Morgunblaðið - 30.01.1993, Side 7

Morgunblaðið - 30.01.1993, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JANUAR 1993 7 Stóðhesturinn Eðall frá Hólum seldur til Danmerkur Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson Fékk háa einkunn Eðall frá Hólum fékk 8,16 í einkunn á sýningu stóðhestastöðvarinnar 1990, knapi á honum var Eiríkur Guðmundsson. Verðið hef- ur lækkað um milljón _______Hestar Valdimar Kristinsson Stóðhesturinn Eðall frá Hól- um var í vikunni seldur til Dan- merkur á ellefu hundruð þús- und krónur. Eðall var þriðji hæst dæmdi stóðhesturinn í 5 vetra flokki á Landsmótinu sem haldið var á Vindheimamelum 1990. Hlaut hann í einkunn 8,16, 7,95 fyrir byggingu og 8,37 fyrir hæfileika. Hann er undan Feyki 962 frá Hafsteins- stöðum og Eldey 5477 frá Hól- um en bæði hafa hlotið fyrstu verðlaun sem einstaklingar og Feykir hefur einnig hlotið fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi. Kristinn Guðnason, stjórnar- maður í Hrossaræktarsambandi Suðurlands, sem er seljandi hests- ins, sagði að enginn áhugi hafi verið fyrir hestinum og benti á að síðastliðið. sumar hafí aðeins komið innan við 150.000 á hestinn í folatolla en vinsælir stóðhestar geta auðveldlega skilað inn 7 til 8 hundruð þúsundum króna. Að- eins ein deild innan Hrossarækt- arsambandsins var búin að panta hestinn fyrir næsta sumar og sagði Kristinn enga tryggingu fyrir því að fleiri en 10 til 15 hryssur hefðu komið undir hann. „Þetta er sorgarsaga, að Eðall skuli ekki vera notaður meir en raun ber vitni,“ segir Kristinn, „það er eins og ekki sé hægt að stöðva það þegar niðurrifsraddir fara í gang og nú hefur Eðall orðið fyrir barðinu á slíkum rógi.“ Eðall var keyptur fyrir 2 millj- ónir króna 1990 þannig að Hrossaræktarsamband Suður- lands tapar yfir milljón króna á hestinum. Kaupandinn er John Siiger Hansen frá Danmörku en hann hefur haft með höndum umfangsmikla ræktun á Jótlandi og verið með marga stóðhesta í takinu og þar á meðal Aspar frá Sauðákróki', Ljóma frá Björk, Þjálfa frá Keldudal, Storm frá Vindási og Hagalín frá Lækjar- móti. Auk kaupverðsins þarf John Siiger að greiða 10% eða um 300 þúsund krónur í Stofnverndarsjóð þar sem lágmarksverð fyrir svo hátt dæmdan hest er 3 milljónir króna. Þá þarf að greiða ein- hverja tolla í Danmörku og með flutningskostnaði má gera ráð fyrir að heildarverð hestsins kom- inn til Danmerkur verði á bilinu 1,5 til 2 milljónir króna. Hesturinn er ekki farinn úr landi og hafa innlendir aðilar möguleika á að ganga inn í kaupin ef einhveijir telja óbætanlegan skaða að hest- urinn fari úr landi. 40% minni bók- lestur ungmenna BÓKLESTUR ungmenna var 40% minni árið 1991 heldur en árið 1985. „Hlutfall þeirra, sem grípa sjaldan eða aldrei til bókar, stækkar hægt og bítandi. Þessi hópur mun eiga erfiðara með að temja sér bóklestur á fullorðinsárum og hugsanlega venst hann einnig af dagblaðalestri," segir Þorbjörn Broddason dósent i nýjasta tölublaði Skímu, málgagni móðurmálskennara. í 3. tölublaði 15. árgangs, 1992 Skímu er grein eftir Þorbjöm Broddason, .jMinnkandi bókhneigð ungmenna." I greininni skýrir Þor- bjöm m.a. frá niðurstöðum kannana á fjölmiðlanotkun og bóklestri ung- menna í grunnskólum á árabilinu 1968-1991. Þar kemur m.a. fram börn og unglingar á aldursbilinu 9-15 ára vom spurð eftir fjölda bóka sem þau hefðu lesið síðustu 30 dagana að frátöldum skólabókunum. Arið 1968 var meðalijöldi bóka sem ung- menni í Reykjavík, Akureyri