Morgunblaðið - 17.02.1993, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 17.02.1993, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRÚAR 1993 13 FJÓRÐU tónleikarnir í Rauðri áskriftarröð hjá Sinfóníuhljómsveit Islands verða á morgun, fimmtudaginn 18. febrúar. Tónleikarnir hefj- ast klukkan 20 og hljómsveitarstjóri er rússneski hljómsveitarstjórinn Edward Serov og einleikari er lágfíðluleikarinn Rivka Golani. Edward Serov fæddist í Moskvu og hóf hann þar ungur tónlistamám. Fyrst lagði hann stund á fiðlu og píanónám en síðar tók við nám í hljómsveitarstjórn. Strax að námi loknu var hann ráðinn aðstoðarmað- ur Eugene Mravinsky sem var aðal- stjómandi Fílharmóníusveitar Len- íngrad. í kringum 1970 gerðist hann hljómsveitarstjóri og listrænn stjórn- andi sinfóníuhljómsveitarinnar í fæðingarbæ Leníns, Uljanovsk. Síð- ar hefur Serov komið víða við og er nú einn af stjórnendum Fíl- harmóníusveitar Pétursborgar og síðastliðin tvö ár hefur hann einnig verið aðalhljómsveitarstjóri Sinfón- íuhljómsveitarinnar í Oðinsvéum í Danmörku. Lágfiðluleikarinn Rivka Golani er fædd í ísrael og hóf þar nám á hljóð- færi sitt. Árið 1974 fluttist hún til Kanada þar sem hún varp prófessor í lágfiðluleik við háskólann í Tor- onto. Rivka Golani hefur komið fram með mörgum þekktustu hljómsveit- um heims og þykir hún afburða lág- fiðluleikari. Má nefna að um 100 tónverk hafa verið tileinkuð henni. Rivku Golani er ýmislegt fleira til lista lagt, því hún þykir hinn ágæt- asti listmálari. Nýlega var haldin sýning á verkum hennar í Bond Street Gallery í Lundúnum. Á efnisskrá tónleikanna eru tvö verk eftir landa hljómsveitarstjór- ans, Rimskíj-Korsakov og Alfred Schnittke. Rimskíj-Korsakov til- heyrði hópi rússneskra tónskálda sem kallaður var „hinir fimm stóru" en þeir voru, auk hans, Mus- sorgskíj, Balakirew, Borodin og Cui. Schnittke var prófessor við Tónlist- arskólann í Moskvu. Hann varð ekki þekktur á Vesturlöndum fyrr en seint á sjöunda áratugnum, en hann er nú talinn eitt fremsta tónskáld samtímans. Sagt hefur verið að hann sé verðugur arftaki Sjostakóvítsj. Þetta er í fyrsta sinn sem verk eftir Schnittke er leikið á tónleikum Sin- fóníuhljómsveitar íslands. Síðast á efnisskrá tónleikanna er Sinfónía nr. 3 op 56 í a-moll, eftir Mendelssohn. Hann fékk hugmynd- ina að þessari sinfóníu þegar hann var eitt sinn á ferðalagi um Skot- land. Hann lauk reyndar ekki við þessa sinfóníu fyrr en nokkrum árum síðar, en í samræðum við vini sína kallaði Mendelssohn sinfóníuna ávallt „hina skosku'* og með tíman- um festist sá titill við hana. (Fréttatilkynning) Edward Serov Rivka Golani Margrét Bóas- dóttir söng á Húsavík Húsavík. ^ MARGRÉT Bóasdóttir, sópran- söngkona og Kristinn Orn Krist- insson, píanóleikari, eru á söng- ferð um Norðurland og skemmtu Húsvíkingum sl. föstudagskvöld með ljóðasöng sem var vel tekið. Efnisskráin var mjög fjölbreytt og voru þar ljóð um konur í öndvegi og lög eftir fimm Þingeyinga. Þá fluttu þau lagaflokkinn Helga in fagra eftir Jón Laxdal við ljóð eftir Guðmund Gúðmundsson. Þennan lagaflokk samdi Jón Laxdal 1916 og mun hann ekki oft hafa verið fluttur í einu lagi, eins og Margrét gerði nú, en hún hefur verið dugleg við að kynna óþekkt eða lítið þekkt sönglög eftir íslenska höfunda. Einn- ig voru á söngskránni þekkt þýsk ljóðalög. - Fréttaritari. ♦ ♦ ♦ Nýjar bækur ÞRUMUHJARTA heitir bók sem gerð hefur verið eftir kvikmynda- handriti John Fusco, en sú mynd er nú sýnd i Stjörnubíó. Þýðandi er Ragnar Hauksson. Kvikmyndahandritið var að hluta til samið með hliðsjón af atburðum sem gerðust á vemdarsvæði indlána í Oglala í Suður-Dakóta árið 1975. Þá voru tveir lögreglumenn banda- rísku alríkislögreglunnar vegnir þar. Mikil saga hefur sprottið af þessum atburðum og var indíáni af verndar- svæðinu sakfelldur og dæmdur fyrir vígin. Miklar deilur hafa orðið í Bandaríkjunum vegna dómsins. Fijáls fjölmiðlun gefur bókina út í bókaflokknum Urvalsbækur. Rivka Golani leikur á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar íslands Njóttu páskanna í frábæru veðri á Kanaríeyjum við góðan aðbúnað á glæsilegum gististöðum Heimsferða. Hér nýtur þú þjónustu reyndra fararstjóra, sem bjóða þér spennandi kynnisferðir og skemmt- anir meðan á dvölinni stendur. i TURAVIA air europa HEIMSFERÐIR hf. Austurstræti 17, 2. hæð • Sími 624600 3 vtkur - brottför 1. aprfl Verð frá kr. 44.800,- Hjón með 2 börn, 2-14 ára. Verð frá kr. 59.900,- 2 í smáhýsi, Koala Garden Brottför 11. mars 18 sæti laus Verð frá kr. 52300,- m.v. 4 í smáhýsi. 3M Prentfilmur Einleikur á lágfiðlu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.