Morgunblaðið - 17.02.1993, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 17.02.1993, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRUAR 1993 9 Aðalfundur Hestamannafélagsins Fáks verður haldinn fimmtudaginn 25. febrúar kl. 20.30 ífélagsheimilinu á Víðivöllum. Venjuleg aðalfundarstörf. Félagar fjölmennið. Stjórnin. Nú er rétti tíminn til ab hefja reglulegan sparnað með áskrift að spariskírteinum ríkissjóðs. Notaðu símann núna, hringdu í 62 60 40, 69 96 00 eða 99 66 99 sem er grænt númer. ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ RÍKISVERÐBRÉFA Hverfisgötu 6, sími 91- 626040 Kringlunni, sími 91- 689797 Kalkofnsvegi 1, sími 91- 699600 Frá höftum til frjálsræðis Gunnar Svavarsson, formaður Félags ís- lenzkra iðnrekenda, seg- ir i grein á sextíu ára af- mæli félagsins: „í raun má skipta sögu iðnaðarins frá stofnun félagsins i tvö álíka löng tímabil. Fyrra tímabilið, fram til 1960, einkennd- ist af ófrelsi alls konar, innflutningshöftum, skömmtun gjaldeyris og háum ' tollum. Síðara tímabilið hófst með Við- reisnarstjóminni og á þeim tíma braut þjóðin af sér Qötra haftaáranna. Samningurinn um aðild íslands að EFTA og síðar við Efnahagsbandalagið upp úr 1970 em merk tímamót í sögu íslenzks iðnaðar. Það var ekki sízt fyrir afstöðu félags iðn- rekenda að gengið var tíl verksins, sem segja má að ljúki um þessar mundir, þegar samning- ur um Evrópskt efna- hagssvæði tekur gildi, vonandi um mitt ár. Við stöndum í þakkar- skuld við þá stjómmála- menn sem leystu þjóðina úr viðjum haftatímabils- ins. Sá kjarkur, sem for- ystumenn i iðnaði sýndu þegar þeir mótuðu af- stöðu sína til fríverzlun- ar, gleymist heldur ekki.“ EES færir okkur nýja mögnleika Síðar segir formaður Gunnar Svavarsson formadur l'il ELAGISLENSKRA INREKENDA 60 ÁRA ímamótum staldra menn skyggnast aftur í tfmann am i veginn. Þaö voru erf- Aur f íslensku'atvinnulífí brautryðjcndur á sviði saman til fundar undir nánaðar 1933. Kreppan s-ar igi. cfnahagur bágur og at- mikið. Talsverö iðnaðar- ar þá þegar hafin f landinu eftir að aukast næstu árín. ar sem ýmsar ráðstafanir nis geröar lil að efla hana. innfluttum iðnaðarvörum aöarins. um hagkvæmni þess að mvnda ein ný heildarsamtök. Niður- stöðu er að v*nta á allra n*stu min- uðum. Iðnrekcndur hafa lifað timana tvenna frá stofnun samlaka sinna. Þeir stofnuðu þau í skugga kreppunn- ar þcgar atvinnulcysisvofan grúfði yfir landinu. Þcir nutu góðxrisins á stríðsárunum þegar crfut var að lá iðnaöarvörur erlendis frá og fólk hafði allt í einu mikið fé milli hand anna. En þeir urðu cinnig aö yfirstígi crfiöleikana sem komu f kjölfai Úr viðjum haftanna „Við stöndum í þakkarskuld við þá stjórn- málamenn sem leystu þjóðina úr viðjum haftatímabilsins." Þannig kemst Gunnar Svavarsson, formaður Fll, að orði í grein um félagið sextugt. Hann fjallar jafnframt um eflingu íslenzks iðnaðar heima fyrir og landnám íslenzks hugvits og framtaks á erlendum slóðum í kjölfar aðildar að Evrópska efnahagssvæðinu. FÍI: „Samningurinn um Evrópskt efnahagssvæði mun bæta rekstrarskil- yrði ísienzks iðnaðar. Það gerist ekki daginn sem hann gengur í gildi og ekki daginn eftir, heldur á lengri tima, bæði fyrir og eftir gildis- töku samningsins. Stjórn- völd fá aukið aðhald við að laga umhverfi at- vinnulífs hér á landi að þvi sem gerist með öðr- um þjóðum. Möguleikar til Qölbreyttari vinnslu sjávarfangs opnast þegar