Morgunblaðið - 17.02.1993, Síða 14

Morgunblaðið - 17.02.1993, Síða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRÚAR 1993 Jöfnimarsjóður sveitarfé- laga og reglugerðarbreyt- ing félagsmálaráðherra eftir Sturlu Böðvarsson Að undanförnu hefur Alþýðu- blaðið ráðist að mér með afar sér- stökum hætti. Ástæðan er sú að ég leyfði mér að gagnrýna félags- málaráðherra fyrir breytingar á reglugerð um Jöfnunarsjóð sveitar- félaga. Ekki er látið duga að blaða- menn Alþýðublaðsins beini spjótum sínum að mér, heldur eru kallaðir til bæjarfulltrúar úr Hafnarfirði til þess að segja frá því hvemig undir- ritaður vinni gegn hagsmunum „barnabæjarins" eins og Tryggvi Harðarson bæjarfulltrúi nefnir Hafnarflörð. Ekki þarf að efast um að þessi aðför er með vitund og vilja félags- málaráðherra. Málatilbúnaður allur hjá félagsmálaráðherra og málpíp- um hennar á Alþýðublaðinu er með þeim hætti að ég tel nauðsynlegt að upplýsa um staðreyndir þessa máls á síðum Morgunblaðsins. Jöfnunarsjóður Jöfnunarsjóður sveitarfélaga hefur mikilvægu hlutverki að gegna fyrir sveitarfélögin. Lengi vel stóð sjóðurinn ekki undir nafni, en mest- um hluta framlaga úr honum var dreift eftir íbúatölu. Lítill hluti fór til svokallaðra aukaframlaga. Jöfn- unarhlutverkið var þannig óveru- legt. Sjóðurinn var í raun einungis til þess að millifæra hluta af skatt- tekjum ríkisins til sveitarfélaganna, óháð afkomu þeirra og getu til þess að standa undir lögbundnum verk- efnum. Með breytingum á verkaskipt- ingu milli ríkis og sveitarfélaga var Jöfnunarsjóðnum einnig breytt. Tekjur sjóðsins eru landsútsvar og hluti skatttekna ríkissjóðs. Sjóðnum er síðan skipt í þrjá höfuðflokka: Bundin framlög, sérstök framlög og jöfnunarframlög. Bundnu framlögin eru 1993 437 m.kr. og skiptast til Sambands ísl. sveitarfélaga, landshlutasamtaka, Lánasjóða Innheimtustofnunar, Eftirlaunasjóðs og Húsfriðunar- sjóðs. Sérstöku framlögin eru 1993 573 m.kr. og skiptast þannig: Vegna sameiningar sveitarfélaga, vegna fjárhagserfiðleika sveitarfélaga, stofnkostnaðarframlaga, grunn- skólaframlaga og kostnaðarauka vegna verkaskiptingar. Jöfnunarframlögin eru 1993 860 m.kr. og skiptast í tekjujöfnunar- framlag 559 m.kr. og þjónustu- framlög 301 m.kr. Jöfnunarfram- lögin eru þannig um 46% af sjóðn- um. Með sérstakri úthlutun félags- málaráðherra í lok ársins 1992 á 85 m.kr. var verið að úthluta upp- hæð sem nemur 15% af tekjujöfnun- arframlagi þess árs. Hefði sömu reglu verið beitt og 1991 hefði mátt hækka þjónustuframlögin 1992 um 35%. Þessar tölur sýna að verulegu máli skiptir hvernig staðið er að setningu reglugerðar um úthlutun jöfnunarframlaga. Samkomulag um að endurskoða reglugerðina I byijun síðasta árs var ljóst að sum stóru sveitarfélögin á höfuð- borgarsvæðinu höfðu gert ráð fyrir að fá tekjujöfnunarframlög úr Jöfn- unarsjóði s'veitarfélaga. Gerðu ein- hver þeirra ráð fyrir því í fjárhags- áætlun 1992 og hækkuðu útsvarið í 7,5% fyrir það ár, en skilyrði fyr- ir því að fá tekjujöfnunarframlag er að tekjustofnanir útsvar, fast- eignaskattur og aðstöðugjald væru nýttir að tilteknu lágmarki. Þegar þessar fyrirætlanir voru mönnum ljósar lá fyrir að jöfnunar- framlag myndi lækka verulega