Morgunblaðið - 23.01.1993, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. JANÚAR 1993
35
Bruðl er böl
meginhlutinn af þeirri aukningu í
orkunotkun í heiminum sem reikn-
að er með í framtíðini verði ein-
mitt í þróunarlöndunum og að
stærstur hluti þessarar aukningar
muni næstu áratugina koma frá
hefðbundu eldsneyti. Þetta er talið
óhjákvæmilegt til að efnahags-
framfarir geti orðið í þessum lönd-
um og kjör fólks þar skánað.
Aukning á C02-innihaldi andrúms-
loftsins sýnist því óhjákvæmileg —
ásamt þeim afleiðingum sem hún
kann að leiða til. En þegar þær
afleiðingar eru metnar er nauðsyn-
legt að skoða jafnframt afleiðingar
þess að reynt sé að koma í veg
fyrir þessa þróun. Hugsa mætti
sér að þvinga fram minni orku-
notkun iðnríkja; sérstaklega notk-
un þeirra á hefðbundnu eldsneyti
og koma í veg fyrir vaxandi
brennslu eldsneytis í þróunarlönd-
um samtímis. Það myndi leiða af
sér alvarlegar efnahagskreppur í
iðnríkjunum sem almenningur þar
er ekki líklegur til að sætta sig
við möglunarlaust og jafnframt
stöðvun hagvaxtar í þriðja heimin-
um; vaxandi fátækt og eymd þar,
vegna fólksfjölgunarinnar, ásamt
óviðráðanlegum straumi efna-
hagslegra flóttamanna þaðan til
norðursins. Hvernig yrði þeim tek-
ið í kreppunni þar í ljósi nýlegrar
reynslu frá Þýskalandi og fleiri
Evrópulöndum? Afleiðingar þess-
arar leiðar gætu því vel orðið hvort
tveggja í senn: Stórátök milli norð-
urs og suðurs og dauði tugmilljóna
manna árlega í þróunarlöndunum
af völdum sjúkdóma og hungurs.
Yrðu þessar afleiðingar mannkyn-
inu síður hættulegar en afleiðingar
af vaxandi gróðurhúsaáhrifum?
Þetta táknar ekki að mannkynið
geti aldrei hætt að brenna elds-
neyti í svipuðum mæli og nú. Hins
vegar má umbreytingin yfír í aðr-
ar orkulindir ekki verða svo hröð
að hún valdi efnahagskreppu í iðn-
ríkjunum og stöðnun í þróunar-
löndunum. Þá kynni verr verið af
stað farið en heima setið. Tíma-
bundið hlýtur raunar eldsneyti-
snotkunin að vaxa. Til lengri tíma
litið; fram undir miðbik næstu ald-
ar eða svo, getur hins vegar annað
orðið upp á teningnum. Það tekur
alltaf langan tíma, marga áratugi,
fyrir nýjar orkulindir að ná yfír-
burðastöðu. Það tók kolin hálfa
aðra öld að ná þeirri stöðu sem
þau höfðu á fyrri hluta þessarar
aldar og olíuna hátt í öld að ná
stöðunni sem hún hafði í upphafi
áttundar áratugarins. Það er því
ekkert undarlegt við það að það
taki endurnýjanlegar orkulindir
nokkra áratugi enn að verða ríkj-
andi í orkubúskap heimsins. Það
er í rauninni óraunhæft að vænta
annars.
Þannig bindur hvað annað.
Vandinn sem við blasir öllum jarð-
arbúum er að þræða einstigi til
framtíðar með þeim hætti að
sæmilegur friður ríki í heiminum
og viðunanlegt jafnvægi milli
efnahags, umhverfis og orkunotk-
unar; jafnvægi sem haldist getur
til frambúðar og tryggt sjálfbæra
þróun. Þetta er vandi alls mann-
kyns — allra jarðarbúa — ekki
bara hluta þeirra. Og þetta undir-
strikar sterkar en nokkuð annað
nauðsynina á að skoða málin í
samhengi en ekki í einangrun. Við
skulum vona að okkur takist að
þræða einstigið.
