Morgunblaðið - 17.02.1993, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRÚAR 1993
41
Viðurkennt nuddnám
Svargrein vegna „Ekkert viðurkennt nuddnám á íslandi“, 28. jan. sl.
Frá Rafni Geirdal:
Að gefnu tilefni vil ég taka fram
að nuddnám við skóla minn er 100%
löglegt, þó það sé ekki löggilt. Jafn-
framt vil ég taka fram að sem for-
maður Félags íslenskra nuddfræð-
inga hef ég sótt um löggildingu á
náminu sem iðngrein til mennta-
málaráðuneytis, samkvæmt ráði heil-
brigðisráðherra á fundi hinn 23. sept-
ember sl. og eindregnu ráði deildar-
stjóra framhaldsskóladeildar
menntamálaráðuneytis hinn 24. sept-
ember sl.
Á undanfömum 3 árum hefur
komið skýrt fram í viðtali við heil-
brigðisráðuneyti, landlæknisembætti
og menntamálaráðuneyti að skólinn
ræður sér algjörlega sjálfur sem
sjálfstæður einkaskóli og er á engan
hátt háður viðurkenningu opinberra
embætta. Þó ber þess að geta að í
bréfi frá menntamálaráðuneyti hinn
21. nóvember 1989 kemur fram að
námsmatsnefnd metur skólann til 10
stiga. Samkvæmt túlkun viðkomandi
deildarstjóra þýðir það að skólinn er
viðurkenndur sem slíkur, sem sér-
skóli, og hafi fullt leyfi til starfa.
Það þýðir hins vegar ekki að hann
sé opinberlega viðurkenndur með því
að vera lögvemdaður. Þessu hafa
sumir ruglað saman, því miður.
Ég sem skólastjóri get því haft
nuddnám og starfað samkvæmt
bestu vitund’; án þess að þurfa að
sækja viðurkenningar nokkurs utan-
aðkomandi aðila. Sem útskrifaður
nuddfræðingur árið 1985 frá
„Boulder School of Massage
Therapy", með próf í nuddkennslu
frá sama skóla, nieð löggildingu sem
sjúkranuddari árið 1987, með lög-
skráðan nuddskóla árið 1989, með
lögskráða sjúkranuddstofu árið
1990, með því að gerast stjórnarmeð-
Bréf til
blaðsins
Morgunblaðið hvetur les-
endur til að skrifa bréf til
blaðsins um hvaðeina, sem
hugur þeirra stendur til. Meðal
efnis, sem vel er þegið, eru
ábendingar og skoðanaskipti,
fyrirspurnir og frásagnir, auk
pistla og stuttra greina. Bréf
þurfa að vera vélrituð, og nöfn,
nafnnúmer og heimilisföng að
fylgja.
Sérstaklega þykir ástæða til
að beina því til lesenda blaðs-
ins utan höfuðborgarsvæðis-
ins, að þeir láti sinn hlut ekki
eftir liggja hér í dálkunum.
Velvakandi
Velvakandi svarar eftir sem
áður í síma frá mánudegi til
föstudags.
Pennavinir
Sextán ára japönsk stúlka með
mikinn áhuga á tónlist:
Kaoru Iwamoto,
19-28 Izumi-cho,
Haruki kishiwada-shi,
Osaka-fu,
596 Japan.
Tvítug Ghanastúlka með áhuga
á tónlist og póstkortum:
Mary Mensah,
P.O.Box 172,
Cape Coast,
Ghana.
leiðrétting
Rangt föðurnafn
Rangt föðurnafn var í frétt og
myndatexta um íslandsmeistara-
keppnina í hárgreiðslu og hárskurði
sem birtist á bls. M í blaðinu síðast-
liðinn laugardag. íslandsmeistarinn
í hárgreiðslu, Guðrún Hrönn Ein-
arsdóttir, var sögð Emilsdóttir. Beð-
ist er velvirðingar á mistökunum.
limur í Félagi íslenskra sjúkranudd-
ara árið 1991, með því að stofna
Félag íslenskra nuddfræðinga árið
1992, og vera formaður þess, og að
auki með 3 ára nám í háskóla að
baki, tel ég að ég sé ágætlega í stakk
búinn til að tryggja faglegt nuddn-
ám. Ég er ekki í þörf fyrir ábendingu
frá Félagi íslenskra nuddara um
hvemig ég eigi að haga mér.