til annarra sveitarfélaga, sem vegna fámennis þurfa fremur á tekjujöfn- un að halda en þau stóru, sem njóta hagkvæmni stærðar sinnar og fjölda íbúa. Umræðan var einkum um Hafnarfjörð. Við þessar aðstæður varð sam- komulag milli stjórnarflokkanna og Sambands ísl. sveitarfélaga að skipa starfshóp „til að endurskoða ákvæði reglugerðar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um jöfnunarframlög, þ.e. 13. og 14. grein reglugerðar nr. 309/1991“, svo sem segir í skip- unarbréfi félagsmálaráðherra. í starfshópinn voru skipaðir: Guðmundur Árni Stefánsson, bæj- arstjóri Hafnarfirði, og Valgarður Hilmarsson oddviti, af hálfu Sam- bands ísl. sveitarfélaga, Gunnlaug- ur Stefánsson alþingismaður og Sturla Böðvarsson alþingismaður af hálfu stjómarflokkanna. Hún- bogi Þorsteinsson, skrifstofustjóri félagsmálaráðuneytis, var skipaður formaður. Samkvæmt skipunarbréfi var starfshópnum einungis ætlað að endurskoða ákvæði um jöfnunar- framlög, þ.e. 13. og 14. gr. reglu- gerðar en ekki „breytingar sem munu verða á Jöfnunarsjóðnum í tengslum við aðstöðugjöld og breyt- ingar á þeim“, eins og félagsmála- ráðherra hélt fram í útvarpinu. Starfshópurinn hafði ekki lokið störfum, enda var það skilningur hópsins að ekki kæmi til breytinga á reglugerðinni fyrr en við úthlutun úr sjóðnum 1993. Sá skilningur kom m.a. fram hjá bæjarstjóranum í Hafnarfírði á fundi starfshópsins. Reglugerðinni breytt Það gerist síðan 18. desember sl. að félagsmálaráðherra breytir reglugerðinni um Jöfnunarsjóð án þess að starfshópurinn hafi lokið störfum. Skömmu áður og síðan í byijun janúar eftir að þing kom saman hafði ég átt fund með for- manni starfshópsins. Þar ræddum við tillögur og hugmyndir til að leggja fram í hópnum. Ekki kom fram á þeim fundum að ráðherra hefði breytt reglugerðinni. Hefði ég vafalaust sparað mér það ómak að sitja yfir tillögum hefði ég haft hugboð um vinnubrögð ráðherra. Skipulagðar nauðg- anir eru stríðsglæpir eftirPórunni Sveinbjarnardóttur Undanfarin misseri hefur grimmileg borgarastyijöld geisað í fyrrum Júgóslavíu. Fréttir af dráp- um, misþyrmingum og fólskuverk- um hvers konar eru daglegt brauð. Fyrr í vetur bárust þær fréttir svo um heimsbyggðina að stríðið í Júgó- slavíu hefði tekið á sig skelfilegri mynd en nokkurn hefði órað fyrir. Konum og stúlkubömum í Bosníu- Herzegóvínu er haldið í sérstökum búðum þar sem nauðgun er dag- skipun hermannanna. Þau okkar sem vonuðu að á ferðinni væri sögu- sagnir runnar undan rifjum áróð- ursmeistara stríðsherranna hafa nú fengið staðfest að sannleikurinn í þessu máli er hræðilegri en nokkur sögusögn. Þessi ólýsanlega grimmd fyllir okkur máttvana reiði og skelf- ingu. Sannanir skortir ekki í borgarastyijöldinni í Bosníu- Herzegóvínu er kynferðislegu of- beldi beitt í hernaðarlegum tilgangi — til þess að „þynna“ blóð óvinar- ins. Fyrir liggur vitnisburður fjölda kvenna, sem haldið hefur verið í sérstökum nauðgunarbúðum og „Konur um alla Evrópu hafa tekið höndum saman um að fordæma voðaverkin í löndum fyrrum Júgóslavíu. í dag verða mótmæla- stöður í Kaupmanna- höfn, London og Hels- inki, svo að einhverjar borgir séu nefndar. I Reykjavík verður safn- ast saman á Austurvelli og minnst þeirra kvenna og barna sem orðið hafa fórnarlömb kerfisbundinna nauðg- ana.