Morgunblaðið - 23.01.1993, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ
íbBhTTIB
iPnUTTlK LAUGARÐAGUR 28. JANUAR 1998
HANDKNATTLEIKUR
Þrír lands-
liðsmenn með
flensuíOsló
rír leikmenn landsliðsins lágu rúm-
fastir í Osló í gær með flensu -
þeir Bergsveinn Bergsveinsson, Gunnar
Beinteinsson og Magnús Sigurðsson.
„Strákarnir voru með hita og fyrirskipað
að leggjast undir sæng. Ég vona að Berg-
sveinn verði orðinn hressari fyrir leikinn
gegn Norðmönnum, þar sem við erum
með aðeins tvo markverði hér,“ sagði
Þorbergur Aðalsteinsson, landsliðsþjálfari
í viðtali við Morgunblaðið í gær.
Þorbergur sagði að undirbúningur
landsliðsins fyrir heimsmeistarakeppnina
í Svíþjóð væri byijaður að geijast fyrir
alvöru. Það eru í mörg horn að líta í þeim
undirbúningi - bæði að þjappa íslenska
liðinu saman og fylgjast með mótheijun-
um. „Það má segja að þungu fari sé af
mér létt - að vera hér með landsliðshóp-
inn. Við fáum sex daga til að fara yfir
þau atriði sem við þurfum að lagfæra
fyrir heimsmeistarakeppnina. Það komu
ýmsir vankantar fram í leikjum okkar
gegn Frökkum á dögunum - bæði í sókn-
ar- og varnarleiknum," sagði Þorbergur.
Fimm leikir á fimm dögum
Landsliðið leikur fimm leiki í Lotto-
keppninni. Fyrst gegn Norðmönnum í
dag, en síðan gegn Hollendingum, Rúss-
um, Rúmönum og ítölum. „Fyrir utan leik-
ina verðum við með æfíngar og fundi á
hveijum degi.
Héðinn
fær góða
dóma *
Héðinn Gilsson
fær mjög góða
dóma í þýska hand-
knattleiksblaðinu
Handball magazin.
Blaðið segir að Héð-
inn sé ein besta skytt-
an í þýskum hand-
knattleik og hann
hafí tekið miklum
framförum. Sagt er
að hann hafí haft
mjög gott af hinunT
mikla undirbúningi
sem íslenska landslið-
ið gekk í gegnum fyr-
ir Ólympíuleikana í
Barcelona. Héðinn er
í hópi markahæstu
leikmanna í Þýska-
landi.
Undirbúningur landsliðsins fyrir HM í Svíþjóð
Hér fyrir neðan má sjá þá landsleiki sem landsliðið leikur fyrir HM í Svíþjóð. Inn í
undirbúnlngi landsliðsíns verða tvær umferðir í 1. deild leiknar og bikarúrslitaleikur.
Ein umferð í
1. deildinniheima
FEBBÚAB
jaNÚAB
Bikarúrslitaleikur
Selfoss: Valur
Lottó-mótið í Noreg'
23.til27.ianúar
9. til 20.mars
Dönum
Tveir leikir gegn
verium 22. ogg
Þrír leikir gegn
26. til 28jebrúar
Ein umferð í
1 rieildinni rieima
mm
FOLK
Svíar
meðtvo
mark-
verði
engt Johansson, landsliðsþjálfari
un velja endanlegan
fyrir heimsmeistara-
keppnina í Svíþjóð,
eftir landsleiki gegn
Dönum um miðjan
febrúar. Johansson
segist ætla að velja
— Mats Olsson og
ljóst er að tíu
Svía,
landsliðshóp
>l—'
Sveini
Agnarssyni
í Svíþjóð
tvo markverði
Tomas Svenson,
leikmenn sem urðu heimsmeistarar
með Svíum í Tékkóslóvakíu 1991,
og þrettán af þeim leikmönnum sem
fengu silfurverðlaun á ÓL í Barcel-
ona, verða í sænska liðinu.
Svíar leika opnunarleik HM gegn
íslendingum í Gautaborg 9. mars.
Johansson segist bera fullt traust til
Mats Olsson, þó svo að hann hafí
ekki leikið vel að undanfömu.
Þeir sem verða í skyttuhlutverkum
hægra megin verða Staffan „Faxi“
Olsson og Robert Anderson, en
vinstra megin verða Ola Lindgren
og Robert Hedin. Á miðjunni fyrir
utan leika Magnus Wislander, Magn-
us Anderson og Andreas Báckegren.
Homamenn vinstra megin verða Pi-
erre Thorsson, Robert Venálainen,
en hann á við smávægileg meiðsli
að stríða á hné. Hægri homamenn
verða Erik Hajas og Magnus Cato.
