Morgunblaðið - 30.01.1993, Page 47
MORGUNBLAÐÍÐ
' ■ inoM\
IÞRÓTTIR LAUGARDAGUR 30. JANÚAR 1993
47-
FOLX
■ VALSSTÚLKUR eru óánægð-
ar með að hafa ekki fengið leik sín-
um gegn Selfyssingum í 1. deild
í dag frestað. Fimm stúlkur í liði
þeirra eru í 3. flokki og taka þátt
í túmeringu íslandsmóts 3. flokks
um helgina. Selfyssingar neituðu
að breyta leiktíma, en Haukar báðu
Fram um breytingu á sömu for-
sendum og fór sá leikur fram í
gærkvöldi eins og um var samið.
■ ÁTTA leikmenn U-16 ára
landsliðs Albaníu í knattspyrnu
óskuðu hælis sem pólitískir flótta-
menn í Portúgal í gær. Þeir töpuðu
3:1 fyrir heimamönnum á miðviku-
dagskvöld í forkeppni EM. Strák-
arnir fetuðu þar með í fótspor 14
jafnaldra sinna, sem urðu eftir í
Þýskalandi fyrir skömmu.
■ BELGÍSKA liðið Brugge verð-
ur að leika undanúrslitaleikinn gegn
Glasgow Rangers í Evrópukeppni
bikarhafa fyrir luktum dyrum
vegna óláta áhorfenda. UEFA gerði
félaginu einnig að greiða 40.000
svissneska franka í sekt.
■ ATLETICO Madrid var gert
að greiða 50.000 svissneska franka
vegna þess að félagið hleypti Paulo
Futre ekki í vináttulandsleik með
Portúgal.
URSLIT
UBK-UMFN 116:114
Digranes, úrvalsdeildin í körfuknattleik,
fostudaginn 29. janúar 1993.
Gangur leiksins: 0:2, 13:8, 23:14, 36:21,
40:32, 49:48, 56:48, 62:57, 66:64, 74:75,
86:86, 99:93, 103:101, 112:114, 116:114.
Stig UBK: Joe Wright 67, David Grissom
14, Bjöm Hjörleifsson 10, Brynjar Karl
Sigurðsson 8, Hjörtur Amarsson 8, Egill
Viðarsson 7, Ingvi Jökull Logason 2.
Stig UMFN: Jóhannes Kristbjömsson 30,
Teitur Örlygsson 21, Rondey Robinson 20,
Ástþór Ingason 19, Rúnar Ámason 15,
Gunnar Örlygsson 9.
Áhorfendur: 140.
Dómarar: Bergur Steingrímsson og Brynj-
ar Þorsteinsson vora slakir og óöraggir.
1. deild karla:
Þór-ÍA.......................96:104
ÍS-Höttur....................74: 76
Handknattleikur
Haukar- Fram.................9:17
íþróttahúsið við Strandgötu, 1. deild kvenna
í handknattleik.
Mörk Hauka: Harpa Melsted 3, Ragnheið-
ur Guðmundsdóttir 2, Ragnheiður Júlíus-
dóttir 1, Kristín Konráðsdóttir 1, Hulda Rún
Svavarsdóttir 1, Ema Amadóttir 1.
Mörk Fram: Díana Guðjónsdóttir 3, Inga
Huld Pálsdóttir 3, Hafdís Guðjónsdóttir 2,
Steinunn Tómasdóttir 2, Þórann Garðars--
dóttir 2, Knstín Ragnarsdóttir 2, Margrét
Blöndal 1, Ólavía Kvaran 1, Ósk Víðisdótt-
ir 1.
■Staðan í leikhléi var 5:7 fyrir Fram. Lið-
in spiluðu góðan vamarleik og markvarslan
var góð. í síðari hálfleik gerðu Haukastúlk-
ur ekki mark fyrstu 20 mínútumar og þar
með vora vonir þeirra orðnar að engu.
2. deild karla:
KR-ÍH........................30:23
Knattspyrna
Holland
Fortuna Sittard - Feyenoord....0:1
- (Paul Jansen sjálfsm. 10.).
KORFUKNATTLEIKUR
Joe Wright gerði 67 stig fyrir Blika þegar þeir unnu Njarðvíkinga í gær-
kvöldi. Þetta var annar sigur Breiðabliks á keppnistímabilinu.
Joe Wright
með 67 stig
fyrirUBK
UMFN á litla von um að komast í úrslitakeppnina
Stefán
Stefánsson
skrífar
BREIÐABLIK vann Njarðvík-
inga 116:114 í úrvalsdeildinni f
gærkvöldi og var þetta annar
sigur Blika á tímabilinu. Þeir
lögðu Borgnesinga að velli 6.
nóvember. Njarðvíkingar eiga
nú litla von um að komast í
úrslitakeppnina því Haukar eru
12 stigum á undan þeim.
