Morgunblaðið - 17.02.1993, Síða 16

Morgunblaðið - 17.02.1993, Síða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRÚAR 1993 Ferðaskrifstofa Heimsklúbbs Ingólfs stækkar undir nafninu Príma hf. Fyrsta hnattreisan verður farin í nóvember og gefur kost á að sjá marga fegurstu staði heimsins. Myndin er af höfninni í Sydney með óperuhúsinu fræga í forgrunni. Morgunblaðinu hefur borist eftir- farandi fréttatilkynning frá Ferða- skrifstofunni Prímu hf.: Heimsklúbbur Ingólfs hefur nú starfað sem sjálfstætt fyrirtæki með fullum ferðaskrifstofuréttind- um í rúmt ár, en byggir á ára- langri reynslu Ingólfs Guðbrands- sonar að skipulags- og ferðamálum. Hefur reksturinn gengið með ágæt- um og umfang hans margfaldast á þessum skamma tíma. Þegar séð varð, hvert stefndi með aukninguna og vinsældir Heimsklúbbsins, var ákveðið að breyta rekstrarforminu, gera Heimsklúbbinn að ferða-, fræðslu- og skemmtiklúbbi þeirra sem langar að kynnast heiminum og njóta hins besta sem völ er á með bestu kjörum, en stofna sér- hæfða ferðaskrifstofu fyrir þjón- ustuna, sem yfirtæki ferðir Heims- klúbbsins frá síðustu áramótum. í þeim tilgangi var Ferðaskrif- stofan Príma hf. stofnuð á síðasta ársíjórðungi og hefur bætt nafni sínu við nafn Heimskiúbbs Ingólfs með öllum réttindum og trygging- um til ferðaskrifstofureksturs og farseðlaútgáfu, þ.m.t. viðurkenn- ingu IATA og víðtæk sambönd við valin hótel, flugfélög og ferðaþjón- ustuaðila um allan heim. Ingólfur Guðbrandsson er áfram forstjóri og aðaleigandi, en aðrir hluthafar eru dætur hans og fjölskyldur þeirra: Þorgerður Ingóifsdóttir, Rut Ing- ólfsdóttir, Vilborg Ingólfsdóttir, Unnur María Ingólfsdóttir og Inga Rósa Ingólfsdóttir. Eins og nafn hinnar nýju ferða- skrifstofu bendir til, leggur hún höfuðáherslu á vöndun í ferðavali, gistingu og þjónustu, svo að farþeg- in geti notið til fulls þeirrar gleði, fræðslu og lífsnautnar, sem tengist aðeins góðum ferðum. Starfsmenn eru enn aðeins þrír auk forstjóra og lausráðins fólks við fararstjóm o.fl. Ferðaskrifstofan Príma nýtir sameiginlegt húsnæði með Heims- klúbbi Ingólfs á 4. hæð Austur- strætis 17. Fyrsta nýjungin hjá Prímu hf. voru ferðir til Dominikana í Karíba- hafi, sem boðnar eru vikulega frá áramótum fram á sumar og njóta mikilla vinsælda, enda fer saman ágætis aðbúnaður með fullu fæði og öllu inniföldu á verði með því lægsta sem þekkist. Umboð Prímu fyrir flugfélög og mörg bestu hótel heimsins á sérkjörum bjóða upp á verðlækkun, sem í mörgum tilfell- um nemur 30-50%. Þegar slíkt verð stendur til boða, finnst mörg- um miksskilinn sparnaður að búa annars flokks. Ifyrirtækið er hið eina á íslandi sem sérhæfír sig í ferðum á ijarlæga staði, sem kynna fólki undur heimsins í meistara- verkum náttúrunnar, lista, menn- ingar og þjóðhátta, þar sem fólki opnast ný sýn á jörðina, fólkið sem á henni býr og líf þess. Allar ferðir Heimsklúbbsins, sem Príma skipuleggur, eru sérhannað- ar fyrir íslendinga, sem teljast með kröfuhörðustu farþegum. Til að forðast mistök og lækka kostnað eru samningar gerðir beint og milli- liðalaust við gististaði og flutnings- aðila. Þannig er hver einstök ferð Heimsklúbbsins einstök útgáfa og engri annarri ferð lík. Það hefur vakið athygli farþega hve vel tíminn nýtist vegna skipu- lagsins, sem jafnframt gerir ferða- lagið léttara og lengir tíma til eigin ráðstöfunar, auk þess sem þjónusta er nákvæmari og persónulegri en tíðkast í fjöldaferðum nútímans, jafnvel þeirra sem eru á eigin veg- um en eyða mikilum tíma í vafstur. Allar álfur heimsins eru á dag- skrá Heimsklúbbsins í