Morgunblaðið - 12.11.1992, Síða 52
PltrgiitsiMwlli EIMSKIP
TVÖFALDUR J. vinningur k VIÐ GREIÐUM ÞÉRLEIÐ
MORGUNBLADIÐ, AÐALSTRÆTI 6, 101 REYKJAVlK
SÍMI 691100, StMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 15SS / AKUREYRl: HAFNARSTRÆTl 85
FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1992
VERÐ í LAUSASÖLU 110 KR.
Morgunblaðið/Anna G. Ólafsdóttir.
Úrskurðað
í forræðis-
málinuí dag
í Tyrklandi
Réttað verður í forræðismálinu
í Tyrklandi kl. 9.30 að íslenskum
tíma í dag og er búist við að
mannfjöldi safnist saman við
dómhúsið í Istanbúl þar sem rétt-
arhöldin fara fram. Þar á dóm-
ari að úrskurða hvort Sophia
Hansen eða Halim A1 fá forræði
yfir dætrum þeirra tveimur.
Stúlkurnar tvær, Dagbjört og
Rúna, sem málið snýst um, komu
í gærkvöldi fram á blaðamanna-
fundi sem faðir þeirra hélt í Ist-
anbúl. A myndinni sést Rúna
tala í síma meðan á blaða-
mannnafundinum stóð.
Sjá nánar bls. 23.
Landsbankinn hefur yfirtekið stærsta hluta eigna Sambandsins
Kaupverðið tæpum millj-
arði undir bókfærðu verði
4.200 manns
án atvinnu í
lok október
UM 3.800 manns voru að meðal-
tali skráð atvinnulaus í október
og síðasta virka dag mánaðarins
voru 4.200 skráð atvinnulaus á
landinu öllu sem gefur til kynna
að atvinnuleysi hafi aukist þeg-
ar leið á mánuðinn. Þá hafði
atvinnuleysisdögum í október
fjölgað verulega frá mánuðinum
á undan og var aukningin meiri
hjá körlum en konum. I október
á síðasta ári voru um 2.150
manns skráð atvinnulaus.
Atvinnuleysið í október jafngild-
ir því að 2,9% af áætluðum mann-
afla hafi verið atvinnulaus, sem
er aukning um 0,2% frá september-
mánuði. Til samanburðar var at-
vinnuleysið 1,2% í október á síð-
asta ári samkvæmt upplýsingum
frá vinnumálaskrifstofu félags-
málaráðuneytisins.
Atvinnuleysisdögum á höfuð-
borgarsvæðinu fjölgaði um sjö þús-
und milli september og október á
sama tíma og atvinnuleysisdögum
fækkaði um tvö þúsund á lands-
byggðinni. Er hlutdeild höfuðborg-
arsvæðisins í skráðu atvinnuleysi
nú komin upp í 58% af heildinni.
Nokkuð fleiri konur en karlar
voru atvinnulausar í október, eða
um 2.100 konur að meðaltali á
móti 1.700 körlum. Á Suðumesjum
voru um 9,9% kvenna á vinnu-
markaði atvinnulausar en um 2,7%
kvenna á Austurlandi. Atvinnu-
leysi karla á Suðumesjum nam um
2,8% en minnst var atvinnuleysj
karla á Austfjörðum, eða 1%. í
heild var mest atvinnuleysi á Suð-
umesjum, eða 5,5%, en minnst á
Vestfjörðum, eða 0,7%.
SAMNINGUR sá sem forsvars-
menn Landsbankans og Sam-
bandsins undirrituðu í gær felur
í sér að Landsbankinn yfirtekur
ákveðnar eignir Sambandsins, og
skuldajafnar skuldir Sambands-
ins við Landsbankann og erlenda
lánardrottna fyrir sem nemur
2.513 milljónum króna, en þessar
eignir voru í ársreikningi Sam-
bandsins fyrir árið 1991 bók-
færðar fyrir nálega 3.400 millj-
ónir króna. Sigurður Markússon,
sljórnarformaður Sambandsins,
áætlar að Sambandið eigi um
næstu áramót eignir fyrir um
einn milljarð króna, en skuldi þá
ekki nema rúmar 500 milljónir
króna.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins kaupir Landsbankinn
Regin hf. fyrir örfáar þúsundir
króna, en bókfært verð þessarar
eignar Sambandsins var í síðasta
ársreikningi Sambandsins tæpar
716 milljónir króna. Ástæður þess
að Landsbankinn yfirtekur þessa
eign án þess að greiða nokkuð fyr-
ir hana eru þær að Sambandið hafði
skuldsett Regin svo í Landsbankan-
um að allt eigið fé fýrirtækisins var
uppurið. Samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins vænta Lands-
bankamenn þess að þeim takist að
gera sér mat úr duldum eignum
Regins í Sameinuðum verktökum
og íslenskum aðalverktökum.
