Morgunblaðið - 24.01.1993, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ ÍÞRÓTT1R SUNNUDAGUR 24. JÁNÚAR 1993
Bill Shankly, Skotinn sem byggði
upp stórveldið á Anfield Road en
hætti óvænt sumarið 1974.
fjölmiðla. En sigurgangan hélt
áfram fyrst í stað. Liðið varð bæði
Englandsmeistari og bikarmeistari
á fyrsta ári Dalglish sem stjóra,
veturinn 1985-86. Óneitanlega
stórglæsileg byijun, og titlarnir
áttu eftir að verða fleiri. Liðið varð
þrívegis Englandsmeistari og tví-
vegis bikarmeistari undir stjóm
Dalglish, en þegar á leið tímabilið
1990-91 var eins og einhver losara-
bragur væri á liðinu. Sumir þeirra
leikmanna sem Dalglish keypti til
félagsins voru ekki taldir í þeim
gæðaflokki, sem Liverpool þyrfti —
þrátt fyrir gott gengi fóru að heyr-
ast raddir þess efnis að hann réði
ekki við verkefnið. En liðið var í
toppbaráttu. Það þótti því engin
smá frétt þegar Dalglish sagði
skyndilega upp starfí sínu, og bar
því við að hann þyldi ekki álagið
sem því fylgdi.
Þetta var eitthvað alveg nýtt fyr-
ir þeim Liverpool-mönnum. Shankly
sagði reyndar upp á sínum tíma,
en samt... Paisley tók þá við geysi-
lega góðu búi, en nú var staðan
einfaldlega ekki jafn góð. Þrátt fyr-
ir velgengni var farið að hrikta í
stoðum stórveldisins.
Árum saman höfðu umsjónar-
menn liðsins keypt leikmenn mjög
viturlega, endumýjunin var nokkuð
stöðug og jöfn. Og svo merkilegt
sem það nú var, virtust leikmenn
nánast undantekningarlaust út-
bmnnir þegar þeir fóm frá Liverpo-
ol. Það var eins og kraftar þeirra
hefðu verið nýttir til hins ýtrasta
og þeir síðan seldir á hárréttu
augnabliki. Paisley var snillingur í
því að púsla saman liði; „endurnýja"
viturlega og náði ætíð að halda liðs-
heildinni fírnasterkri. Keðja er aldr-
ei sterkari en veikasti hlekkurinn
og líklega er óhætt að halda því
fram að sumir hlekkirnir í keðju
Dalglish hafí hreinlega ekki verið
nógu sterkir. Það var því, eins og
fyrr segir, farið að hrikta í stoðum
stórveldisins þegar Souness tók við
í apríl 1991. Hann var fyrirliði liðs-
ins um tíma á velgengnisárunum;
farsæll leiðtogi og góður leikstjórn-
andi á miðjunni. Souness var seldur
til Sampdoria á Ítalíu sumarið 1984
og tók við stjórn Glasgow Rangers
í Skotlandi eftir að hann kom heim.
Þar var hann við störf þegar Liv-
erpool bar víurnar í hann, og fyrir-
liðinn fyrrverandi svaraði kallinu.
Þegar Souness tók við, var haft
eftir honum að það eina sem hann
þyrfti að gera væri að losa félagið
við nokkra leikmenn og kaupa
nokkra í staðinn, og skapa á ný það
sem alltaf hefði verið til staðar:
mikla tilfinningu leikmanna til fé-
lagsins. En starfið reyndist ekki svo
auðvelt, og Souness tók upp sömu
starfsaðferðir og hann hafði beitt
hjá Rangers. Keypti hvern leik-
manninn á fætur öðrum fyrir háar
fjárhæðir; leikmenn sem sumir eru
þegar farnir frá félaginu á ný og
aðrir virðast á leiðinni.
Mistök
Einn þeirra sem Souness keypti,
og sá dýrasti, var Dean Saunders
frá Derby. Fýrir hann greiddi Liv-
erpool 2,9 milljónir punda — um
290 milljónir ISK — en tæpum
tveimur árum síðar var hann seldur
Bob Palsley tók við af Shankly og
gerði Liverpool að sigursælasta liði í
sögu enskrar knattspymu.
til Aston Villa fýrir 2,2 millj. punda.
Honum gekk ekki sérlega vel hjá
Liverpool en hefur verið iðinn við
að skora fýrir Aston Villa — en
fróðir menn telja þó að það hafí
ekki verið mistök hjá Souness að
selja hann heldur hafí það verið
stór mistök að kaupa hann! Saund-
ers sé leikmaður sem henti einfald-
lega ekki leikstíl Liverpool. Einn
þeirra sem tala á þessum nótum
er áðumefndur Mark Lawrenson,
sem var reyndar framkvæmdstjóri
Oxford þegar Saunders lék með lið-
inu fyrir nokkrum árum.
