Morgunblaðið - 23.01.1993, Blaðsíða 1
72 SIÐUR B/C
STOFNAÐ 1913
18.tbl. 81. árg.
LAUGARDAGUR 23. JANÚAR 1993
Prentsraiðja Morgunblaðsins
Bandarískar orrustuþotur skjóta á ný flugskeytum á eldflaugaskotpalla í norðurhluta íraks
Clinton
viður-
kennir
mistök
Washinglon. Rcuter.
BILL Clinton, forseti Banda-
ríkjanna, viðurkenndi í gær
að rannsókn á ferli Zoe Baird
hefði ekki verið nógu ítarleg
af hálfu þeirra sem völdu
hana í embætti dómsmálaráð-
herra Bandarikjanna. Baird
dró sig í hlé í gær vegna þess
að upp hefur komist að hún
braut lög um innflytjendur.
Clinton sagðist taka á sig fulla
ábyrgð á þessu vandræða-
máli.
Það mildaði
nokkuð áfallið
fyrir Clinton
að öldunga-
deild Banda-
ríkjaþings
lagði í gær
blessun sína
yfir val forset-
ans á átján
öðrum hátt-
settum emb-
ættismönnum, þ. á m. ráðherr-
um. Dee Dee Myers blaðafulltrúi
Bandaríkjaforseta sagði í gær
að Baird hefði sagt af sér af
eigin frumkvæði.
Dregið úr skaðanum
Litið var á samþykki Clintons
við ákvörðun Baird sem tilraun
til að draga sem mest úr skaðan-
um sem þetta mál getur valdið.
Menn minnast þess að George
Bush lét sverfa til stáls árið
1989 eftir að andstaða kom upp
í þinginu við tilnefningu Johns
Towers í embætti varnarmála-
ráðherra og varð að lokum að
láta í minni pokann. Paul Sim-
on, öldungadeildarþingmaður úr
flokki demókrata, sagði í gær
að það væri skynsamlegt af for-
setanum að spara kraftana í
stað þess að berjast af hörku
fyrir staðfestingu Baird.
Sjá „MótmæU kjósenda
urðu Baird . . .“ á bls. 25.
Zoe Baird
Stjórnvöld í írak fordæmdu í gær
loftárás á norðurhluta landsins, sem
Bill Clinton, forseti Bandaríkjanna,
fyrirskipaði á fimmtudag, en forð-
uðust þó að gagnrýna forsetann
sjálfan.
Al-Thawra, málgagn Ba’ath-
flokks Saddams Husseins íraksfor-
seta, birti yfírlýsingu frá utanríkis-
ráðuneytinu þar sem árásin er for-
dæmd. Tekið er fram að írakar
standi enn við vopnahlésyfirlýsingu
sína frá því á miðvikudag, er Clinton
var settur í forsetaembættið, og vilji
viðræður við Bandaríkjamenn. I yfír-
lýsingunni er ekki minnst á nýja
forsetann.
Almenningur styður
vopnahlésyfirlýsinguna
í blaðinu var ennfremur birt skoð-
anakönnun sem gefur til kynna að
82 af hundraði Iraka séu hlynntir
vopnahlésyfírlýsingu ráðamann-
anna. „Hin 18 prósentin höfnuðu
henni, sögðu hana eftirgjöf af hálfu
íraka og efuðust um að nýja stjóm-
in í Bandaríkjunum myndi svara
þessu gagnlega frumkvæði á já-
kvæðan hátt,“ sagði blaðið.
Talsmaður Bandaríkjastjórnar
sagði í gær að Clinton hygðist ekki
gefa neitt eftir gagnvart Irak, ögr-
unum af þeirra hálfu á flugbanns-
svæðunumn yrði mætt af hörku.
Reuter
Dekkið skrúbbað
í gær var gert hreint um borð í bandaríska flugmóðurskipinu Kitty Hawk sem nú er á Persaflóa vegna
hernaðaraðgerða bandamanna gegn írökum. Á myndinni er hópur sjóliða að skrúbba olíu og önnur óhreinindi
af þilfari skipsins sem er mikið verk þar sem það er heimaflugvöllur 75 herflugvéla.
Málefnasamningnr nýrrar sljómar í Danmörku tilbúinn
Nauniari verður
meirihluti ekki
Gengið verður frá ráðherraskipan um helgina
Kaupmannahöfn. Frá Sigrúnu Davíðsdóttur, fréttaritara Morgunblaðsins.
