Morgunblaðið - 17.02.1993, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRÚAR 1993
Deilt í borgarráði um Hótel Borg
Tómas fær við-
bótar veðleyfi
BORGARRÁÐ samþykkti í gær að verða við beiðni Tómasar A.
Tómassonar, veitingamanns á Hótel Borg, um að hann fái veð-
leyfi fyrir 20 milljóna króna veðsetningu á hótelinu. Erindi Tómas-
ar var samþykkt með þremur atkvæðum gegn einu í borgarráði
eftir nokkur orðaskipti.
Ástæðan fyrir beiðni Tómasar er
„að kostnaður við að koma eigninni
og búnaði hennar í viðunandi lag
hefur reynzt verulega hærri en áætl-
anir gerðu ráð fyrir,“ eins og segir
í bréfi hans til borgarstjóra. „Hefur
nú verið lagt í kostnað við endumýj-
un og endurbætur á eigninni og bún-
aði hennar, sem svarar um það bil
80.000.000 kr. (þar af lausabúnaður
kr. 35.000.000) og má ætia að verð-
mæti eignarinnar og veðhæfni hafí
hækkað um sömu fjárhæð."
Tillögu vísað frá
Reykjavíkurborg seldi Tómasi
Hótel Borg á síðasta ári fyrir 172
milljónir króna. í nóvember síðast-
liðnum veitti borgarráð honum veð-
leyfi fyrir 15 milljónum króna. Á
borgarráðsfundinum í gær lagði Júl-
íus Hafstein, Sjálfstæðisflokki, til að
staða Hótels Borgar yrði skoðuð
frekar, tii að meta áhættu borgarinn-
ar af veitingu frekari veðheimilda.
Tiilögu Júlíusar var vísað frá.
Þrír aðrir borgarfulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins, þau Vilhjálmur Þ.
yilhjálmsson, Anna K. Jónsdóttir og
Árni Sigfússons lýstu sig hlynnt er-
jndi Tómasar. Olína Þorvarðardóttir,
fuiltrúi Nýs vettvangs, lagðist gegn
veitingu veðleyfísins. Sigrún Magn-
úsdóttir, fulltrúi Framsóknarflokks,
og Guðrún Ögmundsdóttir, fulltrúi
Kvennalistans, lögðust ekki gegn
veðleyfinu.
Morgunblaðið/Sverrir
Númeraplötur í hrúgum
LÖGREGLAN hóf í vikunni aðgerðir gegn þeim
bifreiðaeigendum, sem trössuðu að færa bifreið-
ir sínar til skoðunar á síðasta ári. Frá mánudags-
morgni og fram til kl. 14.30 í gær höfðu númer-
in verið klippt af 160 bifreiðum. Það var því
nóg að gera hjá Sævari Gunnarssyni aðalvarð-
stjóra og Árna Friðleifssyni lögregluþjóni, þegar
þeir flokkuðu númerin og komu þeim til Bifreiða-
skoðunar íslands. Þar eru þau sett á bifreiðim-
ar að nýju um leið og þær eru skoðaðar.
VEÐUR
VEÐURHORFUR I DAG, 17. FEBRUAR
YFIRLIT: Búist er viö stormi á norðurdjúpi, suðurdjúpi og suðvestur-
djúpi. Suðvestur af Bretlandseyjum er 1045 mb hæð og 1028 mb hæð
yfir Grænlandi. Austur við Noreg er 1002ja mb lægð á leið austur en
vaxandi lægð á Grænlandshafi mun hreyfast norðaustur.
SPÁ: Vaxandi suðlæg átt, allhvasst um sunnan- og vestanvert landið
síðdegis. Rigning um mestallt land, einkum þó sunnanlands og vestan.
Talsvert hlýnar í bili.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR FIMMTUDAG: Breytileg átt (fyrstu en síðan vaxandi norðan-
og norðvestan átt. Él víða um land nema suðaustan til. Hitl um og und-
ir frostmarki. ,
HORFUR Á FOSTUDAGr Norðan strekkingur með éljagangi norðan og
norðaustanlands fram eftir degi en annars hægviðri og þurrt. Frost 3 til
10 stig.
HORFUR Á LAUGARDAG: Snýst í hæga suðaustan átt og dregur tals-
vert úr frosti. Snjókoma á víð og dreif.
Nýir veðurfregnatímar: 1.30, 4.30, 7.30, 10.4S, 12.46, 16.30, 19.30,
22.30. Svarsfmi Veðurstofu Islands — Veðurfregnir: 990600.
Heiðskírt
r r r
r r
r r r
Rigning
tik
Léttskýjað
* a *
* /
/ * /
Slydda
Hálfskýjað
* * *
* *
* * *
Snjókoma
*
Skýjað
Alskýjað
V $ V
Skúrir Slydduél Él
Sunnan, 4 vindstig.
Vindörin sýnir vindstefnu
og fjaðrimar vindstyrk,
heil fjöður er 2 vindstig.,
10° Hitastig
v Súld
= Þoka
stig..
FÆRÐA VEGUM: (Kl.17.30fgær)
Vegir á landinu eru víðast færir. Vestanlands er stórum bílum fært um
Mosfellsheiði, en ófært um Bröttubrekku. Austanlands er ófært um
Breiðdalsheiði. Á vestan-, norðan- og austanverðu landinu er talsverð
hálka á vegum, aðallega á heiðum og fjallvegum.
Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í síma 91-631500 og
ígrænnilfnu 99-6315. Vegagerðin.
