Morgunblaðið - 17.02.1993, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 17.02.1993, Blaðsíða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRUAR 1993 taUx. um ? " TM Reg. U.S Pal 0(f.—all righls reserved ® 1992 Los Angeles Times Syndicate hlaupa út um alla stofu hjá Emmu! HÖGNI HREKKVÍSI JPHPrglWPJIMIlliP BREF TIL BLAÐSENS Aðalstræti 6 101 Reykjavík - Sími 691100 - Símbréf 681811 Brennandi ást og atgervisfólk Frá Hirti Hjartarsyni: Dagskrá Sjónvarpsins hefur ver- ið með daufara móti upp á síðkast- ið og því hvarflar hugur ósjálfrátt til baka, til liðinna sólskinsstunda. „Stutta og snyrtilega stríðið" Ast Bush, fyrrverandi forseta, á írösku þjóðinni blossaði upp árið 1991 með miklum hita þegar hann varð þess vísari að Saddam Hus- sein var ekki sá vammlausi dánu- maður sem hann árum saman hafði stutt og treyst. Og Bush lét ekki sitja við ástarorðin tóm, heldur sprengdi í loft upp nánast allt sem þarf til daglegs lífs í írak: Raf- magnsveitur, sjúkrahús, skóla, vatnsból, holræsakerfi... Dánar- Frá Gauta Kristmannssyni: Tilefnið er nýfallinn dómur Evr- ópudómstólsins í máli hollenskra stjórnvalda gegn sjónvarpsstöð sem hugðist fara fram hjá lögum og reglum, sem giltu í Hollandi um fjölmiðlun, með því að senda út frá Lúxemborg. Frá þessu er greint í Financial times 9. febrúar sl. Dómstóllinn komst að þeirri niðurstöðu að ekki væri heimilt að beita ákvæðum Rómarsáttmálans til þess að komast hjá því að hlíta þeim reglum, sem gilda í einstök- um löndum um fjölmiðlun. Þessi niðurstaða er gríðarmikilvæg fyrir íslendinga og íslenskt sjónvarp því hún þýðir í reynd að heimilt er að hafa í íslenskum lögum ákvæði um þýðingarskyldu sjónvarpsstöðva sem starfsræktar eru á íslandi. Krafan um þýðingarskyldu er fyllilega eðlileg í málsamfélagi sem telur aðeins 250 þúsund manns, jafn eðlileg og hreinlætisskröfur eru gerðar til fyrirtækja í iðnaði tölur óbreyttra borgara í loftárás- unum sjálfum (bandarískar tölur, stýfðar) eru svona: 60.000 karlar, 40.000 konur og 30.000 börn. — Einhveijar tugþúsundir hljóta að hafa örkumlast? Saddam Hussein, sá fékk nú á baukinn! Vatnsskortur, menguð vatnsból, alltumflæðandi skólp og viðskipta- bann, sem m.a. nær til lyfja og annarra lífsnauðsynja, hafa síðan magnað upp drepsóttir, ungbarna- dauða og aðra blessun. Heilsu- gæsla, sem áður var góð, er nú í molum; þúsundir barna reika betl- andi um götur Bagdað ... Laun heimsins Bush tók margsinnis fram að til að mynda. Hún er ekki krafa um einangrun eða ritskoðun, auð- vitað á öllum að vera frjáls aðgang- ur að sjónvarpi um gervihnött eins og verið hefur. En vilji fyrirtæki dreifa sjónvarpsefni á íslandi og hagnast á því er það eðlileg jafnrét- tiskrafa að þau sitji við sama borð og íslenskar sjónvarpsstöðvar og sjái til þess að efnið sé sómasam- lega þýtt. Það er staðreynd að þýðingu er hægt að koma við í flestum ef ekki öllum tilvikum þótt oft hafi öðru verið haldið fram og það er nú einnig staðreynd að þótt Islend- ingar séu komnir með annan fótinn inn fyrir kastalaveggi Evrópu- bandalagsins, þá leyfist þeim enn að setja sjálfir lög um sjónvarps- rekstur á íslandi. Vonandi berum við gæfu til þess að það verði gert. GAUTI KRISTMANNSSON, An der Hochschule 2/36, Germersheim, Þýskalandi. hann ætti ekkert sökótt við írösku þjóðina; og allt var þetta gert til að hrekja íraskar hersveitir frá Kúvæt og lumbra á vonda kallinum í Bagdað. En hvað gerist? Almenn- ingur í írak, Araba-skrattarnir, þeir taka þetta persónulega og eru ekkert nema vanþakklætið; sumir meiraðsegja ganga svo langt að formæla Bush! — Eða hvað? En nei nei, örvæntið ekki. Skýringuna er að finna í forsíðufrétt Morgun- blaðsins þann 19. janúar sl., en þar segir: „Blóðug harðstjórn Saddams veldur því að íbúar taka ákaft undir slagorð stjórnvalda er þeir ræða við erlenda fjölmiðla, enda lífshættulegt að gagnrýna einvaldinn." írökum er sem sagt meinað að þakka Bush fyrir hans höfðinglegu