Línumenn eru Per Carlén og Jerry
Haldbeck.
Það er vitað mál að Johansson er
ekki ánægður með hægri hornamenn
sína. Hajas er þungur og ekki í nægi-
lega góðri æfingu og þá er Cato
/ HANDKNA TTLEIK
/ SVIÞJOÐ 9. 20. MARS
ARIÐILL B-RIÐILL C-RIÐILL D-RIÐILL
Í.Umeá í Karlstad í Gautaborg í Málmey
Spánn Rúmenía ÍSLAND Rússland
Tékkóslóvakía Frakkland Svíþjóö Þýskaland
Austurríki Noregur Ungverjaland Danmörk
Lib frá Afríku Sviss Bandaríkin Kórea
M 1 L L 1 R 1 Ð L A R
MILLIRIÐILL 1
í Halmstad
Þrjú efstu liðin
úr A og B riðli
MILLIRIÐILL 2
í Stokkhólmi
Þrjú efstu liðin
úr C og D riðli
Leikið um 13.-16.
sæti í Eskilstuna
Gautaborg
URSLIT
í „Globen" í Stokkhólmi
Leikið um 1.-12. sæti
ifiSs
Málmey
meiddur á baki og að auki önnum
kafín í námi. Johansson er tilbúinn
að leysa það vandamál með því að
láta Báckegren í hornið.
Axel Sjöblad, línumaðurinn knái,
mun að öllum líkindum leika með
þar sem hann er í námi í París og
hefur átt erfitt með að frá frí í skól-
anum. Þá hefur hinn léttleikandi
hornamaður Tommy Suoranierni
ekki náð sér á strik og verður ekki
með í heimsmeistarakeppninni.
Þorbergur Aðalsteinsson, lands-
liðsþjálfari íslands, sagði þegar
Morgunblaðið tilkynnti honum um
val Johansson, að Svíar væru með
geysilega öflugt lið. „Það er alltaf
erfitt að eiga við þá.“
BADMINTON / EM B-ÞJOÐA
Broddi taplaus
Broddi Kristjánsson hefur verið
óstöðvandi í Evrópukeppni
B-þjóða í badminton í Austurríki.
Broddi hefur unnið alla þá leiki
sem hann hefur leikið - vann ein-
liðaleik og tvenndarleik með
Kristínu Magnúsdóttir í gær, er
ísland vann Belgíu, 6:1. Ami Þór
Hallgrímsson tapaði sínum fyrsta
leik í gær, einliðaleik.
Guðrún Júlíusdóttir lék ekki
með gegn Belgíu þar sem hún er
með flensu. Ovíst er hvort hún
geti leikið með gegn Sviss og
Wales í dag.
■ SIGMAR Þröstur Óskarsson,
landsliðsmarkvörður úr ÍBV, gat
ekki farið til Noregs þar sem hann
er meiddur á baki og með flensu.
■ ÞORBERGUR AðalsteinssoIF^
mun sérstaklega fylgjast með
landsliði Rússa í Noregi, en Rúss-
ar koma til með að leika gegn ís-
landi í milliriðli í HM.
■ „VIÐ munum taka leiki Rússa
upp á myndband, þannig að við
getum fylgst með öllum hreyfingum
þeirra," sagði Þorbergur Aðal-
steinsson, landsliðsþjálfari.
■ FRAKKAR fara í æfingabúðir
fyrir HM á sunnudaginn og verður
franska landsliðið saman'í 44 daga
og leika íjölmarga landsleiki. „Eg
væri ánægður ef við hefðum til
umráða aðeins tuttugu prósent af
þeim peningum sem Frakkar leggja
í undirbúning sinn,“ sagði Þor-
bergur.
H ÞORBERGUR mun frá mynd-
bönd frá Frakklandi með leikjum
S-Kóreumanna, sem taka þar þátt
í móti á næstunni. Miklar líkur eru
á að íslenska landsliðið leiki gegn
S-Kóreu í milliriðli í HM.
■ UNGVERJAR, sem eru mót-
heijar Islendinga í HM, byija sinn
undirbúning 10. febrúar. „Þá mun
ég fá að vita hvaða leikmenn Ung-
veijar koma til með að tefla fram.
Og hvemig þeir koma til með að
haga undirbúningi sínum," sagði
Þorbergur.
■ ÍSLENSKA landsliðið fær
klukkustundar ökuferð suður með
Óslóarfirði i dag, en Lotto-mótið
verður sett í bænum Drammen.
■ ARNAR Björnsson, íþrótta-
fréttamaður RUV, verður á staðn-
um og mun hann lýsa landsleik
íslands og Noregs beint kl. 13.30
á rás tvö.