Höfundur er orkumálnstjóri.
eftir Einar
Kristinsson
Það er gaman að heimsmálunum
um þessar mundir. Rússar keppast
við að taka upp markaðsbúskap.
Bandaríkjamenn virðast vera að
sigla inn í félagshyggju og EB er á
góðri leið með að slá gamla Kreml
út í skrifræði. Sem sagt, engin
breyting. Aðeins aðsetursskipti.
Þetta er eins og þrír vinir skiptist
á konum til að hressa upp á ástand-
ið í hjónasænginni. Ótrúlegast er
að efnahagsástandið á heimbyggð-
inni lagist við þessa færslu, frekar
en efnahagsástand vinanna við
konuskiptin. Núverandi vandræði í
efnahag fjölmargra þjóða er afleið-
ing af vitlausri fjármálastjórn síð-
ustu áratuga. Bæði „stórveldin"
vörðu of miklum fjármunum í „leik-
skólann sinn“, hermálin, og gættu
þess ekki að halda framleiðslu nauð-
synlegustu neysluvara í lagi. Rússar
slepptu að mestu framleiðslu á
nauðsynlegum neysluvörum, en aðr-
ir keyptu þær erlendis frá út á krít.
Ástandið heima
Gefum okkur að við getum aðeins
framleitt eina vöru ódýrar en aðrir.
Magn þessarar vöru er ekki nægjan-
legt til að skila þeim tekjum sem
þarf til að kaupa allar aðrar vörur
sem við þurfum að nota. Hvað skal
gera?
Svarið er að sjálfsögðu „sláið lán
til að fullnægja þörfum þjóðarinn-
ar“. Það er gert, en lán þarf að
endurgreiða þannig að hluti af tekj-
um næsta árs fer í vexti og afborg-
un svo nú þarf að slá enn hærra
lán. Á sama tíma gengur hluti þjóð-
arinnar atvinnulaus af því hann
getur ekki framleitt á „samkeppnis-
færu“ verði. Ekki borga þessir menn
skatta í sameiginlegan sjóð og ann-
aðhvort verður að láta þá drepast
úr hungri eða framfleyta þeim á
„fátækraframfæri" og það kostar
sitt.
Hér má fara aðra leið. Jafnvel
þótt erlend hráefni þurfi til að fram-
leiða þær vörur sem fluttar eru inn
geta tekjurnar af þessari einu vöru-
tegund sem flutt er út dugað til að
kaupa hráefnin. Þá þarf ekki að
taka erlent lán og sökkva sér í skuld-
ir. Hins vegar er efnið keypt og
borgað án lántöku. Þeir sem annars
væru atvinnulausir „þurfamenn"
hafa nú vinnu við að framleiða vör-
umar. Þeim líður betur, þeir skila
tekjum í sameiginlegan sjóð og þjóð-
in safnar ekki skuldum. þetta var
leið íslensku ríkisstjórnarinnar á
kreppuárunum upp úr 1930.
Það er að vísu rétt að þessar inn-
lendu vörur em dýrari en samskon-
ar innfluttar vörar, en nútíð og
framtíð era bjartari. Þess vegna vil
ég halda því fram að verðmunur
megi vera allveralegur.
Hollur er heimafenginn baggi
Vara er því þjóðhagslega hag-
kvæmari eftir því sem erlendur
kostnaður er minni hluti hennar.
Eitt besta dæmið er framleiðsla á
mjólkurvöram og dilkakjöti. Þar er
erlendur kostnaður hverfandi hluti.
Þennan atvinnuveg vill einn ágætur
ráðherra, hvað sem öðru líður,
leggja niður. Því vil ég að hann
svari þrennu:
1. Hvaðan á að fá gjaldeyri til
að kaupa þessar vörur? Verði þessar
vörar keyptar erlendis frá og verðið
þá lægra skilar virðisaukaskattur-
inn minni upphæð.
