Morgunblaðið - 17.02.1993, Blaðsíða 1
56 SIÐUR B/C
STOFNAÐ 1913
39.tbl. 81. árg.
MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRÚAR 1993
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Snörp viðbrögð við efnahagstillögum Clintons
Verðfall á hluta-
bréfamörkuðum
New York, Washington. Reuter.
VERÐBRÉF á mörkuðum í Wall Street féllu í verði í gær og
er það rakið aðallega til óvissu en einnig vantrúar á að boðað-
ar aðgerðir Bills Clintons Bandaríkjaforseta, einkum hærri
skattar á fyrirtæki og meirihluta einstaklinga, beri árangur.
Leiðtogar stærstu verkalýðssambanda í Bandaríkjunum lýstu
í gær yfir varfærnislegum stuðningi við hugmyndir Clintons.
Hann mun í dag ræða við fulltrúa meirihluta demókrata á
þingi til að vinna tillögunum brautargengi.
ótvíræðar í Bandaríkjunum og þess
vegna sé alrangt að grípa nú til
örvandi ríkisútgjalda. Þau muni
aðeins valda því að fjárlagahallinn
verði enn óviðráðanlegri. Forsetinn
segir að hagtölur, sem undanfama
mánuði hafa sýnt merki um bata,
gefi ranga mynd af ástandinu.
Sjá frétt á bls. 20.
Dow Jones vísitalan fyrir verð-
bréf í framleiðslugeiranum féll um
82,94 stig í gær eða 2,4% og er
það mesta lækkun á einum degi
síðan 15. nóvember 1991. Var þessi
lækkun túlkuð svo að fjárfestar
óttuðust að skattahækkanir kæmu
niður á bandarískum iðnaði. Eftir
að lækkunin í Wall Street kom á
daginn varð verðfall á þeim mörk-
uðum í Evrópu sem enn vom opnir.
Nánari útlistun í kvöld
Clinton mun kynna þingmönnum
beggja deilda tillögur sínar í kvöld
að íslenskum tíma og embætt-
ismenn í Hvíta húsinu segja forset-
ann íhuga að koma á fyrirspurna-
tíma á þingi að breskri fyrirmynd.
Þá myndu þingmenn fá að spyija
forsetann í þaula um tillögur hans.
Á morgun fer forsetinn í tveggja
daga ferð til nokkurra stórborga til
að reka áróður fyrir hugmyndum
sínum. A1 Gore varaforseti og ýms-
ir ráðherrar Clintons munu einnig
ferðast um landið og reyna að fá
áhrifamenn til að styðja tillögurnar.
Talsmaður repúblikana í öld-
ungadeildinni, Bob Dole, sagði að
þeir vildu samvinnu um að vinna
bug á fjárlagahallanum eins og
Clinton heitir að gera. En Dole sagði
að hvatningarorð forsetans um
„fórnir" mættu ekki merkja í reynd
aukna skattlagningu á millistéttina
og ofþenslu í ríkisbákninu.
Breska tímaritið The Economist
er ósammála hugmyndum Clintons,
segir að horfur á efnahagsbata séu
Reuter
Bókaskattheimtu mótmælt
ÞEGAR eru ýmsar sögur á kreiki um hvaða leiðir breska stjórnin muni
fara til niðurskurðar og tekjuöflunar í fjárlagafrumvarpi sínu sem lagt
verður fram á næstunni. Efnt var til bóka- og blaðabrennu í gær í
London til að mótmæla hugmyndum um að lagður verði virðisaukaskatt-
ur á þessa vöru. Hér sést Neil McRae formaður samtaka tímaritsútgef-
enda vígreifur á Ave Maria Lane en á þessum stað voru bannaðar
bækur brenndar fyrr á öldum.
Samkomulag Rússlandsforseta og forseta þingsins
Fulltrúaþ inginu falið að
leysa stjómlagakreppuna
Moskvu. Reuter.
BORÍS Jeltsín, forseti Rússlands, hvatti til þess í gær að full-
trúaþing landsins kæmi saman til aukafundar í byrjun næsta
mánaðar. Fyrir þingið yrði lagt málamiðlunarsamkomulag
Jeltsíns og þingforsetans, Rúslans Khasbúlatovs, um valda-
hlutföll handhafa ríkisvaldsins, en vonir standa til að það
náist á næstunni.
Jeltsín átti í gær tuttugu mínútna
fund með Khasbúlatov en þeir hafa
deilt um hríð um hlutverk þings og
forseta. Fólu þeir sérstakri nefnd
að komast að samkomuiagi innan
tíu daga. Niðurstaða fundarins var
túlkuð svo að forsetinn tæki póli-
tíska málamiðlun fram yfir þjóðar-
atkvæðagreiðsluna sem boðuð hef-
ur verið 11. apríl næstkomandi. Þá
átti, að kröfu Jeltsíns, að leggja það
í dóm þjóðarinnar hvemig skipta
ætti völdum með greinum ríkis-
valdsins. Haft var eftir Khasbúlatov
að ekki væri búið að hafna hug-
myndinni um þjóðaratkvæða-
greiðslu en þeir hefðu báðir áhyggj-
ur af ólgu sem henni fylgdi.
