir samúð og vinarhug við andlát og útför eigin-
manns míns, föður okkar og sonar,
SÖLVA JÓNSSONAR.
Erla Bragadóttir og börn,
Ingibjörg Skúladóttir, Jón Jónsson.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og
útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
ARNÓRS S. GÍSLASONAR
skipstjóra,
Hrafnistu, Hafnarfirði.
Petra Ásmundsdóttir,
Margrét Arnórsdóttir, Árni Gunnarsson,
Emma Arnórsdóttir
og barnabörn.
t
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför
STEFÁNS B. HLÍÐBERG,
Garðaflöt 11,
Garðabæ.
Þóra Jónsdóttir,
Bragi Hlíðberg,
Dóra Hlíðberg
og fjöiskyldur.
Mikfll afslállur • Scrslök pakkatilboð
'slz’ Sphinx konungleg hreinlætistæki
(§§> vönduð sænsk blöndunartæki
vinsælustu vaskarnir
Velkomin í verslun okkar
K. AUÐUNSSON & NORMANN
Suðurlandsbraut ZO Sími 813833
FRANKE
IfÖ þekkt sænsk hreiniætistæki
EINSTAKT
TILBOÐ
á gullfallegri gæðavöru fyrir bað og eldhús