2. Hvaðan ætlar hann að taka
mismuninn?
3. Hvað eiga þeir að gera, sem
missa vinnuna?
Verslunin
Það er rétt að hér er hátt verð á
landbúnaðarvörum. Að sumu leyti
er það eðlilegt vegna loftslags. Að
mestum hluta er það óeðlilegt. Það
er sama sagan og með aðrar vörar.
Nýleg dæmi úr Morgunblaðinu sýna
að fatnaður er þrefalt dýrari hér en
í Bretlandi. Sjálfar hef ég borið
saman verð á verkfæram hér og í
Bretlandi og fengið svipað hlutfall.
Ekki skiptir máli hvort þessi verk-
færi era framleidd þar eða annars
staðar. Allt þetta virðist sýna að
íslensk verslun stendur sig illa. Ef
við göngum í EES skilst mér að
hver sem er á því svæði geti stund-
að verslun hvar sem er á svæðinu.
Því vil ég spyija:
Á hverju ætla íslenskir heildsalar
að lifa ef þeir eiga að keppa við
erlenda aðila um innflutning hingað?
Ég er hræddur um að vistin hjá
þeim verði dapurleg. Að vísu skal
ég játa að varla vöknar mér um
augu yfir örlögum þeirra. Athugum
eitt enn. Fyrir fáum áram var byggð
stór og mikil verslunarhöll að nafni
Kringlan. Hún er nærri jafnstór og
samanlagt verslunarrými var hér
fram að þeim tíma. Eg bið menn
að telja þær innlendu vörar sem þar
fást.
Breytingin síðustu áratugina
Um 1960 var hér umtalsverður
málmiðnaður. Vélsmiðjan Héðinn
var með 600-800 manna starfslið
og framleiddi meðal annars frysti-
tæki og heilar síldarbræðslur og
fullnægði að mestu innlendum
markaði á þessu sviði. Það var rek-
in bílasmiðja sem yfirbyggði stóra
fólksflutningabíla og strætisvagna
og talsvert skipasmíði. Tréiðnaður
fullnægði innanlandsþörfum fyrir
húsgögn auk smíði á hurðum og
innréttingum í hús. Fata- og vefjar-
Einar Kristinsson
„Ætli stjórnvöld að
standa undir nafni ber
þeim að skapa þau skil-
yrði að innlend fram-
leiðsla geti að mestu
fullnægt þörfum þjóð-
arinnar á daglegum
neysluvörum.“
iðnaður var veralegur, sbr. Gefjun.
Skógerð var að mestu innlend, sbr.
Iðunni. Nú er þetta allt horfið og
nokkur þúsund heildsalar komnir í
staðinn. Meira að segja era menn
hættir að gera við bíla. Þegar fyrsti
hluturinn bilar í bílnum er honum
lagt og nýr keyptur í staðinn. Er
von að vel ári?
Hvað skal gera?
Ætli stjórnvöld að standa undir
nafni ber þeim að skapa þau skil-
yrði að innlend framleiðsla geti að
mestu fullnægt þörfum þjóðarinnar
á daglegum neysluvöram. Á þessu
sviði þarf og verður innlend fram-
leiðsla að koma í stað innflutnings.
Þetta er vafalaust eina ieiðin til að
draga úr viðskiptahalla og skapa
raunveraleg störf fyrir landsmenn.
Það er tæpast hægt að hugsa sér
að við getum lifað af því að þjón-
usta hver annan. Það er svipuð hug-
mynd og leikskóli geti verið sjálf-
stætt þjóðfélag. Sú kreppa sem hér
virðist í uppsiglingu er að hluta til
sama eðlis og kreppan í nálægum
iðnríkjum.
Framleiðslan hefur flust úr landi.
