Morgunblaðið - 23.01.1993, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 23.01.1993, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. JANÚAR 1993 41 Minning Arnþór Jensen for- stjóri, Eskifirði Mig langar að minnast örfáum orðum fyrrum tengdaföður míns og fóstra, Arnþórs Jensen frá Eski- firði, sem lést 9. janúar síðastliðinn. Arnþór fæddist 22. maí 1906 að Siglunesi við Manitobavatn í Kanada. Foreldrar hans voru hjónin Þórunn Markúsdóttir, prests á Stafafelli í Lóni Gíslasonar, og Pét- ur Wilhelm Jensen, á þeim tíma bóndi vestan hafs, en síðan kaup- maður um áratugaskeið í Reykja- fírði á Ströndum, á Eskifirði og í Reykjavík. Foreldrar Péturs Wil- helms voru hjónin Jóhanna Péturs- dóttir frá Eskifjarðarseli og Jens Peter Jensen, beykir og veitinga- maður, en hann fluttist ungur frá Danmörku, settist að á Eskifírði og bjó þar síðan. Amþór fluttist með foreldrum sínum til íslands kornabam að aldri og til Eskifjarðar árið 1909. Þar lifði hann og starfaði í 74 ár. Síð- ustu ár ævi sinnar bjó Arnþór á Hrafnistu í Hafnarfírði. Arnþór kvæntist Guðnýju Önnu Pétursdóttur, prests í Heydölum í Breiðdal Þorsteinssonar og Hlífar Bogadóttur Smith, 21. nóvember 1931. Guðný lést 30. júlí 1988. Böm Guðnýjar og Arnþórs urðu fjögur: Gauti, læknir í Noregi, kvæntur Sólrúnu Sveinsdóttur hjúkrunarfræðingi; Valur, lengst af kaupfélagsstjóri KEA, síðan bankastjóri Landsbankans, en hann lést í sviplegu slysi 13. október 1990. Ekkja hans er Sigríður Ólafs- dóttir húsfreyja; Hlíf, skjalaþýðandi og túlkur, búsett í Danmörku og gift Bent Christensen menntaskóla- kennara; Guðný Anna, hjúkrunar- framkvæmdastjóri, gift Hjálmari Kjartanssyni viðskiptafræðingi. Ævistarf Arnþórs var mikið og gott og er efni í bók. Það verður ekki tíundað hér en látið nægja að segja, að hann var einn af hetjum aldamótakynslóðarinnar sem kynntist kröppum kjörum, sat stutt á skólabekk en útskrifaðist úr lífs- ins skóla með heiðri og sóma. í lok ársins 1954 varð égtengda- dóttir þess merka manns sem hér er minnst. Með okkur tókst vinátta sem æ síðan óx og dafnaði og ég vil nefna kærleika. Tengdapabbi minn kom mér fyrir sjónir sem allgustmikill dugnaðar- forkur, léttur í spori og sístarfandi frá því árla morguns til síðla kvölds. Mér var strax ljóst að þar var eng- inn meðalmaður á ferð. Skörungs- skapur, reglusemi og fádæma snyrtimennska einkenndi öll hans störf. Arnþór var lágvaxinn en þrekleg- ur, teinréttur og höfðinglegur. And- litið bar í senn bæði mjúkleitan og skarpleitan svip þar sem konung- legt nefið setti sterkan svip á. Klæðaburður hans var ávallt óað- finnanlegur og einnig þar sat snyrtimennskan í fyrirrúmi. Þrótt- mikil og blæbrigðarík röddin féll vel að heildarmyndinni og sagði heilmikið um manninn sem var hríf- andi. Mér fannst hann hafa yfir- bragð herramanns en það var ekki bara yfirbragð. Hann var sannur. Smátt og smátt kynntist ég stór- brotnum persónuleika Arnþórs. Ungur að árum hreifst hann af t Alúðarþakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför BRYNJÓLFS BRYNJÓLFSSONAR, Hrafnistu, áður Holtsgötu 21, Hafnarfirði. Jóhanna Brynjólfsdóttir, Einar Sigurjónsson, Jón O. Brynjólfsson, Erla