Morgunblaðið - 23.01.1993, Blaðsíða 13
MORqyNBLAÐIÐ LAUGARPAGUR 23. .IAa\ÚAK 1993
Fjölbreytt kynning
á skoskri menningu
SKOSK-íslenskir menningardagar standa nú yfir í Reykjavík. Á
þessari menningarhátíð gefst gott tækifæri til þess að kynnast skoskri
menningu. Á hátíðinni er myndlist, tónlist, kvikmyndum, bókmennt-
um, og matargerðarlist gerð góð skil. Hátíðin stendur til 14. febrúar.
Hátíðin nefnist Skottís og er að
sögn Gunnars Kvarans, forstöðu-
manns Kjarvalsstaða, svar Reykja-
víkurborgar við íslenskri menning-
arhátíð sem haldin var í Skotlandi
á síðasta ári. Það voru íslensk tón-
verkamiðstöð og Tónskáldafélag
íslands sem áttu frunkvæðið að
menningarsamskiptum Reykjavík-
ur og Glasgow. Gunnar sagði að
fjöldi stofnana tæki þátt í þessari
hátíð. Þetta væri sérstök kynning-
araðferð þar sem engin stofnun
Sýning á verk-
um Þórdísar
Árnadóttur
SÝNING á málverkum Þórdísar
Árnadóttur stendur nú yfir í
húsnæði verslunarinnar Vatns-
rúm, Skeifunni 11, og stendur
sýningin til næstu mánaðamóta.
Myndir eftir Þórdísi eru einnig
til sýnis í Líkamsræktinni í Kjör-
garði.
Þórdís Árnadóttir stundaði nám
listmálun og höggmyndalist við
Akademíuna á Fjóni og útskrifaðist
hún þaðan vorið 1989. Helstu sýn-
ingar á verkum hennar fram að
þessu voru í Gunnarssal í apríl 1991
og í „Borði fyrir tvo“ í Borgar-
kringlunni í september 1992.
hefði bolmagn til þess að halda
svona hátíð upp á eigin spýtur.
Hver stofnun ynni engu að síður
sjálfstætt að sínum þætti.
Að sögn Gunnars fékk íslenska
hátíðin mikla og jákvæða umfjöllun
í skoskum fjölmiðlum á síðasta ári.
Umfjöllunin heldur áfram nú því
fréttamenn frá BBC, Skotlandi, eru
væntanlegir til landsins um helgina
til þess að fylgjast með Skottís.
Myndlist
Tvær myndlistarsýningar eru
haldnar í tengslum við Skottís og
voru þær opnaðar 9. janúar sl. Á
Kjarvalsstöðum stendur yfir sýning
á verkum Ians Hamiltons Finlay
en hann er einn þekktasti núlifandi
myndlistarmaður Skota. í Geysis-
húsinu er sýning sem ber titilinn
„Alter Ego“.
Bókmenntir
Rithöfundasamband Islands
stendur fyrir kynningu á skoskum
bókmenntum í samvinnu við Nor-
ræna húsið. Tveir skoskir rithöf-
undar, Edwin Morgan og Alasdair
James Gray, munu halda fyrirlestra
í Norræna húsinu. Þar er jafnframt
skosk bókasýning í anddyrinu. Fyr-
irlestramir verða 23. og 24. janúar.
Edwin Morgan mun einnig halda
fyrirlestur um myndlistarmanninn,
rithöfundinn og ljóðskáldið, Ian
Hamilton Finlay, að Kjarvalsstöð-
um klukkan 14, sunnudaginn 24.
janúar.
Tónlist
Myrkir músíkdagar eru í ár hluti
af Skottís. Tónlistarhátíðin hefst
28. janúar og stendur til 14. febr-
úar. Á hátíðinni verður flutt tónlist
frá 6 löndum á 16 tónleikum. Flutt
verða m.a. 22 íslensk sönglög sem
félagar í Tónskáldafélagi íslands
hafa samið sérstaklega fýrir Myrka
músíkdaga.
í ár verða nokkrar nýjungar á
hátíðinni, t.d. verða börn beinir
þátttakendur í fyrsta sinn. Ný verk
nemenda í Tónskóla Sigursveins og
Tónmennaskóla Reykjavíkur/Tón-
stofu Valgerðar verða frumflutt 13.
febrúar. Það er einnig nýmæli að
eitt kvöldið er helgað jazzi.
Kvikmyndir
Hvíta tjaldið og Regnboginn sýna
fiinm nýlegar skoskar myndir. Þess-
ar myndir gefa íslensku kvik-
myndaáhugafólki einstakt tækifæri
til þess að kynna sér hvað er að
gerast í skoskri kvikmyndagerð.
Kvikmyndahátíðin hófst 16. janúar
sl. og stendur til 23. janúar.
Matargerðarlist
Gestakokkurinn Jim Kerr býður
upp á skoska matseld á veitingahús-
inu Við tjörnina dagana 30. janúar
til 7. febrúar. Jim Kerr sem er
þekktur fyrir fiskrétti sína ætlar
að hafa hefðbundna rétti úr eldhúsi
sínu á boðstólnum. Einnig mun
hann gera tilraunir með íslenskt
hráefni ásamt Rúnari Marvinssjmi.
Jean-Philippe Labadie og Eggert Þorleifsson í hlutverkum sínum.
