Morgunblaðið - 30.01.1993, Page 28
28
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JANÚAR 1993
10 milljóna króna viðgerð á Twin Otter vél Flugfélags Norðurlands
Viðgerð lokið
fyrir sumarið
VIÐGERÐ hefur staðið yfir
á Twin Otter flugvél Flugfé-
lags Norðurlands síðustu
vikur, en vélin skemmdist
nokkuð mikið er hún fór út
af flugbrautinni í Ólafsfirði
í lok ágúst á síðasta ári.
Sigurður Aðalsteinsson, fram-
kvæmdastjóri Flugfélags Norður-
lands, sagði að áhersla væri lögð á
að ljúka viðgerðinni fyrir sumarið.
„Við stefnum að því að ljúka þessu
verki í vor, því við þurfum virkilega
á vélinni að halda fyrir sumarið,"
sagði Sigurður.
Tlu milljóna tjón
Tjón sem varð á vélinni er metið
á um tíu milljónir króna, en miklar
skemmdir urðu á neti vélarinnar,
m.a. brotnaði nefhjólið af henni.
Sigurður sagði að félagið hefði
þokkaleg verkefni um þessar mund-
ir, en m.a. flýgur það áætlunarflug
fyrir Grænlandsflug einu sinni í viku
milli Keflavíkur og Kúlúsúk og geng-
ur það ágætlega. Sigurður sagði
fyrirsjáanlegt að lítils háttar sam-
dráttur hefði orðið á áætlunarferðum
félagsins á liðnu ári, en að öðru leyti
væri ekki farið að skoða nákvæm-
lega hvemig rekstur síðasta árs kom
út.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Unnið að viðgerð
Vilhjálmur Baldursson, flugvirki hjá Flugfélagi Norðurlands, hefur að undan-
förnu unnið að viðgerð á Twin Otter vél félagsins, sem skemmdist þegar
hún fór út af brautinni í Ólafsfirði seint á síðasta ári.
Framkvæmdaáætlun í gatnagerð upp á 121 milljón króna
Ný Strandgata og bíla-
stæði í miðbæ á dagskrá
Búkollur
Nokkrir af þátttakendum í leikritinum Plógi og stjörnum sem ieikfélagið
Búkolla í S-Þingeyjarsýslu fmmsýnir eftir helgi.
Búkolla frumsýnir
Plóg og stjömur
LEIKFÉLAGIÐ Búkolla í Suður-Þingeyjarsýlu frumsýnir
á þriðjudagskvöld, 2. febrúar, leikritið Plóg og stjörnur
eftir Sean O’Casey. Félagið var stofnað á síðasta ári, en
æfingar á þessu verki hófust upp úr miðjum nóvember
sl. undir leikstjórn Sigurðar Hallmarssonar. Sýnt er í
Ýdölum í Aðaldal.
Verkið hefur aðeins tvisvar verið
sett á sviði áður hér á landi, hjá
Leikfélagi Reykjavíkur árið 1971
og árið 1978 hjá Leikfélagi Vest-
mannaeyja.
Sean O’Casey er einn virtasti
leikritahöfundur sem skrifað hefur
á enska tungu á þessari öld, en
meðal verka hans í íslenskri þýð-
ingu má nefna „Júnó og páfugl-
inn“.
Vakti athygli
Leikritið fjallar að meginhluta
til um páskauppreisnina á íriandi
árið 1916 og um líf írsks alþýðu-
fólks og vakti það mikla athygli
er það var frumsýnt í Dyflinni árið
1926. Gamansemi höfundar og
persónusköpun leiftrar gegnum al-
vöruþunga atburðanna og hefur
gert verkið svo vinsælt sem raun
ber vitni.
Alls koma 17 leikendur fram í
sýningunni, en með helstu hlutverk
fara Ragnar Þorsteinsson, Jóhann-
es Haraldsson, Baldur Kristjáns-
son, Vilhelmína Ingimundardóttir,
Ásdís Þórsdóttir og Aðalbjörg Sig-
urðardóttir.
Önnur sýning á verkinu verður
á fimmtudagskvöld, 4. febrúar.
ALLS verður 121 milljón króna varið til gatnagerðar á vegum
Akureyrarbæjar á þessu ári, en bæjarráð fjallaði um fram-
kvæmdaáætlun vegna gatnagerðar á fundi á fimmtudag og
kemur hún til afgreiðslu á fundi bæjarstjórnar á þriðjudag.
Byijunarframkvæmdir á umfangsmiklum endurbótum á frá-
veitukerfi bæjarins eru stærsti einstaki liðurinn samkvæmt
áætluninni, en auk þess skera sig úr þrjú stór verkefni, nýr
áfangi í Giljahverfi, endurbygging Strandgötu og gerð bíla-
stæða í miðbænum.
Bílastæði í miðbæ
Samkvæmt áætluninni fara 4,8
milljónir til umferðarmála og fer
tæpur helmingur upphæðarinnar í
breytingar á gatnamótum Hörgár-
brautar og Hlíðarbrautar og 1 millj-
ón vegna stöðumæla. Hvað varðar
endurbyggingu gatna sem samtals
verður varið tæpum 20 milljónum
króna til, er gerð bílastæða í mið-
bænum austan Hafnarstrætis lang-
stærsta verkið eða upp á 10,5 millj-
ónir króna. Þá verður gerður vegur
við nýbyggingu Blómahússins við
Hafnarstræti upp á 5,3 milljónir
króna og fyrirhugað er að laga
Skíðastaðaveg fyrir 2,6 milljónir
króna.