Souness hefur og verið gagn-
rýndur fyrir að kaupa suma leik-
menn dýru verði en nota þá svo lít-
ið eða í stuttan tíma og selja mjög
góða leikmenn, þar á meðal Steve
Staunton og Ray Houghton, sem
báðir fóru til Aston Villa, eins og
Saunders. Souness hefur reyndar
haldið því fram að Houghton hafi
viljað fara og þar sem hann hafí
verið orðinn þrítugur og Villa verið
reiðubúið að borga 925.000 pund
fyrir hann hefði það verið viturlegt
að selja. Þetta eru rök sem verður
að hlusta á því Souness er — og
það má alls ekki gleymast — fyrsti
stjórinn hjá Liverpool í 30 ár sem
verður að afla fjár með þessum
hætti til að geta keypt leikmenn.
Souness varð fjórum sinnum
enskur meistari undir stjórn Pais-
leys á sínum tíma, og þekkir vel
alla innviði félagsins. Hann er mað-
ur sem vill á margan hátt fara eig-
in leiðir; þess vegna voru margir
fljótir til að gagnrýna hann þegar
illa fór að ganga — segja hann
vera að breyta liðinu eftir eigin
höfði, en Souness blæs á slíkar út-
skýringar. „Ég segi sömu hlutina
við mína menn nú og sagðir voru
við mig þegar ég var að spila, þann-
ig að ég veit að þeir eru réttir."
Hann leggur síðan áherslu á að það
sé hvemig leikmennirnir bregðist
við, sem skipti máli. Þar virðist
hundurinn einmitt grafinn um þess-
ar mundir; leikmennirnir, sem
margir hveijir eru „stjömur“,
standa einfaldlega ekki undir þeim
væntingum sem til þeirra em gerð-
ar þegar inn á völlinn er komið.
Baráttan er mikil í ensku knatt-
spyrnunni, og þeir sem standa í
eldlínunni í dag virðast ekki nógu
harðir af sér. Hverju um er að kenna
er svo spurning sem vert er að velta
fyrir sér. Leikmenn liðsins virðast
sumir hveijir mjög taugaóstyrkir
þegar komið er út á völlinn og
spurning hvort Souness hafi tekið
þá á taugum á einhvern hátt.
Sú spurning hvort Souness nær
Liverpool-skútunni á siglingu á nýj-
an leik er stór. Margir bíða spennt-
ir eftir svarinu, en einu geta áhang-
endur Liverpool glaðst yfir. Liðið
þykir þrátt fyrir allt leika góða
knattspyrnu. Énn er hugsað um að
láta knöttinn ganga manna á milli
með skipulegum hætti, nokkrir ung-
ir leikmenn hafa fengið að spreyta
sig vegna meiðsla annarra og
standa sig vel þó reynsluna vanti
enn. Því þykjast menn sjá von til
þess að endurreisnin takist. En
hvort leiðin liggur aila leið á topp-
inn þorir ef til enginn að spá um
strax.
ÚTSALA - ÚTSALA - ÚTSALA
HEFST MÁNUDAGINN 25. JANÚAR KL. 9
PARÍSARbúðin
Austurstræti 8, sími 14266.
VSJáLFSTJEÐISFLOKKURINN
Húsvíkingar og nágrannar!
Almennur stjórnmálafundur verður haldinn í Félags-
heimili Húsavíkur þriðjudaginn 26. janúar nk. kl.
20.30. Frummælendur verða formaður Sjálfstæðis-
flokksins, Davíð Oddsson, forsætisráðherra, og Hall-
dór Blöndal, landbúnaðar- og samgönguráðherra.
Almennar umræður og fyrirspurnir.
Allir velkomnir.
Sjálfstæðisflokkurinn.
UTSALA
ÚTSALA ÚTSALA
ÚTSALA ÚTSALA ÚTSALA
ÚTSALA ÚTSALA ÚTSALA ÚTSALA
ÚTSALA ÚTSALA ÚTSALA ÚTSALA
Á ntorgun erlokadagur útsöiunnar
Eí\í\ MEIRIAFSLÁTTVR
Öll brjóstahöld á 1.000 kr.
Allar buxur á 500 kr.
Allur náttfatnaður á 1.000 kr.
Hleðslur afh löður & hleð slutœki
Hleðslurafhlöður
spara!
- 800 til 1100 hleðslur á rafhlöðu!
Hjá okkurfœrðu einnig Alkaline rafhlööur á
verÖi venjulegrar rafhlöðu.
SAflYO
iþ
Heimilistæki hf
SÆTÚNI8 SfMI 691515 ■ KRINGLUNNISIMI6915 20