Blikar hittu körfuna vel frá upp-
hafi og náðu tíu stiga forskoti
sem þeir héldu fram undir leikhlé
á meðan alla baráttu
vantaði í Njarðvík-
inga. Munaði mestu
fyrir Blika að David
Grissom var grimm-
ur í fráköstunum og Joe Wright
hitti mjög vel en þegar Suðumesja-
menn lögðu áherslu á að stöðva
skotin frá honum, átti hann vandað-
ar stoðsendingar sem gáfu stig.
Með mikilli baráttu náðu Njarð-
víkingar að komast yfír á sjöundu
mínútu síðari hálfleiks en þá könn-
uðust leikmenn Breiðabliks við sig
og tóku við forystunni þar til Njarð-
víkingar komust aftur yfír þegar
hálf mínúta var til leiksloka. Joe
Wright jafnaði þá úr vítaskotum
en Ronday Robinson hafði mögu-
leika á að gera út um leikinn fyrir
gestina. Hann fékk bónus vítaskot
þegar 11 sekúndur voru eftir en
hitti ekki svo Blikar náðu knettin-
um. Brotið var á Joe Wright þegar
5 sekúndur voru eftir og hann átti
ekki í vandræðum með að skora
úr sínum vítaskotum og gera út um
leikinn því Njarðvíkingar náðu ekki
að nýta sér lokasekúndurnar.
„Þetta var baráttu út í gegn. Við
döluðum þama um tíma þegar við
vorum yfír því það er svo langt síð-
an við höfum verið yfir að við vomm
búnar að gleyma hvað á að gera
þá. Við erum ekki fallnir enn og
ætlum að ná KR því það era enn
nóg af stigum í pottinum," sagði
David Grissom sem stjómaði leik
Breiðabliks. Grissom gerði glæsi-
lega körfu þegar Joe Wright sendi
boltann upp yfír körfuna og David
tróð viðstöðulaust.
Eins og fyrr segir átti Joe Wright
stórleik með 67 stig. Hann nýtti
23 af 41 skoti en aðrir leikmenn
reyndu samtals 40 skot.
„Við fengu hugarfarslegt áfall
þegar Haukar unnu Keflvíkinga og
gerðu út um tölfræðilega möguleika
okkar á úrslitakeppninni. Ekki
skemmir fyrir Blikum að þeir era
með besta erlenda leikmanninn á
íslandi í dag, Joe Wright, sem er
iilstöðvanlegur. Annars hittu þeir-
allir mjög vel,“ sagði Jóhannes
Kristbjörnsson en hann sýndi mest-
an lit í liði Njarðvíkinga. Rúnar
Ámason átti góða spretti en aðrir
voru daufír.
KNATTSPYRNA
Lárus þjálf-
ar Víkinga
Láras Guðmundsson hefur
verið ráðinn þjálfari meist-
araflokks Víkings fyrir næsta
sumar. Láras er ekki ókunnug-
ur hjá félaginu því hann lék
með yngri flokkum þess og
meistaraflokki þar til hann
gerðist atvinnumaður með Wat-
erschei í Belgíu árið 1982 og
varð bikarmeistari með liðinu
sama ár. Hann lék í Belgíu til
ársins 1984 er hann fór til
þýska liðsins Bayer Uerdingen
og með liðinu varð hann bikar-
meistari árið 1985 og næsta
keppnistímabil á eftir varð hann
markahæsti leikmaður liðsins.
Atvinnumannaferlinum lauk
hann síðan hjá Kaiserslautem
leiktímabilið 1987-88.
HANDKNATTLEIKUR
Baráttan byijar á ný
HANDKNATTLEIKUR / HSI
Framkvæmdastjór-
anum var sagt upp
Framkvæmdastjóra HSÍ var sagt
upp störfum í gær eftir að
meirihluti framkvæmdastjórnar
hafði tekið ákvörðun þar um á
stjórnarfundi. Formaður HSÍ sagði
við Morgunblaðið að ákvörðunin
ætti sinn aðdraganda, en fram-
kvæmdastjórinn sagði að uppsögnin
hefði komið mjög á óvart, þar sem
starfsamningurinn hefði verið end-
urnýjaður í nóvember s.l. og þá
engar athugasemdir við störf hans
gerðar. _
Jón Ásgeirsson, formaður HSÍ,
sagði við Morgunblaðið í gærkvöldi
að Gunnar Kr. Gunnarsson, sem tók
við fullu starfi framkvæmdastjóra
í mars í fyrra, hefði staðið sig að
mörgu leyti vel og hann hefði ekk-
ert uppá hann að klaga.