Fulltrúar Sambandsins í stjóm-
um þeirra fyrirtækja sem Lands-
bankinn eignast nú að miklu eða
öllu leyti munu segja af sér í fram-
haldi þessara samninga, að sögn
Sverris Hermannssonar banka-
stjóra, og Landsbankinn mun skipa
sína eigin fulltrúa í þeirra stað.
Sigurður Markússon sagði af sér
stjórnarformennsku í Olíufélaginu
í gær.
„Eftir að þessum samningum
hefur verið náð er það mat Lands-
bankans að hann hafi náð andvirði
þess sem hann þarf að standa skil
á í uppgjöri við bankann og erlendu
bankana," sagði Sverrir. Hann kvað
ekkert liggja fyrir um hvemig
Landsbankanum myndi ganga að
selja þær eignir sem hann nú hefur
yfírtekið, en stefnt væri að því að
selja eins fljótt og unnt væri. Ekki
væri farið að ræða við hugsanlega
kaupendur, enda yrði samningurinn
sem slíkur ekki staðfestur fyrr en
í dag. Hann sagði þó að núverandi
eigendur að íslenskum sjávarafurð-
um hf. hefðu lýst áhuga á að kaupa
þann hlut sem Landsbankinn hefur
eignast í félaginu. Forstjóri Sam-
vinnuferða sagði í gær að aðrir hlut-
Tveir af helstu forsvarsmönnum
Pirelli á sviði sæstrengja, Alberto
Tessari og Gianfranco Acquaotta,
sögðu í viðtali við Morgunblaðið að
ekkert fyrirsjáanlegt virtist koma í
veg fyrir hagkvæmni verkefnisins
og því væri hægt að fullyrða um
niðurstöðuna með nokkurri vissu.
„Það er ætlun okkar að koma til
íslands og kynna niðurstöður
skýrslunnar og ræða hana við þá
aðila sem málið snertir. Þá ætlum
við jafnframt að gera tillögur um
hvernig eðlilegt sé að okkar mati
að haga framhaldsvinnunni. I hag-
kvæmniathuguninni er samantekt
hafar í ferðaskrifstofunni myndu
örugglega nýta sér forkaupsrétt
sinn.
Verðbréfasalar sem Morgunblað-
ið ræddi við í gær telja að vegna
ástandsins á verðbréfamarkaðnum
geti verið erfitt fyrir Landsbankann
að selja hlutabréf sín í Sambands-
fyrirtækjunum á almennum mark-
aði á næstu mánuðum.
Sjá ennfremur miðopnu, bls.
26-27, og bls. 33.
yfir framkvæmdir og mikilvægasti
hluti hennar eru tillögur Pirelli um
næstu skref í verkefninu, sem fyrir-
tækið gæti unnið í samvinnu við
Landsvirkjun ef þess yrði óskað."
Tessari og Acquaotta telja að við
frekari athuganir gæti lausnin orðið
sú að myndaður yrði samstarfshóp-
ur með aðilum frá Pirelli og t.d.
verkfræðingum á íslandi. „Við eig-
um að íhuga þennan möguleika og
ég veit að það eru mjög reyndar
verkfræðistofur á íslandi sem gætu
unnið með Pirelli."
Sjá viðskiptablað bls. 4-5
Morgunblaðið/Kristinn
Fyrstu jólatrén felld
Skógarverðir eru famir að huga að jólum og hjá Skógrækt ríkisins
í Skorradal er byijað að fella stór grenitré, svokölluð torgtré, fyrir
sveitarfélög og stærri fyrirtæki. Þegar líður á mánuðinn snúa þeir
sér að minni tijám á almennan markað. „Ég ætla að senda um 4.000
grenitré á markaðinn í ár, sem ég vonast til að geta selt en við erum
í harðri samkeppni við innflutt tré,“ sagði Ágúst Árnason skógarvörð-
ur, en myndin var tekin í Skorradal í gær.
Hagkvæmnikönnun á sæstreng frá Islandi
Jákvæðar niður-
stöður frá Pirelli
NIÐURSTÖÐUR hagkvæmniathugunar á rafstrengslögn milli íslands
og Evrópu, sem ítalska fyrirtækið Pirelli hefur verið að vinna fyrir
Landsvirkjun, eru að hagkvæmt er að flytja orku frá íslandi til
Evrópu í gegnum sæstreng. Enn eigi þó eftir að gera miklar rann-
sóknir áður en framleiðsla sæstrengjanna geti hafist. Athugun Pi-
relli mun endanlega verða lokið seinni hluta þessa mánaðar og þá
mun fullgerðri skýrslu verða skilað til Landsvirkjunar.