Steingrimsdóttir, Bára Brynjólfsdóttir, Ásthildur B. Cates, James M. Cates, barnabörn og barnabarnabörn. t Innilegar þakkir fyrir veitta samúð og vinarhug við andlát og út- för eiginmanns míns, föður, tengdaföður, sonar og afa, GUÐMUNDAR S.M. JÓNASSONAR vélsmiðs, starfsmanns og varaformanns Félags járniðnaðarmanna. Hallfríður P. Ólafsdóttir, Ægir J. Guðmundsson, Linda Brá Hafsteinsdóttir, Jónas Þ. Guðmundsson, Þóra B. Árnadóttir, Sigríður Hrund Guðmundsdóttir, Reynir A. Guðlaugsson, Sigrfður Magnúsdóttir og barnabörn. Birting afmælis- og minningargreina Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á rit- stjórn blaðsins á 2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Hafnarstræti 85, Akureyri. Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku- dagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga. Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar greinar um fólk sem er 70 ára eða eldra. Hins vegar eru birtar afmælisfréttir með mynd í dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra. Mikil áhersla er á það lögð að handrit séu vel frá gengin, vélrituð og með góðu línubili. Akjósanlegast er að fá greinarnar sendar á disklingi. hugsjón jafnaðarstefnunnar og lifði og starfaði samkvæmt þeirri hug- sjón, og um leið samkvæmur sjálf- um sér, til hinsta dags. Oft söng Arnþór við raust á bað- herberginu á sunnudagsmorgnum og þá gjarnan ljóð Sigurðar Sig- urðssonar frá Arnarholti við lag Sigfúsar Halldórssonar, sem byijar þannig: „Í dag er ég ríkur, í dag vil ég gefa“. I þessu ljóði má ef til vill fínna lýsingu á stórbrotinni per- sónu hans sjálfs. Hann var tilfinn- ingaríkur maður sem kunni að gleðjast með glöðum en hryggðist líka djúpt. Hann var manna skemmtilegastur, skarpgreindur og minnugur og hafði auga fyrir því sem spaugilegt var. En fyrst og síðast var hann traustið sjálft. Vak- inn ög sofinn bar hann velferð stór- fjölskyldunnar fyrir brjósti, fylgdist vel með öllum, og reyndi að bæta úr þar sem úrbóta var þörf. Gilti þá einu hvort í hlut áttu börn látins bróður eða þeir sem stóðu honum enn nær. Er fram liður stundir áttu tveir eldri synir mínir þvi láni að fagna að dveljast oft sumarlangt hjá afa og ömmu á Eskifirði. Þar var frelsi til athafna meira en á erlendri grundu þar sem þeir áttu heima. En þyngst vó að njóta ástúðar, blíð- lyndis og óendanlegrar þolinmæði ömmu og kærleiksríkrar hand- leiðslu, festu og framkvæmdagleði afa. Þeir minntust veiðiferðar sem þeir fóru með afa út að Héraðsflóa. Svo illa vildi til að afa skrikaði fót- ur á steini og féll hann við. í fallinu hlaut hann opið beinbrot á hægri handlegg. En fornum hetjum líkur keyrði Arnþór jeppann til baka með vinstri hendi, skilaði drengjunum heilum heim og fór síðan til læknis. „Það er svo margt að minnast á“ en allt verður enda að taka. Ég þakka fyrir að hafa átt slíkan mann sem Arnþór Jensen var að bak- hjarli og fóstra allt frá fyrstu kynn- um okkar til hinsta dags hans. Ég þakka fyrir drengina mína alla. Ég kveð þig með djúpri virðingu og þökk og bið þér fararheilla minn kæri Arnþór. Björg Bjarnadóttir. Minning Hulda ViUijálmsdóttir Ég sé hana fyrir mér, þar sem hélst alla ævi síðan. hún