Héðan fór hún til útlanda. Frá Evr-
ópu og Norður-Ameríku fór hún til
Austur-Asíu. Þannig er framleiðslu-
geta heimsins á iðnvamingi orðin
tvöföld miðað við þörf. Framleiðslu-
getan sem var á Vesturlöndum er
enn við lýði, en lítt notuð. Fram-
leiðslugetan í Austurlöndum er í
fullu fjöri og þaðan kaupa Vestur-
lönd vegna lægra verðs, þrátt fyrir
gjaldeyrisskort, enda era flest Vest-
urlönd orðin skuldum vafin. Við
erum í svipaðri súpu og kaupum frá
útlöndum. Hvað skal gera? Tvær
leiðir virðast færar:
1. Koma upp innflutningshöml-
um. Það er leið EB.
2. Koma á alvöru gjaldeyris-
markaði þar sem gengið ræðst af
framboði og eftirspum. Þetta táknar
að gengi gjaideyrisins ráðist alfarið
af viðskiptajöfnuðinum og sé jafnan
þannig að hann sé á núlli. Þetta er
vel framkvæmanlegt með nútíma
tölvutækni. Þessi aðferð er á sterk-
ari viðskiptagranni en það fornaldar
sýndarbrask sem tíðkast í kauphöll-
um í dag. Ég geri mér að vísu full-
ljóst að stjórnmálamenn munu ekki
markaðsvæða gjaldeyrisviðskipti á
þennan sjálfsagða hátt. Ekki einu
sinni þeir sem mest tala um mark-
aðsbúskap. Þeir þora ekki heldur
að markaðsvæða þingfararkaupið
sitt því þeir vita sem er að margir
frambjóðendur era um hvert þing-
sæti, en þá er eðlilegt að kaupið
lækki.
Niðurlag
Gjaldeyrisnotkun okkar er nú
10.000.000.000 króna á ári umfram
gjaldeyristekjur. Það era 40.000 kr.
á mann á ári. Þótt þetta sé há tala
er hún veralega lægri en vextir og
afborganir af þeim erlendu lánum
sem við höfum. Ef við væram skuld-
laus væra engin vandræði. Svo er
ekki. Þess vegna þarf innflutningur
að minnka um þessa upphæð. Það
getur gerst með tvennu móti: a)
Framleiða meira af okkar daglegu
neysluvöram. Þetta skapar arðbær
störf. Ekki veitir af. b) Minnka
kaupmátt almennings um rúmlega
(t.d. tvöfalda) þessa upphæð. Þó við
göngum í EES er ávinningur af
tollalækkunum einungis hluti (um
’/5) af þessu dæmi. Aðild gerir
stjómvöldum erfitt að beita inn-
flutningshömlum. Því er mjög áríð-
andi að við tökum okkur Þjóðveija
til fyrirmyndar og kaupum aðeins
innlenda framleiðslu svo fremi að
hún sé á boðstólum, óháð verði.
Frelsi til lántöku og mikið framboð
á vörum leggur þá skyldu á neytend-
ur að þeir kunni að hafna. Þetta
kunnum við ekki, sem best sést af
því að við eigum einhveija tugi þús-
unda of marga bíla, öðrahvorameg-
in við hundrað of mörg skip, of stórt
húsnæði og of mikið af drasli til að
geyma í því. Við getum sparað
gjaldeyri næstu árin með því að
bæta ekki í þetta safn, heldur halda
hlutunum við. Braðl er böl.
Þegar búið er að eyða atvinnu-
tækifæranum og öllum sjóðum og
slá þau lán sem unnt er hlýtur
kreppan að koma.
Höfundur erkennnri við
Tækniskóln ísiands.
m
,| ■. ——
værðarvoðir - metravara.
Opið daglega frá kl. 10.00-18.00, einnig sunnudaga.
Sendum í póstkröfu, sími 91 -666303.