trakteringar — helst vildu þeir náttúrulega gera hann að forseta sínum, þótt Bandaríkja- menn fúlsi við honum. Atgervisfólk Ekki verður hugsað til Persa- flóastríðsins án þess að vaskleg framganga íjölmiðla rifjist upp fyrir manni. Sérstaka aðdáun vek- ur að fjölmiðlafólk skyldi ekki láta ritskoðun Bandaríkjahers spilla starfsgleði sinni og með því eyði- leggja hina góðu stemmningu. Einnig hve hreinlegar fréttirnar voru og smekklega framreiddar; ekki alltaf þessar ósmekklegu myndir af limlestu fólki og munað- arlausum bömum, sem fréttamenn hafa stundum verið að velta sér uppúr. E.t.v. er ekki viðeigandi, þegar svo vel hefur tekist til, að víkja að einum fjölmiðli fremur öðrum — hlutur þeirra allra er svipaður — en þó skulu fréttastofu Ríkissjón- varpsins þakkaðar upplýsandi fréttir af Persaflóastríði, fluttar af næmum skilningi, djúpri þekk- ingu, metnaði og fagmennsku. HJÖRTUR HJARTARSON, Freyjugötu 36, Reykjavík. * Askorun til mennta málaráðherra Víkveqi skrifar að er með ólíkindum hvernig smekkleysan getur ráðið ríkj- um þegar fólk í nauð er spurt spjör- unum úr, var það fyrsta sem Vík- veija kom í hug þegar hann fylgd- ist með fréttatíma Ríkissjónvarps- ins í fyrrakvöld, þar sem fjallað var um ástandið í Bolungarvík, eftir að liðlega 120 manns hafa misst at- vinnu sína og óvissan blasir við. Fréttaritari Sjónvarpsins á Vest- fjörðum gerðist svo fádæma smekk- laus að ota hljóðnema sínum upp í opið geðið á einni fiskvinnslukon- unni, sem var að koma af fundi, þar sem hún fékk atvinnuleysi sitt endanlega staðfest og spurði eftir- farandi spurningar: „Er ekki bara fínt að nota spariféð og fara bara í frí?“ Blessuð konan kunni eflaust ekki að meta gálgahúmor spyrils- ins, en sagði án þess að sjáanlega á hana kæmi: „Það er ekkert spari- fé.“ Víkveiji gat ekki annað en hugsað: Getur nokkur sett sig í stöðu þeirrar manneskju sem er að missa atvinnuna, og enginn veit um hversu langt skeið? Líklega er eitt af því sísta sem slíkt fólk þarf á að halda, einmitt það augnablik, sem það þarf að horfast í augu við hina óþolandi óvissu sem framtíðin ber í skauti, forkastanlega heimskulegar spurningar á við þessa frá fréttaritaranum á Vest- fjörðum. xxx Annað sem vakti athygli Vík- veija í sjónvarpinu í fyrra- kvöld var sænski umræðuþátturinn um kvikmynd Magnúsar Guð- mundssonar um hvalveiðar og and- óf gramfriðunga gegn hvalveiðum okkar Islendinga. Víkveiji er þeirrar skoðunar að Ríkissjónvarpið hefði nú getað valið betri útsendingar- tíma en þann sem ákveðinn var, strax eftir seinni fréttir. Þau sjónar- mið sem Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra reifaði, í þá veru að aðgerðir grænfriðunga gegn ís- lendingum væru sama og efnahags- leg hryðjúverk, eiga vissulega er- indi til fleiri áhorfenda en þeirra sem enn sitja við kassann að loknum seinni fréttatíma. „Ég held því fram að Greenpeace-samtökin reyni að beita þeim gegn smáríki sem bygg- ir afkomu sína á fiskveiðum. Það er smáríki sem byggir afkomu sína á fiskveiðum. Það er veikt fyrir,“ sagði utanríkisráðherra meðal ann- ars. xxx Ekki vakti það síður athygli Vík- veija og ánægju um leið, að verða vitni að því hversu góða sænsku utanríkisráðherran talar og hve fær hann er um að taka þátt í umræðum sem þessum á sænskri tungu, þótt í beinni útsendingu sé. Heyrir það ekki beinlínis til undan- tekninga að ráðherrar í ríkisstjórn Islands séu yfir höfuð færir um að koma fram í beinum sjónvarpsút- sendingum á Norðurlöndum og taka þátt í hörku-„debatt“ og sleppa frá þeim kinnroðalaust? xxx Niðurstaða Víkveija af því að fylgjast með ofangreindu varð eftirfarandi: Við íslendingar ættum fremur að líta á baráttu sem þessa sem hreinan og kláran lands- leik; Við stöndum alltaf saman í slíkum leik hvort sem um fótbolta eða handbolta er að ræða. Af hveiju skyldum við ekki einnig gera það þegar þjóðarhag getur varðað?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.