ár, t.d. Suð- ur-Ameríka með Chile, Argentínu og Brasilíu um páskana, tvær menningarferðir um Evrópu, Aust- urríki og Ungveijaland í júní, og list og töfrar Italíu í ágúst undir leiðsögn Ingólfs, þar sem m.a. gefst kostur á að hlusta á Kristján Jó- hannsson í aðalhlutverki í Aidu á stærsta útisviði heims í Arenunni í Verona. Það besta sem Kína hefur að bjóða gestum sínum er á dag- skrá undir fagurri septembersól og lýkur með hvíldardvöl á fullkomn- um hressingar- og baðstað í Thai- landi. Ferð Heimsklúbbsins til Malaysíu í fyrra var fjölmenn og rómuð og verður nú endurtekin breytt og lengd, en dvalist verður í Kula Lumpur, Singapore og Pen- ang og lýkur ferðinni með skoðun og hvfldardvöl á frægum stöðum í Thailandi. Loks verður hnattreisa í nóvember með dvöl á mörgum frægustu stöðum í fjarlægum Aust- urlöndum og í sumrinu sunnan mið- baugs, s.s. Bali, þekktustu stöðum Ástralíu, s.s. Melboume, Sydney og Caims, Nýja-Sjálandi, Fiji, Hawaii o.fl. Svo margir hafa þegar pantað í hnattreisuna að líkur em á að hún fyllist, áður en hún verður auglýst frekar. Auk hópferðanna, sem auglýstar eru og skipulagðar ár eða meir fram í tímann, annast Príma hf. fjölda ferða fyrir sérhópa, t.d. skóla, fé- lagasamtök og einstaklinga. Áber- andi er að margir hópar ungs fólks sem hefur lokið framhaldsnámi, velja sér nú þjónustu Heimskúbbs- ins vegna gæða ferðanna, hagstæðs verðs og þeirrar reynslu og skipu- lagningar, sem veitir farþegum visst öryggi. Reynsla farþeganna segir allt sem þarf; fólki finnst betri kosturinn alltaf ódýrari, þegar það hefur gert raunhæfan samanburð og séð muninn. Ingólfur Guðbrandsson í nafni VISA og Heimsklúbbs Ingólfs er í gangi sértilboð til 20. febrúar um inngöngu í ferðaklúbb- inn, sem veitir ýmis fríðindi, marg- háttaða fræðslu um ferðalög og afslátt fyrir félagsmenn, sé pantað fyrir 1. mars. Þannig geta hjón t.d. sparað sér 17 þúsund krónur auk árgjaldsins. Góð ferðalög eru eitt helsta áhugamál fólks um allan heim og ferðaþjónusta orðin stærsta einstök atvinnugrein heimsins. Fræðslu um ferðalög er- lendis vantar hins vegar tilfinnan- lega, t.d. hliðstæða þeirra sem Ferðafélag íslands hefur veitt ára- tugum saman við ísland og ferðir innanlands. Heimsklúbbinn ætti því ekki að vanta verkefni og telur sig hafa nokkru hlutverki að gegna í ferðaþjónustunni. Að gefnu tilefni verður að láta þess getið, að Heimsferðir hf. eru og hafa frá stofnun verið Heims- klúbbi Ingólfs og nú Ferðaskrifstof- unni Príma hf. óviðkomandi. Nafn Heimsferða var ekki valið í samráði við Heimsklúbbinn og hefur skyld- leiki nafnanna valdið óþægindum og misskilningi, svo að fólk hefur jafnvel talið sig vera að skipta við Heimsklúbb Ingólfs í nafni Heims- ferða, en nú verður Ijóst, að ferða- skrifstofa Heimsklúbbs Ingólfs heitir Príma hf. Fimmtíu ár frá Þormóðsslysimi eftir Jón Kr. * Olafsson Nú eru liðin fimmtíu ár frá því að ms. Þórmóður fórst, nóttina milli 17. og 18. febrúar 1943. Margir mætir menn hafa fest á blað frá- sagnir af þessu sorglega slysi svo máski er ekki miklu við að bæta. Mér þykir þó rétt á þessum tíma- mótum að leiða hugann að þessum hörmulega atburði. Það voru þung spor fyrir séra Jón Kr. ísfeld, sem var sómi sinnar stéttar, að ganga í hús hér á Bíldu- dal og færa fréttir af þessu hörmu- lega slysi, en það var hans fyrsta prestsverk hér á staðnum. Fórst honum það vel úr hendi, eins og önnur prestsverk, sem hann vann hér á lögnum og farsælum starfs- ferli. Séra Jón lézt 1. desember 1991. Blessuð sé minning hans. Þann 14. júní 1987 var hér á Bíldudal minningardagur um látna