Morgunblaðið - 17.02.1993, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 17.02.1993, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRÚAR 1993 Guðríður Signrðardóttir nýr ráðuneytissljóri menntamálaráðuneytis Hlakka tíl að takast á við þetta verkefni ÓLAFUR G. Einarsson menntamálaráðherra hefur ákveðið að leggja til við forseta Islands að Guðríður Signrðardóttir ráðunautur menntamálaráðherra í skóla- málum verði skipuð ráðuneytisstjóri í menntamálaráðu- neytinu frá 1. mars næstkomandi að telja. Guðríður sagði í samtali við Morgunblaðið að starf ráðuneytisstjóra legð- ist vel í sig. Fyrir lægi áfangaskýrsla um mótun mennta- stefnu og það myndi að sjálfsögðu setja mark sitt á það starf sem framundan væri í ráðuneytinu á næstu mánuð- um. Hún lagði áherslu á að ráðuneytið færi með marga málaflokka aðra en menntamál, svo sem menningarmál, íþrótta- og æskulýðsmál og vísindamál, og hlakkaði hún ekki síður til að vinna að þeim málaflokkum. Au_k Guðríðar sóttu um stöðuna þau Ámi Gunnarsson skrifstofu- stjóri í menntamálaráðuneyti, Bessí Jóhannsdóttir fram- kvæmdastjóri, Bjami Daníelsson skólastjóri Myndlista- og handíða- skóla íslands, Dögg Pálsdóttir skrifstofustjóri í heilbrigðisráðu- neyti, Erlingur Bertelsson lög- fræðingur í menntamálaráðu- neyti, Hörður Lárusson deildar- stjóri í menntamálaráðuneyti, Jón Hjartarson skólameistari Fjöl- brautaskóla Norðurlands vestra, Reynir Karlsson íþróttafulltrúi ríkisins, Sólrún Jensdóttir skrif- stofustjóri í menntamálaráðu- neyti, Tryggvi Gíslason skóla- meistari Menntaskólans á Akur- eyri og Þórunn Hafstein deildar- stjóri í menntamálaráðuneyti. Tveir umsækjenda óskuðu nafn- leyndar. Góð samvinna Aðspurð sagði Guðríður að hún óttaðist alls ekki að nein óánægja yrði meðal starfsfólks ráðuneytis- ins vegna ráðningar hennar í stöðu ráðuneytisstjóra þótt á með- al annarra umsækjenda um stöð- una hefðu verið sex starfsmenn ráðuneytisins. „Ég er búin að vera nokkra mánuði starfandi þama og hef því náð að kynnast þessu fólki. Ég hef átt mjög góða samvinnu við það allt saman og hef ekki minnstu trú á öðru en að svo verði áfram,“ sagði hún. Guðríður Sigurðardóttir hefur meistarapróf í uppeldis- og kennslufræði frá Harvardháskóla í Bandaríkjunum, BA próf í al- mennum þjóðfélagsfræðum frá Háskóla íslands og kennarapróf frá Kennaraháskóla íslands. Hún hefur kennt á gmnn- og fram- haldsskólastigi og við Háskóla íslands, auk þess sem hún hefur unnið að rannsóknum á sviði upp- eldis- og menntamála. Síðastliðið ár hefur Guðriður verið ráðunaut- ur menntamálaráðherra í skóla- málum. Ráðuneytisstjórinn GUÐRÍÐUR Sigurðardóttir segir að skýrsla um mótun nýrrar menntastefnu muni að sjálfsögðu setja mark sitt á starfið í ráðuneytinu. Knútur Hallsson, ráðuneytis- stjóri í menntamálaráðuneytinu, hefur að eigin ósk sótt um lausn frá störfum ráðuneytisstjóra en hann mun ná hámarksaldri emb- ættismanna 30. desember nk. Knútur mun hafa með höndum nokkur sérverkefni á vegum ráðu- neytisins til næstu áramóta. Kveikt í garðskúr ELDUR kom upp í garðskúr á lóð íbúðarhúss við Nýbýlaveg í Kópavogi um kl. 22 í gær- kvöldi og stóð skúrinn í björtu báli þegar slökkviliðið kom á vettvang skömmu síðar. Samkvæmt upplýsingum slökkviliðsins gekk greiðlega að ráða niðurlögum eldsins. Ekkert rafmagn var í skúrnum og er talið að kveikt hafí verið f honum. ----»..»