í yfirlýsingu Jeltsíns sagði að
þangað til fulltrúaþingið hefði sam-
þykkt samkomulag forsetans og
þingforsetans þá myndi fram-
kvæmdavaldið halda áfram að und-
irbúa þjóðaratkvæðagreiðslu. Voru
þessi orð túlkuð svo að rússneski
forsetinn vildi hafa eitthvað í bak-
höndinni ef fulltrúaþingið svæfði
málið.
Reuter
Tapaði lokaskákinni
JUDIT Polgar tapaði í síðustu skákinni gegn Spasskíj en það breytti
því ekki að hún vann einvígið, 5V2-4V2.
Meira afrek að
sigra í Hastings
- segir Polgar eftir einvígið við Spasskíj
„ÉG ER út af fyrir sig ánægð að vinna Spasskíj, og þó, ég
tapaði klaufalega síðustu skákinni. Sást yfir möguleika á að
vinna af honum drottningu í tíunda leik,“ sagði undrabarnið
Judit Polgar í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi, nýkom-
in heim til sín í Búdapest eftir lokaviðureign í skákeinvígi
þeirra Borís Spasskíj á Béke-hótelinu þar í borg.
„Ég er útkeyrð, skákin tók átta
klukkutíma og hann marði mig í
endataflinu. Sigur í einvíginu er
ánægjulegur, ég öðlaðist dýrmæta
reynslu og flestar skákanna voru
nokkuð vel tefldar,“ sagði Polgar
sem er aðeins 16 ára.
Fyrir sigurinn hlaut hún
110.000 dollara, jafnvirði 7 millj-
óna króna, en Spasskíj fékk
90.000 dollara fyrir sinn snúð.
— Og hvernig á að brúka verð-
launaféð?
„Það hef ég ekki hugsað út í,
vonandi gáfulega," sagði hún og
hló við.
Er þetta stærsti sigur þinn á
skákferlinum?
„Nei það tel ég ekki vera. Að
vinna á Hastings-skákmótinu í
Englandi um áramótin tel ég vera
mun meira afrek.“
Eiga konur eftir að skáka
körlunum?
„Ég get ekki haldið því fram
að þær eigi eftir að slá þeim við.
En ég vona það?“
Fischer yrði góð æfing
Hefurðu hug á að tefla við
Bobby Fischer?
„Ég veit það ekki, það er ekk-
ert afráðið í þeim efnum og óvíst
hvort hann hefur áhuga á því. Það
gæti þó orðið góð æfing. Annars
er svæðamót hér í Búdapest í
mars næst á dagskrá hjá mér svo
það verður að bíða.“
Nú hefur þú teflt á íslandi en
heldurðu að það gerist aftur?
„Það vildi ég gjarna, á góðar
minningar þaðan, myndi skoða til-
boð um að tefla þar með jákvæðum
huga,“ sagði unga skákkonan að
lokum.
OPEC-ríkin
Draga úr
framboði
Vínarborg. Reuter.
RÁÐHERRAR OPEC-ríkja kom-
ust að samkomulagi í gær um
að draga úr olíuframboði til að
þess að vinna gegn lækkun olíu-
verðs. „Okkur tókst að afstýra
verðhruni," sögðu ánægðir fund-
armenn í gær.
Samkomulagið í gær fól í sér
minnkun framleiðslu um 1,4 millj-
ónir fata á dag. OPEC-ríkin fram-
leiða nú a.m.k. 25 milljónir fata af
olíu á dag að mati óháðra sérfræð-
inga. Framleiðsla margra ríkja
umfram kvóta sinn hefur leitt til
þess að olíuverð hefur farið lækk-
andi og fatið af Brent norðursjávar-
hráolíu er nú komið niður í u.þ.b.
18 Bandaríkjadali en var 21 dalur
í október. Sérfræðingar höfðu spáð
því að ef tækist að semja um að
fara ekki yfir 24 milljónir fata á
dag þá myndi verðið haldast í 18
dölum.
Kúveit er nú aftur orðið aðili
að framleiðslustjómun OPEC. Full-
trúi Iraka hafnaði samkomulaginu
í gær en það kveður á um að Irak-
ar megi ekki framleiða meira en
400.000 föt á dag. Nú vinna þeir
590.000 föt á dag úr jörðu.
Olía lækkaði heldur í verði í gær
er fréttist af samkomulaginu. Er
það talið til marks um að menn
hafi litla trú á að þáð standist.