Strandgata endurbyggð
Um 24 milljónum króna verður
varið til að gera nýjar götur í bæn-
um, þar af fer tæp milljón í nýja
aðkomu að Gróðrarstöð. Tæpum 12
milljónum króna verður varið til að
leggja nýjar götur í Giljahverfi, III.
áfanga, og rúmum 11 milljónum í
endurbyggingu Strandgötu. Sigurð-
ur J. Sigurðsson, formaður bæjar-
ráðs, sagði að ætlunin væri að
byggja götuna upp sunnan núver-
andi götustæðis og þá væri einnig
hugmyndin að gera gönguleið með-
fram fjörukantinum.
Stærsti einstaki liðurinn í fram-
kvæmdaáætluninni er vegna fyrir-
hugaðra endurbóta á fráveitukerfi
bæjarins og til byijunarfram-
kvæmda á þessu ári verður varið
tæpum 33 milljónum króna.
Brú yfir Glerá
Götur verða malbikaðar í sumar
fyrir tæpar 14 milljónir, m.a. hluti
Súluvegar, Krossanesbrautar, við
Vestursíðu, Kiðagil, Tröllagil og
Drekagil. Þá verða gangstéttir mal-
bikaðar fyrir rúmar sjö milljónir,
m.a. í Gilja- og Síðuhverfí og einnig
langur kafli við Hjalteyrargötu.
Aætlað er að tæpar 14 milljónir
króna fari í ýmis verk, m.a. fímm
milljónir í gerð gangstíga og um 3,5
milljónir til að byggja brú yfir Glerá
sem einkum er ætluð hestamönnum.
Óvenjugóð verkefnastaða hjá Slippstöðinni Odda
Óvæntar bilanir og fyr-
irfram bókuð verkefni
- segir Sigurður Ringsted forstjóri
MIKIll er um verkefni hjá Slippstöðinni Odda um þessar
mundir, eða óvenjumikið miðað við árstíma. Yfirleitt er lítið
að gera á þessum árstíma, en fyrstu mánuðir ársins hafa
alla jafna verið daufastir í skipaviðgerðum.
Sigurður Ringsted forstjóri Slipp-
stöðvarinnar Odda sagði að vanalega
væri þessi árstími fremur lélegur
verkefnalega hjá fyrirtækinu, en nú
brygði svo við að nokkur stór verk-
efni væru fyrir hendi.
„Að sumu leyti er um tilviljun að
ræða, skipin bila og koma þá inn til
viðgerðar. Það má segja að þetta
sé svona í bland óvæntar bilanir og
fyrirfram bókuð verkefni," sagði
Sigurður.
Eyfirsk
matvæli
gjaldþrota
EYFIRSK matvæli voru í gær
úrskurðuð gjaldþrota í Héraðs-
dómi Norðurlands eystri, en
úrskurði hefur tvívegis verið
frestað.
Fyrirtækið hefur starfað síð-
ustu ár og framleidd ýmis konar
matvæli, s.s. pizzur og hrásalat.
Það var með starfsemi að Ránar-
götu 10 á Akureyri þar sem einn-
ig var rekin verslun.
Hreinn Pálsson lögfræðingur
hefur verið skipaður skiptastjóri.
----»44-----
Ishokkí
á skauta-
svellinu
EINN leikur verður í íslands-
mótinu í íshokki um helgina,
þegar Skautafélag Akureyrar
og Skautafélag Reykjavíkur
eigast við á skautasvellinu á
Akureyri í dag kl. 14.
Skautafélag Reykjavíkur hefur
forystu á mótinu og Akureyring-
ar fylgja fast á eftir, en þeir urðu
íslandsmeistarar á síðasta ári. í
fyrri leik þessara liða sigraði SR
með 5 mörkum gegn 4 Akur-
eyringa.
Þar sem leikurinn verður á
opnunartíma fyrir almenning
verður skautasvellið opnað eftir
leikinn um kl. 17 og verður opið
fram til kl. 22 um kvöldið.
----»■♦ ♦---
Stuttmyndin
Skotinn í skónum
Aukasýn-
ingarvegna
mikillar
aðsóknar
STUTTMYNDIN Skotinn í
skónum sem sýnd hefur verið
í 1929 i vikunni hefur notið
mikilla vinsælda og eru áhorf-
endur orðnir nær tvö þúsund
talsins.
Vegna mikillar aðsóknar hafa
framleiðendur myndarinnar
ákveðið að efna til aukasýning á
myndinni um helgina, sýnt verður
kl. 21 á laugardags-, sunnudags-,
og mánudagskvöld og einnig kl.
17 á sunnudag.
Sævar Guðmundsson leikstjóri
myndarinnar sagði að viðtökurnar
hefðu komið þægilega á óvart og
menn væru himinlifandi.
Stuttmyndin Skotinn í skónum.
er 27 minútna löng, en Filmu-
menn, sem gerðu myndina hafa
m.a. gert áður myndina Spurning
um svar og Stillta Austrið, sem
einnig hafa fallið í kramið hjá
áhorfendum.
Að loknum sýningum á Akur-
eyri ætla Filmumenn suður með
mynd sína og verður hún sýnd i
framhaldsskólum á höfuðborgar-
svæðinu.
----♦ ♦ ♦---
Glerárkirkja
Biblíulestur og bænastund
verður í Glerárkirkju kl. 13 á
laugardag, 30. janúar. Fjöl-
skylduguðsþjónsta verður kl. 11
f.h. á sunnudag, 31. janúar og
messa kl. 14 sama dag. Æsku-
lýðsfundur verður haldinn kl.
17.30 á morgun, sunnudag.