„Þetta er liður í endurskipulagn-
ingu hjá okkur á allri starfseminni.
Við viljum gjaman breyta um
áherslur, auka þjónustuþátt skrif-
stofu HSÍ og breyta ýmsu í sam-
bandi við reksturinn."
Gunnar vildi ekki tjá sig um
málið, þar sem honum hafði ekki
verið gerð grein fyrir ástæðum upp-
sagnarinnar að öðru leyti en að hún
væri liður í endurskipulagningu og
sparnaði.
HEIL umferð verður leikinn í
1. deild karla í handknattleik á
morgun. Næsta umferð fer
fram á miðvikudaginn en síðan
verður gert hlé á deildarkeppn-
inni fram yfir HM í Svíþjóð.
Leikimir á morgun eru allir mikil-
vægir enda ekki nema sex
umferðir eftir af mótinu og því
hvert stig mikilvægt. Efsta liðið,
Stjaman í Garðabæ, leikur gegn
Fram sem er í neðsta sæti ásamt
HK. Eyjólfur Bragason mun stjóma
Framliðinu í fyrsta sinn, en hann
tók við liðinu nýlega.
í Kaplakrika má búast við spenn-
andi leik þegar KA-menn mæta
FH-ingum. FH er í öðru sæti ásamt
Val, þremur stigum á eftir Stjöm-
unni og má illa við að missa stig
ætli liðið sér efsta sætið og deildar-
meistaratitilinn. KA er langt komið
með að tryggja sig inn í úrslita-
keppnina en það má ekki mikið
bregða útaf hjá liðinu til að það
sitji eftir.
Valsmenn fara til Akureyrar og
leika við Þór. Þórsarar eru í níunda
sæti, þremur stigum frá næsta liði
SKOTFIMI
Skúli Gunnsteinsson og félagar
eru í efsta sæti í deildinni.
og ætla örugglega að selja sig dýrt
til að ná inn í úrslitakeppnina, og
því þurfa þeir helst að krækja sér
i stig gegn Val. Valsmenn eru hins
vegar í toppbaráttunni og vilja
eflaust vera það áfram.
ÍR-ingar fá Hauka í heimsókn í
Seljaskóla. Haukar era í 4. - 5.
sæti ásamt Selfyssingum og það
er því þýðingarmikið fyrir Hafnfirð-
ingana að ná í stig á morgun. ÍR er
í áttunda sæti, á milli Akureyrarlið-
anna. Liðið er einu stigi á eftir KA
og þremur stigum á undan Þór.
Baráttan er hörð á þessum slóðum
og því ætla Breiðhyltingar öragg-
lega að fá bæði stigin.
í Digranesi tekur neðsta liðið,
HK, á móti Selfyssingum, sem léku
til úrslita í fyrra. Baráttan á botnin-
um virðist ekki spennandi en fljótt
skipast veður í lofti og hvert stig
er fljótt að telja. Selfyssingar ætla
örugglega að halda sínu striki óg'
vera meðal efstu liða.
Eftir leikina á miðvikudaginn
verður gert hlé fram til miðviku-
dagsins 31. mars eftir Heimsmeist-
arakeppnina í Svíþjóð sem hefst 9.
mars. Þá eru fjórar umferðir eftir
og mikil barátta frammundan hjá
liðunum, sérstaklega á botninum.
Hannes vann þijár greina^
Hannes Tómasson vann þrjár
greinar á opnu móti í skamm-
byssuskotfimi sem fram fór á veg-
um Skotfélags Kópavogs um síð-
ustu helgi. Árangur Hannesar er
athyglisverður þar sem hann hefur
ekki stundað skotfími nema í
nokkra mánuði.
í keppni í loftskammbyssu hlaut
Hannes 558 stig, Hannes Haralds-
son varð annar með 534 og Eiríkur
Björnsson þriðji með 531 stig. í
staðlaðari skammbyssu hlaut
Hannes 537 stig, Eiríkur varð ann-
ar en íslandsmeistarinn, Hannes
Haraldsson, þriðji. Hannes sigraði
síðan í frjálsri skammbyssu, hlaut
482 stig, Eiríkur varða annar og
Óskar Einarsson þriðji.
Gylfí Ægisson sigraði í keppni
með riffli, hlaut 587 stig en Hannes
Tómasson varð annar.
Mót þetta gefur stig til bikjy^—
meistara íslands 1993.