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
Akureyri
Reykjavfk
hlti veður
1 þokafgrennd
3 þokaígrennd
Bergen 5 rignlng
Helsinki 1 alskýjað
Kaupmannahöfn 4 þokumöða
Narssarssuaq +3 snjókoma
Nuuk +11 snjkoma
Osló 1 skýjað
Stokkhólmur 4 skýjað
Þórshöfn 8 rigning
Algarve 16 léttskýjað
Amsterdam 8 léttskýjað
Barcelona 14 mistur
Berlín 0 þokumóða
Chicago +3 8njókoma
Feneyjar 6 léttskýjað
Frankfurt 0 þokumóða
Glasgow 10 skýjað
Hamborg 4 þokumóða
London 8 skýjað
LosAngeles 12 skýjað
Lúxemborg 0 þokumóða
Madrid 11 heiðskírt
Malaga 15 léttskýjað
Mallorca 16 léttskýjað
Montreal +10 snjóél
NewYork 3 snjókoma
Orlando 14 léttskýjað
París 6 þokumóða
Madeira 18 skýjað
Róm 9 léttskýjað
Vín 0 skýjað
Washlngton 2 rigning
Winnípeg +28 léttskýjsð
/ DAG kl. 12.00
HeímiW: Veöurstofa íslands
/ (Byggt á veðurspó Kl. 16.15 í gær)
Margeir sigraði á alþjóðlegu skákmóti
Mjög sáttur við
taflmennskuna
MARGEIR Petursson, stórmeistari, sigraði á alþjóðlegu skák-
móti í Árhúsum í Danmörku, sem lauk um helgina, en hann
hlaut sjö vinninga af níu mögulegum. Margeir tapaði engri
skák, vann fimm skákir og gerði fjögur jafntefli. „Ég er
mjög sáttur við taflmennskuna. Ég lenti ekki í taphættu í
neinni skák,“ sagði Margeir í
í öðru sæti á mótinu varð stór-
meistarinn Hector frá Svíþjóð með
6,5 vinninga. í þriðja sæti varð Sher
frá Rússlandi með 6 vinninga, í 4.
sæti stórmeistarinn Sax frá Ung-
veijalandi með 5,5 vinninga og í 5.
sæti ungverska stúlkan Sofia Polg-
ar, en hún fékk fímm vinninga. Hún
gerði sér lítið fyrir og vann Hector
og Sax í tveimur síðustu umferðun-
um, þannig að Margeir þurfti aðeins
jafntefli út úr síðustu umferðinni til
samtali við Morgunblaðið.
þess að tryggja sigurinn á mótinu.
Næst á dagskránni hjá Margeiri
er að taka þátt í sterku alþjóðlegu
opnu skákmóti sem haldið er í bæn-
um Cappelle La Grande í Norður-
Frakklandi og hefst á laugardaginn
kemur. Á mótinu tefla tugir stór-
meistara og auk Margeirs hefur fjór-
um íslenskum skákmönnum af yngri
kynslóðrnni verið boðin þáttaka.
Tefldar verða níu umferðir á mótinu.
Borgin leigir Reið-
höllina til áramóta
BORGARRAÐ samþykkti á fundi í gær að heimila íþrótta- og tóm-
stundaráði borgarinnar að semja við Stofnlánadeild landbúnaðarins
um að taka Reiðhöllina í Víðidal á leigu til næstu áramóta.
ITR hefur haft starfsemi í
Reiðhöllinni og meðal annars
komið nálægt rekstri reiðskóla.
Gert er ráð fyrir að slíkri starf-
semi verði haldið áfram og einn-
ig námskeiðum fyrir tómstunda-
starf í skólum. Þá er rætt um
möguleika á námskeiðahaldi fyr-
ir fatlaða, starfsemi fyrir aldr-
aða, sýningar, ýmsa starfsemi á
vegum hestamanna, tónleika og
sýningar.
Stofnlánadeildin eignaðist
Reiðhöllina á nauðungaruppboði
árið 1990 og hefur síðan reynt
að selja húsið. Rætt er um að það
myndi kosta 100 milljónir króna.
Ólína Þorvarðardóttir, borgar-
fulltrúi Nýs vettvangs, lagði til á
borgarráðsfundinum að kannað-
ir yrðu möguleikar á að Reykja-
víkurborg keypti Reiðhöllina.
Yfirlýsing
í febrúarhefti tímaritsins
Mannlífs, árg. 1993, birtist viðtal
við bróður okkar Sigurð Þór Guð-
jönsson, sem ber þar föður okkar
grófum ásökunum um kynferðis-
misnotkun. Þeir atburðir eiga að
hafa átt sér stað allt til 15 ára
aldurs Sigurðar, en þessu man
hann fyrst eftir við dáleiðslu 30
árum síðar.
Faðir okkar sem nú er níræður
hefur staðfastlega neitað þessu.
Við dáleiðsluna hefur Sigurður
einnig fyrst munað eftir fjölmörg-
um öðrum atburðum sem að
nokkru er getið í viðtalinu. Ætt-
ingjar hans eiga oftast að hafa
verið þátttakendur eða vitni að
þeim atburðum. Þeir kannast ekki
við þá.
Ættingjar Sigurðar Þórs Guð-
jónssonar geta því ekki staðfest
nokkurt það atvik sem hann segir
frá í umræddu viðtali.
Birgir Guðjónsson,
Helga Guðjónsdóttir,
Ingvi Þór Guðjónsson.
Aths. ritstj.: Með birtingu þessar-
ar yfirlýsingar er umræðu um
þetta mál lokið hér í blaðinu.