“ nauðgað á hveijum degi þar til þær urðu þungaðar. Þessum konum var svo sleppt þegar Ijóst þótti að þær ættu engin ráð nema að fæða burð sinn. Meðal þeirra sem staðfest hafa að nauðganirnar séu skipulag- ar eru mannréttindasamtökin Am- nesty International. í nýlegri skýrslu frá samtökunum segir að ofbeldið fylgi mynstri kynþáttaof- sókna. Hermenn allra stríðsaðila hafa gerst nauðgarar og konum úr öllum stéttum og þjóðfélagshópum hefur verið nauðgað. Þó séu músl- ímakonur sem nauðgað hafa verið af serbneskum hermönnum lang- flestar. Lýsingar kvennanna á reynslu sinni þarf ekki að endurtaka hér en villimennskan í stríðinu í Bosníu-Herzegóvínu á sér engin takmörk. Við spyijum sjálf okkur hvað bíði barna sem líta dagsins ljós hötuð og útskúfuð úr eigin sam- félagi. Mannhatursöfl ráða ferðinni. Nauðgun er stríðsglæpur Konur um alla Evrópu hafa tekið höndum saman um að fordæma voðaverkin í löndum fyrrum Júgó- slavíu. í dag verða mótmælastöður í Kaupmannahöfn, London og Hels- inki, svo að einhveijar borgir séu nefndar. í Reykjavík verður sa’fnast saman á Austurvelli og minnst þeirra kvenna og barna sem orðið hafa fórnarlömb kerfisbundinna nauðgana. Við krefjumst þess að hernaðaraðgerðir sem þessar verði meðhöndlaðar sem stríðsglæpir og þeir sem beri ábyrgð á þeim svari til saka. Enn fremur skorum við á Sturla Böðvarsson „Þessi breyting er aft- urvirk og þarf ekki mikið hugmyndaflug til þess að átta sig á því, að hér beitir ráðherr- ann valdi sínu á „sér- tækan“ hátt en ekki í formi „almennra að- gerða“.“ Ekki var haft samráð við stjóm Sambands ísl. sveitarfélaga um breytinguna og ekki leitað til skrif- stofu sambandsins um útreikning framlaganna eins og venja er við útdeilingu framlaga úr Jöfnunar- sjóði. Breyting félagsmálaráðherra á reglugerðinni hljóðar svo: >.L gr. Við 13. gr. bætist ný málsgrein svohljóðandi: Ef enn er óráðstafað tekjum Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga, þeim sem veija skal til jöfnunarframlaga, eftir að úthlutun þessara framlaga hefur farið frarh samkvæmt fyrri málsgreinum þessarar greinar og samkvæmt 14. gr., er ráðherra heimilt samkvæmt tillögu ráðgjaf- arnefndar að jafna því sem óráð- stafað er sem sérstöku aukatekju- jöfnunarframlagi til þeirra sveitar- félaga sem hvorki uppfylla skilyrði fyrri málsgreina þessarar greinar um úthlutun tekjujöfnunarframlaga Þórunn Sveinbjarnardóttir íslensk stjórnvöld að beita áhrifum sínum á alþjóðavettvangi til að svo megi verða. Við ætlum að eiga hljóða og táknræna stund á Austur- velli í dag klukkan 17.15 og af- henda áskorun okkar ríkisstjórn íslands. Að því loknu mun sr. Áuð- ur Eir Vilhjálmsdóttir sjá um sam- verustund í Dómkirkjunni. Við hvetjum landsmenn alla, konur og karla, til þess að setja ljós í glugga á milíi klukkan 17 og 18 í dag og vekjum með þeim hætti athygli á voðaverkum stríðsherranna í fyrr- um Júgóslavíu. Höfundur er starfskona Kvennalistans. né skilyrði 14. gr. um úthlutun þjón- ustuframlaga, enda séu tekjur við- komandi sveitarfélaga undir við- miðunartekjur sambærilegra sveit- arfélaga. 