Morgunblaðið - 23.01.1993, Side 52

Morgunblaðið - 23.01.1993, Side 52
MICROSOFT. einar j. WTNDOWS. SKÚLASONHF TVÖFALDUR |. vinningur MORGUNBLAÐID, ADALSTRÆTI 6, 101 REYKJA VlK SÍMl 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 155S / AKUREYRl: HAFNARSTRÆTI 85 LAUGARDAGUR 23. JANÚAR 1993 VERÐ í LAUSASÖLU 110 KR. Rætt um að SH verði gert að lilutafélagi RÆTT verður á stjórnarfumii Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna á Hótel Örk, sem haldinn verður á miðvikudag og fimmtudag í næstu viku, hvort breyta skuli SH í hlutafélag. Þetta staðfesti Jón Ingvars- son stjórnarformaður SH í samtali við Morgunblaðið í gær. „Ég teldi ekki eðlilegt að breytingar væru gerðar á félagsformi Sölumiðstöðvar- innar, án þess að um það næðist víðtæk samstaða," sagði Jón. Sam- kvæmt upplýsingum Morgunblaðsins eru skoðanir mjög skiptar um ágæti þeirrar hugmyndar, en henni mun þó hafa vaxið fylgi meðal félagsmanna að undanförnu. „Það er ákveðið að taka þetta mál til umræðu á fundinum. Fyrir tæpum þremur árum skoðaði nefnd á vegum stjórnar SH þessi mál og skilaði niðurstöðu haustið 1990,“ sagði Jón. Hann sagði að niðurstað- an hefði verið á þann veg þá, að _ ekki var talin ástæða til þess að breyta Sölumiðstöðinni í hlutafélag. Hún hefði það félagsform sem hefði gagnast mjög vel þeim tilgangi sem henni var ætlað. „Hins vegar hefur maður skynjað að þeirri skoðun að breyta beri Söl- umiðstöðinni í hlutafélag hefur vax- ið fiskur um hrygg og þess vegna finnst okkur rétt að taka þetta til umræðu á fundinum og kanna við- horf stjórnarinnar til þessara mála,“ sagði Jón. Vitað er um ákveðinn hóp eigenda SH sem er hugmyndinni andvígur, en Morgunblaðið hefur upplýsingar Bensín gæti lækkað um mánaðamót LÆKKANDI heimsmarkaðsverð á bensíni og olíu gæti skilað sér í lægra bensínverði hérlendis um mánaðamótin. Forstjóri Olíufé- lagsins hf. segir þó að sú lækkun muni væntanlega mælast í aurum .^rekar en krónum. Olíufélögin hafa síðustu daga fengið bensínfarma til landsins fyr- ir lægra verð en fyrir áramót, og sagði Geir Magnússon forstjóri 01- íufélagsins hf. að það yrði metið eftir helgi hvort ástæða yrði til að lækka útsöluverð á bensíni. um að meðal öflugri fylgismanna hugmyndarinnar séu menn eins og Brynjólfur Bjarnason, forstjóri Granda, Einar Oddur Kristjánsson, forstjóri Hjálms og bræðurnir Agúst og Sigurður Einarssynir. Breyting likleg Þótt þessi hugmynd um skipulags- breytingu á Sölumiðstöðinni sé síður en svo ný af nálinni, er talið að henni hafí vaxið verulegt fylgi frá því að nefnd SH skilaði álitsgerð árið 1990, í þá veru að ekki skyldi breytt um félagsform. Því er talið að á þessum fundi geti leikar farið svo að stjórn- arsamþykkt verði gerð fyrir slíkri breytingu, sem þýddi það að SH væri komið á svipað stig hvað varð- ar skipulagsbreytingar og SIF komst á, þann 15. desember sl. þegar stjómin samþykkti að leggja slíka skipulagsbreytingu fyrir aðildarfé- laga sína á hluthafafundi nú næst- komandi þriðjudag. Helstu röksemdir þeirra sem vilja breyta SH í hlutafélag eru þær að Sölumiðstöðin rísi ekki undir því hlutverki sem hún eigi fyrst og fremst að gegna, að vera öflug sjávarafurðasölusamtök, ef hún þurfí stöðugt að greiða út stórar fjárfúlgur til þeirra sem segja sig úr SH. Hvað finnst þér um verð Verð gistingar viðráðanlegt KÖNNUN sem Félagsvísinda- stofnun hefur gert meðal er- lendra ferðamanna sýnir að meirihluti þeirra telur verð á gistingu hérlendis viðráðanlegt. Sjá nánar á miðopnu Kannað hvort hægt er að kaupa fyrirtæki erlendis BYGGÐASTOFNUN telur nauðsynlegt að kanna hvort hægt sé að kaupa erlend fyr- irtæki og flytja þau til lands- ins. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu stofnunarinnar sem er tillaga að stefnumótandi byggðaáætlun fyrir næstu fjögur árin. Þar segir einnig að til að efla atvinnulíf á landsbyggðinni sé nauðsyn- legt að auka áhuga utanað- komandi aðila á þvi að fjár- festa þar. Að undanfömu hefur Byggðastofnun unnið að tillögu um stefnumótandi byggðaáætl- un til fjögurra ára í samræmi við lagafyrirmæli þar um. í áætluninni eru markmið um þróun byggðar- og atvinnulífs og tillögur um aðferðir ríkis- valdins til að ná þessum mark- miðum. Áætlunina ber að end- urskoða á tveggja ára fresti. í skýrslunni em fjölmargir þættir nefndir. Þ. á m. er nefnt að veittir verði hagræðingar- styrkir til landsbyggðarversl- unar, sem m.a. kosti rekstar- ráðgjöf og að veittir verði styrkir til að greiða fyrir sam- einingu verslunarfyrirtækja og hagræðingu í verslunarþjón- ustu á landsbyggðinni. Styrkveitíngar í skýrslunni kemur fram að starfsmenn Byggðastofnunar telja að fjárveitingar til að styrkja atvinnuþróun á lands- byggðinni eigi allar að vera á hendi Byggðastofnunar þar sem hún samkvæmt lögum hafi það verkefni að stuðla að at- vinnuþróun þar. Því eigi að færa þær fjárveitingar sem Iðn- aðarráðuneytið, Félagsmála- ráðuneytið og Framleiðnisjóður landbúnaðarins hafa til ráðstöf- unar að renna til Byggðastofn- unar. Morgunblaðið/Frímann Ólafsson Þorramatur í leikskólanum Þorrinn gekk í garð í gær og krakkamir í leikskólanum í Grindavík fengu sér þorramat úr trogi í tilefni dags- ins. Þótt krökkunum þætti maturinn öðmvísi en þau eiga að venjast gerðu þau honum góð skil. Morgunblaðið/Steinunn Ósk Hætt komnir Þeir Ragnar Lámsson og Grétar Þórsson vom hætt komnir í snjóskriðu í Hvolsfjalli og í framhaldi af erfiðleikum þeirra var tækifærið notað og björgunarsveitin á Hvolsvelli þjálfuð í viðbrögðum við snjóflóðum. „Heyrðum drunur og brekkan fór af stað“ HvolsveUi. TVEIR ungir menn, Ragnar Lárusson 22 ára og Grétar Þórsson 21 árs, voru hætt komnir þegar þeir lentu í snjóskriðu í Hvolsfjalli við Hvolsvöll á fimmtudagskvöld. Þeir Grétar og Ragnar, sem eru báðir kjötiðnaðar- nemar, voru á gangi í fjallshlíðinni þegar hún fór skyndi- lega af stað undir þeim. „Við vom að renna okkur í fjallinu á stórri slöngu þegar við heyrðum dranur og brekkan fór af stað. Ég fór alveg á kaf í snjóinn og reyndi að berjast um eins og ég gat, en snjórinn var svo þéttur að ég gat með engu móti losað mig. Innilokunar- kenndin var gífurleg og við- börgðin eftir því,“ sagði Ragnar. Grétar náði að bjarga Ragnari upp úr snjóskriðunni, en hann var aðeins ofar í brekkunni og sökk ekki eins djúpt í snjóinn. „Ég komst upp af sjálfsdáðum og gat grafið Ragnar upp en það rétt sást á höfuðið á honum,“ sagði Grétar. Ekki bundið við há og hættuleg fjöll Hvolsfjall er aðeins 128 metra hátt en þó era dæmi um að þarna hafi fallið snjóskriður áður. Magnús Már Magnússon deildar- stjóri snjóflóðadeildar Veðurstof- unnar sagði, að snjóflóðið á Hvolsfjalli sýndi að snjóflóða- hætta væri ekki bundin við ákveðna staði á landinu og há og hættuleg fjöll heldur væri hún fyrir hendi þar sem mikill snjór og nokkur halli væri. Starfsmaður snjóflóðadeildar- innar var á Hvolsvelli í gær- kvöldi að mæla snjóskriðuna og skoða aðstæður og notaði um leið tækifærið og þjálfaði björg- unarsveit staðarins í viðbrögðum við snjóflóðum. Allstór snjó- hengja er enn í Hvolsfjalli og því gæti önnur skriða fallið þar. SÓK

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.