Það er ágætt að óska eftir löggild-
ingu á nuddi. Hins vegar ber þess
að geta að ég veit ekki til þess í
nokkru þjóðlandi að bæði sé löggild-
ing á nuddi og sjúkranuddi. Annað-
hvort er aðeins ein löggilding eða
engin. Með því að Alþingi hefur sam-
þykkt EES-samninginn er æskilegt
að vera í auknu samræmi við sam-
bærileg mál í Evrópu. Þar er sú
stefna að falla frá löggildingu.
Ég auglýsi ekki að fólk útskrifist
með réttindi frá mínum skóla, í þeim
skilningi að það sé um lögvemdun
að ræða. Hins vegar hef ég sagt að
nuddfræðingar hafi rétt til sjálf-
stæðra starfa. Þar er ég að vísa í
að þar sem skólinn er 100% löglegur
era útskrifaðir nuddfræðingar það
einnig. Hins vegar til að forðast mis-
skilning era nýrri auglýsingar frá
mér með því orðalagi að nuddfræð-
ingur geti starfað sjálfstætt.
Það er ágætt að Félag íslenskra
nuddara geri meiri menntunarkröfur
en ég. Gangi þeim vel að framkvæma
þær. Ég tel hins vegar eðlilegt að
hafa tiltölulega mildar menntunar-
kröfur fyrir nuddnám til heilsubótar,
en samþykki strangar kröfur fyrir
löggilt sjúkranuddnám. Hins vegar
ef menntamálaráðuneytið vill setja
menntunarskilyrði yfir nuddnám,
mun ég fylgja þeim kröfum. Ekki
er trygging fyrir að aukin bókleg fög
tryggi aukna getu nuddara eða nudd-
fræðinga. í nýlegri skýrslu mennta-
málaráðuneytis er rætt um að auka
gildi starfsmenntunar í hlutfalli við
bókleg fög. Ég fagna því.
Sami aðili getur gegnt mörgum
embættum. Sem dæmi er forsætis-
ráðherra jafnframt formaður Sjálf-
stæðisflokksins og fyrsti þingmaður
Reykvíkinga. Guðjón Magnússon,
staðgengill ráðuneytisstjóra heil-
brigðisráðuneytis er jafnframt for-
maður Rauða krossins. Eitt skiptið
þurfti hann að svara fyrir ásökun
ráðherra síns eigin ráðuneytis gagn-
vart Rauða krossinum og hafði þá
að orði að í litlu þjóðfélagi þurfi oft
að skipta um hatta eftir málefnum.
Því get ég verið kennari, skólastjóri
og formaður í senn.
Sem sagt: Skólinn er 100% lögleg-
ur, eins og hann hefur alltaf verið.
Þeir sem útskrifast geta starfað sjálf-
stætt að námi loknu. Nú þegar er
komin reynsla á það með þá sem
hafa útskrifast héðan á undanfömum
áram. Ég veit ekki til þess að nokk-
ur hafi sett þeim stólinn fyrir dyrn-
ar. Með því geta þeir þjónað lands-
mönnum til góða. Með þvi get ég
haldið áfram að skapa ný atvinnu-
tækifæri, mitt í áhyggjum þjóðarinn-
ar af atvinnuleysi og legg þannig
fram minn skerf til lausna. Aukin
menntun og aukin heilsa era visir
lyklar til framfara. Megi svo vera.
Eg þakka.
RAFN GEIRDAL,
Smiðshöfða 10,
Reykjavík.
VELVAKANDI
GOÐ MESSA
MIG langaði að þakka fyrir
sérstaklega góða messu á veg-
um Biblíufélagsins sem flutt var
í Ríkisútvarpinu sl. sunnudag.
Ræða sr. Sigurðar Pálssonar
var alveg frábær og bænirnar
mjög fallegar og viðeigandi.
Messan í heild var falleg og
skildi mikið eftir.
Auður Guðjónsdóttir
ENGA ÞJÓÐAR-
ATKVÆÐA-
GREIÐSLU
ÉG vil leyfa mér að mótmæla
því aðkasti í orðum og skrifum
sem forseti vor, frú Vigdís
Finnbogadóttir, hefur mátt
sæta vegna undirskriftar EES-
samningsins. Fólk virðist
gleyma hvað þessi kona, móðir
lands og þjóðar, hefur afrekað
gegnum sitt forsetaembætti.
Hún hefur verið andlit okkar
allra, bæði inn á við og út á við.