2. gr. Reglugerð þessi er sett á grund- velli laga um tekjustofna sveitarfé- laga nr. 90/1990 og öðlast gildi þegar í stað. Félagsmálaráðuneytið, 18, des- ember 1992. Jóhanna Sigurðardóttir/ Húnbogi Þorsteinsson.“ Með þessari breytingu á reglu- gerðinni er fallið frá þeim skilyrðum sem öll önnur sveitarfélög höfðu áður þurft að uppfylla. Þessi breyt- ing er afturvirk og þarf ekki mikið hugmyndaflug til þess að átta sig á því, að hér beitir ráðherrann valdi sínu á „sértækan“ hátt en ekki í formi „almennra aðgerða" svo sem mjög er haft á orði að beri að gera. Undirritaður hefur vakið athygli á þeirri tilviljun að Hafnarfjörður fékk 43 millj. kr. við úthlutun eftir þessa breytingu. Ekki efast ég um að það bæjarfélag þurfí á því að halda. Hefur Tryggvi Harðarson bæjarfulltrúi gert ítarlega grein fyrir því í heilsíðugrein í Alþýðu- blaðinu hversu illa „barnabærinn“ Hafnarfjörður sé staddur. í sömu grein ræðst hann að undirrituðum með „skítkasti“, svo notað sé orða- lag félagsmálaráðherra sem haft er eftir henni í svari til mín í Alþýðu- blaðinu. Málflutningur bæjarfulltrúans er honum lítt til vegsauka, en merki- legt innlegg í stjórnmálaskrif blaðs- ins, þar sem þess er krafist að ég biðji félagsmálaráðherra afsökunar á því að hafa vakið athygli á þessu máli! Forsendur fyrir breytingum fé- Iagsmálaráðherra er að úthluta fé Jöfnunarsjóðs sem er óráðstafað þegar reiknuð hafa verið tekjujöfn- unarframlög. Búið er til nýtt hug- tak, aukatekjujöfnunarframlag, fyrir þá sem ekki komast að eftir þeim reglum sem allir aðrir hafa þurft að hlíta. Þegar úthlutað var úr sjóðnum 1991 var afgangur. Ekki var gripið til slíkra ráða sem nú var gert, heldur voru þjónustuframlögin hækkuð. Sú aðferð var í fyllsta máta eðlileg. Ráðherrann hefur reynt að skjóta sér á bak við svokallaða ráðgjafar- nefnd. Hún hafí gert tillögu að út- hlutun svo sem haft er eftir ráð- herra. Sá málflutningur er heldur vafasamur. Ráðherrann setur reglugerðina og ráðgjafarnefndin á engra annarra kosta völ en að reikna út framlögin í eamræmi við hana. Hvernig á að breyta reglugerðinni? Úr því sem komið er verður að líta á breytingu ráðherrans á reglu- gerðinni sem hvert annað slys, sem ekki verður aftur tekið. Viðfangs- efnið er að setja nýja reglugerð og fella hina úr gildi. Við gerð nýrrar reglugerðar tel ég að hafa beri eftirfarandi sjónar- mið til leiðsagnar: 1. Meta þarf tekjuþörf sveitarfé- laga í ljósi stærðar með öðrum hætti en gert hefur verið og auka hlutdeild þjónustufram- laga. 2. Fjölmenn þéttbýlissveitarfélög hljóta að hafa minni tekjuþörf en þau minni. Hagkvæmni stærðarinnar verður að meta. 3. í núgildandi reglum eru tekjur einungis metnar miðað við út- svar, fasteignaskatt og aðstöðu- gjald. Taka á allar tekjur til viðmiðunar, svo og tilfærslur frá fyrirtækjum sveitarfélaga, ef um þær er að ræða. Hér verður látið staðar numið og vænti ég þess að þetta sérstaka regluverk félagsmálaráðherra sé nú ljóst, og hver og einn geti metið réttmæti þess. Sporðaköst Alþýðu- blaðsins vegna þessa máls og árás- ir á mig er auðvitað vandamál þess blaðs og þeirra sem tóku það verk að sér. Höfundur er þingmaöur Sjálfstæiiisflokksins í Vesturlandskjördæmi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.