og Vest- mannaeyjum, lásu 4,0. Árið 1985 var þessi tala 4,7 en árið 1991 var hann 2,8 bækur. Hlutfall þeirra sem lásu enga bók hafði frá 1968 til 1991, hækkað úr 11% í 16%, en hinsvegar hafði hlut- fall þeirra sem lásu 10 bækur eða fleiri lækkað úr 10% í 6%. Þorbjörn Broddason segir niður- stöðurnar gefa að sínu mati óyggj- andi vísbendingu um mjög minnk- andi bóklestur íslenskra ungmenna á 9. áratugnum. „Líklega er óhætt að segja að þær staðfesti verstu grunsemdir bölsýnna spámanna þar að lútandi. Ef við lítum einungis á breytinguna milli 1985 og 1991 þá táknar hún hátt í 40% fækkun les- inna bóka til jafnaðar. Og fátt bend- ir til þess að skýringin liggi í því að ungmennin hafi snúið sér að lestri færri og þyngri bóka en áður,“ segir greinarhöfimdur. Skjánotkun tvöfaldast „Skjánotkun", þ.e. vikuleg sjón- varps- og myndbandanotkun hefur rúmlega tvöfaldast; var árið 1968 10 klst., árið 1985 16 klst. og árið 1991 21 klst. Ungmenni minnka mjög sjónvarpsnotkun sína þegar kemur að gelgjuskeiði en þá dregur einnig mjög úr bóklestri. Þorbjörn Broddason bendir á að athafnir sem tengjast foreldrahúsum láti undan síga á þessu aldurskeiði. Og sjón- varpsnotkun og bóklestur sé hvort tveggja dæmigert heimilisatferli. Greinarhöfundur bendir á að þótt unglingur láti af fijálsum bóklestri að mestu þá sé hann ekki endilega hættur bóklestri, því skólinn geri vaxandi kröfur og einnig geti við- komandi einstaklingur snúið sér aft- ur til bókarinnar síðar á ævinni. En hitt sé brýnt áhyggjuefni: „Þær óháttbundnu sveiflur í bókhneigð milli kynslóða, sem blasa við af þeim gögnum sem hér hafa verið gerð að umtalsefni, eru á hinn bóginn tákn um þjóðfélagsbreytingar og geta ver- ið fyrirboði varanlegrar röskunar í menningar- og félagslífi. Hlutfall þeirra, sem grípa sjaldan eða aldrei til bókar, stækkar hægt og bítandi. Þessi hópur mun eiga erfiðara með að temja sér bóklestur á fullorðinsá- rum og hugsanlega venst hann einn- ig af dagblaðalestri." Raforkuverð hjá Orku- búi Yestfiarða Verðlækk- uneftir tvögóð vatnsár -segir Kristján Haraldsson for- stjóri Orkubúsins ÁSTÆÐUR þess að Orkubú Vestfjarða lækkar almenna taxtann hjá sér um 10% nú er tvö góð vatnsár í röð. Kristján Haraldsson forstjóri Orkubúsins segir að af þess- um sökum hafi þeirra eigin orkuframleiðsla aukist mikið og að ákveðið var að neytend- ur nytu góðs af þessu. Eigin orkuframleiðsla nemur nú um þriðjungi af orkunotun- inni á veitusvæði Orkubúsins. Rekstur Orkubús Vestfjarða hefur verið mjög erfiður á undan- förnum árum eða allt fram til árs- ins 1989. Þá gripu stjórnvöld til þess ráðs að aflétta lánum af Orkubúinu, fyrir um 600 milljónir króna á verðlagi þess árs, og seg- ir Kristján að þær ráðstafanir ásamt hagræðingu í rekstri Orku- búsins gefi vonir um að lækkun á hinum almenna taxta verði viðvar- andi. Aðspurður segir Kristján að nýtilkomin hækkun Landsvirkjun- ar um 4% á taxta sínum muni ekki hafa áhrif á þessa lækkun til neytenda á Vestfjörðum. „Hækk- un Landsvirkjunar mun kosta okk- ur um 9 milljónir króna á ári en við höfum ákveðið að taka þá hækkun á okkur þannig að hún hefur ekki áhrif á verð til neyt- enda okkar,“ segir Kristján. 20-50% AFSLÁTTUR . Okkar árlega stórútsala á pottaplöntum er hafin Lífgið upp á drungalega þorradagana. Mikið úrval af glæsilegum blómum. Fíkus Gullpálmi jómaiykill (prímúla) Alparós Flaueisfjöður r f Iðarlilja (stór) Havalfikus

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.