SAMKOMULAG náðist í gærkvöldi um málefnasamning nýrr-
ar fjögurra flokka ríkisstjórnar í Danmörku, fyrstu meiri-
hlutastjórnarinnar frá 1971. Sá meirihluti er þó eins lítill og
hugsast getur því flokkarnir sem að stjórninni standa hafa
90 þingmenn af 179 á danska þinginu.
Paul Nyrup Rasmussen, leiðtogi
Deng við góða, heilsu
Reuter
Kínveijar fögnuðu nýju ári í gær og af því tilefni flutti Deng Xiaoping,
valdamesti maður Kína, sjónvarpsávarp. Skoraði hann á landsmenn að
gera sitt til þess að efnahagsumbætur næðu fram að ganga. Eftir því
var tekið að Deng var hress, kvikur í spori, styrkleiki málrómsins mikill,
athyglin í góðu lagi en vinstri hendin skalf þó viðstöðulaust. Þegar hann
kom fram opinberlega í október sl. var hann hins vegar fölur og fár.
Myndin er tekin af sjónvarpsskjá þar sem sýnt er frá komu Dengs í hús
sjónvarpsstöðvarinnar i Sjanghæ í gær.
jafnaðarmanna, gekk í gærkvöldi á
fund Margrétar Þórhildar Dana-
drottningar sem fól honum formlegt
umboð til stjómarmyndunar. „Þetta
er upphaf nýrra tíma í Danmörku,"
sagði Nyrup Rasmussen, þegar sam-
komulag um málefnasamning var í
höfn. Helsta markmið stefnu nýju
stjórnarinnar er að draga úr atvinnu-
leysi, styrkja velferðarkerfið og
draga úr sköttum. Höfuðáhersla er
lögð á aðhaldssama íjármálastefnu,
tryggja stöðugt gengi, halda verð-
bólgu niðri og reka ríkissjóð með
greiðsluafgangi.
Paul Nyrup Rasmussen sagðist
vonast til að skiptingu ráðuneyta
milli flokkanna lyki um helgina svo
hægt yrði að skýra frá skipan nýrr-
ar ríkisstjórnar á mánudag.
Að stjórninni standa Jafnaðar-
mannaflokkurinn með 71 þingmann,
Róttæki vinstriflokkurinn með sjö,
Miðdemókratar með átta og Kristi-
legj þjóðarflokkurinn með fjóra þing-
menn. Um 20 ráðuneyti verða til
skiptana. Búist er við að róttækir
og miðdemókratar fái hvorir um sig
þijá ráðherra, kristilegir tvo og jafn-
aðarinenn um 12. Alls sitja 179 þing-
menn á danska þinginu og hefur
stjórnin því aðeins eins þingmanns
meirihluta.
Meirihlut-
innvillað
Karl verði
konungur
Reuter, The Daily Telegraph.
MEIRIHLUTI Breta er þeirr-
ar skoðunar að Karl Breta-
prins geti enn orðið konung-
ur þrátt fyrir meint ástar-
samband hans og gamallar
vinkonu, Camillu Parker-
Bowles, ef marka má skoð-
anakönnun sem breska blað-
ið Daily Express birti í gær.
Sjö af hveijum tíu aðspurð-
um sögðust telja að fréttir af
upptöku á símasamtali Karls
og Parker-Bowles, giftrar
tveggja bama móður, hefðu
skaðað breska konungdæmið.
59 af hundraði voru þó hlynnt-
ir því að Karl tæki við ríkiserfð-
um af móður sinni og álíka
margir sögðu að ekkert væri
því til fýrirstöðu að hann
kvæntist Parker-Bowles.
Haft hefur verið eftir vinum
Karls að hann hafi ákveðið að
sætta sig við einlífi til að endur-
heimta traust almennings.
Irakar forð-
ast að gagn-
rýna Clinton
Washington. Baghdad. Reuter.
BANDARÍSKAR orrustuþotur skutu flugskeytum á eldflaugaskot-
palla á flugbannssvæðinu í norðurhluta Iraks í gær, annan daginn
í röð, að sögn talsmanna bandariska varnarmálaráðuneytisins. Irak-
ar fullyrtu hins vegar að engir skotpallar væru á þeim slóðum sem
Bandarikjamenn segðu árásina hafa átt sér stað á, hér hefði verið
um grófa ögrun að ræða, eins og talsmaður utanríkisráðuneytisins
í Bagdad komst að orði.