stendur við gluggann, stór og Hulda var fædd á Narfeyri á myndarleg, í hvítri blússu með dökkt, fallegt hár. Þá var hún 17 ára. Hún var hæglát og hlédræg að eðlisfan, en greind í tali og góð að læra. Árin líða, og ég sé hana fyrir mér á Hverfisgötunni, með Hilmar, elsta son sinn. Þá voru góðir tímar. Ég sé hana næst fyrir mér á Grettisgötunni með börnin sín mörgu, ung og smá. Þá var líf- ið erfítt og þröngt í búi, en með þrautseiglu og ráðdeild vann hún bug á erfiðleikunum. Auðug varð hún ekki, í þeim skilningi, að hús eða íbúð eignaðist hún aldrei, en auður hennar var börnin, sem urðu átta talsins, falleg og vel gerð, sem öll hafa þroskast vel og komist til manns, enda hugsaði hún vel um þau á allan hátt. Síðast sé ég hana fyrir mér á Kleppsveginum, og var þá næst því að við værum orðnar nágrannar. En þar varð reyndar lífsreynsla hennar einna erfiðust. Þá sýndi hún líka best, hvílíku þreki og æðruleysi hún bjó yfir. Sú sem ég er hér að tala um, er vinkona mín og skólasystir úr Reykholtsskóla, Hulda Vilhjálms- dóttir, en þar vorum við saman veturna 1946-48. Samband okkar Röng mynd Með minningargrein Kjartans Gunnarssonar um Odd Carl Odds- son Thorarensen, apótekara á Ak- ureyri, í Morgunblaðinu í gær birt- ist vegna misgánings mynd af Oddi Carli Stefánssyni Thorarensen, apó- tekara í Reykjavík. Eru hlutaðeig- endur innlega beðnir velvirðingar á mistökunum. Skógarströnd 25. október 1931, dóttir hjónanna Láru Vigfúsdóttur gæðakonunnar sem dó í fyrra 91 árs gömul, og Vilhjálms Ögmunds- sonar bónda þar, en hann var fram- úrskarandi stærðfræðingur og hlaut viðurkenningar erlendis frá fyrir afrek sín í þeirri grein. Tvo bræður átti hún, Hreiðar, sem býr á Narfeyri, og Reyni, eðlisfræðing, sem er prófessor í Miinster í Þýska- landi. Fyrir 13 árum fékk Hulda sjúk- dóminn harðsækna, sem kallaði bæði á skurðagerð, lyfja- og geisla- meðferð. Aldrei heyrði ég hana kvarta, og beiskju varð ég aldrei vör við hjá henni. Það er skoðun mín, að Hulda sé nú komin í nýtt umhverfi á annarri og betri jörð. Mun hún þar sakna barna sinna og barnabarnanna litlu, og annarra ástvina. En eftir því sem ég þekkti Huldu, er ég viss um, að hún á nú þá ósk besta, börnum sínum og ástvinum til handa, að vera ekki að syrgja, eða harma hana látna, heldur að feta í fótspor hennar um að lifa líf- inu vel. Steingerður Þorsteinsdóttir. Minning Jónas Hallgrímsson Nú þegar tengdafaðir minn hefur kvatt þennan heim, langar mig að minnast hans með fáeinum fátæk- legum orðum í þakklætisskyni fyrir svo ótalmargt sem hann gerði fyrir mig og fjölskyldu mína. Það var sumarið 1959 sem ég kynntist verð- andi tengdaföður mínum og hans indælu konu, Hrefnu Júlíusdóttur, sem lést fyrir tæpum þremur árum, og fyrir velvild þeirra hjóna flutt- umst við inn á heimili þeirra að Bjarkarbraut 1 og vorum undir þeirra verndarvæng fyrstu hjúskap- arár okkar. Minningar frá þeim árum eru mér Ijúfar og margt af því sem gerðist á Dalvíkurárunum, rifjuðum við Jónas upp, þegar hann dvaldist hjá okkur nú í haust og vetur, eftir stutta legu á Landspítal- anum. Jónas var einstaklega fróður og skemmtilegur og sagði vel frá, ferð- aðist um landið og tók