sæfarendur gegn um tíðina. Þá var afhjúpaður minnisvarði um þá sem drukknuðu með ms. Þormóði og aðra sem tapast hafa á sjó, eins og á steininum stendur. Hann var unn- inn af Steinsmiðju S. Helgasonar eftir minni fyrirsögn en fjárframlög til verksins komu frá ýmsum aðil- um, sem hafí kæra þökk fyrir. Gest- ir við þá athöfn voru Þórarinn Þór prófastur, séra Gunnar Bjönisson, selloleikari, og kona hans, Ágústa Ágústsdóttir, söngkona, og Sigríður Pálsdóttir og fjölskylda. Sonur hennar, Páll Ægir Pétursson, af- hjúpaði minnisvarðann. Jón Kr. Ólafsson við afhjúpun minnisvarðans. „Nú eru liðin fimmtíu ár frá því að ms. Þor- móður fórst, nóttina milli 17. og 18. febrúar 1943.“ Ég lýk þessari upprifjan með ljóðlínum, sem lýsa því er að baki bjó gerð og uppsetningu minnis- varðans: Minnisvarði um þá sem drukkn uðu með ms. Þormóði. „Saga þeirra verður litríkt ljóð, í ljósbroti minninganna, svo mildur og hlýr sem morgunblær, sem minnig hins liðna vekur“. Höfundur er söngvari Viðskiptafræði- stofnun stofnuð Á UNDANFÖRNUM árum hefur færst í vöxt að ein eða fleiri rannsókn- arstofnanir hafa verið stofnaðar við deildir Háskólans. í tengslum við Viðskipta- og hagfræðideild Háskóla íslands hefur nýlega tekið til starfa Viðskiptafræðistofnun. Hlutverk stofnunarinnar er að vera vettvangur rannsókna í viðskiptafræðum og skyldum greinum og að annast þjónusturannsóknir, ráðgjöf og veita álitsgerðir. Viðskipta- og hagfræðideild hefur skv. reglugerð stofnunarinnar kosið eftirtalda í stjórn hennar: Ágúst Einarsson, prófessor, formaður, Árna Vilhjálmsson, prófessor, og Þráin Eggertsson, prófessor, með- stjómendur. Fulltrúi nemenda í stjórn stofnunarinnar er Hreiðar Már Sigurðsson, stud. oceon. Stjórnin hefur ráðið Kristján Jóhannsson, lektor, sem forstöðumann stofnunar- innar. Við Viðskiptafræðistofnun munu starfa fastir kennarar við Viðskipta- og hagfræðideild, sérfræðingar, stúdentar og aðstoðarmenn. Þess er vænst, að stofnuni verði vettvangur fyrir kennara deildarinnar til að sinna rannsóknum, samhæfa þær og kynna niðurstöður þeirra. Einnig að nánari tengsl myndist milli deild- arinnar og aðila utan hennar gegn- um þjónustuverkefni. Á þennan hátt legði stofnunin sitt af mörkum til að auka tengsl Háskólans við þjóðlíf- ið og miðla þekkingu sem víðast á nýjan hátt. Áuk þessa gefst kostur á að veita stúdentum þjálfun í fræði- legu vinnubrögðum við lausn verk- efna fyrir íslenskt atvinnulíf. í tengslum við Viðskipta- og hag- fræðideild starfar einnig Hagfræði- stofnun og hefur starfsemi hennar verið með miklum blóma. Starfsemi hennar hefur fyrst og fremst beinst að sviðum þjóðhagfræðinnar. Við- skiptastofnun er ætlað að sinna svið- um viðskiptafræða eða rekstrarhag- fræðinnar, þar sem höfuðáhersla er lögð á fræðigreinar tengdar rekstri fyrirtækja. Greinar þessar eru t.a.m. fjármálafræði, reikningshald, stjórn- unarfræði, markaðsfræði, fram- leiðslufræði, upplýsingafræði, at- vinnuvegafræði og aðgerðarann- sóknir, svo nokkuð sé nefnt. (Fréttatilkynning) Viðskipta- þing Versl- unarráðsins VIÐSKIPTAÞING Verslunarráðs íslands verður haldið á morgun, fimmtudaginn 18. febrúar og hefst það klukkan 11,30 í Súlna- sal Hótels Sögu. Umræðuefni þingsins verður Island í EB, já eða nei? Framsöguerindi verða flutt, þar sem ýmsir fyrirlesarar svara spurn- ingunni: Hvað þýddi aðild íslands að EB? Á eftir verða fyrirspurnir og umræður. Eftir kaffíhlé verða síðan pallborðsumræður með sendi- herrum íslands í EB og EFTA og loks fer fram skoðanakönnun meðal þingfulltrúa.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.