Kvikmyndin Stuttur frakki
Samningur um
dreifingu erlendis
ART Film, framleiðandi kvikmyndarinnar Stuttur frakki, hefur gert
samning við Sigurjón Sighvatsson, einn eigenda Propaganda film í
Hollywood, um dreifingu myndarinnar erlendis. Gengið var frá sam-
komulaginu fyrir skömmu en myndin verður frumsýnd hérlendis um
miðjan mars. Þeir Bjarni Þór Þórhallsson og Kristinn Þórðarson, eig-
endur Art film, segja að samkvæmt samkomulaginu sem gert var
muni Sighvatur Sigurjónsson kom
Þrátt fyrir nafnið er Stuttur frakki
kvikmynd í fullri lengd en unnið var
að gerð hennar í fyrra. Þeir Bjami
Þór og Kristinn segja að þeir hafi
sent Siguijóni vinnueintak af mynd-
inni í lok síðasta árs og honum hafi
litist svo vel á verkið að af þessu
samkomulagi varð. „Við erum að
sjálfsögðu ánægðir með þessa þróun
mála þvi það er okkur mikils virði
að maður sem viðlíka þekkingu og
sambönd og Siguijón hefur, hjálpi
okkur við að koma myndinni á fram-
færi,“ segja þeir félagar. í máli þeirra
kemur einnig fram að Siguijón muni
aðstoða þá við kynningu á myndinni
hér heima en sú kynning hefst í
næsta mánuði.
Að sögn Kristins og Bjama áttu
þeir félagar fmmhugmynd að Stutt-
um frakka en leituðu síðan til Gísla
Snæs Erlingssonar, leikstjóra, og
Friðriks Erlingssonar handritshöf-
inn í fyrirtækið sem einn hluthafa.
undar, eftir frekari úrvinnslu og telja
þeir að þetta sé í fyrsta skipti sem
þessi háttur er hafður á hérlendis
en slíkt vinnuform er þekkt eriendis
við kvikmyndagerð. „Siguijón tók
það fram að honum hafi litist vel á
þessi vinnubrögð," segja þeir.
Stuttur frakki fjallur um Frakka
sem kemur hingað til lands í leit að
hljómsveit sem hann vill koma á
framfæri í heimalandi sínu. Lendir
hann í ýmsum óvæntum ævintýmm
hérlendis í þessari leit sinni. Myndin
er að hluta til á ensku og verða þau
brot sýnd textuð hérlendis. Aðalhlut-
verkin em í höndum Jeans Philippe
Labadie, Hiálmars Hjálmarssonar og
Elvu Ósk Olafsdóttur.
Aðstandendur vilja taka fram að
myndin er í fullri lengd en þeir segj-
ast hafa orðið varir við misskilning
um að svo sé ekki vegna nafnsins.
NOTAÐIR BILAR
ÓTRÚLEGT VERD
OO AVINTÝRALEO ÓBYGOOAFIRÐ
Vib bjó&um nota&a bíla i eigu Globus ó ótrúlega lógu ver&i i Bilahöllinni ó timabilinu 23.-31. janúar. Dregib
verður úr nöfnum allra þeirra sem nýta sér þetta tækifæri og fimm heppnir kaupendur fó tveggja daga
ævintýralega ferb fyrir tvo upp ó Hveravelli með Hafþóri „Hveravallaskrepp" ó Ford snjótrölli.
Ford Orion 1.6 CL., órg. '87, hvítur, ekinn 96 þús.
km. MarkaðsverS 470.000 TilboSsverS 390.000
Ford Sierra 1.6 CL., árg. '88, hvítur, ekinn 27 þús.
km. MarkaSsverð 670.000 TilboðsverS 590.000
Peugeout 205 GR, árg. '88, ekinn 70 þús. km.
MarkaSsverð 450.000 TilboSsverð 380.000
Toyota Tertel 4x4,
markaðsverð 500.000 tilboðsverð 390.000
Ford Orion 1,6 cl., BSIlí'iJe
markaðsverð 470.000 tilboðsverð 390.000
Chrysler Le Bar on turbo, árg. ‘87, raoður ekinn 90 þús, km.
markaðsverð 750.000 tiiboðsverð 650.000
6, brúnn, ekinn 120 þús. km.
g. ‘87, hvítur, ekinn 96 þús: km.
Honda Civic Shuttle 4x4,
markaðsverð 580.000 tilboðsverð 430.000
6ra '87, blar
Cilroðn AX 10,
urg. '88, hvítur,
markaðsverð 340.000 tilboðsverð 290.000
Saab 900,
markaðsverð 580.000 tilboðsverð 420.000
Toyota Camry station, árg. '87, hvítur, ekinn
96 þús. km. Markaðsverð 720.000
Tilboðsverð 640.000
Citroen AX 1,1 TRl,
markaðsverð 390.000 tilboðsverð 340.000
6rg. '85, blár,
árg, ’88, gibr.
okinn 99þús. km.
okinn 40 þús. km.
ekinn 89 þús. km.
ekinn 43 þús. km.
SIMI: 674949
ÞAÐ ER OPK> HJÁ OKKUR:
mánudaga til föstudaga kl. 9.00 - 18.30
latigardaga kl. 10.30 - 17.00
sunnudaga kl. 13.00 - 16.00
KOMDU I BILAHOLLINA, BILDSHOFÐA 5 OG SKOÐAÐU OTULEGT URVAL AF NOTUÐUM EN GOÐUM BILUM I EIGU GLOBUS
NOTAÐIR BILAR