tollar lækka eða falla nið- ur. Ýmis aðkeypt þjón- usta við iðnað lækkar í verði þegar samkeppnin færist yfir á fleiri grein- ar og samstarf okkar við Evrópuþjóðir á sviði við- skipta, vöruþróunar og rannsókna mun eflast. Vonandi opnast augu okkar einnig fyrir mögu- leikum sem upp kunna að koma, hvort heldur þeir leiða til samstarfs á erlendri grund eða hér á landi. LOdega er erlend fjárfesting hvergi jafn lítil og hér, a.m.k. ekki í hinum vestræna heimi. Ef frá eru talin örfá fyr- irtæki í orkufrekum iðn- aði er vart hægt að tala uni erlenda Qárfestingu á Islandi. Þjóðiimi er nauðsyn að reyna hvað hún getur til að auka þennan þátt atvinnúlífs- ins. Erlend skuldasöfnun, veik eiginfjárstaða ís- lenzkra fyrirtækja, van- nýtt tækifæri og dreifing áhættu minna okkur á þessa nauðsyn." A Islenzkt land- nám erlendis „Á sama hátt eiga ís- lenzk fyrirtæki að leita sér aukins olnbogarýmis í öðrum löndum með nýj- um viðskiptum og fjár- festingum. Heimurinn er sífellt að breytast. Sam- skipti við lönd Vestur- Evrópu verða emi að- gengilegri við gildistöku EES. Hræringar austan giunla jámtjaldsins eru ekki ógnanir við íslenzkt viðskiptalíf. Þær leiða ekki síður til nýrra tæki- færa á þeim slóðum og möguleikarnir eru víðar. Nefna má lönd S-Amer- íku og risaveldið í austri, Kina, er að opnast er- lendum Qárfestum. Utrás iðnaðar er hafin. Við erum farin að nota reynslu okkar til sóknar á* erlendri grund með vörur, þjónustu og fjár- festingu. Fyrst verður það starfsemi sem teng- ist fiskiðnaði og tækni við veiðar og vinnslu en fleiri greinar fylgja í kjölfarið. Skilaboðin eru þessi: Islenzkur iðnaður þarf að verða alþjóð- legri. Hann þarf að hleypa heimdraganum. Heimurinn er ekki bara landið og miðin.“ Hildur Jónsdóttir ritstjóri Vikublaðsins Framhaldið tryggt HILDUR Jónsdóttir, ritstjóri og ábyrgðarmaður Vikublaðsins sem hóf göngu sína í nóvember á síðasta ári, segist vera bjartsýn á framhald útgáfunnar. Söfnun áskrifenda að blaðinu hafi geng- ið vel og þeir séu nú orðnir fleiri en talið var nauðsynlegt að afla til að útgáfa blaðsins gæti geng- ið. Starfsmenn blaðsins fengu aðgang að áskrifendaskrá Þjóð- viljans sáluga og buðu þeim áskrift að Vikublaðinu. „Við erum nú komin með áskrifenda- hóp sem á að tryggja að við get- um gefið blaðið áfram út,“ sagði Hildur. Hildur sagði að nú væri unnið að ýmsum áætlunum varðandi út- gáfuna í framtíðinni og nokkrar breytingar væru fyrirhugaðar, m.a. á útliti, og til stæði að stækka brot blaðsins. - Vikublaðið er gefið út af Alþýðu- bandalaginu en starfsmenn þess hafa fullt ritstjórnarlegt frelsi að sögn Hildar og nýtur það engra útgáfustyrkja frá flokknum. Auk Hildar starfar einn blaða- maður á Vikublaðinu og einn starfsmaður við auglýsingasöfnun. Þá sagði hún að margir legðu þeim lið við greinaskrif í blaðið í hverri viku. RABBFUNDUR í VÍB-STOFUNNI Þihnrinn l’ Þórarinsson, [mmkvíemdnstjíni \ ’S/. Er raunhæft að gera RÁÐ FYRIR VERULEGRI VAXTALÆKKUN? A morgun, fimmtudaginn 18. febrúar, verður Þórarinn V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri VSÍ, í VÍB-stofunni og ræðir við gesti um vaxtamál og mikilvægi þeirra í þróun atvinnu- og kjaramála. Eru forsendur fvrir umtalsverðri vaxtalækkun? Hvað aðferðum er hægt að beita? Hversu mikið geta vextir lækkað? Fundurinn hefst kl. 17:15 og er öllum opinn. Ármúla 13a, 1. hæð.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.