Hvað hefur þjóð að gera með
þjóðaratkvæði, fólk sem margt
hvert hefur ekkert lesið í þess-
um fimm eða tíu þúsund blaðs-
íðna doðranti? Persónulega segi
ég fyrr minn part í þjóðarsál-
inni: Á ég að segja nei við ein-
hveiju sem ég hef ekki lesið? Á
ég og mínir líkar, sem mörg
hver fylgjumst ekki með í því
sem er að gerast í heiminum í
dag, að ráða? Stilla bara upp
mótmælaspjöldum mót ein-
hveiju í dag, sem kannski er
breytt á morgun? Eru þetta
hinir ekta föðurland^vinir?
„Staðreyndir" breytast frá degi
til dags.
Guðrún Jakobsdóttir
TAPAÐ/FUNDH)
Hringar töpuðust
NOKKRIR hringir í rauðri
taubuddu töpuðust fyrir u.þ.b.
þremur vikum. Mögulegir staðir:
Laugarvatn, Þorlákshöfn eða
einhvers staðar í Reykjavík.
Hringarnir hafa mikið tilfinn-
ingalegt gildi fyrir eigandann
en eru ekki mjög verðmætir.
Finnandi vinsamlega hringi í
síma 615763.
Skólataska hvarf úr bU
SÁ sem tók svörtu skólatöskuna
mína úr gráa Lancernum sl.
sunnudagskvöld er vinsamlegast
beðinn að vera svo góður að
skila henni, a.m.k. bókunum, í
pósthólf 220, Pósthússtræti 2.
Ef einhver hefur fundið hana
era upplýsingar vel þegnar í
síma 624662.
Svart vindlingaveski
SVART vindlingaveski sem inni-
hélt 5 gullhringi tapaðist í Land-
spítalanum sl. miðvikudag, hinn
10. febrúar. Skilvís finnandi vin-
samlega hafi samband í síma
678019.
Seðlaveski glataðist
SVART seðlaveski tapaðist
föstudaginn 12. febrúar sl.
Mögulegir staðir: Domus Medica
eða þar fyrir utan, í leigubíl frá
BSR eða einhvers staðar í Dal-
seli í Breiðholti. Finnandi vin-
samlega hafi samband við Mörtu
Loftsdóttur vs. 691179, hs.
78860.
GÆLUDÝR
Köttur i óskilum
Á TÓMASARHAGA 24 er í
óskilum fressköttur. Hann er
dökkbrúnn að lit með ljósar
rákir, ljósa fætur og hvita höku.
Upplýsingar í síma 26043.
HEIMILISIÐNAÐARSKÓLINN
Laufásvegi 2 - simi 17800
Körfugerd
L .
Kennari: Margrét Guðnadóttir.
25. feb. - 18. mars, fimmtudaga kl. 20-23.
Skráning fer fram á skrifstofu skólans mánudaga
- fimmtudaga kl. 14-16 í síma 17800.
'V
0
. J
Sparið tíma, fyrirhöfn og fjórmuni
Viljið þið láta kanna fyrir ykkur hvort framleiðsluvara ykkar
hefur markaðsmöguleika eða viljið þið láta leita að vöru fyrir
ykkur í Hong Kong eða Kína? íslendingur og þrir Kínverjar eru
reiðubúnir að liðsinna ykkur í öllu sem lýtur að markaðskönnun-
um, vöruleit og öflun viðskiptasambanda.
Fyllsta trúnaði heitið. Hafið samband við:
N. ALFREDS (H.K.) LTD.,
733 STAR HOUSE, 3 SALISBURY ROAD,
TSINSHATSUI, KOWLOON,
HONG KONG.
SÍMI: 90-852-375 3373.
MYNDSENDIR: 90-852-3759176.
EGIA
-röð ogregla
Margir litir margar stærðir.
Þessi vinsælu bréfabindi fóst í öllum
helstu bókaverslunum landsins.
Múlalundur
Vinnustofa SÍBS
Símar: 628450 688420 688459
Fax 28819
HEFUR ÞIG DREYMT UM AÐ
EIGNAST Miele ÞVOTTAVÉL?
MIELE W701: VINDUHRAÐI600-1200 SN„
MIELEGÆÐI.
'-fyv.T’
TILBOÐSVERÐ: 99.108,- KR.
VEN JULEGT VERÐ: 117.
Tilboðið gildir
W W Jóhann
Opnunartími
Lokað á
*Verð miðast við
sunimhokí; \\ •
Mmmmnmmi