■ 4- Loðnuverðið fer lækkandi VERÐ fyrir bræðsluloðnu hefur farið lækkandi og er komið niður í 3.400 tonnið. 14 krónur fást fyrir ldlóið af loðnu sem fer í frystingu. Góð loðnuveiði hefur verið á loðnumiðunum vestur af Krísuvík- urbjargi að sögn Gunnars Harðar- sonar stýrimanns á Faxa RE, sem landaði um 400 tonnum í frystingu í Reykjavík í gær. Hann sagði að bátamir gerðu stuttan stans á mið- unum, köstuðu einu sinni eða tvisv- ar en héldu síðan til löndunar. Hann sagði að nokkur áta hefði verið í loðnunni og hefðu margir bátar fengið farm sem taldist óhæfur til frystingar. Gæfa afurðahæst Morgunblaðið/Rúnar Þór KYRIN Gæfa var methafinn í afurðahæsta kúabúi landsins á síðasta ári. Viðar Þorsteinsson bóndi stendur hjá. Fjórar af níu bestu kúnum á Brakanda GÆFA 171 á Brakanda í Hörgárdal varð afurðahæsta mjólkurkýr- in á síðasta ári og skilaði 10.190 kg mjólkur. Eigandi Gæfu, Viðar Þorsteinsson bóndi á Brakanda, var með afurðahæsta bú landins í fyrra. Kýr hans mjólkuðu að meðaltali 6.264 kg. Viðar á fjórar af níu efstu kúnum inu. Gæfa 171 er dóttir Fjalla 81033. á afrekskúalistanum eftir siðasta ár Er þetta í annað sinn sem kýr hér á og hefur það ekki áður gerst að svo landi skilar meira en 10 þúsund kg margar metkýr komi frá sama bú- mjólkur á ári. Ríkisstjómm ákveður að hækka vexti í féiagslega kerfínu Verkalýðshreyfingin krefst afturköllimar Ekki hyggileg ráðstöfun segir forseti Alþýðusambandsins RÍKISSTJÓRNIN hefur samþykkt að vextir í félagslega íbúðakerfinu hækki úr 1% í 2,4% frá og með 1. mars næst- komandi, en húsnæðismálastjórn hafði gert um það tillögu til ríkisstjórnarinnar síðastliðið haust. Vextir þessir gilda um ný lán og lán sem veitt hafa verið eftir 1. júlí 1984. Benedikt Davíðsson, forseti Alþýðusambands íslands, segir þetta ekki hyggilega ráðstöfun hjá ríkisstjórninni og þetta sé ekki gæfuleg byijun á samningaviðræðum. Hún eigi eftir að torvelda þær og það verði ein af höfuðkröfum verkalýðshreyfingarinnar að þessi ákvörðun gangi til baka. Ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að hækka vexti í félagslega kerf- inu á fyrir í byrjun janúar og kom þá fram hjá félagsmálaráðherra að valið hefði staðið milli þess að draga úr útlánum til félagslegra íbúða eða hækka vextina. Hús- næðisstofnun var formlega til- kynnt um vaxtahækkunina á mánudag. Benedikt sagði að við gerð síð- ustu kjarasamninga hefði verið komið í veg fyrir vaxtahækkun í félagslega kerfinu og þá fengist fyrirheit um að vextirnir yrðu að minnsta kosti ekki hækkaðir á