mikið af myndum, em myndir og myndataka áttu hug hans allan, og skipta myndirnar sem hann tók mörgum þúsundum. Að ferðast um landið og taka myndir, ásamt því að ganga á fjöll, var hans frístundagaman, Sérfræðingar í blóniaskrcYting’uni íið öll ta'Uila'ri fljjl blómaverkstæði DlNNAsfel Skólavörðustíg 12, á horni Bergstaðastrætis, sími 19090 og man ég vel fyrstu fjallgönguna okkar, þar sem hann gekk léttstígur þar til efsta tindi var náð og blés varla úr nös eftir gönguna. Nöfnin á fjöllunum hafði hann á hraðbergi og spurði mig gjarnan hvort ég vildi giska á hæð þeirra. Jónas var oft kenndur við bíla- verkstæðið sem var starfsvettvang- ur hans í um 40 ára skeið. Bílaverk- stæðið var gott og vel rekið fyrir- tæki og hafði á að skipa úrvals mönnum, starfsandi góður og lítið um mannaskipti. Þessi gamli kjarni, eins og Jónas nefndi þá stundum, voru góðir vinir hans og kom það vel í ljós nú í haust og vetur, þegar hann vegna veikinda dvaldist hér fyrir sunnan. Margir hringdu í hann eða sendu honum kveðjur og góðar óskir um bata. Jónas átti þá ósk heitasta að komast heim til Dalvík- ur, og sem betur fer gekk það eft- ir, þó að dagarnir yrðu færri en ætlað var. Jónas tengdafaðir minn verður jarðsettur á Dalvík við hlið Hrefnu konu sinnar og drengjanna okkar Höllu, en þeir voru í miklu uppáhldi hjá afa sínum og ömmu og dvöld- ust mestan hluta ævi sinnar í ná- vist þeirra í ástríki og velvild. Nú hafa þau sameinast aftur í æðri heimum og munu vafalaust taka á móti okkur þegar þar að kemur. Blessuð sé minning þeirra. Að lokum vildi ég geta ^þakkað Jónasi fyrir mig og mína. Ég mun ávallt minnast hans sem mikils vel- gjörðarmanns og vinar. Návist hans var mannbætandi og gaf deginum lit, ég mun vissulega sakna hans. Ég bið Guð að blessa þau sem far- in eru. Fjölskyldu hans, ættingjum og vinum sendi ég mínar innileg- ustu samúðarkveðjur. Anton Angantýsson. Dagbjartur Guðjónsson frá Lyngum - Minning Fæddur 17. apríl 1937 Dáinn 14. janúar 1993 14. janúar síðastliðinn bárust mér þau sorglegu tíðindi að Dag- bjartur frændi væri látinn. Ósjálfrátt leitaði hugur minn aft- ur til fyrsta sumarsins sem ég kom austur, þá aðeins barn að aldri rétt að byija að stíga inn í heim hinna fullorðnu. Sumarið sem svo margt gerðist, sumarið sem ég fékk að kynnast sveitinni. Þvílík alúð og kærleikur sem mér mætti þegar ég steig inn fyrir dyrn- ar á bænum Lyngum í fyrsta sinn mun seint gleymast. Enda mörgum árum seinna hlakka ég alltaf til að koma austur í sveitina. Sögurnar sem Daggi frændi kunni að segja mér yljuðu litlu barnshjarta á sum- arkvöldi á Lyngum. Og frásagnirn- ar úr heimi hinna fullorðnu mörk- uðu djúp og góð spor í sál barnsins sem var rétt að verða fullorðið. Seinna þegar ég eignaðist sjálf barn og fór með það austur í sveitina fann það sér líka sinn uppáhalds frænda á Lyngum. Elsku pabbi, ég veit að sorg þín er djúp að missa svo ástkæran bróður, og stórt skart er höggvið í systkinahóp þinn sem ekki verður fyllt. Hjartans Solla, Helga, Fúsi, Gulla og Maja, ég votta ykkur mína dýpstu samúð með þessum fátæklegu orðum kveð ég ástkæran frænda. Guðrún Hrefna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.