Morgunblaðið - 12.11.1992, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1992
41
lÉ&m rai | -*• « g|g||||||| Hjs W ***■ ÍgÍplpÍL Í|||-í WSBm 1 ^
''HHk :
Övinir.
Vinir.
Uppáhaldskonurnar.
STJORNMAL
Kanslarinn undir smásjá
Helmut Kohl hefur nú verið
kanslari í ein tíu ár í Þýska-
landi og í tilefni þess fannst press-
j unni þar í landi tími til kominn
að gera nákvæma úttekt á stjórn-
málaforingjanum. Hveijir eru vinir
hans, hveijir óvinir, hvaða konum
hefur hann mestar mætur á, hvað
finnst honum skemmtilegast að
gera,' hver er uppáhaldsklæðnað-
urinn, hvað borðar hann helst,
hversu mikið hefur hann þyngst i
stjórnartíð sinni og svo mætti lengi
telja.
Samkvæmt þessari úttekt telj-
ast vinir Kohls vera Reagan,
Gorbatsjov og Mitterrand, auk
þess sem hann á gamla og góða
vini eins og Gerd Bacher, göngufé-
laga í sumarfríum, Fritz Walter,
gamla fótboltahetju úr heimahér-
aði Kohls, að ógleymdum prestin-
um hans, Ramstetter, einkaritar-
anum Júlíönu Weber og bílstjóran-
um Seeber sem hefur ekið honum
í 30 ár og veit meira en allar leyni-
þjónustur heimsins, en steinþegir.
Óvinir Kohls eru ekki heldur af
verri endanum og ber fyrstan að
telja Hans Zippert, ritstjóra tíma-
ritsins Titanic, en hann þjarmar
gjarnan að Kohl, Werner Ludwig
úr SPD, borgarstjóri í heimaborg
Kohls, Ludwigshafen, Helmut
Schmidt, Margaret Thatcher,
Erich Honecker og að sjálfsögðu
eggjakastarinn Matthias Schipke
frá Halle.
Frúin sjálf, Hannelore Kohl, 58
ára gömul og eiginkona Kohls í
33 ár, stendur næst hjarta kansl-
arans. En af öðrum konum sem
heillað hafa Kohl má nefna lista-
konuna Káthe Kollwitz, tennisleik-
arann Steffi Graf, leikkonurnar
Katharine Hepburn, Marlene Di-
Kohl borðar gjarnan spagettí og saltað svínakjöt og hefur þyngst
um 25 kíló á tíu árum.
etrich og Mariu Schell og fiðlusnill-
inginn Anne-Sophie Mutter.
Hugðarefni Kohls eru knatt-
spyrna, lestur skáldsagna, einkum
eftir Joyce og Kafka, tónlist eftir
Vivaldi og Bach, orgelspil með
COSPER
COSPER.
Hannelore í heimahúsum, ljós-
myndun, gönguferðir, auk þess
sem honum finnst gaman að gull-
fiskum, bröndurum um sjálfan sig
og Genscher og eigin símhringing-
um í tíma og ótíma út af smámun-
um.
Uppáhaldsklæðnaður Kohls er
blá jakkapeysa og helst borðar
hann spagettí, villidýrasteik, salt-
að svínakjöt, lifrarpylsu og jarðar-
beijatertu, og á tíu árum hefur
Kohl, sem er 1,92 metrar á hæð,
þyngst um 25 kíló.
HANDMALAÐ POSTULIN.
SAFNGRIPUR FRÁ HUTSCHENREUTER.
VERÐ KR. 1.950,- *
SILFURBÚÐIN
KRINGLUNNI 8-12. SÍMI 689066.
Snyrtifræóingur
kynnir nýju haust
og vetrarlitina
í dag
kl. 14-18
Hamraborg, Kópavogi