samningstímabilinu. Nú sé þetta tilkynnt þannig að þetta geti tekið gildi um leið síðasti kjarasamning- urinn rennur sitt skeið. Skynsamlegt að skoða vaxtakerfið Benedikt sagði að sér fyndist það heldur storkandi að gera þetta á sama tíma og Alþýðusambandið sé að reyna að draga úr sárustu álögunum á þá sem búi við erfið- ustu kjörin, en sá hópur sé innan félagslega húsnæðiskerfísins. Benedikt sagði það út af fyrir sig alveg rétt að það væri skyn- samlegt að skoða þetta vaxta- kerfí, en gera það með þessum hætti væri nánast eins og köld vatnsgusa framan í fólk. Það væri raunar búið að breyta reglunum svolítið í þá veru að ef fólk hefði meiri tekjur en það hefði haft þeg- ar það fékk úthlutað þá væri heim- ilt að breyta vöxtunum á lánstíma- bilinu. Þessi ákvörðun tæki hins vegar til allra, einnig þeirra sem minnsta möguleika hefðu til að standa undir greiðslubyrðinni. „Það er forkastanlegt að svara með þessum hætti fyrstu tilkynn- ingum um viðleitni verkalýðs- hreyfíngarinnar til að reyna að leysa málið á einhveijum skyn- samlegum nótum án þess að verð- lag fari hér allt úr skorðum. Þess- ar aðgerðir gera það að verkum að fólk verður auðvitað að krefjast hærri launa til þess að geta staðið undir álögunum. Ég sé ekki til- ganginn,“ sagði Benedikt. í dag Risnu- og ferðakostnaður Kostnaður ríkisins af ferðalögum og risnu var tæpir 1,7 milljarðar árið 1991 5 íslenskur sigur________________ íslensk sveit vann Flugleiðamótið í brids 17 McDonald’s og Eiffel-turninn Þjóðræknir Frakkar komu í veg fyrir opnun hamborgarastaðar við Eiffel-turninn 21 Leiðari Bolungarvik 22 Úr verínu Myndasögur ► Nær stöðug bræla - Aflaverð- ^ Ljóð - Myndir ungra lista- mæti muma í ar - Fiskneysla manna — Drátthagi blýanturinn Breta minnkaði í fyrra - Sigurður _ Bolluvöndur - Völundarhús - Ágústsson hf. í Stykkishólmi 60 Sundkeppni - Jó-jó - Myndasög- ára - Breyting á viðskiptaháttum ur - Krossgáta - Réttar tölur aflasamdráttur í janúar - ■ ■_■ Haraldur Kristjánsson með mestan meðalafla 20,9 tonn veidd að meðaltali á dag FRYSTITOGARINN Haraldur Kristjánsson HF-2 var með mestan meðalafla hvern úthaldsdag og mestan heildarafla í tonnum talið árið 1992 samkvæmt nýútkominni togara- skýrslu yfir liðið ár. Af ísfiskskipum var Otto N. Þorláks- son RE-203 með mestan meðalafla hvern úthaldsdag og Guðbjörg ÍS-46 með hæsta aflaverðmætið. Haraldur Kristjánsson fékk að meðaltali 20,9 tonn hvern úthalds- dag og 6.112 tonn samtals allt árið. Otto N. Þorláksson aflaði 20,1 tonns að meðaltali hvern úthaldsdag og 5.211 tonna alls á árinu. Aflaverð- mæti Guðbjargarinnar var 350 millj- ónir kr. og aflamagnið 4.705 tonn. Samkvæmt togaraskýrslunni minnkaði meðalafli ísfisktogara hvern úthaldsdag um 13% milli ár- anna 1991 og 1992, úr 11 tonnum í 9,6 tonn. Hjá frystitogurum minnk- aði meðalaflinn hvern úthaldsdag um 11,4% eða úr 12,8 tonnum á úthaldsdag í 11,4 tonn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.